Morgunblaðið - 17.07.2007, Page 15

Morgunblaðið - 17.07.2007, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 15 MENNING FRAMLEIÐENDUR heimild- armyndar fyrir breska ríkisútvarpið, BBC, um Elísabetu II Englands- drottningu, hafa tekið á sig alla ábyrgð á mistök- um sem gerð voru við klippingu kynningarbrots um myndina. Fyrir mistök voru klippt sam- an myndbrot af myndatöku, þar sem bandaríski ljósmyndarinn Annie Leibovitz bið- ur hana að taka af sér kórónuna og síðan brot sem sýnir drottninguna ganga á braut, að því er virðist, að tala um að hún ætli ekki að „breyta neinu“, og á þar við klæðnað sinn. Það brot var hins vegar upptaka af drottningunni að mæta til mynda- töku, en svo virtist sem hún hefði farið í fússi út af bón Leibovitz. Framleiðandi heimildarmynd- arinnar A Year With The Queen, sem verið var að kynna, RDF Media, segist hafa gerst sekur um „alvar- legan dómgreindarskort“. Fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins David Frank, sendi útvarpsstjóranum Mark Thompson tölvupóst í gær þar sem hann sagðist harma mistökin, en spjótin stóðu í síðustu viku á Thompson og var jafnvel talað um að hann segði af sér. Mistök í klippingu Framleiðendur biðja BBC afsökunar Elísabet II Eng- landsdrottning. REKTOR Listaháskóla Íslands, Hjálmar H. Ragnarsson, hefur ráðið Ólaf Svein Gíslason og Katrínu Sig- urðardóttur í störf prófessora í þrívíðri myndlist við myndlist- ardeild skólans. 15 sóttu um störf- in og voru 11 dæmdir hæfir til starfanna að mati sérskipaðrar dómnefndar. Ólafur tekur við starfinu 1. ágúst næstkomandi en Katrín ári síðar, 1. ágúst 2008. Ólafur lauk framhaldsnámi í myndlist frá Hochschule für Bil- dende Künste í Hamborg árið 1988 og hefur verið búsettur þar und- anfarin 20 ár og starfað við myndlist. Hann var gestaprófessor við LHÍ 2000-2003 og hefur kennt myndlist víðar. Katrín lauk meistaraprófi í myndlist frá Rutgers University í Bandaríkjunum 1995 og hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga bæði hér heima og erlendis. Tveir nýir prófessorar Katrín Sigurðardóttir KÓR Hjallakirkju gaf fyrir skömmu út geisladisk með ís- lenskri kirkjutónlist sem ber heitið Í Guðshús okkur Kristur kallar. Á honum er að finna nokkur verk og raddsetningar sem ekki hafa áður verið gefin út í hljóðrænu formi, nokkur af þeim íslensku verkum sem hann hefur flutt á liðnum ár- um. Geisladiskurinn er til sölu í Hjallakirkju, hjá kórfélögum en fæst einnig í Kirkjuhúsinu við Laugaveg, 12 tónum, Eymundssyni – Pennanum í Kringlunni og Smáralind, Skálholtsskóla, Tónabúðinni Skip- holti og Reykholtskirkju. Tónlist Kór Hjallakirkju gefur út disk Kápumynd á geisladisknum. Í KVÖLD verða aðrir tónleikar í tónleikaröðinni „Þriðjudags- kvöld í Þingvallakirkju“. Að þessu sinni munu þau Ingi- björg Guðjónsdóttir sópran, Einar Jóhannesson, klarínett, og Valgerður Andrésdóttir, orgel, leika ljúf lög eftir Atla Heimi Sveinsson, Mozart, Ás- kel Másson og Jón Ásgeirsson við ljóð þjóðskáldanna. Tón- leikarnir eru haldnir í sam- starfi kirkjunnar og Minningarsjóðs Guðbjargar Einarsdóttur frá Kárastöðum. Aðgangur er ókeypis en tekið er við framlögum í sjóðinn í lok tónleikanna sem hefjast kl. 20 í Þingvallakirkju. Tónleikar Ljúf lög við ljóð þjóðskáldanna Þingvallakirkja. HJÁ Máli og menningu er kom- in út í kilju spænska met- sölubókin Leynda kvöldmáltíðin eftir Javier Sierra í þýðingu Tómasar R. Einarssonar. Hér er á ferð æsispennandi saga um ráðgátur, kukl og morð í myrku umhverfi miðalda. Um leið kveikir bókin nýja sýn á meistara Leonardo da Vinci, verk hans og samtíma – sem var kannski töluvert flóknari en nú- tímann grunar. En síðasta kvöldmáltíðin er víð- frægt listaverk sem meistari Leonardo da Vinci málaði á klausturvegg í Mílanó fyrir meira en fimm hundruð árum. Bókmenntir Gerist í myrku umhverfi miðalda Leynda kvöldmáltíðin. Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is ÓPERAN Ariadne á Naxos eftir Richard Strauss verður frumsýnd í Íslensku óperunni í haust og er það í fyrsta sinn sem óperan er sett upp hér á landi. 16 íslenskir einsöngv- arar munu þar gleðja óperuunn- endur með fögrum söng, flestir þeirra starfa erlendis og því verða miklir mannaflutningar fyrir þessa sýningu. Í helstu hlutverkum verða Hanna Dóra Sturludóttir, sem fer með tit- ilhlutverk Ariadne, Kolbeinn Ket- ilsson, Arndís Halla Ásgeirsdóttir, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Ágúst Ólafsson. Feðgarnir Bergþór Pálsson og Bragi Bergþórsson syngja saman í óperunni, en það verður frumraun Braga á fjölum Ís- lensku óperunnar þar sem hann er að ljúka söngnámi í Lundúnum. Þá þreytir annar ungur söngvari frumraun sína á Íslandi eftir nám, Gissur Páll Gissurarson, sem lauk námi á Ítalíu. Leikarinn Ingvar Sig- urðsson fer með talhlutverk, en hann hefur ekki áður komið fram í óperu. Ópera í óperunni „Það sem er dálítið merkilegt við þessa sýningu er að það eru 16 ein- söngvarar í henni, enginn kór, og þeir eru allir íslenskir. Það er sjald- an sem fólk fær tækifæri til að sjá svona marga söngvara á sviði í sömu óperunni,“ segir Stefán Baldursson, nýráðinn óperustjóri, um fyrstu sýn- inguna í húsinu undir hans stjórn. „Þetta eru söngvarar sem eru ým- ist heima, komnir heim eftir nám, eða eru mikið úti í Evrópu að syngja en koma heim til að syngja í þessari sýningu, þ. á m. er Arndís Halla,“ segir Stefán. Arndís fer með hlut- verk Zerbinettu og er það í fyrsta sinn sem hún tekur þátt í óperusýn- ingu hér á landi frá upphafi til enda, þar sem hún hljóp eitt sinn í skarðið í uppfærslu óperunnar á Töfraflautu Mozarts og söng þar hlutverk Næt- urdrottningarinnar. „Það er þýskur leikstjóri sem stýrir sýningunni, Andreas Franz. Hann er þekktur óperuleikstjóri í Þýskalandi, hefur leikstýrt bæði í Vín og Hamborg. Svo sætir einnig tíðindum að hljómsveitarstjórinn er Petri Sakari, sem hefur unnið tölu- vert á Íslandi en hefur ekki verið mikið hérna síðustu árin. Þetta er heilmikil sýning.“ Söngvararnir eru margir í tveim- ur hlutverkum, þar sem ópera er flutt í óperunni (sjá söguþráð í fylgju til hliðar), þeir eru því bæði í hlut- verkum listamanna sem eru að fara að syngja í óperu og fara síðan í önn- ur hlutverk þegar skemmtiatriði hefjast á heimili auðmannsins. Stefán segir uppfærsluna stóra í sniðum og vissulega nokkuð flókið að flytja heim svo marga söngvara. Það sé þó hluti af því að setja upp óperur á Íslandi og menn alvanir því. Ariadne á Naxos verður frumsýnd 4. október í Íslensku óperunni og býst Stefán við því að æfingar hefjist í lok ágústs eða byrjun september. Óperan Ariadne á Naxos frumflutt á Íslandi í haust Sextán einsöngvarar á svið Morgunblaðið/ÞÖK Syngja saman Feðgarnir Bergþór Pálsson og Bragi Bergþórsson syngja báðir í verkinu Ariadne á Naxos í Íslensku óperunni í haust. RICHARD Strauss var þýskt tón- skáld og hljómsveitarstjóri. Hann fæddist 11. júní 1864 og lést 8. sept- ember 1949. Verk sem hann samdi fyrri hluta ævinnar teljast síð- rómantísk og þau seinni snemm- módernísk. Óperan Ariadne á Naxos var frumflutt í Stuttgart í október 1912 en umskrifuð útgáfa hennar, sem sett verður upp í Íslensku óperunni, var frumflutt í Vín haustið 1916. Ariadne á Naxos dregur nafn sitt af grískri goðsögn af ástum prins- essunnar Ariadne og ungs pilts, Þes- eusar, sem hún bjargar frá ógn- arskepnunni Mínotárusi. Þeseus yfirgefur hana þótt hann eigi henni líf að launa. Vínguðinn Díonýsos læt- ur heillast af Ariadne og kvænist henni. Sögusvið óperunnar er heimili auðmanns í Vín sem ætlar að bjóða gestum sínum upp á óperu en einnig sýningu af léttara taginu með leik og söng. Auk þess hyggst hann bjóða upp á flugeldasýningu og því naum- ur tími fyrir öll þessi skemmtiatriði. Því er ákveðið að sýna óperuna, sem fjallar um goðsögnina af Ariadne, og leiksýninguna samtímis, söngvurum og leikurum til mikillar óánægju. Fyrri hluti óperunnar gerist bak- sviðs á heimili auðmannsins, áður en skemmtiatriðin hefjast, og er þar mikill glundroði. Í seinni hluta óp- erunnar yfirgefur Þeseus Ariadne (þ.e. í óperunni). Zerbinetta nokkur og fjórir aðrir úr leikflokknum sker- ast í leikinn og reyna að hugga Ari- adne. Díónýsos mætir að lokum á svæðið, verður ástfanginn af Ari- adne og heitir því að nefna eftir henni stjörnumerki. Gamansemi og dramatík Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is GUÐRÚN Gunnarsdóttir myndlist- arkona sýnir í anddyri Hallgríms- kirkju verk sem hún vann innblásin af kveðskap Hallgríms Péturssonar, auk verks sem byggist á þeirri hug- mynd Guðrúnar að Hallgrímur hafi átt sér voð, verk sem ber heitið Slitr- ur úr voð H.P. Guðrún sýnir fjögur aðskilin verk sem öll eru unnin úr stálvír, með ólíkum hætti þó. Myndlistarkonan kynnti sér líf og verk Hallgríms áður en hún réðst í gerð listaverkanna. Þrjú byggjast á sálminum Allt eins og blómstrið eina, 50 verk á Passíusálmunum og eitt á kvæðinu Heyrði ég fagran fuglasöng. Sýningin ber heitið Hug- leiðingar um Hallgrím og var það Listvinafélag Hallgrímskirkju sem bauð Guðrúnu að sýna. Blæddi fyrir listina Hvað varðar túlkun á Passíusálm- unum segist Guðrún ekki hafa lesið einn sálm og gert síðan verk upp úr honum, heldur lesið alla og unnið verkin síðar. „Mér finnst þeir nú svolítið þungir,“ segir Guðrún kímin um sálmana. Verk hennar séu hins vegar léttari, þ.e. yfirbragð þeirra. Skuggi af vírnum varpast á veggina og lyftir þeim frá þeim, eykur á létt- leika efniviðarins sem Guðrún segir hluta af verkinu. Guðrún lærði textíl og vefnað og gætir áhrifa þess bak- grunns óneitanlega í verkunum. Stálvírinn er ekki auðvelt efni að eiga við og segist Guðrún oft hafa stungið sig á honum og blætt örlítið fyrir listina. Blaðamanni þykir það ríma ágætlega við Passíusálmana, þar sem píslarganga Krists er rakin, að listamaðurinn hafi þjáðst eilítið við túlkun þeirra. Guðrún tekur und- ir það. „Mér fannst mjög gaman að setja mig inn í þennan heim sem Hall- grímur hefur eflaust lifað í, allt það mótlæti sem hann varð fyrir,“ segir Guðrún. Hún sé ekki heittrúuð þrátt fyrir yrkisefnið og sýningarstaðinn, en það hafi ekki komið að sök. Boð- skapurinn sé sá sami. Sýningin stendur til 6. ágúst. Hallgrímur hugleiddur Guðrún Gunnarsdóttir Vír Hluti af verkinu „Passíusálm- arnir“ á sýningu Guðrúnar. ♦♦♦ Þriðjudagstónleikar í kvöld kl. 20.30 Djasstríó Sunnu Gunnlaugs Sunna Gunnlaugs píanó, Scott McLemore trommur og Þorgrímur Jónsson bassi flytja tónsmíðar Sunnu, nýjar sem og áður út gefnar. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70, 105 Rvík. www.lso.is - lso@lso.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.