Morgunblaðið - 17.07.2007, Side 14

Morgunblaðið - 17.07.2007, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Arndísi Þórarinsdóttur arndis@mbl.is VLADÍMÍR Pútín Rússlandsforseti sagði um helgina að Rússar hygðust ekki lengur taka þátt í samningnum um takmörkun vígbúnaðar, CFE. Pútín sagðist taka ákvörðunina í ljósi „óvenjulegra kringumstæðna“ sem hefðu áhrif á öryggismál Rússlands. CFE-samningurinn er sagður vera einn af hornsteinum öryggis í Evrópu. Samningurinn takmarkar hversu mikið af hefðbundnum her- gögnum má vera á svæðum sem til- heyra Evrópu og hinu gamla Var- sjárbandalagi í tíð kommúnista. Rússland hefur oft hótað því að segja upp samningnum, sér í lagi þegar ráðamönnum þar þykir að sér þrengt. Samningatækni? Rússar hafa ekki rift samningn- um, heldur bara tilkynnt að þeir hyggist ekki fara eftir honum leng- ur. Eftir 150 daga munu þeir hætta að gefa upplýsingar um herafla sinn og hætta að heimila skoðanir á her- gögnum sínum. Að sögn sérfræðinga sem AFP- fréttastofan ræddi við í gær bendir þetta til þess að Rússar vilji að leik- reglurnar á hinum alþjóðlega vett- vangi verði endurskrifaðar í ljósi aukins hernaðarmáttar Rússa. „Þetta á eftir að valda Evrópuríkjum miklu hugarangri og Rússland von- ast til þess að það dugi til þess að milda afstöðu Evrópuríkja í garð Rússlands,“ sagði Fjodor Lúkjanov, ritstjóri dagblaðsins Russia in Glob- al Affairs, í samtali við fréttastofuna í gær. Þetta virðist vera staðfest með því að aðstoðarutanríkisráðherra Rúss- lands, Sergei Kisljak, sagði að Rúss- land væri ekki með þessu að loka á allar samningaviðræður. Rússneska dagblaðið Vremja Novostei hafði það eftir embættis- manni í utanríkisþjónustunni að Rússland væri óánægt með breytta samningsstöðu sína frá gerð samn- ingsins. Við undirritun hans höfðu Varsjárríkin næstum tvöfaldan her- afla á við Atlantshafsbandalagið, NATO, en nú eftir fjölgun NATO- ríkja hafa þau þrjá hermenn á móti hverjum rússneskum dáta. Utanríkisráðherra Þjóðverja, Frank-Walter Steinmeier, sagði þessa þróun mála „mikið áhyggju- efni“. Frá Bandaríkjunum bárust þær fregnir að þar í landi hefðu menn orðið fyrir vonbrigðum með ákvörð- un Rússa, en myndu halda áfram við- ræðum við þá á næstu mánuðum til þess að ákvarða hvernig framhald- inu yrði háttað. Heldur hefur andað köldu til Bandaríkjanna frá Rúss- landi undanfarið, ekki síst vegna eld- flaugavarnakerfisins sem Banda- ríkjamenn hyggjast setja upp í Evrópu og Rússar telja stefnt gegn sér. Gagnrýna stefnubreytingu Rússa í vígbúnaðarmálum Reuters Vopn Rússa Sjálfvirki riffillinn sem kenndur er við Míkhaíl Kalashníkov hefur lengi verið notaður í rússneska hernum og víðar um heim. Hér er hönnuður vopnsins með vopnið á áttræðisafmæli sínu. Stjórn Pútíns hefur hætt þátttöku í CFE-samningnum um hefðbundin vopn Í HNOTSKURN »CFE-samningurinn varundirritaður árið 1990, tók gildi 1992 og var endurskoðaður árið 1999 til að taka tillit til nýrra aðstæðna í Evrópu eftir að Varsjárbandalagið leystist upp. »NATO samþykkti aldreiendurskoðaða samninginn, því það skilyrði var sett að Rúss- ar myndu draga herlið sitt frá Georgíu og Moldóvu áður en það yrði gert. Rússar gerðu það ekki. »Rússar voru sérstaklegaáfram um að Eystrasaltsríkin samþykktu endurskoðuðu útgáf- una, en þau eru ekki aðilar að samningnum, en eru í NATO. » Búist er við viðbrögðumNATO bráðlega, jafnvel í dag. Kirkuk. AP. AFP. | Tvær bílsprengjur sprungu með 20 mínútna millibili í Írak í gær og grönduðu rúmlega 70 manns. Farartækin sprungu annars vegar við póli- tíska skrifstofu Kúrda og hins- vegar á ávaxta- markaði, hvort tveggja í norður- hluta borgar- innar Kirkuk, en þar er mikil spenna á milli Kúrda og araba. Um 150 eru slas- aðir og mun ástand flestra þeirra alvarlegt, að sögn yfirmanns lög- reglunnar í Kirkuk, Barhan Habib Tayyib, því þeir hlutu alvarleg brunasár. Abdul Rahman Mustafa, sveitar- stjórinn á svæðinu, sagðist for- dæma árásirnar og kenndi öfga- mönnum súnníta um þær. Að vera eða fara Bandarískir hershöfðingjar við- urkenna að ekki gangi vel að ná ár- angri í Írak en heimafyrir er mikill þrýstingur á að herliðið verði kall- að heim. Í síðustu viku sagði forsætisráð- herra Íraka, Nuri al-Maliki, að Bandaríkjamenn mættu fara frá Írak hvenær sem þeim sýndist, þar- lend stjórnvöld réðu vel við stjórn landsins. Aðstoðarmaður ráð- herrans dró ummælin til baka í gær og sagði þau mistúlkuð. Hann hefði átt við að jafnhliða brottför erlendu hermannanna yrði haldið áfram að efla Íraksher. Enn springa bílsprengjur í Írak Nuri al-Maliki UNGU stúlkurnar á myndinni eru klæddar sem guðinn Krishna en þær tóku þátt í miklum hátíðahöldum hinn- ar árlegu „Rath Yatra“ eða „Vagnaskrúðgöngu“ hind- úa sem haldin var í gær í 130. skipti í Kalkútta á Ind- landi. Hátíðinni fylgir stórglæsileg skrúðganga þar sem líkneski þriggja guða, Jagannath, Balabhadra og Subhadra, eru dregin áfram af þúsundum þátttakenda á vögnum sérstaklega gerðum fyrir hátíðina. AP Litskrúðug hátíðahöld í Kalkútta Seúl. AFP. | Norður-Kóreumenn hafa nú gert að- alkjarnakljúfinn í Yongbyon óvirkan en það er fyrsta skrefið í að fjarlægja kjarnorkuvopn lands- ins. Talsmaður utanríkisráðuneytis Norður-Kóreu sagði starfsfólk Alþjóðakjarnorkumálastofnunar- innar (IAEA) hafa fylgst með síðastliðinn laug- ardag er kjarnakljúfurinn var gerður óvirkur og var það staðfest í gær af kjarnorkueftirlitsmönn- um SÞ og Mohamed ElBaradei, yfirmanni IAEA. Kjarnakljúfurinn var gerður óvirkur en ekki tekinn í sundur. Lokunin er liður í samkomulagi Bandaríkjanna, Japans, Suður- og Norður-Kóreu, Kína og Rússlands sem undirritað var hinn 13. febrúar síðastliðinn en Norður-Kórea fær 50.000 tonn af olíu í skiptum fyrir að gera kjarnakljúfinn óvirkan samkvæmt samningnum. Lokatakmark samningsins er að Norður-Kórea geri öll tæki til framleiðslu kjarnorkuvopna óvirk á móti milljón tonnum af olíu sem þeir fái í staðinn en það samsvarar um tveimur þriðju af allri olíunotk- un landsins á árinu 2004. Fyrsta olíusendingin kom til Norður-Kóreu síðastliðinn laugardag en í gær fór næsta sending af stað frá Suður-Kóreu sem var 7.500 tonn af olíu. Matsfyrirtækið Standard and Poor’s segir að- gerðirnar ekki breyta efnahagsmati á Suður-Kór- eu þó að þær séu skref í rétta átt. Fyrirtækið segir aðgerðir Norður-Kóreu of ófyrirsjáanlegar. Ólík- legt sé að landið gefi upp öll kjarnorkuvopn í skipt- um fyrir fjárhagslega aðstoð. Áðurnefndur sex- þjóða-samningur loki ekki öllum leiðum Norður- Kóreu til að framleiða kjarnorkuvopn og auk þess eigi þeir hráefni í slík vopn. Kjarnakljúfur gerður óvirkur Alþjóðakjarnorkumálastofnunin og eftirlitsmenn SÞ staðfestu í gær að stærsti kjarnakljúfur Norður-Kóreu í héraðinu Yongbyon hefði verið gerður óvirkur Í AMERÍKU er allt stórt, að sögn þeirra sem til þekkja og eitt af því sem heimamenn hafa löngum stært sig af er að Bandaríkjamenn séu meiri glæsimenni en aðrir. En tímarnir breytast og menn- irnir með. Bandaríkjamenn voru heimsins hæsta þjóð um 1850, en nú er svo komið að jafnvel ungir Jap- anir eru ekkert miklu lægri en jafn- aldrar þeirra í Bandaríkjunum. Það er ekkert gamanmál að vera lítill, því sumar rannsóknir gefa til kynna að hávaxið fólk sé efnaðra, heilsuhraustara og langlífara en lágvaxnir jafningjar þess. Aukin hæð skilar þó ekki þessum eftirsóknarverðu eiginleikum í sjálfri sér, heldur er hún til marks um gott mataræði, heilsusamlegt fósturskeið og góða barnæsku, en þetta stuðlar allt að þeim lífs- gæðum sem hávaxnir hafa fram yf- ir hina. Því eru íbúar ríkari landa oft hávaxnari en aðrir. Bandaríkja- mönnum svíður því að þeir séu að dragast aftur úr í þessum efnum, enda ein ríkasta þjóð í heimi. Hollendingar munu vera hávaxn- astir þjóða. Meðalhæð karla þar er 1,83 m, eða rúmum fimm cm meiri en í Bandaríkjunum. Bandaríkja- menn smáir Kashiwazaki. AP. | Jarðskjálfti sem var 6,8 stig á Richter-skalanum skók Japan í fyrrinótt og annar litlu minni í gær. Að minnsta kosti sjö létust í fyrri skjálftanum og um 900 manns slösuðust. Allir sem létust voru á átt- ræðis- og níræðisaldri. Fyrri skjálftinn átti sér upptök á norðvesturströnd Japans, á Niigata- svæðinu, en skýjakljúfar í Tókýó, í ríflega 200 km fjarlægð, nötruðu. Borgin Kashiwazaki fór sérstaklega illa út úr skjálftanum, tugir bygg- inga jöfnuðust við jörðu og eldur braust út í kjarnorkuveri á staðnum sem er eitt hið stærsta í heimi og sér svæðinu í kringum Tókýó fyrir orku. Það tókst að ráða að niðurlögum eldsins innan fárra klukkustunda, en að sögn yfirvalda lak vatn frá kjarn- orkuverinu sem í var „smávægilegt magn geislavirkra efna“. Það fylgdi sögunni að magnið teldist ekki hættulegt umhverfinu. Skjálftinn kom einnig af stað bæði aurskriðum og flóðbylgjum svo að eyðileggingin var gríðarleg. Harður eftirskjálfti Fjöldi snarpra eftirskjálfta fylgdi í kjölfar fyrri skjálftans og seint í gær reið yfir skjálfti sem var 6,6 stig á Richter-skalanum á Japanshafi. Tugir þúsunda íbúa svæðisins eru án vatns og rafmagns. Um 450 her- menn og 120 farartæki á vegum hersins voru send á svæðin sem verst urðu úti til þess að liðsinna fórnarlömbunum. Kosningar verða í Japan í lok þessa mánaðar og var Shinzo Abe forsætisráðherra fljótt mættur á svæðið, íklæddur björgunarsveitar- búningi. Jörð skelfur í Japan Sjö létust og hundruð slösuðust

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.