Morgunblaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ WWW.SAMBIO.IS PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 6:15 - 8 - 10 - 10:20 B.i. 10 ára DIGITAL GOAL 2 kl. 5:50 - 8 B.i. 7 ára ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 5:50 LEYFÐ DIGITAL 3D / KRINGLUNNI PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 4:30 - 6 - 8 - 10 B.i.10.ára PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 VIP kl. 4:30 - 8 ZODIAC kl. 6 - 9 B.i.16.ára THE REAPING kl. 8 - 10:10 B.i.16.ára SPIDER MAN 3 kl. 5 B.i.10.ára BLADES OF GLORY kl. 5:50 - 8 B.i.12.ára ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 3:50 LEYFÐ / ÁLFABAKKA VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA Mesta ævintýri fyrr og síðar... ...byrjar við hjara veraldar „Besta Pirates myndin í röðinni! Maður einfaldlega gæti ekki búist við meira tilvalinni afþreyingarmynd á sumartíma.“ tv - kvikmyndir.is „SANNUR SUMAR- SMELLUR... FINASTA AFÞREYINGARMYND“ Trausti S. - BLAÐIÐ 27.000 manns á 6 dögum Stærsta 5 daga sumar opnun allra tíma á íslandi MYND OG HLJÓÐ Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. The 6th Target – James Patterson and Maxine Paetro 2. Bad Luck and Trouble – Lee Child 3. Invisible Prey – John Sandford 4. The Yiddish Policemen’s Union – Michael Chabon 5. Simple Genius – David Baldacci 6. The Children of Húrin – J. R. R. Tolkien 7. Pearl Harbor – Newt Gingrich and William R. Forstchen 8. Rant – Chuck Palahniuk 9. The Woods – Harlan Coben 10. Nineteen Minutes – Jodi Picoult NY Times 1. Digging to America – Anne Tyler 2. On Chesil Beach – Ian McEwan 3. Suite Francaise – Irene Nemirovsky, et al. 4. Wicked! – Jilly Cooper 5. Love Over Scotland – Alexander McCall Smith 6. A Short History of Tractors in Ukrainia – Marina Lewycka 7. The Boleyn Inheritance – Philippa Gregory 8. Half of a Yellow Sun – Chimamanda Ngozi Adichie 9. A Thousand Splendid Suns – Khaled Hosseini 10. Restless – William Boyd Waterstone’s 1. The Secret – Rhonda Byrne 2. Insight Concise – World Atlas Insight Guides 3. Angels Fall – Nora Roberts 4. The Thirteenth Tale – Diane Setterfield 5. The Naming of the Dead – Ian Rankin 6. Born in Death – J.D. Robb 7. 5’th Horseman – James Patterson 8. In Focus: Nat. Geographic Greatest Photographs – Bendavid, Abell & Johns 9. Fragile Things – Neil Gaiman 10. Icepick: Icelandic Street Art – Þórdís Claessen Eymundsson MATT Haig vakti talsverða athygli fyrir fyrstu bók sína, The Last Fa- mily in England, sem skrifuð er upp úr leikriti Shakespeares um Hinrik IV. Hann er við sama heygarðshornið í þessari bók, en að þessu sinni tek- ur hann fyrir Hamlet. Bókin segir nefnilega frá ungum pilti í Newark í Eng- landi sem faðir hans ferst í bíl- slysi. Föðurbróðir hans tekur þá pilt- inn og móður hans að sér, nokkuð sem strákur kann ekki að meta, ekki síst þegar draugur föður hans birtist og krefst þess að drengurinn hefni hans, enda hafi hann verið myrtur. Víst er þetta klisja og meira að segja klassísk klisja, en Haig vinnur vel úr henni, færir hana nær okkur í tíma og í stað þess að vera konungur Danmerkur á pabbi hins unga Ham- lets pöbb. Piltur, sem heitir reyndar Philip Noble, er reyndar talsvert yngri en Hamlet, en á ekki síður erf- itt með að koma sér að verki. Sum- part er það vegna þess að hann er ekki alveg viss um að draugurinn fað- ir hans sé raunverulegur, og sumpart vegna þess að hann á glímu við sam- visku sína. Þegar kærasta blandast í málið verður málið enn snúnara en á endanum hrindir hann af stað at- burðarás sen getur ekki nema endað á einn veg. Dead Fathers Club minnir um margt á bók Marks Haddons um ein- hverfan pilt, Furðulegt háttalag hunds um nótt, stíllinn áþekkur en undiraldan þó myrkari og bókin einn- ig bráðfyndin á köflum. Klassísk klisja Dead Fathers Club eftir Matt Haig. Vin- tage gefur út 2007. Árni Matthíasson Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is SÚ VAR tíðin að breskar spennu- sögur voru nánast allsráðandi á markaði, í það minnsta hér á landi. Þær voru allar áþekkar, persónu- sköpun í lágmarki, engar sál- arflækjur að þvælast fyrir sögu- þræðinum eins og nú er alsiða, og byggðust á spennu að segja frá fyrstu síðu með hæfilega ótrúlegum söguþræði – einskonar æv- intýrabækur fyrir ungmenni og full- orðna svosem líka. Bókafélagið Ugla hefur tekið upp á að gefa út á kilju margar af þessum bókum, sem sumar hafa verið ófáan- legar á íslensku árum saman. Fyrsti skammtur kom út á dögunum með bókum eftir Gavin Lyall og Jack Higgins. Fyrrverandi flugmaður Gavin Lyall nýtti sér það vel í rit- störfum sínum að hafa verið í breska flughernum, en reynsla hans og þekking sem blaðamaður á BBC og síðar sem flugsérfræðingur Sunday Times kom einnig að góðum notum. Fyrsta spennubók hans fjallaði og um flug og flestar þær bækur sem á eftir komu. Þær voru áþekkar að inntaki, höfuðpersónan yfirleitt hetja úr flughernum, hokin af reynslu, sem lendir í ævintýrum í háloftunum eða skammt frá jörðu. Í frægustu bók Lyalls, sem var metsölubók víða um heim, þar á meðal hér á landi, var eltingaleik- urinn og hasarinn þó á jörðu niðri. Sú kom út 1965 og heitir Midnight Plus One / Mínútu eftir miðnætti og segir frá stríðshetju sem tekur að sér að koma kaupsýslumanni á fund í Liechtenstein. Það er þó hægara sagt en gert því kaupsýslumaðurinn er með viðskiptafélaga sína á hæl- unum og að auki eftirlýstur af lög- reglunni. Mínútu eftir miðnætti kom út á ís- lensku fyrir rúmum þrjátíu árum og naut þá mikillar hylli, enda skrifuð af mikilli íþrótt. Til stóð að kvikmynda bókina, enda keypti Steve McQueen réttinn að henni en hann féll frá áður en honum tókst að koma því í verk. Eftir að hafa slegið svo rækilega í gegn á sjöunda áratugnum skrifaði Lyall lítið á þeim áttunda, glímdi við heiftarlega ritstíflu, en náði sér svo á strik og var vinsæll allt þar til kalda stríðinu lauk, en þá datt botninn úr njósnabókabransanum sem hann og fleiri, til að mynda John Le Carré, höfðu notið góðs af árum saman. Lyall lést í janúar 2003. Tilræði við Churchill Jack Higgins er eitt af fjölmörg- um dulnefnum rithöfundarins Har- rys Pattersons sem nýtti sér reynslu úr breska hernum til að skrifa spennubækur, en hans þekktasta verk er The Eagle Has Landed / Örninn er sestur sem kom út 1975 og á íslensku ári síðar. Sú bók, sem seg- ir frá tilraun SS-sveita Þjóðverja til að ræna Winston Churchill, naut fá- dæma vinsælda og talið að af henni hafi selst 26 milljónir eintaka. Líkt og Lyall skrifaði Higgins eft- ir formúlu sem reyndist honum vel, hetjurnar hörkutól, andstæðingar þeirra hreinræktaðir óþokkar og bækurnar samfelld spenna út í gegn. Eftir að Patterson sló í gegn sem Jack Higgins hefur hann haldið sig við það dulnefni að mestu en fram að því hafði hann notað nöfnin James Graham, Martin Fallon og Hugh Marlowe og gaf stundum út þrjár til fjórar bækur á ári. The Eagle Has Landed var kvik- mynduð 1976 með Michael Caine, Donald Sutherland, Robert Duvall, Donald Pleasence, Anthony Quayle og Larry Hagman í aðalhlutverki. Bókafélagið Ugla gefur út Örninn er sestur og eins Vondur fé- lagsskapur. Forvitnilegar bækur: Breskar spennusögur ganga aftur Spenna rifjuð upp HETJA skáldsögunnar Icelander er Hetjan okkar, hún er aldrei kölluð annað, dóttir glæpa- og mann- fræðingsins Emily Bean-Ymirson, sem leysti fjölda dularfullra sakamála á sinni tíð með Jóni manni sín- um, en oftar en ekki voru þau að glíma við þursinn Surt. (Þess má geta að rithöfundurinn Magnús Val- ison skrifaði skáldsögu í tólf bindum upp úr dag- bókum hennar. Sú skáldsaga heitir einfaldlega Endurminningar Emily Bean.) Bókin gerist á Íslandi, eða réttara sagt einskonar Íslandi, um miðjan vetur og þó Hetjan okkar hafi ævinlega forðast að feta í fótspor móður sinnar neyðist hún til þess að taka að sér rannsókn á glæp þegar besta vinkona hennar er myrt. Það tekur lesandann smátíma að komast inn í bókina, enda er söguþráðurinn snúinn, sögumenn margir með mjög ólíka sýnt á atburðarásina og bera mismikla virðingu fyrir sannleikanum. Smám sam- an renna þræðirnir saman í magnaðan hnút sem heldur mönnum í spennu fram á síðustu síður, eins og góð spennusaga á að vera. Íslendingar hafa sér- staka skemmtun af að lesa bókina, enda hrærir Long í henni saman svipmyndum af ímynduðu Ís- landi saman við mjög skælda gerð af norrænni go- ðatrú. Segir sitt að undir Íslandi er Vanaheimur þar sem Vanir búa, sigruð þjóð, en framfleyta sér með ferðaþjónustu meðal annars. Meðal þeirra starfar einnig leyniregla ofurmenna, Refurserkir, sem er hugsanlega flækt í málið (sjálfstæðishreyfing Vana) og svo er það spurningin um Surt – var hann end- anlega sigraður eða hvað? Frábærlega skemmtileg og snúin bók – ef eitt- hvað er að henni að finna þá er hún full stutt (250 síður), til að gera öllum þeim hugmyndum skil sem viðraðar eru í henni. Einskonar Íslendingasaga Icelander eftir Dustin Long. McSweeney’s gefur út 2006. Kilja kom út 2007. Árni Matthíasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.