Morgunblaðið - 29.06.2007, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögu um breytingu á deiliskipu-
lagi lóðar við Keilugranda númer
1 í Reykjavík. Upphafleg tillaga
var send í hagsmunaaðilakynn-
ingu fyrr á árinu og létu nágrann-
ar Keilugranda þá í ljós þungar
áhyggjur vegna skipulagsins. Um-
kvörtunarefnin vörðuðu einkum
breytingar á grunnvatnsstöðu,
hæð og stöðu byggingarinnar.
Ný tillaga var unnin með hlið-
sjón af athugasemdum sem bár-
ust, en Samfylkingin, Vinstri græn
og F-listi kusu gegn henni á þeim
forsendum að byggingarmagn sé
enn umfram það sem umhverfið
geti borið. Að sögn Svandísar
Svavarsdóttur, borgarráðsfulltrúa
Vinstri grænna, hefur að nokkru
leyti verið komið til móts við íbúa
með nýjum tillögum, en mótmælin
úr umhverfinu hafi verið óvenju-
mikil og því greiði VG gegn fram-
kvæmdunum í skipulagsráði. „Við
teljum að þarna sé meirihlutinn að
gæta fremur að hagsmunum eig-
enda og verktaka heldur en íbú-
anna í hverfinu,“ segir Svandís.
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
formaður skipulagsráðs, segir
ekki óvenjulegt að deildar mein-
ingar komi fram þegar byggt sé í
grónu hverfi, en komið sé til móts
við íbúana með nýju tillögunni.
Hún bendir á að nú sé bygging-
arleyfið háð því að fram-
kvæmdaaðilar sýni fram á, með
óyggjandi hætti, að engin breyting
verði á grunnvatnsstöðu. Bygg-
ingin hafi verið færð aftar sam-
kvæmt ábendingum nágranna,
auk þess sem hæsti hluti hennar
hafi verið lækkaður úr 13 hæðum
niður í 9 og aðrar hæðir lækkaðar
til jafns við það. Meirihlutinn telur
að uppbyggingin sé hófleg og eðli-
leg á þessum eftirsótta stað. „Með
tillögunni komum við til móts við
óskir íbúa og fylgjum jafnframt
þeim vilja okkar að tryggja upp-
byggingu á reitnum svo fólk fái
tækifæri til þess að búa þarna,“
segir Hanna.
Hagsmunaaðilar hafa nú 6 vikur
til að gera athugasemdir.
Breytt deiliskipulag auglýst
Deilt um aukna
íbúabyggð við
Keilugranda
Nýbygging Hæsti hluti hússins hefur verið lækkaður og húsið fært aftar
en minnihluti í borgarstjórn telur enn að byggingarmagn sé of mikið.
Á FJÓRÐA hundrað börn og unglingar taka þátt í
aldursflokkameistaramóti Íslands í sundi - AMÍ - sem
hófst á Akureyri í gær og stendur yfir fram á sunnu-
dag. Þetta er jafnan fjölmennasta sundmót ársins, en
keppt er í nokkrum aldursflokkum. Í yngsta hópnum
eru 12 ára og yngri en í þeim elsta 15-17 ára ungling-
ar. Aðeins bestu sundmenn landsins í hverri grein
komast inn á mótið enda þarf af ná ströngum lág-
mörkum til þess. Kalt var í veðri á Akureyri fram
eftir degi í gær en þegar keppni hófst kl. 17 var gott
veður, logn og sólin lét sjá sig um stund. Skriðsund
var á dagskránni í gær, og keppt í 400 m, 800 m og
1500 m sundi. Á myndinni eru það stelpur í fyrri riðli
12 ára og yngri sem leggja af stað í 400 m sundið.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mikið fjör í Akureyrarlaug
„VESTMANNAEYINGAR eru
orðnir langþreyttir á ástandinu og
mikilvægt að tafarlaust verði grip-
ið til aðgerða,“ segir í fréttatil-
kynningu frá bæjarráði Vest-
mannaeyja en þar lýsir bæjarráðið
áhyggjum sínum vegna tafar á
fjölgun ferða Herjólfs milli Vest-
mannaeyja og Þorlákshafnar.
Á miðvikudag sl. funduðu vega-
málastjóri og Eimskipamenn en
Guðmundur Petersen, rekstrar-
stjóri Herjólfs hjá Eimskipum,
sagði að í framhaldi af fundinum
færi ákveðin vinnsla í gang hjá
báðum aðilum og ýmis kostnaður
yrði kannaður. „Við þurfum að
semja við áhöfnina um laun, en þau
eru mjög stór hluti af þessu enda
aukaferðirnar allar farnar um nótt
og eru þær því á yfirvinnu,“ segir
Guðmundur og bætir við að óvissa
sé um hvaða tekjur muni koma af
aukaferðunum og það sé stór
óvissuþáttur. Í tilkynningu segir
einnig að „sá dráttur sem orðið
hefur á framkvæmd á sér vafalaust
skýringar en engu að síður er það
algerlega óásættanlegt og frekleg
framkoma við Eyjamenn og gesti
þeirra“. Næturferðum var bætt við
í gær og aftur 1. júlí en í þá ferð er
nánast upppantað að sögn Elliða
Vignissonar bæjarstjóra..
„Frekleg
framkoma“
Eyjabúar vilja fjölg-
un ferða Herjólfs
HÉRAÐSDÓMUR Austurlands
dæmdi í gær stöðvarstjóra Olís á
Reyðarfirði í 30 daga skilorðsbund-
ið fangelsi fyrir gáleysi sem leiddi
til klórgasslyssins í sundlaug Eski-
fjarðar í júnílok 2006. 45 manns
urðu fyrir eituráhrifum gassins og
var stöðvarstjórinn ákærður fyrir
að hafa í starfi sínu afgreitt 1.000
lítra af ediksýru í tanki sem merkt-
ur var „EDIKSÝRA 80%“ í stað
1000 lítra af 15% klórlausn sem
nota átti við sundlaugina. Var hann
enn fremur ákærður fyrir að gefa
öðrum starfsmanni Olís, sem einn-
ig var ákærður vegna málsins, fyr-
irmæli um að fara með tankinn til
Eskifjarðar og dæla innihaldinu á
klórtank laugarinnar.
Dómurinn taldi að stöðvarstjór-
anum hafi hlotið að vera ljóst að
hætta gæti skapast ef ediksýra og
klór blönduðust saman. Með hlið-
sjón af því að maðurinn hefði í
sömu pöntun pantað bæði klór og
ediksýru og að honum væri kunn-
ugt um af efnin kæmu í nákvæm-
lega eins tönkum og með sambæri-
legum merkingum, þótti dóminum
ákærði hafa sýnt af sér gáleysi með
því að lesa ekki á merkingar tanks-
ins áður en hann gaf fyrirmæli um
að flytja hann til Eskifjarðar og
dæla innihaldinu á klórtank laug-
arinnar. Horfði dómurinn til stöðu
ákærða og áralangrar reynslu hans
hjá fyrirtækinu, svo og vitneskju
hans um að fara yrði með efnin með
sérstakri varúð.
Meðákærði var hinsvegar sýkn-
aður af ákæru fyrir að hafa hellt
ediksýrunni í klórtankinn. Taldi
dómurinn að með hliðsjón af ung-
um aldri hans, stöðu hans hjá fyr-
irtækinu og því að hann hafði feng-
ið fyrirmæli sín hjá yfirmanni
sínum um að dæla á klórtankinn,
svo og með hliðsjón af því að edik-
sýra var ekki geymd á lager Olís og
að ákærði hefði ekki flutt eða með-
höndlað hana í starfi sínu, þætti
ákærði ekki hafa haft sérstaka
ástæðu til að efast um að tankurinn
sem hann flutti væri með klór.
Málið dæmdi Ragnheiður
Bragadóttir dómstjóri. Verjandi
stöðvarstjórans var Kristín Ed-
wald hrl. og verjandi meðákærða
Brynjar Níelsson hrl. Sækjandi
var Sigríður Elsa Kjartansdóttir,
saksóknari hjá ríkissaksóknara.
Stöðvarstjóri skapaði almannahættu með gáleysi sínu að mati héraðsdóms
Dæmdur fyrir klórgasslysið
í sundlaug Eskifjarðar
Í HNOTSKURN
»Ákært var fyrir al-mannahættubrot í mál-
inu og var stöðvarstjórinn
sakfelldur vegna gáleysis.
»Tugir manna urðu fyrireitrunaráhrifum sem
lýstu sér í augnsviða, upp-
köstum, ertingu og verkjum
í öndunarfærum. Auk þess
skapaðist hætta fyrir fleira
fólk á svæðinu.
HRUN á gengi hlutabréfa Impregilo á
Ítalíu hefur ekki nokkur áhrif á starfsemi
fyrirtækisins á Íslandi að sögn Ómars R.
Valdimarssonar, almannatengils Impreg-
ilo, aðalverktaka við Kárahnjúkavirkjun.
Impregilo hefur undanfarið sætt rann-
sókn á Ítalíu vegna meintra fjársvika í
sambandi við sorpeyðingu í Campania-
héraði, og í gær ákváðu saksóknarar í
Napólí að fyrirtækið fengi ekki að taka
þátt í opinberum útboðum um eyðingu
sorps. Jafnframt var um 750 milljóna
evra greiðsla til fyrirtækisins fryst, eða
jafnvirði um 63milljarða króna. Í kjölfar-
ið lækkaði gengi hlutabréfa Impregilo
um 15% á markaði.
Ómar segir ekki ástæðu til að hafa
áhyggjur af þessum fréttum. „Það er al-
veg útséð með það að engin viðbrögð
verða á Íslandi, enda hefur þetta ekkert
að segja fyrir starfsemina við Kára-
hnjúkavirkjun“. Impregilo á Ítalíu hefur
vísað ásökunum um fjársvik á bug og
segist ætla að áfrýja niðurstöðu sak-
sóknara.
Gengi Impregilo
hefur ekki áhrif
GLERFARMUR sem var á kerru einkabíls
losnaði í gær á Suðurlandsvegi og
splundraðist á milli Kotstrandar og Ölf-
usborga. Tafir urðu á umferð á meðan
slökkvilið vann að hreinsun. Talið er að
ekki hafi verið nægilega vel gengið frá
farminum og biður lögreglan á Selfossi
vegfarendur um að hafa öryggi samborg-
aranna ávallt í huga þegar haldið er út í
umferðina. Gildir það heilræði bæði þegar
kemur að aksturslagi og umbúnaði bif-
reiða.
Missti glerfarm
ÍSLANDSDEILD Amnesty International
fagnar ákvörðun utanríkisráðherra,
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, um að
fram fari rannsókn á meintu fangaflugi
um Ísland. Í tilkynningu frá Amnesty
segir að samtökin hafi ítrekað farið
fram á að íslensk yfirvöld rannsaki
millilendingar flugvéla á vegum banda-
rísku leyniþjónustunnar um íslenska
lofthelgi.
Amnesty segir að rannsaka þurfi allar
ábendingar um millilendingar flugvéla á
Íslandi sem grunur leikur á að eigi aðild
að fangaflugi. Vill Íslandsdeild Amnesty
International vekja sérstaka athygli á
millilendingum Gulfstream IV, N404AC
sem rekin er af Phoenix Aviation, en
flugvélin flaug á árunum 2002-2005
a.m.k. tíu sinnum milli herflugvallar í
Kaíró og herstöðvarinnar í Keflavík.
Amnesty fagnar
ákvörðun um
fangaflug
LÍKLEGA vildu flestir vera jafnheppnir
og hjúkrunarfræðingurinn Kolbrún
Haukdal, sem skrapp til útlanda í frí og
eignaðist óvænt glænýjan bíl á meðan.
Kolbrún hafði tekið þátt í Happdrætti
DAS í nokkur ár, en ákvað síðast að bæta
tvöföldum miða við og sér ekki eftir því
núna, því ekki var nóg með að hennar
biði nýr bíll heldur fylgdu honum líka 6,3
milljónir í skottinu. Vinningurinn kom
Kolbrúnu í opna skjöldu, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu, enda hafði
hún sjálf ekki athugað hvort hún hefði
unnið. Tímasetningin er heppileg, því
Kolbrún var að skrá sig í nám við Há-
skóla Íslands og hafði verið að íhuga að
sækja um námslán. Enn á eftir að draga
út 5 bílvinninga og mega því fleiri en
Kolbrún eiga von á glaðningi.
Vann bíl með 6,3
milljónir í skottinu