Morgunblaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2007 19
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
LISTASUMAR er hafið á Akureyri og er um
það bil að komast í fullan blóma. Á sunnudag
hefjast Sumartónleikar í Akureyrarkirkju,
tónleikaröð sem komin er á tuttugasta og
fyrsta ár. Björn Steinar Sólbergsson, sem í
langan tíma hefur verið organisti í Akureyr-
arkirkju, er listrænn stjórnandi tónleikanna,
en framkvæmdastjóri er Hrefna Harðardóttir.
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju hafa verið í
samstarfi við Listasumarið í fimmtán ár. Eins
og venjulega eru tónleikar alla sunnudaga í
júlí kl. 17, þeir fyrstu nú á sunnudaginn. Þá
leikur Hljómskálakvintettinn úr Reykjavík
með Birni Steinari, en Hljómskálakvintettinn
er þekktur að glimrandi lúðrablæstri á hátíða-
stundum í borginni. En hvað þarf til að halda
úti tónleikum í tuttugu ár? Björn Steinar seg-
ir það eflaust bara elju - og hlær um leið, en
auðvitað kemur margt fleira til. „Við höfðum
sýn í upphafi, að koma þessu af stað, og þegar
allt gengur vel og árangur er góður, þá vill
maður halda áfram.“ Þegar sumartónleikaröð-
in hófst fyrir 20 árum voru Sumartónleikar í
Skálholti eina sumartónleikaröðin. Mestu
breytinguna segir Björn Steinar vera þá, að
nú blómstri sumartónlistarhátíðir um allt
land. „Viðhorfið í þá daga var það, að ekkert
þýddi að bjóða fólki tónlist á sumrin og við
mig var sagt að ekkert myndi þýða að halda
úti sumarstarfinu, því engir myndu koma.“
Það tók nokkur ár að fólk vissi almennt af til-
vist Sumartónleika í Akureyrarkirkju að sögn
Björns Steinars, en eftir því sem árin líða,
verður róðurinn léttari. „Ferðamennska hefur
breyst, og fólk gerir kröfu um að geta notið
menningar á sumrin. Sýnin frá upphafi, að
fólk geti komið í Akureyrarkirkju á sunnu-
dagseftirmiðdögum og notið góðrar tónlistar,
hún er enn í fullu gildi.“
Við höfðum sýn
Hátíðlegir Björn Steinar Sólbergsson lengst
til hægri, ásamt Hljómskálakvintettnum.
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju hefjast um
helgina og verða alla sunnudaga í júlí kl. 17
Í HNOTSKURN
» Sunnudaginn 1. júlí leika BjörnSteinar Sólbergsson og Hljóm-
skálakvintettinn.
» Sunnudaginn 8. júlí leikur Mario Duella á orgel.
» Sunnudaginn 15. júlí leikur KarelPaukert á orgel.
» Sunnudaginn 22. júlí syngur Sól-björg Björnsdóttir með Elfu Rún
Kristinsdóttur fiðluleikara og Birni
Steinari Sólbergssyni organista.
» Sunnudaginn 29. júlí syngur BjörgÞórhallsdóttir og Elísabet Waage
leikur með á hörpu.
TENGLAR
...........................................................
www.akirkja.is/sumartonleikar www.akureyri.is
listasumar.blog.is
ÞETTA er í fimmta sinn sem Kórastefnan
við Mývatn er haldin. Eins og fram-
kvæmdadrífa hátíðarinnar og frumkvöðull
sagði réttilega er árafjöldinn ekki mikill en
full ástæða til að fagna miklum árangri og
vexti Kórastefnunnar. Órækasta sönnun
þessa árangurs er að sjá 200 manns flytja af
sannfæringu og metnaði þarna viðamikla og
fjölbreytta söngskrá. Svo má ekki gleyma
því að hin ómótstæðilega náttúra Mývatns-
sveitar hefur djúpstæð áhrif á flytjendur og
eykur bæði á næmi þeirra og áheyrenda.
Lynnel Joy Jenkins, víðþekktur kórstjóri frá
Fíladelfíu í Bandaríkjunum, hefur áður kom-
ið til Íslands og fékk söngfólk notið leið-
sagnar hennar í Skálholti. Hún stjórnaði
fyrri hluta tónleikanna og hafði valið saman
þjóðlög vítt og breitt úr heiminum ásamt
gospelsöng. Eins og ytri umgjörð tón-
leikanna í náttúrunni er góð, þá er ekki
hægt að hæla innri umgerðinni, íþróttahús-
inu, því frá upphafi brasilíska lagsins við
Davíðssálm nr. 150, þá fannst mér húsið
dempa hljóminn og gera það að verkum að
þetta mikla hljóðfæri 120 kvenna fékk ekki
notið sín sem skyldi. Lög og útsetningar
fannst mér bráðskemmtilegar og hvort það
var afrískt blóð stjórnandans eða hrífandi
upplag söngva, þá fannst mér þau tvö lög
sem kennd voru við Afríku öruggust og
hljómríkust.
Píanóið hefði þarfnast stillingar eða lag-
færingar. Lynnel Joy var innilega þakkað og
maður fann það þakklæti líka streyma frá
söngfólkinu sem notið hefur tilsagnar henn-
ar á Kórstefnunni. Að hléi loknu var Messa
barnanna eftir John Rutter flutt, en um var
að ræða frumflutning hér á landi. Rutter er
orðinn víðþekktur fyrir tónsmíðar sínar, sér-
staklega fyrir kóra. Hann stofnaði og stjórn-
ar kórnum Cambridge Singers. Eins og heiti
verksins segir þá eru börnin í sviðsljósi og
hefja þau verkið, þarna Stúlknakór Akureyr-
ar, á söng við ljóð 17. aldar skáldsins Thom-
as Ken í Kyrie-hlutanum, en barnasöngur er
rauður þráður í verkinu. Verkinu lýkur einn-
ig á tveimur erindum eftir sama höfund.
Verkið er prýðilega vel samið, þó fannst mér
stundum að áhrifaorð textans nytu sín ekki
sem skyldi, t.d. „exultate Deo“. Verkið lætur
vel í eyra og fannst mér Sanctus-þátturinn
sínu glæsilegastur. Tónskáldið velur annars
öruggar slóðir sem m.a. Britten og jafnvel
Carl Orff hafa rutt (laudamus). Ungu ein-
söngvurunum farnaðist allvel, en þau eiga
bæði eftir að taka hlaðsprettinn í heim at-
vinnusöngsins og óska ég þeim velfarnaðar.
Það segir mikið um hlutverk Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands að þetta skuli
vera fjórða stórtónlistarveislan sem hún tek-
ur þátt í að matbúa og bera á borð á Norð-
urlandi á þessu vori, La Traviata í Miðgarði,
Te Deum eftir Dvorák á Kirkjulistaviku á
Akureyri, lokatónleikar AIM Festival á Ak-
ureyri um síðustu helgi og svo Kórastefna,
allt undir farsælli stjórn Guðmundar Óla.
Kórastefnan við
Mývatn lifi!
TÓNLIST
Mývatnssveit
Heimstónlist í útsetningum fyrir kvennakór og
Messa barnanna eftir John Rutter. Kvennakór Kór-
stefnunnar, Blandaður kór Kórstefnunnar, Stúlkna-
kór Akureyrarkirkju og Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands, Gróa Hreinsdóttir píanóleikari og
einsöngvararnir Halla Dröfn Jónsdóttir og Ásgeir
Páll Ágústsson fluttu. Konsertmeistari var Zbign-
iew Dubik og stjórnendur voru Lynnel Joy Jenkins
og Guðmundur Óli Guðmundsson. Sunnudag 10.
júní kl. 15.
Kórastefna við Mývatn
Jón Hlöðver Áskelsson
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
6
9
17
KRYDDSMJÖR
Þrjár tegundir til að töfra fram
rétta bragðið hverju sinni.
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
fl group er aðalstyrktaraðili
sinfóníuhljómsveitar íslands
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
OG DÚNDURFRÉTTIR
STÓRTÓNLEIKAR Í LAUGARDALSHÖLL
Í KVÖLD, FÖSTUDAGSKVÖLD KL.19.30
ÖRFÁ SÆTI LAUS
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA SEM ALLRA
FYRST Á WWW.SINFONIA.IS
miðaverð ::: 5.000 / 4.500 kr.
Roger Waters (Pink Floyd) ::: The Wall
Hljómsveitarstjóri ::: Bernharður Wilkinson
Útsetningar ::: Haraldur Vignir Sveinbjörnsson
Miða skal sækja í miðasölu SÍ í Háskólabíói á milli 9 og 17.
Eftir klukkan 18 verður hægt að sækja miða í Laugardalshöll.