Morgunblaðið - 01.06.2007, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Jeep Grand Cherokee Limited 5.7L, 1/2006, ek. 31
þús km, ABS, armpúði, dráttarbeisli, hiti í sætum,
leður, rafm. í öllu, krómfelgur, cruise control, gler-
topplúga, minni í sætum, o.m.fl.
Verð aðeins: 4,490 þús TILBOÐ: 3,990,000-
Porsche Cayenne, 4/2005, ek. 37 þús km, Sjálfskiptur,
ABS, aksturstölva, álfelgur, CD, hiti í sætum, leður,
rafm. í öllu, hiti í stýri, hraðnæmt aflstýri, kastarar,
reyklaus, stöðuleikakerfi, Xenon, o.m.m.fl.
Ásett verð 6,490,000- TILBOÐ: 5,990,000-
Daewoo Musso Grand Luxe II 33” breyttur, 9/2001,
ek. 150 þús km, sjálfskiptur, ABS, álfelgur, dráttarbeisli,
kastarar, líknarbelgir, rafm. í rúðum og speglum, reyk-
laus, þakbogar o.fl.
Ásett verð: 1,650 þús TILBOÐ: 1,490 þús
Daewoo Tacuma CDX, 6/2004, ek. 64 þús km, sjálf-
skiptur, ABS, álfelgur, líknarbelgir, rafm. í rúðum og
speglum, þakbogar, fjarstýrðar samlæsingar, ný
tímareim, o.fl.
Ásett verð: 1,190 þús TILBOÐ: 890,000-
Chverolet Lacetti CDX Wagon, 7/2005, ek. 23 þ.km,
beinskiptur, ABS, ASR spólvörn, magasín, kastarar,
rafm. í rúðum og speglum, reyklaus, smurbók, þak-
bogar o.fl.
Ásett verð: 1,550 þús TILBOÐ:1,390,000-
Subaru Impreza 2.0 GX Wagon 4WD, 6/2002, ek. 89
þús km, sjálfskiptur, ABS, dráttarbeisli, CD, kastarar,
rafm. í rúðum og speglum, o.fl
Ásett verð: 1,120 þús TILBOÐ: 960,000-
SsangYong Rexton RX 320, 11/2002, ek. 106 þús
km, sjálfskiptur, ABS, álfelgur, dráttarkúla, hiti í sæt-
um, leður, rafm. í öllu, litað gler, spólvörn, vindskeið
o.fl.
Ásett verð: 1,950 þús TILBOÐ: 1,790,000-
Nissan X-Trail 2000 Sport, 1/2005, ek. 47 þús km,
ABS, álfelgur, dráttarkúla, CD, líknarbelgir, rafm. í
rúðum og speglum, vindskeið, o.fl.
Ásett verð: 2,390 þús. TILBOÐ: 2,090,000-
Hyundai Tucson 2.0 4x4 Diesel, 11/2005, ek. 20 þús,
sjálfskiptur, ABS, álfelgur, dráttarbeisli, CD, kastarar,
leður, fjarstýrðar samlæsingar, þakbogar o.fl.
Ásett verð: 2,990 þús. TILBOÐ: 2,790,000-
Jeep Grand Cherokee 3.0 Limited Diesel, 6/2006,
ek. 23 þús km, sjálfskiptur, ABS, álfelgur, dráttar-
beisli, hiti í sætum, cruise control, filmur, kastarar,
leður, minni í sætum, rafm. í sætum, rúðum og
speglum, reyklaus o.fl. Innfluttur nýr.
Ásett verð: 5,570 þús TILBOÐ: 4.990 þús
Gæðabílar á tilboðsverðum,
allt að 100% lánamöguleikar
B Í L D S H Ö F Ð A 1 0 – S : 5 7 7 2 8 0 0 / 5 8 7 1 0 0 0
SsangYong Chairman CM600S, 1998 módel, sjálfskipt-
ur, ek. 63 þús., ABS, aksturstölva, fjarlægðarskynjarar,
hiti í sætum, rafm. í sætum (framm í og aftur í), rafm. í
stýri og baksýnisspegli, minni í öllu. Cruise Control,
stöðuleikakerfi og spólvörn, aðgerðarstýri, sjónvarp,
leiðsögukerfi, aðgerðarskjár með öllum hugsanlegum
stillingum. Bíll í algerum sérflokki.
Ásett verð: 2,490 þús TILBOÐ 1.990 þús
MMC Pajero GLS 3500 32”, 1/2001, ek. 113 þús.
km, 7 manna, sjálfskiptur, ABS, álfelgur.
Dráttarbeisli, glertopplúga, hiti í sætum,
leður, litað gler, rafm. í öllu o.fl.
Ásett verð: 2,390 þús. TILBOÐ: 1,990,000-
LIÐ Ferrari fór svekkt frá Mónakó-
kappakstrinum, varð að gera sér
þriðja sæti að góðu, rúmlega mínútu
á eftir bílum McLaren sem drottn-
uðu á götum furstadæmisins. For-
stjóri Ferrari, Luca di Monteze-
molo, segir að dæminu verði snúið
við í Kanadakappakstrinum í Mont-
real eftir viku.
„Ferrari fer með sigur af hólmi í
Kanada. Við erum að ná okkur á
strik aftur, við vinnum að því nótt
sem nýtan dag,“ sagði Montezemolo
við ítölsku fréttastofuna ANZA. Og
hann gefur ekki mikið fyrir Mónakó-
kappaksturinn sem honum þótti
snauður að skemmtan. „Mónakó er
brandari, þetta er ekki einu sinni
kappakstur, bara sjónvarpsþáttur,“
sagði hann.
Felipe Massa, sem varð þriðji í
Mónakó, segir að drottnun McLaren
hafi ekki verið vegna yfirburða silf-
urörvanna, heldur vegna lítillar getu
Ferrarifákanna. Hafi sér tekist að
minnka skaðann í keppninni um
heimsmeistaratitil ökuþóra með
þriðja sætinu.
„Schumi-heilkenni“
Massa segir Ferrariliðið hafa ver-
ið allt annað en sátt við getu bíla
sinna í Mónakó, ekki síst þar sem
McLarenbílarnir urðu í tveimur
fyrstu sætum. Fyrir vikið jók enska
liðið forystu sína á Ferrari í keppn-
inni um heimsmeistaratitil bílsmiða í
20 stig, 76:56. Í keppni ökuþóra eru
Fernando Alonso og Lewis Hamil-
ton hjá McLaren efstir og jafnir með
38 stig en Massa er þriðji með 33.
Massa segist bjartsýnn á mögu-
leika sína í keppni ökuþóra. „Útlitið
er enn gott í titilkeppninni. Eftir
fimm mót er ég fimm stigum á eftir
Fernando og Lewis og enn eru 12
mót eftir. Sá munur er ekki mikill og
mér finnst allt vera opið ennþá.
Við þurfum þó að verða á undan
þeim í keppni. Ég hef unnið tvö mót
og Fernando líka, svo stöðugleiki er
það sem skiptir máli héðan í frá og
því mikilvægt að vera alltaf á verð-
launapalli. Slakasti árangur minn í
ár er sjötta sæti en maður verður
alltaf að koma sér meðal þriggja
efstu,“ sagði Massa.
Liðsfélaga hans, Kimi Räikkönen,
hefur gengið illa í tveimur síðustu
mótum. Hafa þýskir og ítalskir fjöl-
miðlar lagt út af því að Michael
Schumacher hafi verið viðstaddur
þau sem ráðgjafi liðsins. Vörpuðu
þeir fram spurningunni hvort Rä-
ikkönen væri haldinn „Schumi-
heilkenni“, þ.e. færi úr sambandi ef
forveri hans í liðinu væri viðstaddur.
Räikkönen viðurkennir að hafa
kastað öllum möguleikum í Mónakó
frá sér með akstursmistökum í tíma-
tökunum. Hann segist vona að allt
snúist til betri vegar í Montreal 10.
júní.
Lofar sigri Ferrari í Montreal
Reuters
Þriðji Felipe Massa, sem varð þriðji í Mónakó, segir að drottnun McLaren
hafi verið vegna lítillar getu Ferrarifákanna.
DUCATI hefur nú um langt skeið
framleitt hið geysivinsæla Ducati
Monster en hjólið hefur verið í fram-
leiðslu frá 1993 og er að margra
mati tákngervingur uppreisnar
ítalska merkisins. Nú styttist svo í
næstu sókn Ducati því nýtt Monster
mun koma á markað seint í haust.
Gamla Ducati-hjólið var hannað
af Miguel Angel Galluzzi og markaði
hönnun þess nýjan stíl svokallaðra
naktra hjóla, þ.e. mótorhjóla án
allra hlífa og með vel sjáanlega
grind og fylgdu aðrir framleiðendur
fljótlega í kjölfarið með sínar eigin
útgáfur af hugmyndinni. Sala Mons-
ter-gerðarinnar hefur alla tíð verið
mjög góð og árið 2005 var helm-
ingur allra Ducati-mótorhjóla af
gerðinni Monster. Fyrsta gerð hjóls-
ins var útbúin 600 vél, fljótlega kom
svo 750 vél og svo 900. Það var svo
árið 2000 sem fyrstu verulegu breyt-
ingarnar urðu á hjólinu þegar þau
fengu beina innspýtingu, Brembo-
bremsur og 4 ventla vél var loksins
fáanleg.
Óvíst er hvaða stefnu hönnunin
mun taka en Ducati lofar víst að
hjólið muni verða auðþekkjanlegt
sem Monster en aðdáendur hjólsins
óttast þó að hjólið muni tapa hrá-
leikanum og örlítið „gamaldags“ út-
litinu og eru þeir því margir sem
vilja tryggja sér eldri gerðina áður
en sú nýja kemur á markaðinn –
svona til öryggis.
Fyrstu vélarnar munu verða 675
vélin sem er þegar fáanleg í Ducati
Monster en svo mun 1100 vélin Hy-
permotard-hjólinu verða fáanleg í
dýrari gerð hjólsins.
Nýtt skrímsli á árinu
Fákar Ducati Monster hjólið hefur verið mest selda mótorhjól Ducati um
langt skeið og því er vandasamt að leysa það af hólmi.