Morgunblaðið - 01.06.2007, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 9
Sími 4 80 80 80 Fossnesti A 800 Selfossi
Stórsýning hjá IB.ehf
Laugardaginn 02.06.07 frá kl. 11-17
Öruggir bílar til að vera á... Varahlutir - Sala - Ábyrgð - Þjónusta - Sérpantanir
Allir nýju amerísku gæðingarnir,
Dodge, Ford og Chevrolet.
Ný útlit og nýjar díselvélar.
Einnig ný 381 hö Toyota Tundra
Crew Max limited og nýr
Chevrolet Silverado 1500
Reynsluakstur
Eftir Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Nokkurt uppnám varð eftir Mónakókapp-
aksturinn sl. sunndag er í ljós kom að stjórn-
endur McLarenliðsins höfðu er á keppnina
leið lagt að ökuþórum sínum, Fernando
Alonso og Lewis Hamilton, að keppa ekki
innbyrðis heldur koma bílum liðsins í mark í
fyrsta og öðru sæti. Eftir fyrra þjónustustopp
var þeim skipað að halda stöðum sínum til að
draga úr hættu á óhöppum og til að tryggja
liðinu tvöfaldan sigur.
Breskir fjölmiðlar fóru hamförum yfir
þessu enda höfðu þeir flestir ætlað nýliðanum
Hamilton sigur. Hóf því Alþjóða aksturs-
íþróttasambandið (FIA) rannsókn á því dag-
inn eftir hvort McLaren hefði hugsanlega
brotið reglur sem banna liðsfyrirmæli sem
ætlað er að hagræða úrslitum kappaksturs.
Niðurstaðan var birt í fyrradag og var
McLaren algjörlega hreinsað af ásökununum.
Meðal þeirra sem krafist höfðu þess að liðið
yrði hirt var Bernie Ecclestone, einn áhrifa-
mesti leiðtogi formúlunnar.
Í yfirlýsingu frá FIA segir, að eftir að farið
hefði verið yfir talstöðvarsamskipti liðs-
stjórnarinnar og ökuþóranna, skýrslur eft-
irlitsmanna sambandsins og önnur gögn væri
ljóst, að McLarenliðið hefði ekki brotið gegn
neinum reglum.
Hamilton viðurkenndi eftir kappaksturinn,
að honum hefði verið sagt að „taka það ró-
lega“ þegar hann sótti að Alonso en Ron
Dennis, liðsstjóri McLaren, sagði það hafa að-
eins verið hluta af keppnisáætlun liðsins.
Dennis sagðist fyrir fram ekkert óttast
rannsókn og fagnaði niðurstöðu hennar.
„Liðið allt var skiljanlega svekkt yfir því að
framúrskarandi árangur bæði Fernando og
Lewis, svo og tvöfaldur sigur í 150. mótssigri
liðsins, var svertur tímabundið,“ sagði Denn-
is.
Til að verja forskotið
Hann vék og að breskum fjölmiðlum og
sagði skýrslu FIA staðfesta að ásakanir
þeirra, m.a. um að Hamilton hafi verið svipt-
ur möguleikanum á að keppa til sigurs, séu
ekki réttlætanlegar. „Liðið, Fernando og
Lewis, sem eru í forystu í báðum heimsmeist-
arakeppnunum, geta nú einbeitt sér að
kanadíska kappakstrinum,“ sagði Dennis.
Liðsfyrirmæli sem ætlað er að hafa áhrif á
úrslit kappaksturs voru bönnuð eftir að
stjórnendur Ferrariliðsins gerðu Rubens
Barrichello að hleypa Michael Schumacher
fram úr og gefa honum eftir sigur á loka-
metrum austurríska kappakstursins árið
2002.
Ron Dennis segir að í Mónakó hafi lið hans
framfylgt keppnisáætlun sem lagt var upp
með fyrir tímatökurnar daginn fyrir mót.
Markmiðið hafi verið að verja forskot liðsins í
keppninni. „Menn brúka keppnisáætlun til að
reyna vinna kappakstur. Liðsfyrirmæli brúka
menn til að hagræða úrslitum,“ sagði hann í
framhaldi af kappakstrinum í Mónakó.
McLaren hafði ekki rangt við í Mónakó
Hamilton Alþjóða akstursíþróttasambandið hóf rannsókn á því hvort McLaren hafi hugsanlega brotið reglur sem
banna liðsfyrirmæli sem ætlað er að hagræða úrslitum kappaksturs.
REUTERS
Silfur Lewis Hamilton hreppti annað sætið í Mónakókappakstrinum.