Morgunblaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Bóksali Þórdís Pála Reynisdóttir rekur bókabúðina Eskju á Eskifirði. Starfsemin hefur aukist mikið og hún er nú komin í stærra húsnæði. Eftir Sigurð Aðalsteinsson Eskifjörður | Þórdís Pála Reynis- dóttir rekur bókabúðina Eskju á Eskifirði. Hún keypti búðina, sem þá var í leiguhúsnæði, fyrir rúmum þremur árum og fyrir tæpum tveim- ur árum keypti hún húsnæði undir búðina til að stækkað við sig. Auk bóka hefur hún ýmsa gjafavöru, svo sem leikföng og vörur til hannyrða, á boðstólum. ,,Það blundaði alltaf í mér að það væri gaman að reka bókabúð en ég stefndi samt ekkert sérstaklega að því,“ segir Þórdís. ,,Það var svo ein af þessum skemmtilegu tilviljunum sem varð til þess að ég keypti Bóka- búðina Eskju árið 2004. Ég var að vinna á fasteignasölu og þar var búðin til sölu. Ég lagði mig alla fram um að gera auglýs- ingu sem myndi höfða til fólks og fá einhvern til að kaupa búðina. Mér hlýtur að hafa fundist auglýsingin svo trúverðug að áður en ég vissi af var ég búin að kaupa búðina.“ Stækkaði við sig „Búðin hefur vaxið og dafnað, svona allt að því óþarflega hratt, samt þarf að vera talsvert vöruúrval til að hægt sé að reka svona verslun í ekki stærra samfélagi en Eski- fjörður er. Það hjálpar til að fólk kemur alls staðar að af Austurlandi til að versla, vöruúrval, verð og gæði hafa spurst út og viðskiptavinirnir eru ósparir á hrós. Fyrrverandi vinnuveitandi minn sagði við mig, vonandi meira í gríni en alvöru, að ég ætti að kaupa bóka- búðina, hann sæi mig fyrir sér í svona „vonlausum rekstri“. Meðfram rekstri bókabúðarinnar geri ég eignaskiptayfirlýsingar fyrir fjöleignahús, það er þó nokkuð að gera í því og ég fæ verkefni víða af landinu,“ segir Þórdís. Í byrjun síðasta árs dreif hún í því að stækka verslunina og keypti gamalgróið verslunarhúsnæði sem áður hýsti Verslun Elísar Guðna- sonar. „Ég hef afskaplega gaman af að standa í þessum rekstri og ég er með góðan starfskraft í búðinni sem er ómetanlegt. Fólksfjölgunin á svæðinu kemur rekstrinum til góða að einhverju leyti, en á móti kemur að það hafa komið útibú frá stórum fyrirtækjum vegna fram- kvæmdanna, þau hafa gert mörgum smáum rekstraraðilum hér á svæð- inu erfitt fyrir. Þau versla tíðast ekki í heimabyggð, heldur auglýsa eftir tilboðum á landsvísu. Viðskiptavinir mínir sýna það mjög margir í verki að þeir vilja hafa bókabúð sem býður fjölbreytt bókaúrval allt árið og versla sínar jólabækur hjá mér en ekki í stór- mörkuðunum sem bjóða tilviljana- kennt úrval þegar þeim hentar og mjög takmarkaða þjónustu,“ segir Þórdís Pála Reynisdóttir, kaupmað- ur í bókabúðinni Eskju á Eskifirði. Auglýsingin var svo trú- verðug að ég keypti sjálf Í HNOTSKURN »Þórdís Pála Reynisdóttir íEskju hefur unnið bæði til sjós og lands, hefur verið við- loðandi kaupmennsku og keypti fyrst verslun 20 ára gömul. Seyðisfjörður | Listahátíð ungs fólks á Austurlandi, LungA, var sett á Seyðisfirði á sunnudags- kvöld. Við opnunina komu fram félagsskapurinn Fjallkonan, sem flutti gjörning og trúðahópur frá Commedia skólanum í Danmörku. Hátíðin skartar þéttskipaðri dagskrá út vikuna og lýkur með uppskeruhátíð og stórtónleikum á laugardag. Sjö listasmiðjur verða í gangi í vikunni og er gestum velkomið að líta þar við. Á kvöld- in eru síðan bíósýningar, opið svið, hönnunarsýning og tón- leikar. Þátttakendur í smiðjunum í ár eru 130 talsins, þar af um 70 er- lendis frá, og komust færri að en vildu. 130 taka þátt í smiðjum LungA Morgumblaðið/Gunnar Gunnarsson AUSTURLAND VIÐ Drekagil á Öskjusvæðinu hefur á undanförnum árum risið hálend- ismiðstöð sem samanstendur af þremur nýjum húsum. Í byrjun mán- aðarins var lokið við síðustu bygg- inguna: Fjólubúð, sem inniheldur svefnherbergi fyrir þrjá skálaverði, auk gestamóttöku, upplýsingamið- stöðvar og rúmgóðrar geymslu, svo eitthvað sé nefnt. Ferðafélag Akureyrar hefur borið hitann og þungann af verkinu, og fór þar fremstur Hilmar Antonsson, for- maður félagsins, sem jafnframt var yfirsmiður Fjólubúðar. Að sögn Hilmars hefur uppbyggingin við Drekagil gengið vel: „Verkið hófst árið 2001 með byggingu snyrtihúss, salernis- og sturtuaðstöðu. 2004 var svo ráðist í að byggja nýjan 40 manna gistiskála, til viðbótar við gamla Dreka, sem lokið var við 10. júlí 2005. Fjólubúðin nýja var enda- punkturinn á þessari uppbyggingu.“ Sjálfboðavinna og styrkir Fjólubúð heitir í höfuðið á Fjólu K. Helgadóttur sem var lengi land- vörður við Drekagil, og hlutverk hennar verður að vera landvarðahús. Húsið er 65 fermetrar að stærð og verður upplýsingaaðstaðan mun betri fyrir vikið. Þeir sem ferðast um svæðið geta þangað sótt „kort af svæðinu og upplýsingar um allt í kringum Öskjuvatn og jarðsöguna auk almennra upplýsinga um svæðið og náttúruna“. Uppbyggingin við Drekagil hefur verið unnin með styrkjum frá poka- sjóði, fjallasjóði ÁTVR og með styrk frá fjárlögum. Mikið hefur einnig unnist með mikilli sjálfboðavinnu félaganna, en án hennar telur Hilmar verkefnið varla hafa verið gerlegt. Segja má að tími hafi verið kominn á að byggja upp á svæðinu sem um ræðir, enda er þar mikil umferð á sumrin. „Það er gríðarlega mikið af útlendingum sem er þar á ferð. Öskjusvæðið hefur mikið aðdrátt- arafl fyrir erlenda ferðamenn. Gisti- nætur í skálunum eru á 4. þúsund og auk þess er mikið rennerí á fólki á svæðinu. Þannig að það eru þúsundir manna sem koma í heimsókn, jafnvel yfir tugur þúsunda. Flestir koma á eigin bílum eða bílaleigubílum, en skipulögðum hóp- ferðum hefur fækkað. Útlendingar leigja sér í síauknum mæli jepplinga og ferðast sjálfir um svæðið.“ Mikil uppbygging í félaginu Ferðafélag Akureyrar er deild innan Ferðafélags Íslands og telur rúmlega 450 meðlimi. Þar af, segir Hilmar, eru um 70-100 virkastir og taka mikinn þátt í félagsstarfinu. Margir í félaginu eru hættir að ferðast en fylgjast með starfinu og eru áskrifendur að árbók Ferða- félags Íslands. „Síðustu 10-12 ár hef- ur verið gríðarlega mikil uppbygg- ing innan félagsins. Ferðir félagsins hafa þó breyst mikið í áranna rás. Áður var mikið um rútuferðir en nú er besta þátttakan í gönguferðirnar. Við gefum út ferðaáætlun í byrjun vetrar, og höldum ferðakynningar eftir það. Síðan eru ferðir auglýstar á heimasíðu okkar og í Dagskránni. Á haustin höldum við sviðamessu, sem er uppskeruhátíð, og þar bjóð- um við félögum, fararstjórum og þeim sem unnið hafa í skálum félags- ins upp á þjóðlega rétti eins og svið, hangikjöt, uppstúf og rófustöppu. Við höfum opið hús fyrsta fimmtu- dag í hverjum mánuði og fáum til okkar áhugasama. Margir koma og spjalla, og við höfum stundum myndasýningar úr ferðum okkar. Þetta hefur mælst vel fyrir og yf- irleitt koma um 20-30, jafnvel fleiri. Við gefum einnig út ársritið Ferð- ir þar sem farið er yfir starfið og sagt frá ferðum liðins árs. Og svo nota menn sumarið í að ferðast og ganga á fjöll.“ Hálendismiðstöð risin við Drekagil Ljósmynd/Ingvar Teitsson Fjólubúð Húsið er hluti af viðamikilli uppbyggingu við Drekagil, en tvö önnur hús hafa verið byggð á sex árum. Í því eru t.d. herbergi fyrir þrjá verði, gestamóttaka, upplýsingamiðstöð, setustofa, eldhús, vatnssalerni og geymsla. Vígður Hilmar Antonsson, formaður FFA, heldur ræðu við vígslu Fjólu- búðar, en Halldór Blöndal, fyrrverandi samgönguráðherra, vígði skálann. Ný upplýsinga- aðstaða fyrir þús- undir ferðamanna Í HNOTSKURN »Uppbygging hálendismið-stöðvarinnar hefur varað síðustu sex ár. »Á þeim tíma hafa veriðbyggð þrjú ný hús: Fjólu- búð, nýr skáli fyrir ferðamenn og hús með snyrtiaðstöðu. »Ferðafélag Akureyrar hef-ur borið hitann og þung- ann af starfinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.