Morgunblaðið - 17.07.2007, Side 18
|þriðjudagur|17. 7. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Tilviljun réð því að Elisabeth og
Tummas Joensen í Skúfey í
Færeyjum tóku ferðafólkið inn í
líf sitt. » 21
ferðalög
Hafi konur lítið af karlhorm-
óninu testósteróni eftir tíða-
hvörf eru þær líklegri til að þróa
með sér hjartasjúkdóma. » 21
heilsa
Sigurjón Friðrik Sigurðsson
hefur brennandi áhuga á fjar-
stýrðum bílum og spænir á
þeim um holt og hæðir. » 20
tómstundir
Það léttir lundina að flettabókum Höllu á Laugarbóli.
Hún var aðsópsmikil húsfreyja á
rausnarheimili og átti fjölda
barna, en orti sér til
hugarhægðar „fögur ljóð um guð,
náttúruna, blómin, menn og
málleysingja“, eins og um hana
hefur verið sagt. Kunnust er hún
fyrir ljóð sín við lög Sigvalda
Kaldalóns, eins og Ég lít í anda
liðna tíð eða Svanurinn minn
syngur, og fleiri raunar. Er því
við hæfi að fara með
inngangserindið í fyrri ljóðabók
hennar:
Á Kaldalóns-tónum sér lyfta mín ljóð –
hans lifandi gullvængjasmíði –,
og þess vegna má ske þau gildi sem
góð
og gleðji sem vorblærinn þýði.
Og tilgangur ljóðanna uppfylltur er –
þótt öðlist þau ritdóminn svarta –,
ef mættu þau smjúga sem geisli um
gler
í gleðisnautt einstæðingshjarta.
Hún segir á einum stað:
Spói minn! Ég þekki þig.
Þú ert vinur tryggur,
kemur til að kæta mig,
hvar sem vegur liggur.
Um heiðlóuna kveður hún:
Hátt yfir holt og móa
heiðblátt um loftið fer
syngjandi lítil lóa,
leikur og vaggar sér.
Og um sólargeislann:
Þú ert glaður, geisli minn!
gerir skugga bjarta.
Kom þú hér sem oftast inn
og í hvers manns hjarta.
Hér er svo að lokum Vorkvöld,
lítil staka:
Alltaf lifnar andi minn
enda fjölga sporin,
þegar græni gróðurinn
gægist upp á vorin.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Hátt yfir holt og móa
Við maðurinn minn, Ingi Rúnar Ell-ertsson skipstjóri, seldum íbúðinaokkar í Bryggjuhverfinu fyrir rúmuári og keyptum okkur íbúð á Spáni.
Þar fórum við að vinna hjá íslenska fyrirtæk-
inu Gloria Casa og höfðum það voðalega gott.
Mánuði síðar fór Ingi að finna fyrir lasleika og
greindist með illkynja krabbamein og var
fluttur heim með sjúkraflugvél á vegum Mast-
erCard, sem kenndi okkur hve mikilvægt er
að vera vel tryggður. Ingi lést svo 1. sept-
ember,“ segir Fjóla.
Flugvallarbílstjóri og kaupkona
Nú voru góð ráð dýr. Fjóla átti ekkert hér
heima en íbúð á Spáni svo hún fór út og í byrj-
un október byrjaði hún að vinna hjá Gloria
Casa. Hún lét ekki þar við sitja heldur keypti
sér stóran bíl og tók að sér flugvallarakstur,
fór með og sótti fólk á flugvöllinn í Alicante.
Hana langaði þó til að vera með sjálfstæðan
rekstur og helst að eignast verslun. Vinkona
hennar, Margrét Kjartansdóttir, sem rekur
verslunina Marimekko í Reykjavík, taldi í
hana kjark og endirinn varð sá að þær ákváðu
að opna saman Green House verslun á Spáni.
Auðveldlega gekk að fá húsnæði í íbúðahót-
eli í Orihula-Costa, ör-
skammt frá Torrevieja.
Þar er líka skrifstofa
Gloria Casa, stórmark-
aður, skyndibitastaður
og fleira. „Við fengum
Gunnar Þorláksson til að brjóta niður
veggi, mála og gera fínt, keyptum innréttingar
í IKEA og pöntuðum vörur frá Danmörku.
Þetta er fyrsta Green House verslunin í heim-
inum en fyrirtækið hefur eingöngu verið með
heimasölu fram að þessu, m.a. á Íslandi. Við
seljum vandaðar, danskar vörur fyrir konur
frá 25 ára og upp úr, fatnað sem passar á al-
vöru íslenskar, já og norður-evrópskar konur
en erfitt er að fá föt í stærðum yfir 14 á
Spáni.“
Lagar sig að spænskum venjum
Írar eru helstu viðskiptavinir Fjólu og
reyndar Bretar, Norðmenn og Svíar auk Ís-
lendinga. Fjóla ætlaði að hafa opið allan dag-
inn en varð að laga sig að verslunarháttum
Spánverja og loka milli 2 og 5 þegar menn
njóta siestunnar en síðan er opið til níu á
kvöldin, alla daga. Theódóra Ólafsdóttir vinn-
ur hjá Fjólu í versluninni og einnig kona frá
Wales. Hér áður var Fjóla verslunarstjóri hjá
Nonna og Bubba í Keflavík og vann síðan hjá
Debenhams. „Þetta er bráðskemmtilegt og ég
kann vel að meta mannleg samskipti og að
hitta fólkið sem hingað kemur,“ segir íslenska
kaupkonan á Spáni.
Enginn verslar um hádaginn á Spáni
Verslunareigandinn Fjóla Sigurðardóttir kann vel við sig í Orihula-Costa á Spáni.
Ekki grunaði Fjólu Sigurðar-
dóttur að hún ætti eftir að setja
upp verslun á Spáni þegar hún
hélt þangað með manni sínum í
fyrravor. En skjótt skipast veð-
ur í lofti eins og Fríða Björns-
dóttir komst að raun um þegar
hún ræddi við Fjólu um atburði
liðins árs og Green House versl-
unina hennar í Orihula-Costa.
ÞEGAR heitt er í veðri er fátt
betra en hressilegt bað og
virðist þá gilda einu hvort um
er að ræða dýr eða menn.
Fílsunginn Tika fær hér góða
sturtu hjá dýrahirðinum Fi-
lipe von Gilsa við dýragarð-
inn í Wuppertal í Þýskalandi.
Tika, sem fæddist 13. júlí,
er þegar orðinn eftirlæti
þeirra sem dýragarðinn
heimsækja.
Reuters
Hressandi
bað
NÝ RANNSÓKN leiðir í ljós að eftir því
sem aldurinn færist yfir á fólk erfiðara
með að skilja brandara þar sem það
dregur úr sveigjanleika, rökleiðslu og
skammtímaminninu með hækkandi
aldri.
Rannsakendur við Washington-
háskóla prófuðu fjörutíu heilbrigða ein-
staklinga yfir 65 ára aldri og jafnmarga
háskólanema til að ganga úr skugga um
kímnigáfuna. Lögð voru ýmis próf fyrir
fólkið sem fólust m.a. í því að velja réttu
endingarnar á brandara og sögur sem
framkölluðu hlátur viðstaddra.
Í ljós kom að þeir yngri gerðu mun
betur í prófunum en þeir sem eldri voru.
Að sögn rannsakenda var ekki verið að
reyna að finna út hvað fólki fyndist fynd-
ið, heldur hvort fólk fattaði það sem álit-
ið væri fyndið. Niðurstöðurnar leiða í
ljós grundvallarmun á þeim eldri og
yngri á vitrænu gangverki í garði kímni-
gáfunnar. Og þar koma þeir yngri sterk-
ar inn en þeir sem eldri eru, að því er
sagði nýlega á netmiðli NBC.
Hækkandi aldur dregur
úr kímnigáfunni