Morgunblaðið - 17.07.2007, Page 1
STOFNAÐ 1913 193. TBL. 95. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
MEÐ BÍLADELLU
FJARSTÝRÐIR BÍLAR GETA HLJÓMAÐ
EINS OG KAPPAKSTURSBÍLAR >> 20
MANNAFLUTNINGAR
VERÐA MIKLIR Í HAUST
ARIADNE
Í ÍSLENSKU ÓPERUNNI >>
FRÉTTASKÝRING
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
SÍÐUSTU 30 daga hefur úrkoman í Reykja-
vík aðeins mælst 5 mm. Svo lítil úrkoma hefur
aldrei mælst þar á þessum tíma árs. Það sem af
er júlímánuði hefur meðalhitinn verið 13,3°C í
Reykjavík. Það er með mesta móti og nærri
þremur gráðum yfir meðaltali áranna 1961–
1990.
Haraldur Ólafsson veðurfræðingur segir að
þurrkur sé víða á landinu og orsökin sé sú að
lægðir og skil gangi nú sjaldan yfir landið þar
sem háloftavindar beini þeim heldur til Bret-
landseyja og yfir norðanvert meginland Evr-
ópu. Hann segir að þurrkarnir hafi verið mestir
ana. Hann bendir hins vegar á að samfelld löng
þurrkatímabil þekkist á öðrum árstímum, yf-
irleitt á vorin en þó einnig síðar á sumrin.
Háloftavindarnir sem beina lægðum fremur
yfir Bretland og N-Evrópu en til Íslands hafa
nú haldist óbreyttir um nokkurt skeið. Har-
aldur segir að um sé að ræða fyrirbrigði sem
erfitt sé að útskýra, hvað þá spá um langt fram
í tímann. Rigningarsumrin frægu sem stundum
gera Íslendingum lífið leitt útskýrast af sömu
vindum og nú beina þeir rigningarveðrinu ein-
faldlega suður fyrir. Þótt veðurspár segi nú til
um að eitthvað muni rigna á vestanverðu land-
inu seinni hluta fimmtudags og á föstudag þá
virðist hinsvegar ekki sem neinar meginbreyt-
ingar séu að verða í veðráttunni. M.ö.o. sé ekki
að sjá að rigningin sé fyrirboði um vætutíð. | 8
á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðvesturlandi
en einnig sunnantil á Austurlandi.
Víða á þessu svæði hefur nánast ekkert rignt
frá því snemma í júní. Síðustu 30 daga hafa að-
eins mælst 1,6 mm í Stykkishólmi, 1,2 mm í Ás-
garði í Dölum og 2,8 mm á Lambavatni á
Rauðasandi en þessi úrkoma er aðeins örfá
prósent af meðalúrkomu árstímans.
Óbreyttir háloftavindar fyrirséðir
Úrkoma hefur helst verið á Norðausturlandi
og Suðausturlandi en syðst á Austfjörðum hef-
ur þó lítið sem ekkert rignt í langan tíma. Á
Norðausturlandi þar sem mest hefur rignt er
úrkoman þó víða ekki nema 30% til 50% af með-
alúrkomu. Haraldur segir ljóst að árstíð-
arbundin þurrkamet séu víða sett þessa dag-
Þurrkamet slegin víða um land
Eins lítil úrkoma á þessum tíma árs hefur aldrei mælst í Reykjavík Veðrabreytingar eru ekki fyrirséðar
Morgunblaðið/RAX
Blíða Veður hefur verið eindæma gott síð-
ustu daga og þykir mörgum nóg um
ÁHÖFNIN á þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-SIF, alls fjórir
menn, bjargaðist þegar þyrlan lenti í sjónum við björgunar-
æfingu út af Straumsvík við Hafnarfjörð um kl. 19 í gærkvöldi.
Hvolfdi henni en flaut uppi á flotholtum. Ekki er vitað á þessari
borð í bátinn. Bæði dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, og
forstjóri Landhelgisgæslunnar, Georg Lárusson, komu á vett-
vang skömmu eftir óhappið og sagði Björn að gerðar hefðu verið
ráðstafanir til að fá aðra þyrlu í stað Sifjar sem talin er ónýt. | 2
stundu hvað varð þess valdandi að þyrlan fór í sjóinn en atvikið
er komið til rannsóknar hjá Rannsóknarnefnd flugslysa.
Þyrlan var við æfingar með áhöfn björgunarbátsins Einars
Sigurjónssonar og björguðust fjórmenningarnir úr þyrlunni um
Morgunblaðið/RAX
Fjórum bjargað úr TF-SIF
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti í sjónum út af Straumsvík við björgunaræfingu og hvolfdi síðan