Morgunblaðið - 01.06.2007, Side 7

Morgunblaðið - 01.06.2007, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 7 ÚTLIT er fyrir að kappaksturs- mót í formúlu-1 sem fram fara í Asíu í framtíðinni verði haldin að kvöldi dags að staðartíma og því þurfi sjónvarpsáhorfendur á Ís- landi ekki að rífa sig upp fyrir all- ar aldir til að fylgjast með útsend- ingu frá þeim. Þetta verður að veruleika nái hinn 76 ára gamli Bernie Eccle- stone, einvaldur formúlunnar, sínu fram. Breytingarnar vill hann gera til að auka sjónvarpsáhorf á form- úluna í Evrópu og Bandaríkjunum og þar með tekjur af mótshaldinu. Til þess þurfa mótin að fara fram á hentugum tíma fyrir áhorfendur í þessum heimshlutum tveimur. „Einu vandræðin við að fara með mót austur á bóginn eru sjón- varpsútsendingarnar. Við töpum miklu áhorfi í Evrópu vegna tíma- munar. Því hef ég lagt að móts- höldurum að flóðlýsa brautirnar svo við getum keppt að kvöldi til,“ sagði Ecclestone nýverið við fjöl- miðla. Hann hefur lagt að mótshöld- urum í Malasíu og Singapúr, þar sem byrjað verður að keppa á næsta ári, að halda mótin að kvöldlagi. Hann framlengdi samn- ing fyrr á árinu við Malasíumenn til ársins 2015 en í honum er kveð- ið á um að keppa skuli að kvöld- lagi. Óvíst er hvenær það kemur til framkvæmda, líklega á næstu tveimur árum, en flóknasta álita- málið fyrir þá braut sem aðrar er öryggi keppenda sem áhorfenda. Þá er líklegt að kappaksturinn í Singapúr fari fram að kvöldlagi strax á næsta ári. Ecclestone hefur og skilyrt end- urnýjun samninga um keppni í Melbourne eftir 2010 að þar verði keppt að kvöldlagi. Nefnir hann að Evrópumenn verði að rífa sig upp klukkan þrjú að nóttu til að horfa á mótið og það geri þeir ekki í stórum stíl. Vill hann seinka ræs- ingu um a.m.k. fimm klukkustund- ir. Að sögn blaðsins Herald Sun í Melbourne eru ráðamenn borgar- innar og Viktoríuhéraðs áfram um að keppt verði um ókomin ár í formúlu-1 í Albertsgarði. Þeir úti- loki ekki keppni að kvöldlagi en eftir eigi að gera úttekt á kostum þess og göllum og á endanum verði ákvörðun tekin er henti fyrst og fremst hagsmunum borgarinn- ar en síður evrópskra sjónvarps- áhorfenda. Nætur- mót lík- leg á næsta ári Stórhuga Bernie Ecclestone, ein- valdur formúlunnar, vill auka sjón- varpsáhorf á formúluna í Evrópu og Bandaríkjunum og þar með tekjur af mótshaldinu. Til þess þurfa mótin að fara fram á hent- ugum tíma fyrir áhorfendur í þess- um heimshlutum tveimur. Útlit er fyrir að lífrænt eldsneyti, E85 etanól, knýi bíla í bandarísku ChampCar-mótaröðinni, systurkeppni formúlu-1 í Bandaríkjunum, á næsta ári. Það vill eig- andi mótshaldsins, Gerald Forsythe. Bílar sem keppa í Indy Racing League, þar sem bílar eru samskonar og í ChampCar, nota eldsneyti í ár sem byggist á etanóli. Það eldsneyti stendur hins vegar ekki til að framleiða til notkunar á fólksbílum. Því vill Forsythe, sem rekur lið í ChampCar, auk þess að eiga mótshaldið, fara aðra leið. „E85-eldnseytið verður sett á almennan markað. Það verður auglýst upp og mér finnst ChampCar eigi að taka þátt í því. Það lyktar vel og er þægilegra en bensín eða metanól. Á næstu árum verður enginn nýr orkugjafi auglýstur af meiri krafti,“ er haft eftir For- sythe á vefsetrinu gordonkirby.com. Vill E85-eldsneyti í kappakstursbílana Reuters Umhverfisvænir E85 etanól, mun líklega knýja bíla í bandarísku ChampCar-mótaröðinni. 25 ml. www.stilling.is // stilling@stilling.is Skeifan 11, 108 Reykjavik | Bíldshöfði 12, 110 Reykjavík | Smiðjuvegur 68, 200 Kópavogur | Dalshraun 13, 220 Hafnarfjörður Draupnisgata 1, 600 Akureyri | Eyrarvegur 29, 800 Selfoss. | Sími: 520-8000 Sjáðu Ísland með Thule ferðavörum Ferðabox verð frá 24.900,-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.