Morgunblaðið - 30.05.2007, Síða 44

Morgunblaðið - 30.05.2007, Síða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ DAGUR VONAR Lau 2/6 kl. 20 Fös 8/6 kl. 20 Ekki er hleypt inní salinn eftir að sýning er hafin Síðustu sýningar í vor SÖNGLEIKURINN GRETTIR Fim 31/5 kl. 20 Sýningar hefjast að nýju í september LÍK Í ÓSKILUM Þri 5/6 kl. 20 FORS. Fim 7/6 kl. 20 FORS. Fös 8/6 kl. 20 FORS. Lau 9/6 kl. 20 FORS. Miðaverð 1.500 DANSLEIKHÚSSAMKEPPNIN 25 TÍMAR Fim 7/6 FORS. Miðaverð 1.500 Fös 8/6 kl. 20 „ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“ GRETTIR LADDI 6-TUGUR Í kvöld kl. 20 UPPS. Fös 1/6 kl. 20 UPPS. Lau 2/6 kl. 20 UPPS. Lau 2/6 kl. 22:30 UPPS. Sun 3/6 kl. 14 UPPS. Sun 3/6 kl. 20 UPPS. Mán 4/6 kl. 20 UPPS. Mið 20/6 kl. 20 UPPS. Fim 21/6 kl. 20 SÖNGLEIKURINN ÁST Í samstarfi við Vesturport Fim 31/5 kl. 20 UPPS. Fös 1/6 kl. 20 UPPS. Sun 3/6 kl. 20 Fim 7/6 kl. 20 Lau 9/6 kl. 20 Fös 15/6 kl. 20 Síðustu sýningar í vor BELGÍSKA KONGÓ Í kvöld kl. 20 UPPS. Mið 6/6 kl. 20 UPPS. Sun 10/6 kl. 20 Mið 13/6 kl. 20 AUKAS. Fim 14/6 kl. 20 Aðeins þessar sýningar Miðasala 568 8000 www.borgarleikhús.is grettir.blog. is 1/6 UPPSELT, 2/6 ÖRFÁ SÆTI LAUS, 7/6 UPPSELT. SÍÐUSTU SÝNINGAR! Sýningar hefjast kl. 20.00 Ósóttar pantanir seldar daglega. ATVINNULEIKHÚS Í BORGARNESI MR. SKALLAGRIMSSON - höf. og leikari Benedikt Erlingsson fö. 1/6 uppselt, lau. 2/6 uppselt, lau 9/6. kl. 15 uppselt, lau 9/6 kl. 20 örfá sæti, fö 15/6 kl. 20, mi 20/6 kl 20, fö 29/6 kl. 20 MÝRAMAÐURINN - höf. og leikari Gísli Einarsson fi. 7/6, fö 8/6 örfá sæti, fi 14/6 - síðasta sýning Leikhústilboð í mat: Súpa, fiskréttur og kaffi kr. 2600 Súpa, kjötréttur og kaffi kr. 3200 Miða- og borðapantanir í síma 437 1600 Nánari upplýsinar www.landnamssetur.is SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.ISFyrsti konsert er frír Skráning og upplýsingar á www.sinfonia.is FIMMTUDAGINN 31. MAÍ KL. 19.30 Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba Einleikari ::: Sir Donald McIntyre rauð tónleikaröð í háskólabíói Svanasöngur Sjostakovítsj í Sunnusal Hótels Sögu kl. 17.30. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum mun Karólína Eiríksdóttir kynna efnisskrá kvöldsins. Boðið verður upp á súpu og kaffi. Aðgangseyrir er 1.200 kr. aðalfundur vinafélagsins Þórður Magnússon ::: Það mótlæti þankinn ber Richard Wagner ::: Valkyrjurnar, Kveðja Óðins Dímítrí Sjostakovítsj ::: Sinfónía nr. 15 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is MIKIÐ hefur verið skrifað um mál- efni Tónlist.is að undanförnu og í tengslum við það um hagsmuna- samtök tónlistarmanna, einkanlega STEF, en einnig hefur Samtón borið á góma, sem er sameiginlegur vett- vangur tónlistarrétthafa. Umfang málsins virðist nokkurt og ýmislegt er snúið, laga- og réttindaflækjur hafa gert vart við sig og menn ekki alltaf sammála um túlkanir. Þá hefur komið fyrir að staðhæfingar stangast hreinlega á. Morgunblaðinu hafa þannig borist fjölmörg tölvubréf þar sem tónlist- armenn, sem eru útgefendur að eigin efni, staðhæfa að efni frá þeim sé til sölu á Tónlist.is án þess að samn- ingar um það liggi fyrir. Slíkt á þó ekki að vera hægt, samkvæmt Eiríki Tómassyni, framkvæmdastjóra STEF og stjórnarmanni í Samtóni. Enginn samningur Kristján Már Ólafsson var með- limur í hljómsveitinni Útópíu sem gaf sjálf út plötuna Efnasambönd árið 2000. Platan er inni á tonlist.is til sölu og enginn samningur liggur fyrir um sölu á henni. „Ég verð að viðurkenna það að ég vissi ekki hvaða skilmálum þetta var bundið þegar platan var keyrð inn á sínum tíma,“ segir Kristján. „Í ein- hverjum barnaskap taldi ég að STEF kæmi þessu bara til skila. En svo fóru að renna á mig tvær grímur þegar ég fór að heyra utan að mér að enginn fengi greitt fyrir sölu. Ekki það að ég hafi búist við miklum pen- ingum fyrir þessa tilteknu plötu.“ Kristján segir að platan hafi nú hvorki farið víða né hátt og meðlimir hálfpartinn fegnir að hún væri inni einhvers staðar. „Svona ef einhver dytti inn á hana. En maður myndi svosem alveg þiggja krónurnar sem kæmu fyrir sölu ef einhver væri. Maður hreinlega treysti því að STEF sæi um þetta. Ég er ekki í öngum mín- um vegna þessa en samt sem áður, ef maður skoðar þetta í heild sinni, þá finnst manni að þessar fáeinu krónur sem koma inn eigi að fara til tónlistarmannanna sem eru endalaust að borga með sér. Hugmyndin að Tónlist.is er frábær en það þarf greinilega að huga að ýmsum smáatriðum – og jafnvel að- alatriðum – sem snúa að fram- kvæmdum við þetta fyrirbæri.“ Dugleysið algert „Ég fékk bréf í morgun (gærmorg- un) frá Tónlist.is þar sem þeir lofa bót og betrun,“ segir Heimir Eyvind- arson. „Það er komin sæmileg sátt og þeir eru að koma einhverjum tölum til okkar.“ Heimir hefur engu að síð- ur farið fram á að lög sveitarinnar verði tekin út af vefnum, og að minnsta kosti sé lokað fyrir niðurhal þótt streymi sé haldið. „Ég var spurður í gær hvort ég myndi taka plöturnar mínar úr sölu í lítilli plötuverslun vegna þess að hún seldi svo lítið. Ég svaraði því neit- andi, en ég kvaðst hins vegar nokkuð viss um að ég myndi taka vörur mín- ar úr sölu í stórri plötubúð sem byði vörurnar á spottprís – gæfi þær stundum – og borgaði mér ekki krónu fyrir.“ Heimir segir að samningar liggi fyrir um allt það efni sem hann og fé- lagar hans eiga inni á Tónlist.is. „Ég fylgdist af áhuga með því þeg- ar Tónlist.is var komið á laggirnar á sínum tíma og við gerðum þegar samning um sölu. En að uppgjör skuli aldrei hafa borist til okkar þessi Gunnar Guðmundsson Hver þorir í tón- listarfrumskóginn?  Hljómplötur seldar í heimildarleysi á Tónlist.is.  Kristján Már Ólafsson er einn þeirra sem eiga plötu inni á Tónlist.is án þess að sölusamningur liggi fyrir.  Heimir Eyvindarson, liðsmaður Á móti sól, vill að tónlistarmenn tali sig saman um réttindi sín.  Mál sem þarf að leysa segir Gunnar Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Sambands flytjenda og hljómplötuframleiðenda (SFH) og stjórnarmaður í Samtóni. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn MANNLEG reisn er manni ofarlega í huga eftir að hafa horft á söguna um inúítadrenginn Minik og örlög hans í byrjun síðustu aldar. Banda- ríski pólfarinn Robert E . Peary flutti Minik og fimm aðra inúíta til Náttúrugripasafnsins í New York þegar drengurinn var sex ára. Til eru ýmis gögn um dvöl Miniks þar en vandi heimildagerðarmanna er hvernig á að nálgast efnið? Hvernig á að segja söguna? Margt hefur breyst í hugmyndaheimi Vest- urlandabúa um siðmenningu og mannfræði. Hvernig „hvíti mað- urinn“ leyfði sér að nálgast menn og konur sem hann þekkti ekki vekur mjög svo blendnar tilfinningar í dag. Sögumaður okkar í Fórn- arlömbum pólfaranna er Robert E. Peary II, grænlenskt barnabarn gamla landkönnuðarins, en karlinn var kvæntur í Bandaríkjunum en átti líka konu á Grænlandi í þau 20 ár sem hann dvaldi þar. Robert skapar þannig hina mannlegu teng- ingu milli fortíðar og nútíðar þar sem hann reynir að komast að því hvað er satt og hvað er logið í gömlu sögunum um Minik. Þetta er gríp- andi saga. Hún fjallar um mjög um- deild málefni og sumt í henni í raun ekki fyrir viðkvæmar sálir en fram- setningin er blátt áfram og hógvær. Það eina sem út á myndina er hægt að setja er að stundum var farið hratt yfir sögu og þarna voru fjöl- margar hliðarsögur sem örugglega hefði verið gaman að kafa dýpra of- an í en það bíður kannski betri tíma. Fórnarlömb pólfaranna „Þetta er grípandi saga.“ Saga sögð Anna Sveinbjarnardóttir KVIKMYNDIR Tjarnarbíó – Heimilda- og stutt- myndahátíð í Reykjavík Leikstjóri: Staffan Julén. Sögumaður: Ro- bert E. Peary II. Framleiðendur: Michael Haslund-Christensen, Jesper Morthorst. Klipparar: Clas Lindberg, Staffan Julén, Ylva Fabricius. Kvikmyndatökumenn: Ca- milla Hjelm Knudsen, Torben Forsberg. Tónskáld: Frithjof Toksvig. Hljóð: Jens Bönding. 80 mín. Danmörk. 2006 Fórnarlömb pólfaranna – The Prize of the Pole 

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.