Morgunblaðið - 17.07.2007, Síða 13

Morgunblaðið - 17.07.2007, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 13 ERLENT OSAMA bin Lad- en, leiðtogi al- Qaeda, sást á mínútulöngu myndbandi sem var birt á vefsíðu nú um helgina. Ekki var hægt að dæma af upptök- unni hvenær hún var gerð. Þetta er í fyrsta sinn sem heyrist frá bin Laden síðan í júlímánuði í fyrra, en þá sendi hann frá sér hljóðupptöku, þar sem hann vísaði til atburða líðandi stundar, en það þótti staðfesta aldur upptökunnar. Hið nýja myndband var fyrst og fremst kveðja til fallinna félaga í Afganistan, en bin Laden taldi þá gæfusama sem fengju að deyja písl- arvættisdauðdaga. Bin Laden á myndbandi Osama bin Laden DÓMARI í Epíópíu dæmdi í gær 35 stjórnarandstæðinga í lífstíðar- fangelsi fyrir að hafa æst til ofbeld- is og reynt að steypa stjórn lands- ins. Einnig missti fólkið kosninga- rétt og kjörgengi. Lífstíðarfangelsi MARKAÐUR fyrir fólk sem vill skilja verður nú settur á stofn í Vín í Austurríki. Getur fólk þar fengið ýmsar upplýsingar sem gagnast við skilnað, að sögn Antons Barz sem stendur fyrir markaðnum. Skilnaðarhjálp ROBERT Mugabe, forseti Simb- abve, er rúinn virðingu vegna stjórnarhátta sinna, segir Desmond Tutu, erkibiskup í S-Afríku. Aðeins „dýrlingar“ geta hugsað til Mugab- es án þess að reiðast, segir Tutu. Reuters Umdeildur Robert Mugabe, forseti Simbabve, flytur ræðu. Afleitur RÚSSNESKA utanríkisráðuneytið sagði í gær að aðgerðir breskra stjórnvalda, sem hafa vísað fjórum rússneskum diplómötum úr landi, mundu hafa alvarlegar afleiðingar. Bretar eru ósáttir við að Rússar neita að framselja meintan morð- ingja Alexanders Lítvínenko er gagnrýndi rússnesk stjórnvöld og var myrtur með eitri í London. Reuters Vilja framsal Andrei Lúgovoi, meintur morðingi Lítvínenko. Rússar vara Breta við DÓMSTÓLL í Los Angeles sam- þykkti í gær málamiðlun um að kaþólska kirkjan skyldi greiða hundruðum fórnarlamba nauðgara úr prestastétt alls 660 milljónir dollara í skaðabætur. Greiða bætur INDVERSKI læknirinn Sabeel Ah- med, sem er einn þeirra sem hand- teknir voru vegna misheppnaðrar bílasprengingar á Glasgow flugvelli nýlega, kom fyrir rétt í London í gær en hann var ákærður nú um helgina fyrir að leyna upplýsingum um hryðjuverk. Af þeim átta sem hand- teknir voru hafa nú þrír verið ákærðir og þremur verið sleppt, einn er hættulega særður. Jórdanski læknirinn Mohammed Asha er enn í haldi og hefur lögreglan leyfi til að halda honum án ákæru fram til næstkomandi laugardags. Hugmyndir hafa komið fram í Bretlandi undanfarið um að lengja þann tíma sem leyfilegt er að halda grunuðum hryðjuverkamönnum áður en þeir eru ákærðir. Hefur Carlile lá- varður, sem skipaður var af ríkis- stjórn Bretlands til þess að kanna áhrif hryðjuverkalaganna sem sett voru í Bretlandi eftir hryðjuverkin 11. september, stutt þessar hugmyndir og sagt dómara eiga að ákveða tíma- mörkin, ekki þingið. Sprenging við breskt sendiráð Breska leyniþjónustan telur að um 30 hryðjuverkahópar séu að skipu- leggja árásir í Bretlandi en nú er fylgst með um það bil 4000 einstak- lingum alls. Sprenging varð nokkra metra frá breska sendiráðinu í Chile í gær. Lít- ill skaði hlaust af og enginn særðist en utanríkisráðuneyti Bretlands hefur gefið út yfirlýsingu um að ekki sé ljóst hverju sprengingin hafi beinst að. Lagaheimildir víkkaðar Innanríkisráðherra Þýskalands, Wolfgang Schäuble, sagði nýlega að íhuga ætti breytt lög í baráttunni gegn hryðjuverkum og nefndi hann að stjórnarskráin gæti jafnvel gefið leyfi til að myrða grunaða hryðju- verkamenn erlendis án réttarhalda. Horst Köhler, forseti Þýskalands bað innanríkisráðherrann í ræðu sinni á sunnudag um að gæta orða sinna og sagðist sjálfur hafa miklar efasemdir en tillagan er mjög um- deild, enda lifir minningin um nas- istana og málefnið því viðkvæmt. Réttað yfir meintum hryðjuverkamönnum Reuters Mótmæla Múslímakona í Skotlandi tekur þátt í friðsamlegum mótmælum skipulögðum af múslimum eftir árásina á flugstöðina í Glasgow. Í HNOTSKURN »Tony Blair, fyrrverandiforsætisráðherra Bret- lands, lagði fram tillögu um að auka leyfilegt varðhald grun- aðra hryðjuverkamanna fyrir ákæru í 90 daga frá 14 en þingið samþykkti aðeins 28 daga leyfilegt varðhald. »Viðbúnaðarstig í Bretlandivar hækkað upp í hæsta stig um skamman tíma en í því felst að yfirvöld landsins telji hryðjuverkaárás mjög líklega. Viðbúnaðarstigið hefur nú verið lækkað um eitt stig. Eftir Ástu Sóleyju Sigurðardóttur astasoley@mbl.is London. AFP. | Breskur dómstóll úrskurðaði í gær að velsku, berklaveiku nauti yrði þyrmt, þrátt fyrir að það teldist skapa farsóttarhættu í landinu. Hópur munka og nunna í hindúaklaustri biðlaði til dómstóla um að hið helga naut yrði ekki tekið af lífi og hótuðu að verja nautið með lífi sínu. Dómstólar komust að þeirri niðurstöðu að yfirvöldum í Wales hefði ekki tekist að sanna að ekki væri hægt að hefta smithættu nema með því að farga nautinu. Dómarinn sagði að drápið á naut- inu bryti í bága við trúarskoðanir hópsins og væri því ólögmætt. Nautið verður í einangrun meðan löng lyfjameðferð stendur. Nauti bjargað fyrir dómi Washington, Jerúsalem. AP. AFP. | George W. Bush Bandaríkjaforseti hyggst boða til alþjóðlegrar ráð- stefnu til að endurvekja friðarviðræð- ur í Mið-Austurlöndum og verður hún haldin á næstu mánuðum. Meðal ríkja sem munu taka þátt í ráðstefnunni eru Ísrael og nokkur arabaríki, að sögn bandarískra emb- ættismanna. Hamas-sam- tökin palestínsku, sem ráða yfir Gaza, fordæmdu þegar hugmynd Bush. Auk þess að ræða friðarferlið er markmiðið með ráðstefnunni að kanna hvernig hægt sé að efla lýð- ræðislegar stofnanir Palestínu- manna. Condoleezza Rice, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, mun stýra fundinum og meðal þátttakenda verða Ísraelar, fulltrúar palestínsku heimastjórnarinnar og arabaríki sem viðurkenna tilverurétt Ísraels. Bush hét því að auka fjárstuðning við Palestínustjórn Mahmouds Ab- bas forseta sem væri með aðstoð for- sætisráðherrans, Salmans Fayyads, að reyna að byggja upp lýðræðis- stofnanir þjóðar sinnar. Á hinn bóg- inn hefðu Hamas-menn „sýnt með ótvíræðum hætti að þeir leggja áherslu á ofstæki og hermdarverk“. Ísraelar gera ráð fyrir því að sleppa 250 palestínskum föngum fyr- ir vikulok. Þeir verða allir úr flokki Abbas forseta, Fatah. Boðar fund um Mið- Austurlönd George W. Bush            Ljósmyndari: Margrét Kolbeinsdóttir Nafn myndar: Ekki bara kerlingar!!! << 1.verðlaun Kodak EasyShare Z712 IS 2.verðlaun Kodak EasyShare V610 3.verðlaun Samsung Digimax i6 PMP Verðlaun fyrir mynd vikunnar eru: 50 fríar 10 x 15 myndir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.