Morgunblaðið - 30.05.2007, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 49
WWW.SAMBIO.IS
eee
L.I.B, Topp5.is
eee
FGG - FBL
eee
T.V. - kvikmyndir.is
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 6
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára
eee
S.V. - MBLA.F.B - Blaðið
HILARY
SWANK
SUMT ER EKKI HÆGT AÐ ÚTSKÝRA MEÐ VÍSINDUMHÖRKUSPENNANDI MYND BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM
FRÁ D.FINCHER LEIKSTJÓRA
SE7EN & FIGHT CLUB.
eeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
B.B.A. PANAMA.IS
eeee
H.J. MBL.
eeee
F.G.G. FBL.
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Á SAMbio.is
30.000 MANNS!
FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS
26.05.2007
2 13 16 29 35
0 2 7 9 3
1 0 7 1 3
25
23.05.2007
17 18 27 39 41 42
2324 30
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA gekk bara vonum framar,
virkilega vel,“ segir Garðar Thor
Cortes, sem söng breska þjóðsönginn
fyrir leik Derby County og WBA á
Wembley-leikvanginum í Lundúnum
á mánudaginn. Um var að ræða
hreinan úrslitaleik um hvort liðið
kæmist upp í ensku úrvalsdeildina í
knattspyrnu og voru gríðarlegir fjár-
munir í húfi fyrir liðin. Áhugi á leikn-
um var eftir því og voru áhorfendur á
Wembley um 80.000, sem er lang-
mesti fjöldi sem Garðar Thor hefur
sungið fyrir. „Ég söng á Upton Park,
heimavelli West Ham, um daginn.
Þar voru 35.000 manns og það var
metið þar til á mánudaginn,“ segir
hann. „Þetta var alveg magnað. Það
var gaman að koma á Wembley og
ganga út á völl þegar allir voru komn-
ir. Lætin voru alveg ótrúleg,“ segir
Garðar, en áhorfendur tóku vel undir
með honum. „Það syngja alltaf allir
með þjóðsöngnum, alveg á fullu.“
Aðspurður segir Garðar að bresku
fótboltaáhugamennirnir hafi tekið
mjög vel á móti sér, auk þess sem
hann hafi fengið góð viðbrögð eftir
flutninginn. „Þetta gekk mjög vel og
ég er ánægður með þetta,“ segir
hann og bætir við að líklega sé um
nokkuð góða auglýsingu að ræða.
„Ætli það ekki, það voru 80.000
manns á vellinum og svo voru ein-
hverjar milljónir sem horfðu á leikinn
í sjónvarpinu. En ég er nú ekkert
mikið að spá í þetta.“
Heldur með Íslendingum
Svo fór að Derby County sigraði
1-0, en markið kom á 62. mínútu.
Garðar missti þó af því. „Ég horfði á
næstum allan fyrri hálfleik en svo
varð ég að fara annað. En ég var með
sæti á besta stað við völlinn, við hlið-
ina á varamannabekkjunum,“ segir
Garðar sem hefur nokkurn áhuga á
enska boltanum, án þess þó að halda
með einu sérstöku liði. „Maður fylgir
svona þeim liðum þar sem Íslending-
arnir eru. Það er innbyggt í mann að
styðja okkar menn. Þegar Eiður
Smári var að spila með Chelsea þá
hélt ég með þeim. Svo þegar Íslend-
ingar eiga West Ham hefur maður
taugar þangað,“ segir Garðar, sem
útilokar því ekki að halda með
Portsmouth, nýju liði Hermanns
Hreiðarssonar, á næstu leiktíð.
Garðar er annars á leið til Birm-
ingham, en þar mun hann halda stóra
tónleika í samstarfi við BBC hinn 13.
júní. Hljómsveitarstjóri á tónleik-
unum verður faðir hans og nafni,
Garðar Cortes.
Fjölmenni Eins og sjá má á myndunum var gríðarlegu fjöldi fólks á vellinum, mesti fjöldi sem Garðar Thor hefur nokkru sinni sungið fyrir.
Mögnuð upplifun og ótrúleg læti
Garðar Thor söng fyrir 80.000 manns á Wembley-leikvanginum í Lundúnum
HR. ÖRLYGI er, að eigin sögn,
megn ánægja að tilkynna end-
urkomu The Rapture til Íslands,
en sveitin lék hér á landi á Ice-
land Airwaves árið 2002.
Nú, fimm árum síðar, mun
sveitin troða upp á skemmtistaðn-
um NASA við Austurvöll þann 26.
júní.
Miðasala er hafin í verslunum
Skífunnar, völdum verslunum BT
og á Midi.is.
Hljómsveitin The Rapture kem-
ur frá New York og er jafnan tal-
in tilheyra hópi upphafsmanna
hinnar svonefndu danspönkbylgju
sem hefur verið áberandi í rokk-
tónlist undanfarin ár.
Miðasala hafin
á The Rapture