Morgunblaðið - 17.07.2007, Page 9

Morgunblaðið - 17.07.2007, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 9 FRÉTTIR Laugavegi 82, sími 551 4473 Póstsendum Það nýjasta í undirfötum frá París Laugavegi 53, s. 552 1555 TÍSKUVAL Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16 Útsala 50-70% afsláttur Einnig nýjar vörur frá Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222 Leggingsbuxurnar komnar aftur Útsalan í fullum gangi str. 36-56 Opið mán.-fös. kl. 10-18, laugard. opið í Bæjarlind kl. 10-15 en lokað í Eddufelli. Bæjarlind 6 • sími 554 7030 Eddufelli 2 • sími 557 1730 Enn meiri verðlækkun á útsölu STÓRÚTSALA NÚ ENN MEIRI AFSLÁTTUR Laugavegi 63 • S: 551 4422 FIMMTÁN ára piltur, sem dæmd- ur var fyrir helgi í tuttugu mánaða fangelsi fyrir aðild sína að fjöl- mörgum lögbrotum, situr nú í gæsluvarðhaldi vegna hrottalegrar árásar á leigubílstjóra í apríl sl. og fleiri brota. Við yfirheyrslur lög- reglu hefur hann játað árásina og mun að öllum líkindum verða ákærður fyrir tilraun til mann- dráps, en að öðrum kosti stórfellda líkamsárás. Pilturinn, sem fæddur er árið 1991, hefur verið töluvert í um- ræðunni á undanförnum mánuð- um, en fremur sjaldgæft er að svo ungt fólk þurfi að sæta gæslu- varðhaldi. Eftir árásina á leigubíl- stjórann var honum komið fyrir á meðferðarheimili ríkisins að Stuðl- um eftir skamma dvöl í einangrun í hegningarhúsinu við Skólavörðu- stíg. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins var hins vegar ekki annað fært en að færa hann að nýju á Skólavörðustíginn eftir skamma dvöl á Stuðlum. Vopnað rán í 10–11 Pilturinn var dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness á fimmtudag en hann tók m.a. þátt í þremur ránum auk þjófnaða og nytjastulda. Hann sagðist sjálfur hafa verið í óhóf- legri fíkniefnaneyslu allt frá 12 ára aldri og kvaðst aldrei hafa farið í meðferð. Einna alvarlegasta brotið sem hann var sakfelldur fyrir var vopnað rán sem hann framdi í 10– 11 verslun ásamt tveimur félögum sínum. Einnig var hann sakfelldur fyrir aðild sína að tilraun til ráns á hraðbanka og fyrir að hafa, ásamt tveimur félögum, veist að tveimur mönnum í miðbæ Reykjavíkur, hótað þeim öllu illu og tekið af þeim farsíma þar sem þeir höfðu ekki reiðufé á sér. Steininn tók úr 27. apríl sl. þeg- ar pilturinn réðst að leigubílstjóra vopnaður hamri og veitti honum þungt högg hægra megin á höf- uðið. Bílstjórinn hlaut af innkýlt höfuðkúpubrot og innvortis blæð- ingu á höfði. Brotið getur varðað allt að 16 ára, eða ævilöngu, fang- elsi. Áður en hann var handtekinn vegna árásarinnar stal hann kveikjuláslyklum úr búningsklefa Sundhallar Reykjavíkur en komst ekki langt því hann ók bifreiðinni á ljósastaur við Sæbraut. Hann var handtekinn skammt frá. Í varðhaldi til 17. ágúst Samkvæmt greinargerð lögreglu var pilturinn í afar slæmu ástandi vegna áhrifa lyfja eða fíkniefna. Við skýrslutöku sagðist pilturinn ekki muna eftir atvikinu en játaði að hafa beitt hamri gegn leigubíl- stjóranum. Ekki hefur verið gefin út ákæra í málinu en pilturinn mun sitja í gæsluvarðhaldi til 17. ágúst nk. Situr í gæsluvarðhaldi fyrir grófa líkamsárás Morgunblaðið/Ásdís Víggirt Bakvið rimla Hegningarhússins við Skólavörðustíg situr pilturinn ungi í varðhaldi. Það þykir skárri kostur en að hann sitji á Litla-Hrauni. Fimmtán ára piltur var nýverið dæmdur í 20 mánaða fangelsi LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu þurfti að hafa afskipti af fjórum ökumönnum um helgina en þeir ákváðu að setjast undir stýri eftir að hafa neytt fíkniefna. Í tveimur til- vikum var um að ræða sömu bifreið. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni var 19 ára piltur stöðvaður á föstudag og var greinilegt á honum að hann var ekki hæfur til að stjórna ökutæki. Með honum í bíl voru tveir piltar og stúlka á svipuðum aldri og voru þau öll undir áhrifum. Fyrir ut- an það að vera undir áhrifum ólög- legra efna er maðurinn ekki með ökuleyfi og hafði ekki tekið nagla- dekkin undan. Á sunnudag var sama bifreið stöðvuð í Ártúnsbrekku og þá var undir stýri 17 ára piltur. Enn var bif- reiðin útbúin nagladekkjum auk þess sem pilturinn reyndist óhæfur til aksturs sökum fíkniefnaneyslu. Ökumenn eru víðar óhæfir til aksturs en á höfuðborgarsvæðinu því á sunnudag stöðvaði lögreglan á Suðurnesjum ökumann á Grindavík- urvegi á 140 km hraða. Þegar ástand ökumannsins var kannað kom í ljós að hann var undir áhrifum fíkniefna og sviptur ökuréttindum. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Suðurnesjum má maður- inn búast við hárri sekt, eða allt að 220 þúsund krónum, auk þess sem einhver bið verður á því að hann öðl- ist ökuréttindi á nýjan leik. Ökumenn undir áhrifum fíkniefna FULLT var út úr dyrum hjá bókaversluninni Eymunds- son í Kringlunni í gær þegar norski rithöfundurinn Margit Sandemo áritaði þar bækur sínar en Sandemo er einkum þekkt fyrir bækur sínar um Ísfólkið. Bækurnar um Ísfólkið komu út hér á landi á sínum tíma og nutu mikilla vinsælda. Undanfarið hefur bóka- forlagið Jentas raunar verið að gefa þær út aftur og er sú tíunda í röðinni væntanleg. Morgunblaðið/ÞÖK Fullt út úr dyrum hjá Sandemo HELDUR hefur dregið úr hrað- akstursbrotum í umdæmi lögregl- unnar á Blönduósi undanfarnar vikur og mánuði og telur lögreglan að hækkun sekta vegna hraðakst- ursbrota hafi haft sitt að segja um þessa þróun. Að sögn Hermanns Ívarssonar lögregluvarðstjóra hafa ökumenn í öllum aldursflokkum tekið sig á, en á hinn bóginn eru erlendir ökumenn úti á þekju hvað reglur um hámarkshraða áhrærir. „Þessi nýbreytni virðast ekki hafa skilað sér til útlendinganna,“ bendir hann á. Hermann tekur fram að ofsa- akstursbrotum hafi fækkað samhliða öðrum hraðakstursbrot- um og nú sjást æ færri sem staðn- ir eru að því að aka á um og yfir 130–140 km hraða. Viðmót öku- manna sem eru stöðvaðir hefur hins vegar lítið breyst, þó ekki í þeim skilningi að viðmótið sé hranalegt í garð laganna varða, heldur eru flestir mjög kurteisir, að sögn Hermanns. Hraðinn að minnka í Húnavatnssýslum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.