Morgunblaðið - 17.07.2007, Side 19

Morgunblaðið - 17.07.2007, Side 19
Fréttir á SMS tíska MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 19 Eftirvæntingin leyndi sér ekki meðal Héraðsbúa þegar dans- leikjahald hófst á ný í Valaskjálf í vor með balli með Magna og fé- lögum. Toyota bauð öllum sem komu í reynsluakstur á ballið. Bið- röðin í aksturinn – og þar með eft- ir miðum – var tvöföld og náði yfir allan sýningarsal Toyota á Egils- stöðum. Tíð eigendaskipti hafa verið á félagsheimilinu eftir að sveitarfé- lagið seldi það fyrir um það bil áratug. Hótelið hefur alltaf verið rekið en lítið var um samkomu- hald frá sumarlokum 2005. Vala- skjálf er í huga íbúanna annað og meira en partístaður. Sem dæmi má nefna ýmsar veislur sem þar hafa verið haldnar, leikverk og geisladiskamarkaði. Þorstinn eftir samkomuhúsnæði í þéttbýlinu á Egilsstöðum sýndi sig í sveitarstjórnarkosningunum í fyrravor þegar ítrekaðar spurn- ingar komu fram um hvað fulltrú- ar flokkanna ætluðu til bragðs að taka. Sumir vildu kaupa Valaskjálf aftur, aðrir nefndu að aðilar hefðu sýnt áhuga á að leigja húsnæði í miðbæ Egilsstaða undir partístað. Sá partístaður hefur ekki enn sést, en sveitarfélagið kemur að rekstri félagsheimilisins sam- kvæmt samningi sem gerður var í vor. Í millitíðinni var skipuð nefnd til að meta kosti um samkomuhús á Héraði. Íbúarnir sýndu líka áhuga sinn þegar forsvarsmenn bændahátíðar söfnuðu um eitt þúsund undirskriftum til kröfu um úrlausn á samkomuhúsmálum. En lokun Valaskjálfar kann ef til vill að hafa kennt mönnum að meta nýja staði. Sviðslistirnar færðust á tímabilinu út í gömlu fé- lagsheimilin í sveitinni og þorra- blótin í íþróttahúsin. Líklega verða þau þar til framtíðar. En fyrir skemmtanir þar sem mæta um og yfir tvö hundruð manns er ekkert hús á svæðinu sem jafnast á við Valaskjálf. Valaskjálf heldur áfram að skapa umræður í samfélaginu. Það sann- aðist fyrir skemmstu þegar for- svarsmenn staðarins auglýstu „kjötkvöld“ þar sem stelpur í stuttum pilsum áttu að fá frítt inn og skot á barnum. Viðbrögð sam- félagsins komu skýrt fram. For- maður jafnréttisnefndar gagn- rýndi auglýsinguna í fjölmiðlum og fáir ku hafa mætt á atburðinn.    Reyndin var önnur um seinustu helgi þegar Dúndurfréttir og Buff komu í heimsókn. Á ballinu gat maður vart snúið sér og á tónleik- unum voru ekki nógu mörg sæti. Í lok tónleikanna risu áhorf- endur tvívegis úr sætum í lokin og hylltu hljómsveitina. Hljómsveitarmeðlimir virtust líka kunna að meta viðtökurnar. „Við erum búnir að tala um það tvö þúsund sinnum að koma austur,“ sagði söngvarinn Pétur Guð- mundsson. Og það bara á einum mánuði. EGILSSTAÐIR Eftir Gunnar Gunnarsson mönnuð í liðinu. Þess í stað tók hún sér stöðu í vörninni og líkar vel. Hlutirnir gerast hratt í sparkheimum og strax eftir þriðju æf- inguna var dóttir Vík- verja valin í b-liðið og gert að mæta til leiks. Ekki mátti Víkverji fyrir sitt litla líf missa af þeim viðburði og strauk úr vinnunni á miðjum degi. Hjartað sló hratt þegar þeirri stuttu var skipt inn á í byrjun síðari hálfleiks. Stóð hún sína plikt í vörninni með ágætum, að meðreiknuðu reynsluleysi, enda þótt leikurinn tapaðist. Að vísu hafði gleymst að gera henni grein fyrir því hvernig bera á sig að þegar boltinn fer úr leik, þ.e. að taka innkast, en margt lærist í djúpu lauginni. Ætli það sé nema mánuður síðan dóttirin hlaut þessa eldskírn en eigi að síður hefur hún leikið marga leiki síðan, nú síðast á fjölmennu Pæju- móti í Kópavogi um helgina. Áhug- inn dvínar síst og ekki dró dýrðin kringum mótið úr honum. Páll Ósk- ar mætti m.a.s. á svæðið og tók lag- ið. Er á meðan er. Mikill knatt-spyrnuáhugi er á heimili Víkverja. Sá áhugi hefur einkum og sér í lagi verið bundinn við karlpeninginn – þar til nú. Þannig er nefni- lega mál með vexti að ellefu ára gömul dóttir Víkverja lýsti því yfir á dögunum að hún ætl- aði að mæta á æfingu hjá hverfisliðinu. Kom þessi yfirlýsing eins og þruma úr heiðskíru lofti enda hefur dótt- irin ekki sýnt knatt- spyrnu minnsta áhuga fram að þessu. Víkverji tók þessu mátulega alvarlega í fyrstu en ók dótturinni á æfinguna sem hann var hér um bil sannfærður um að yrði sú fyrsta og síðasta á þeim ferli. Öðru nær. Dóttirin var hin ánægðasta eftir æfinguna og tilkynnti strax að henni lokinni að hún ætlaði aftur. Það gerði hún og eftir æfingu númer tvö var hún enn ákveðnari. Þá varð ekki hjá því komist að festa kaup á helsta búnaði, takkaskóm og legghlífum, svo sú stutta væri samkeppnisfær. Upphaflega ætlaði hún að vera í marki en snerist hugur á fyrstu æf- ingunni þar sem sú staða ku vera vel          víkverji skrifar | vikverji@mbl.is úr bæjarlífinu TÍSKUSTRAUMAR setja svip sinn á bikiní og baðfatnað ekki síður en aðrar flíkur. Að öllu jöfnu koma breytingar á þessari tegund fatnaðar þó ekki svo mik- ið inn á klæðasvið okkar Frónbúa – nema svona fyrir stöku sólar- landaferð. Þegar sólin skín hins vegar jafnglatt í heiði og undanfarið er full ástæða til að kynna sér bað- fatatískuna, og bikiníin og bað- fötin sem hér sjást til hliðar ættu að gefa vísbendingu um þá strauma sem væntanlegir eru í sundfatnaði á næstunni – enda hluti af Mercedes-Benz-sundfata- tískusýningunni sem haldin var á sólríkum slóðum í Miami í Flórída sl. föstudag. Svart með blúndum Dömulegur bolur úr Becca sundfatalínunni. Munsturgleði Líflegur og efnislítill sundbolur frá Shay Todd. Hinn innri tígur Bikiní með blettadýra- munstri úr smiðju ljóshærðu söngkon- unnar Jessicu Simpson. Reuter Frumlegt Sundbolur úr Miss Bikini línunni. Litríkt í sólina Sundbolur frá Re- becca Virtue fyir Becca. Sundfatn- aður fyrir sólríka sumardaga Falleg 90 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli í Grafarholti. Rúm- góð og björt stofa með útgangi á stórar svalir til suðurs, 2 herbergi með skáp- um og baðherbergi, flísalagt í gólf og veggi. Þvottaher- bergi innan íbúðar. Parket og flísar eru á gólfum. Snyrtileg sameign. Ræktuð lóð með leiktækjum. GÓÐ ÍBÚÐ SEM VERT ER AÐ SKOÐA. Verð 23,5 millj. Íbúðin verður til sýnis í dag, þriðjudag, frá kl. 17.00 - 19.00. ÍBÚÐ MERKT 0202 Verið velkomin Breiðavík 13 Góð 3ja herb. íbúð Opið hús í dag frá kl. 17.00 – 19.00 FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. Laus veiðileyfi í Þverá í Fljótshlíð eru til sölu. Verð í júlí er kr. 14.900 en fer lægst niður í kr. 8.900 í september. Meðalveiði undanfarin 4 ár er um 130 laxar á ári og auk þess um 300 silungar. Jafngjöful og ódýr laxveiðiá er vandfundin. Auk þess er umhverfið stórbrotið og sögufrægt. Aðeins 90 mínútna fjarlægð frá Reykjavík. 4 stangir og veiðhús sem hýst getur 12 manns. Nánari upplýsingar á vef svfr.is Ódýr laxveið i í fögru umhverf i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.