Morgunblaðið - 17.07.2007, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„MÉR finnst leiðinlegt hvern-
ig fólk lítur á gerðir okkar,“
segir Jason Slade, einn þeirra
fimm sem handteknir voru
þegar óeirðir brutust út í mót-
mælagöngu náttúruverndar-
samtakanna Saving Iceland.
„Mér finnst það sem við
gerum mikilsvert og við erum
að reyna að vernda náttúruna
og það er dregin upp mynd af
okkur sem hryðjuverkamönn-
um. Við erum öll hér vegna
þess að við unnum náttúrunni
og okkur finnst eitthvað þurfa
að gera við þessi fjölþjóðafyr-
irtæki sem hefja starfsemi
hvar sem þeim sýnist.
Mér finnst margir ekki átta
sig á neikvæðum hliðum þess-
ara stóriðjufyrirtækja sem er
mest umhugað um gróða.
Þessi fyrirtæki láta sig nátt-
úruna ekki mikið varða fyrir
utan það sem þeim er skyld-
ugt að gera.“
Jason segir mörg fyrir-
tækjanna finna lagaglufur til
að koma sér undan náttúru-
verndarmálum auk þess sem
þau búi yfir nægilegum fjár-
ráðum til að kaupa sér leið út
úr þeim. „Ég hef búið hér á
Íslandi í rúmt ár og mér finnst
sumir ekki átta sig á þeim víð-
tæku áhrifum sem fyrirtækin
hafa um allan heim. Margir
velta fyrir sér hví útlendingar
eru staddir hér á landi til að
mótmæla en þeir skilja ekki
að Alcoa er líka í Brasilíu og
Trínidad og hefur áhrif á líf
fólks þar.“
Skref í rétta átt
Jason vill ekki tala mikið
um það sem átti sér stað í
mótmælagöngunni á laugar-
daginn því hann vill beina
sjónum fólks að boðskapnum
en ekki átökunum. Hann vill
þó segja að honum fannst lög-
reglan bera sig ófagmannlega
og fullharðneskjulega að á
köflum.
Hann segist líta á mótmæli
sem sjálfsagðan rétt sinn og
allra annarra og þetta hafi
verið nokkuð sem hann varð
að gera. „Mér finnst það
skylda mín að standa vörð um
rétt minn. Ég vil ekki búa þar
sem vatnið og loftið er meng-
að og árnar virkjaðar.“ Hann
segir áliðnaðinn og Alcoa
græða mikið á stríðsrekstri.
Margir Íslendingar séu á móti
stríðinu í Írak og hann veltir
fyrir sér hve margir viti hve
mikið Alcoa og önnur fyrir-
tæki græði á því að selja ál
sem notað er í sprengjur og
orrustuflugvélar sem drepa
fólk í Írak.
Spurður hvort gangan hafi
borið einhvern árangur segir
Jason sérhverja aðgerð vera
skref í rétta átt. „Í göngunni
flautuðu ökumenn til okkar og
hvöttu okkur áfram og gang-
andi vegfarendur komu til
okkar og lýstu yfir ánægju
sinni. Þessi fyrirtæki eru að
fremja skelfilega glæpi og eru
ekki dregin til ábyrgðar.“
Morgunblaðið/Frikki
Mótmæli Óeirðir brutust út í
göngu Saving Iceland.
Mótmæli sjálfsagður réttur
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
HVAÐ sem allri tölfræði líður þá er ljóst að síð-
astliðnar vikur hefur verið verulega þurrt á
stórum hluta landsins. Þar sem mest hefur rignt
hefur ekki rignt nema helming þess sem venjan
er í meðalári. Áhrif þessa eru margs konar. Upp
hafa blossað sinubrunar og ferðafólk hefur verið
beðið um að fara sérstaklega varlega með eld
enda gróður og jarðvegur þurr. Í Morgun-
blaðinu í síðustu viku sagðist Sveinn Runólfsson,
landgræðslustjóri, hafa áhyggjur af vissum
svæðum þar sem væru opin jarðvegssár ef það
færi að hvessa áður en það rigndi. Heyfengur
bænda verður að sama skapi ekki mikill þegar
sprettan er lítil líkt og verður í þurrkatíð.
Ólafur Arnalds, jarðvegsfræðingur og pró-
fessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, segir
afar mismunandi hve vel land er viðbúið að tak-
ast á við þurrka sem þessa. „Þau svæði sem eru
viðkvæmust eru þau sem hafa rýran eða send-
inn jarðveg eða eru nærri eldfjöllum. Þar safn-
ast fyrir lítill raki og svæði með mjög grófum
gjóskulögum stöðva vatnsflutning til gróðurs.
Hins vegar eru svæði þar sem er mjög frjósöm
mold og mýrlent. Þau eru mjög vel í stakk búin
til að taka svona þurrkum því moldin geymir
einfaldlega svo mikinn raka.“
Sé jarðvegur góður
skapast góðar aðstæður
Ólafur segir að almennt verði gróðurfar ekki
fyrir mjög miklum áhrifum vegna vatnsleysis-
ins. „Það væri þá helst ef það væru plöntur sem
eru mjög viðkvæmar og hafa ekki gott rótar-
kerfi og stæðu á sendnum jarðvegi. Landið sem
verður verst úti er það sem er að gróa saman og
er verið að græða upp. Það verður alltaf verst
úti ef eitthvað afbrigðilegt kemur upp, hvort svo
sem það er rok, mikil vatnsveður eða þurrkar,“
segir Ólafur. Hann segir slík svæði geta orðið
fyrir áhrifum til lengri tíma en það ráðist af vetr-
inum sem taki við og hvernig næsta ár verði.
„Ég held að snjóleysi og hauststormarnir séu
kannski ennþá hættulegri fyrir mörg þessara
svæða en tímabundnir sumarþurrkar. Góð snjó-
hula verndar landið fyrir vindrofi og skilar vatni
ofan í jarðveginn að vori og býr þannig allt vist-
kerfið undir sumarþurrka.“ Ólafur bendir samt
á að þar sem jarðvegur sé góður og vatnsforði sé
til staðar séu aðstæður afar góðar fyrir gróður.
„Þar er gríðarlegur vöxtur þótt það sé þurrkur.“
Í sama streng tekur Bjarni Diðrik Sigurðsson,
skógvistfræðingur og prófessor við Landbúnað-
arháskóla Íslands. „Þessar aðstæður eru trjá-
gróðri mjög jákvæðar. Það er eingöngu þar sem
menn eru í skógrækt á jarðvegsþunnu landi þar
sem þurrkurinn er farinn að valda skemmdum á
trjáplöntum. Víðast hvar líður trjánum vel sem
aldrei fyrr enda metvöxtur í flestum trjáteg-
undum.“
Segir Bjarni sólarljósið vera ástæðuna fyrir
miklum vexti trjágróðurs. „Það sem skiptir máli
er að þetta veður kemur snemma á vaxtartím-
anum og nýtist þeim þannig beint við vöxt.“
Trén ná að aðlagast þurrkinum betur
Tré eru almennt vel aðlöguð að þurrkum og
bregðast við með því að fórna laufi eða barri til
að koma sér hjá skaða. „Með því að fella blöðin
stöðva trén vöxt en koma í veg fyrir uppgufun
vatns. Tréð fer þá í dvala eins og það sé haust og
bjargar sér frá þorstanum.“ Bjarni segir ýmsar
barrheldnar grenitegundir vera í vissri hættu en
sjálfur hefur hann séð einhverjar skemmdir á
lerkitrjám á þurrum melum á Austur- og Suður-
landi. Ólíkt t.d. grasi hafa trjáplöntur síðan yf-
irleitt rætur sem ná dýpra niður í jarðveginn og
ná þannig meiri vökva en þær plöntur sem hafa
stuttar rætur.
Garðagróður í þéttbýli hefur líka tekið veru-
lega við sér. Jóhann Pálsson, grasafræðingur,
segist ekki muna eftir annari eins gróðursæld í
görðum. „Við sluppum við alvarleg vorfrost í ár
eftir að gróðurinn var lifnaður við. Síðan kom
leiðinlegt kuldakast í nærri mánuð með miklu
hvassviðri og lágum hita þannig að gróðri hrak-
aði. Núna er gróður hins vegar óvenjulega
snemma á ferð og það er vegna þessarar hita-
bylgju.“ Jóhann ræktar rósir í sínum garði og
segir hann að venjulega séu þær í mestum
blóma í lok júlí. „Þær eru hins vegar eiginlega
búnar að ljúka sinni blómgun núna.“ Hann seg-
ist samt víða sjá að þurrkarnir hafi náð til gróð-
urs í sumum görðum og víða séu grasflatir gul-
ar. Sjálfur er Jóhann með sinn garð ofan á mel
þar sem langt er í grunnvatn. „Ég reyni því að
vökva mikið og er með garðslöngur í garðinum
einn dag í viku.“
Breytt tíðarfar hefur einnig haft áhrif á flór-
una í görðunum. „Garðeigendur stjórna henni
að miklu leyti sjálfir og þeir treysta sér nú frek-
ar til að reyna fyrir sér með viðkvæmari og
meira heillandi plöntur þegar veðrið er orðið
betra. Fólk er farið að rækta ýmislegt sem því
datt ekki í hug að rækta áður og maður er farinn
að sjá ótrúlegustu plöntur í görðum.“
Breytingar verða á íslensku gróðufari
Nokkrar veðurbreytingar hafa orðið á Íslandi
síðastliðin ár og meðalhitinn er hærri en hann
var fyrir árið 1990. Haraldur Ólafsson, veður-
fræðingur, segir að halda mætti að Ísland hefði
tekið út alla þá hlýnun loftslags sem gert var ráð
fyrir að yrði á næstu hálfu öld, á einungis fimm
árum. Hann gerir því ráð fyrir að hækkunin
verði ekki varanleg. „Það er alveg ljóst að síð-
ustu ár hafa verið mjög hlý og líklega með þeim
hlýrri frá landnámsöld,“ segir Haraldur.
Bjarni Diðrik, skógvistfræðingur, segir eng-
an vafa leika á því að mun jákvæðari skilyrði séu
hér til skógræktar en fyrir nokkrum áratugum
síðan. „Þetta eru fyrst og fremst jákvæð áhrif
vegna lengri vaxtartíma, frekar en hitastigsins.
Það vorar fyrr og haustar seinna.“ Bjarni segir
margs konar breytingar vera að eiga sér stað nú
og gróskumikið rannsóknarstarf fari nú fram á
breytingunum. „Eitt sem nemendur okkar hafa
greint er að birkiskógar eru farnir að breiðast út
í meiri hæð en áður var og við viljum rekja það
til hlýnunar.“
Sigurður H. Magnússon, plöntuvistfræðingur
hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, er sammála
Bjarna um að breytt tíðarfar muni hafa áhrif á
gróður hér á landi. „Ég hef sagt það að á næstu
áratugum eiga eftir að verða miklar breytingar
á íslensku gróðurfari.“ Hann bendir á þrjá þætti
sem valdi breytingunum. Í fyrsta lagi fari veður
hlýnandi sem auki vöxt plantna líkt og gerist nú
á þeim svæðum þar sem jarðvegur er góður. Í
öðru lagi hafi beit breyst mjög með mikilli fækk-
un sauðfjár en vegna hennar hafi beit almennt
minnkað auk þess sem það séu ákveðnar teg-
undir sem einungis sauðkindin beit en ekki
hross. „Kindurnar bíta t.d. víði en það gera
hross ekki. Þess vegna dafnar víðirinn þar sem
hrossabeit hefur tekið við af sauðfjárbeit.“ Í
þriðja lagi bendir Sigurður á að nýjar ágengar
tegundir eins og lúpína og skógarkerfill hafi ver-
ið fluttar til landsins. „Þessa tegundir eiga auð-
velt með að breiðast út og gjörbreyta þá t.d. mó-
lendi. Þar sem áður voru kannski margar
tegundir verða fáar. Þetta er allt annars konar
gróður.“ Hann bendir á að þessum svæðum
skapist síðan svigrúm til skógræktar.
Morgunblaðið/RAX
Landgræðsla Hitinn og regnleysið fer misvel í gróður á landinu. Sá sem er í grunnum eða sendnum jarðvegi er afar viðkvæmur fyrir þurrkinum. Annar gróður vex hins vegar sem aldrei fyrr.
Veðrið bæði græðir og særir
Morgunblaðið/Eyþór
Breytt gróðurfar Tíðarfar á landinu hefur verið betra síðustu ár en áður. Búist er við að lúp-
ína og aðrar ágengar tegundir verði meira áberandi í framtíðinni og meira verði um skóga.
Í HNOTSKURN
»Þar sem jarðvegur er grunnur ogsendinn eru plöntur viðkvæmar fyr-
ir þurrkum. Heyfengur bænda getur
orðið minni vegna þurrksins.
»Aukið sólarljós og hiti hefur jákvæðáhrif á vöxt plantna þar sem mold er
rök.
» Breytt tíðarfar mun hafa áhrif ágróðurfar til lengri tíma.
Óvenju gott veður hefur verið
víða um land síðastliðnar vikur.
Þrátt fyrir að draga megi upp
dökka mynd af áhrifum þurrka
eru jákvæð áhrif veðursins mikil.