Morgunblaðið - 29.06.2007, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIKIL flóð herjuðu á hluta austan-
verðrar Ástralíu í gær og varð
sums staðar að bjarga fólki úr hús-
um sem voru umflotin vatni. John
Howard forsætisráðherra sagðist
vona að þessi umskipti í veðrinu
merktu að nú sæi fyrir endann á
verstu þurrkum sem Ástralar hafa
orðið fyrir í meira en öld.
Þurrkarnir eru sagðir eiga sér
rætur í reglubundnum sveiflum í
veðrakerfi Kyrrahafsins sem nefn-
ast El Nino, spænskt heiti yfir jóla-
barnið. Segja veðurfræðingar að nú
hafi önnur sveifla, La Nina [jóla-
stelpan], tekið við með meiri vætu.
„Við vonum að þeir hafi rétt fyrir
sér,“ sagði Howard. „Við sjáum
hvað setur.“
Óttast er að loftslagsbreytingar
geti valdið miklum vanda á eyði-
merkursvæðum heimsins í framtíð-
inni. Í nýrri skýrslu háskóla Sam-
einuðu þjóðanna segir að haldi
eyðimerkur eins og Sahara áfram
að stækka geti það valdið því að allt
að 50 milljónir manna verði að flýja
heimkynni sín á næstu 10 árum.
Loksins rignir í Ástralíu
og þá allt of mikið í einu
Reuters
Bænheyrður John Howard, for-
sætisráðherra Ástralíu.
RÚSSLAND er langstærsta ríki ver-
aldar að flatarmáli en að sögn vefsíðu
breska dagblaðsins The Guardian í
gær vilja ráðamenn í Moskvu samt
gera það enn stærra. Þeir hyggjast
nú gera kröfu til mikils hluta land-
grunnsins við norðurheimskautið,
svæða sem eru á stærð við Frakk-
land, Þýskaland og Ítalíu samanlagt.
Samkvæmt alþjóðalögum á ekkert
ríki norðurheimskautssvæðið, eign-
arhald Rússa, Bandaríkjamanna,
Kanadamanna, Norðmanna og Dana
[sem fara með utanríkismál Græn-
lendinga] takmarkast af 200 sjómílna landhelginni.
En rússneskir vísindamenn hafa nýlokið sex vikna rannsóknarleiðangri á
ísbrjóti um íshafið. Fullyrða þeir að niðurstöðurnar sýni að svonefndur
Lomonosov-hryggur á botni austurhluta Norður-Íshafsins sé jarðfræðilega
tengdur rússnesku landsvæði. Séu þar komin rök fyrir því að Rússar geri
kröfur til umrædds svæðis og segja vísindamennirnir að líklega séu um 10
milljarðar tonna af olíu og gasi í landgrunninu. Dagblaðið Komsomolskaja
Pravda fagnaði tíðindunm í fyrradag með því að birta stórt kort af norð-
urheimskautssvæðinu og var „nýja“ svæðið skreytt hvítum, bláum og rauð-
um litum rússneska fánans.
Rússar gera kröfu til land-
grunns við norðurskautið
Morgunblaðið/Einar Falur
Tripoli. AFP. | Vitað er að minnst
fimm herskáir íslamistar féllu í
gær þegar líbanskir hermenn réð-
ust á bækistöð þeirra nálægt þorp-
inu Qalamoun, sunnan við hafnar-
borgina Tripoli í norðanverðu
landinu. Herinn fékk vitneskju um
að mennirnir leyndust í skógi við
Qalamoun og notaði m.a. þyrlur í
árásinni.
Mennirnir voru sagðir vera fé-
lagar í samtökunum Fatah-al-Islam
sem tengjast hryðjuverkasamtök-
unum al-Qaeda. Herinn hefur í um
40 daga barist við liðsmenn Fatah-
al-Islam sem lögðu undir sig Nahr
al-Bared, búðir með tugþúsundum
palestínskra flóttamanna. Talið er
að minnst 200 manns hafi fallið,
þar af margir óbreyttir borgarar.
Íslamistarnir munu enn halda til
búðunum að hluta en margir hafa
flúið. Flestir íbúarnir hafa flúið en
herinn situr sem fyrr um búðirnar.
Ofstækishópar hafa einnig lengi
haft aðsetur í stærstu flóttamanna-
búðum Palestínumanna, Ain al-
Helweh, við borgina Sídon í suður-
hlutanum. Um helmingur alls
400.000 þúsund palestínskra flótta-
manna í Líbanon býr í Ain al-
Helweh.
Íslamistar felldir í grennd
við Tripoli í Líbanon
ÖLLUM indónesískum flugfélögum
og nokkrum flugfélögum í Rúss-
landi, Úkraínu og Angóla er nú
óheimilt að fljúga til ríkja Evrópu-
sambandsins. Framkvæmdastjórn
ESB í Brussel segir bannið vera
sett af öryggisástæðum.
Banna flug
MENNINGARMÁLASTOFNUN
Sameinuðu þjóðanna, Unesco, hef-
ur bætt tveim mannvirkjum á list-
ann yfir helstu menningarverðmæti
heimsins, Sydney-óperuhúsinu og
Rauða virkinu í Indlandi. Daninn
Jørn Utzon teiknaði óperuhúsið
1957.
Morgunblaðið/Sverrir
Sydney á listann
FIMM franskir fjallgöngumenn,
þar af þrír úr sömu fjölskyldu, karl-
maður og tvær dætur hans, hröp-
uðu og létu lífið í hlíðum fjallsins
Vallon í Ölpunum á miðvikudag.
Vallon er um 3.400 metrar að hæð.
Hröpuðu til bana
ÁHUGI í Indlandi á framleiðslu inn-
lendu kvikmyndafyrirtækjanna,
öðru nafni Bollywood, fer dvínandi.
Af 55 myndum það sem af er árinu
hafa 45 fallið, tekjurnar eru 40%
minni en á sama tíma í fyrra.
Bollywood í vörn
ALÞJÓÐAKNATTSPYRNUSAMBANDIÐ FIFA sagði í
gær að tekin yrði ákvörðun á næstu dögum um það hvort
leyfa ætti að leikir í undankeppni heimsmeistarakeppn-
innar mættu fara fram í La Paz, höfuðborg Bólivíu. Sam-
kvæmt nýjum reglum FIFA má leika á völlum í allt að
3.000 metra hæð yfir sjávarmáli. En völlur La Paz er
3.577 metra yfir sjávarmáli og loftið þunnt í samræmi
við það. Forseti Bólivíu, Evo Morales, heimsótti aðal-
stöðvar FIFA í Zürich gær til að þrýsta á um lausn og
sést hér sýna góða takta með Sepp Blatter, forseta FIFA.
Reuters
Vilja fá að leika í La Paz
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
MEÐAL ráðherra í ríkisstjórn
Gordons Browns, nýs forsætisráð-
herra Bretlands, er Jacqui Smith en
hún er fyrsta konan sem skipuð er
innanríkisráðherra landsins. Smith
er 44 ára. Brown kynnti stjórn sína í
gær og er óhætt að segja að hann
hafi stokkað upp, nýtt fólk tekur við
öllum helstu ráðuneytunum en Des
Browne verður þó áfram varnar-
málaráðherra.
Þrátt fyrir breytingarnar benda
stjórnmálaskýrendur á að fyrst og
fremst sé verið að færa fólk á milli
ráðuneyta, ný andlit séu fá. Ráð-
herrafjöldi er nær óbreyttur, er nú
22 en var 23, konum fækkar úr átta í
fimm. Alistair Darling er nýr fjár-
málaráðherra, David Miliband verð-
ur utanríkisráðherra, Alan Johnson
heilbrigðisráðherra og Peter Hain
sér um viðskipta- og iðnaðarmál. Við
umhverfismálunum tekur Hilary
Benn. Þá kemur Jack Straw inn í
ríkisstjórnina á ný og verður dóms-
málaráðherra.
Miliband er yngsti utanríkisráð-
herra Breta frá 1977, aðeins 41 árs.
„Ég tel að [ráðuneytið] hafi einstakt
gildi fyrir Bretland á alþjóðavett-
vangi og vil tryggja að því verði beitt
til hins ýtrasta við að efla Bretland
og gera heiminn betri,“ sagði Mili-
band í gær. Hann er talinn dæmi-
gerður lærisveinn Tony Blairs, fyrr-
verandi forsætisráðherra, og studdi
innrásina í Írak.
Mjög var rætt um það fyrr á árinu
að Miliband, sem var áður umhverf-
isráðherra og þykir afburðavel gef-
inn, myndi ef til vill bjóða sig fram
gegn Brown þegar ljóst var að leið-
togaskipti yrðu í Verkamanna-
flokknum. En hann stóðst freist-
inguna, líklega vegna þess að
kannanir gáfu til kynna að hann ætti
litla möguleika. Hann þykir hins
vegar mjög líklegur til að verða í tím-
ans rás arftaki Browns sem er 56
ára.
Fjármálin enn á hendi Skota
Hinn hvíthærði Darling er 53 ára
gamall, Skoti eins og forsætisráð-
herrann og sagður vera einn elsti
vinur Browns. Darling er afar
reyndur stjórnmálamaður og hefur
oft verið fenginn til að leysa erfið
vandamál fyrir Verkamannaflokk-
inn. „Sá sem er fjármálaráðherra
þarf stundum að vera önugur,“ sagði
Darling í viðtali við BBC í fyrra.
Ed Balls, einn nánasti efnahags-
málaráðgjafi Browns til margra ára,
verður ráðherra í nýju ráðuneyti
fjölskyldu-, barna- og skólamála,
eiginkona Balls er Yvette Cooper og
heldur hún stöðu sinni sem ráðherra
húsnæðismála. Er þetta í fyrsta sinn
sem hjón eiga sæti í sömu ríkisstjórn
í Bretlandi.
Harriet Harman, nýkjörinn vara-
leiðtogi flokksins, verður þingflokks-
formaður í neðri deildinni. Ashton
barónessa verður þingflokksformað-
ur í lávarðadeildinni. Athygli vekur
að Mark Malloch Brown, fyrrver-
andi aðstoðarframkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, tekur við ráð-
herraembætti, að vísu ekki valda-
miklu en með seturétt á stjórnar-
fundum, hann verður ráðherra
málefna Afríku, Asíu og SÞ. Malloch
Brown er þekktur fyrir að gagnrýna
opinskátt innrásina í Írak og ýmsar
gerðir bandarískra ráðamanna.
Brown hrókerar í
nýrri ríkisstjórn sinni
Miliband yngsti utanríkisráðherrann frá árinu 1977
Reuters
Glaðbeitt Jacqui Smith innanríkisráðherra og David Miliband utanríkis-
ráðherra koma á fyrsta stjórnarfundinn í Downingstræti í gær.
Í HNOTSKURN
»Scotland barónessa er einifulltrúi breskra blökku-
manna í stjórn Browns, hún
verður helsti ráðgjafinn í laga-
legum efnum.
»Nýr ráðherra Norður-Írlandsmála er Shaun
Woodward sem gekk úr
Íhaldsflokknum í Verka-
mannaflokkinn árið 1999.
Áður hafði Brown boðið
Paddy Ashdown úr Frjáls-
lynda demókrataflokknum
embættið en hann sagði nei.