Morgunblaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... ● GENGI krónunnar veiktist um 0,2% í gær og var gengisvísitalan 111,91 stig í lok dags. Sölugengið gagnvart Bandaríkjadal var í gær 60,11 krónur en 82,96 gegn evru. Mest hækkun var á verði hluta- bréfa Atlantic Petroleum í Kauphöll OMX á Íslandi í gær, eða 2,8%. Bréf Nýherja lækkuðu mest, eða 1,5%. Úrvalsvísitalan hækkaði lítillega, eða um 0,06% og endaði í rúmum 8.763 stigum. Heildarviðskipti gær- dagsins námu um 16,3 milljörðum, þar af tæpum 13 milljörðum með hlutabréf, mest með bréf Glitnis. Dollari 60,11 krónur ● OLÍVERÐ á heimsmarkaði hækkar enn. Verð á Brent-olíu fór upp fyrir 80 Bandaríkjadali í gær og er því orðið hærra en það var hæst í fyrra, en í ágúst á síðasta ári fór verðið í 78,64 dali. Verðið hefur hækkað um 33% það sem af er þessu ári. Í Morgunkorni Glitnis segir að ýmsar ástæður liggi að baki hækk- uninni, svo sem ótti við vaxandi átök í Miðausturlöndum, ótti við skert framboð á olíu vegna viðhalds í Norðursjó, kjarnorkudeila Írans og Bandaríkjanna og ótti við að framboð á olíu frá Nígeríu skerðist vegna átaka þar. Þá hafi aukin spákaup- mennska stjórnenda vogunarsjóða og annarra spákaupmanna sín áhrif. Olíuverð á heims- markaði hækkar enn NÆR allir stjórnarmenn í 15 stórum fyrirtækjum á íslenskum hlutabréfa- markaði, eða um 95%, hafa reynslu af setu í stjórnum eða rekstri fyrir- tækis segir í athugun Samtaka at- vinnulífsins (SA) á bakgrunni stjórn- armannanna. Reynsla af stjórnun, sé því grundvallarþáttur við skipun í stjórnir fyrirtækjanna, auk þess sem eignarhald hafi einnig úrslitaáhrif. 65% stjórnarmanna í þeim fyrir- tækjum sem voru tekin til athugunar eru sjálfir hluthafar í fyrirtækjunum eða sitja í stjórn fyrir hönd ákveð- inna eigenda. Rúmur þriðjungur sit- ur því í stjórn án eignatengsla. Segir að menntun hafi minna vægi og því sé aukin háskólamenntun kvenna, með vísan til jafnréttiskennitölunn- ar, sem sýndi rýran hlut kvenna, ekki nóg til að skila þeim stjórnar- sætum. Kauphöllin hefur viðmiðun- arreglur um að í stjórn skráðra fyrir- tækja sitji tveir óháðir aðilar. Morgunblaðið/Kristinn Bakgrunnur Menntun hefur minna vægi en reynsla við val í stjórn. Valið í stjórn út frá bak- grunni stjórnarmanna NOVATOR, eignarhaldsfélag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hef- ur nú tryggt sér vilyrði fyrir rúmum 90% hlutafjár í Actavis. Frestur hluthafa sem ekki hafa samþykkt yf- irtökutilboðið rennur út á morgun, að öðrum kosti öðlast þeir ekki rétt til viðbótargreiðslu selji Novator hlut sinn innan árs. „Við erum komin yfir þröskuld- inn,“ sagði Björgólfur Thor í samtali við Morgunblaðið í gær. „Tilboðið hefur náð fram að ganga, málið er svo að segja í höfn.“ Að sögn Björgólfs Thors er nú fyrst á dagskrá að komast í sumar- frí, en með lækkandi sól verði farið að bretta upp ermarnar. „Við stefnum að því að Actavis haldi áfram að vaxa og dafna með því að keyra áfram framtíðarplön fyrirtækisins,“ sagði Björgólfur Thor. Þrátt fyrir fyrirliggjandi skrán- ingu af hlutabréfamarkaði er því engin lognmolla í vændum, enda munu lánardrottnar enn fylgjast með starfseminni. Eftir nokkra daga verður haldinn stjórnarfundur þar sem afskráning- ar verður óskað, sem mun væntan- lega taka nokkrar vikur. Þá mun taka við ný og fámennari stjórn heldur en nú situr. „Eftir viku munu tæplega fjögur þúsund manns fá sendan tékka, 190 milljarðar króna koma inn í hagkerf- ið sem er ákaflega gaman. Þetta hef- ur verið mjög vænleg fjárfesting,“ sagði Björgólfur Thor sáttur. Markmið Novator um 90% hlutafjár í Actavis í höfn  Eftirstandandi hluthöfum skylt að selja  190 milljarðar króna í hagkerfið Björgólfur Thor Björgólfsson Segir Actavis hafa gefið tóninn í útrás Ís- lendinga með kaupum á erlendu fyrirtæki sem var stærra en hið íslenska. Morgunblaðið/Ásdís EIGENDUR kauphallarinnar í Dubai eru að undirbúa yfir- tökutilboð í OMX. Tilboðið hljóðar upp á allt að 250 sænskar krónur á hlut en það er mun hærra en tilboð bandarísku kauphallarinnar Nasdaq í OMX sem var 199 sænskar krónur á hlut. Þetta er fullyrt í frétt á vef The Daily Telegraph en þar segir jafn- framt að fjármögnun á tilboði Kauphallarinnar í Dubai sé lokið og verður yfirtökutilboðið kynnt síðar í vikunni. Gengi bréfa OMX hækk- aði verulega á mörkuðum í gær vegna þessarar fréttar. Hærra tilboð í OMX Dubai Bjóða betur í OMX en Nasdaq.         !"# $%& '() 67$     7 @ :"  A    A   :<  A  B"  8  A         "A ? 1 $" " @    A  2 A=1    8 "  $" "  7" @  ""    ! ;" #;   C   D""   26 %  +)'    "@   @ E  E0    1  A  FC  @ @  A  7   G #  C111 !"<!  H" "<!   , #8 & I  C   I      A!#   9% : % .0<+2 3</- 4/<+2 -3<-2 +3<31 +3<,2 -3<42 -2<41 /+-4<22 ,2<22 /4<22 ++<01 1<4+ /20<12 -<-. 1<3+ /232<22 4/2<22 /<.0 +-+<22 0<-1 3-<12 /3<12 -3<-1 .<12 -.34<22 /+<22 0<32                               H!"A  1""  ! 9   1"J 2 A  (.)))-(% *)*.*+-+ ,)//-,-'' (.(,./**,' *,+-//-(-/ .,)).-**-, *,+*'-., *%%*.'+/)( '--*/,).. .-)(/,'-. '%%()%, /-)+//.(. *%(/,-%- .%)'.-* *-+*+' ./*+)%% *++(/(- ,,,'-.*&(+' +/%// ')*(-*./ -)%-+* (-(/%(%% /,'%% .*,**%%  '-.%.-'(   -)&(% /&*% ,%&-% +/&+' (/&-' (/&+' +/&'% +%&,' *(+%&%% .%&%% *)&*% ((&'' '&,* *%)&%% +&+- '&-' *%-)&%% ,*%&%% *&-) (+%&%% )&+' /+&'% */&'% +/&+' +--'&%% --&)% /&*+ ,*&+% +/&'% +%&%% (/&.% +/&/' +%&/% *(+,&%% .%&%' ((&,% '&,' *%,&'% +&.( '&/+ *%/(&%% ,*-&%% *&-, (+/&%% )&.. /+&-% (+&%% +/&)' +/*%&%% *(&%% )&-% #<  :!"A ( - - (, (% .- - *% ') +- * '/ ' / ( ( ( / * *. ( ' + (  ,   K 1" 1 :!": !" *),(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, *(,(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, *),(%%, (')(%%, *),(%%, (,(%%, (%)(%%, L7M ; L7M  12. /:-/+ =2<, =2<+ N N L7M  < M -:-4/ ,,2 >2<- 2<2 N N KO  " " /-:31/ +:034 =2<- =2<, N N KM 0:03. .:/20 =2<- =2<+ N N L7M =*' L7M .% .:40, /:,/. =2</ =2<- N N VERÐBÓLGA á tólf mánaða tímabili, á hinu 13 landa evru- svæði, mældist 1,9% í júní og helst því óbreytt fjórða mánuðinn í röð. Er þetta er tíundi mánuður- inn í röð, sem verðbólgan mælist undir 2% verðbólgumark- miði Seðlabanka Evrópu, að því er kemur fram á vef Hagstofu Evrópu. Fyrir ári síðan mældist hún 2,5%. Þó verðbólgan nú sé í samræmi við spár segir Bloomberg-frétta- veitan sérfræðinga hjá Seðlabanka Evrópu hafa áhyggjur af því að verðbólguþrýstingur aukist. Hætta sé á að verðbólgan fari yfir 2% þeg- ar olíuverðshækkanir skili sér í verðlagið og minnkandi atvinnu- leysi komi fram í auknum launa- kostnaði. Ísland niður um tvö sæti Ísland hefur nú færst niður um tvö sæti, úr 6. sæti í 8., á lista yfir ríki EES sem búa við mesta verðbólgu. Eystrasaltslöndin, Ungverjaland, Búlgaría, Rúmenía og Slóvenía búa við meiri verðbólgu en Ísland. Sam- kvæmt samræmdri vísitölu neyslu- verðs mældist tólf mánaða verð- bólga á Íslandi 3,0%. Sú vísitala tekur ólíkt Hagstofunni ekki mið af þróun húsnæðisverðs. Verðbólgan enn óbreytt Evran Spáð enn sterkari í ár. FL Group hefur ásamt bandaríska fasteignafélaginu Bayrock Group eignast 30% í þróunarverkefni í Miami, Flórída. „Midtown Miami“ er fyrsta fjárfesting samrekstrarfélags sem félögin tvö mynduðu í maí. Verkefnið felst í þróun tæplega 500.000 fermetra landsvæðis í Miami. Áætlað er að þrjú til fjögur ár taki að ljúka verkefninu sem verð- ur fjármagnað með blöndu af eigin fé og lánum. Þá er ráðgert að á svæðinu verði rúmlega þrjú þúsund leigu- íbúðir og herbergi í íbúðahótelum, um 25.000 fermetra verslunarrými og tæplega 47.000 fermetra hágæða skrifstofurými. Til samanburðar má geta þess að Kringlan er rúmlega 50.000 fermetrar að stærð. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá FL Group, en þar segir einnig að „Midtown Miami“ sé á eft- irsóknarverðum stað í borginni. FL Group fjárfesti fyrr á þessu ári í fjórum verkefnum á vegum Bay- rock Group. FL Group í Miami ROYAL Bank of Scotland (RBS), ásamt Santander Central Hispano og Fortis Bank, hækkaði óvinveitt yfirtökutilboð sitt í ABN Amro í gær og bauð þar með betur en Barclays. Tilboðið hljóðar upp á 71,1 millj- arð evra. Þar af er gert ráð fyrir 66 milljörðum í reiðufé, sem er hækkun úr 79% í 93% af heildarverðinu. Nýtt tilboð í ABN Amro ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.