Morgunblaðið - 01.06.2007, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 5
HINIR frægu gulu leigubílar New York-
borgar verða orðnir grænir innan fimm ára.
Þó ekki í bókstaflegri merkingu, heldur vist-
vænir. Michael Bloomberg borgarstjóri segir
að það gæti átt eftir að verða öðrum stór-
borgum til eftirbreytni.
Að sögn Bloombergs verða um 1.000 fjöl-
knúnir leigubílar – tvinnbílar sem ganga fyrir
bensíni og rafmagni eftir aðstæðum – komnir
á götuna í október 2008. Í fyllingu tímans, eða
árið 2012, verða allir 13.000 leigubílar borg-
arinnar tvinnbílar.
„Þetta verður stærsti og hreinasti leigubíla-
floti plánetunnar. Og vegna mikillar notkunar
mun breytingin jafngilda því að 30.000 einka-
bílar væru teknir úr umferð af götum borg-
arinnar,“ sagði Bloomberg í byrjun vikunnar,
er hann kynnti áformin um „grænu“ leigubílana.
Nú þegar eru 375 tvinnbílar í leigubílaflota
New York eða fleiri en í nokkurri annarri borg
Bandaríkjanna. Breytingin hefur í för með sér
að koltvíildi í útblæstri leigubílaflota borg-
arinnar verður 50% minna eftir hálfan áratug en
nú er.
Þótt tvinnbílar séu dýrari en venjulegir bens-
ínbílar segir Bloomberg að leigubílstjórarnir
muni spara rúmlega 10.000 dollara í bensínkaup
og önnur tengd útgjöld. Bloomberg hefur ein-
sett sér að gera New York vistvænni borg en
verið hefur. Fyrr á árinu setti hann borginni það
markmið að minnka útblástur gróðurhúsalofts
um 30% fyrir árið 2030. Breytingin á leigubíla-
flotanum, úr bensínbílum í tvinnbíla, er liður í
því.
Gulir taxar New York verða „grænir“
AP
Gult verður grænt Stefnt er að því að leigubílar í New York verði vistvænir.
Fyrir skemmstu hlutu framleið-
endur Ford verðlaun frá evrópsk-
um samtökum lífmassaiðnaðar
(EUBIA – The European Biomass
Industry Association) fyrir frum-
kvöðlastarf á sviði „flexifuel“ et-
anól-tækni í bílum. Fjölorku et-
anólbílar, eða FFV eins og þeir eru
yfirleitt nefndir (flexible fuel vehic-
les), nota bæði jarðefnaolíu og et-
anól í einum eldsneytistanki. Er þá
mögulegt að keyra á blöndu af jarð-
efnaolíu og etanóli sem er allt að
85% etanól (E85).
Verðlaunaafhendingin var jafn-
framt síðasti dagskrárliður á viku-
langri ráðstefnu EUBIA sem hald-
in var í Berlín. Um 1400
sérfræðingar á sviði orkumála frá
yfir 80 löndum sátu ráðstefnuna og
rökræddu möguleika, kosti og galla
lífrænnar orku í tengslum við bíla-
framleiðslu.
Ford er leiðandi á markaði FFV-
bíla í Evrópu og hefur selt yfir 30
þúsund slíkra bíla frá því að þeir
voru fyrst kynntir á markað árið
2001 í Svíþjóð.
Mestur hluti bílanna hefur selst í
Svíþjóð en auk þess eru tvær FFV
tegundir, Ford Focus and C-MAX
Flexifuel, seldar í tólf Evr-
ópulöndum. Framleiðendur Ford
telja að fleiri lönd munu bætast í
hópinn þar sem eftirspurnin eftir
slíkum vélum mun væntanlega
aukast enn meir, einkum vegna
krafa Evrópusambandsins um
minni koltvísýringsútblástur.
Í kjölfar góðs árangurs í fram-
leiðslu FFV-bíla hyggst Ford fjölga
útfærslum með „flexifuel“-tækni í
Evrópu og bjóða upp á slíkar vélar
í Ford Mondeo, Galaxy and S-MAX
í ársbyrjun 2008.
Umhverfisvænn Ford eru fremstir
í þróun „flexifuel“ etanól bíla.
Etanól
bílar Ford
hljóta við-
urkenningu
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg
N1 er fyrsta fyrirtækið sem býður viðskiptavinum 3 ára
ábyrgð á bílavarahlutum. Með þessu erum við að auka
þjónustu okkar og lýsa yfir trausti á þeim vörum sem við
seljum. Kynntu þér málið á www.n1.is.N1 VERSLANIR WWW.N1.IS
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
FYRSTIR MEÐ
3ÁRA ÁBYRGÐ
N1 býður 3 ára ábyrgð á bílavarahlutum