Morgunblaðið - 17.07.2007, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Ljósmyndasamkeppni
Á ferdalag.is finnurðu ýmiss konar upplýsingar sem tengjast
ferðalögum um Ísland. Kynntu þér fáséðar perlur utan alfaraleiðar
og sjáðu með eigin augum. Safnaðu ljósmyndum og sendu inn í
ljósmyndasamkeppnina okkar. Sú stendur í allt sumar og vegleg
verðlaun eru í boði.
www.ferdalag.is
Förum varlega í akstri um Ísland og höfum hugfast að ferðalagið
er jafnmikil upplifun og áfangastaðurinn. Landið hefur upp á
ótalmargt að bjóða og aldrei að vita hverju þú missir af þegar
farið er um í óðagoti. Stillum hraðanum í hóf, göngum vel um
landið okkar og komum heil heim.
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
S
ÍA
Sigurjón var 12 ára gamall þegar hanneignaðist sinn fyrsta fjarstýrða bíl enhann hafði heillast af rafmagnsbílsem hafði orðið á vegi hans. Fjar-
stýrðu bílarnir þurftu að víkja fyrir skellinöðr-
um og öðrum stærri tólum þegar hann öðlaðist
aldur fyrir þau en fyrir sex árum tók hann upp
þráðinn aftur þegar hann rambaði inn á keppni
í Mosfellsbæ. Þar var búið að teppaleggja heil-
an íþróttasal og kostaði lítið að vera með í
keppninni og var í rauninni eini kostnaðurinn
sá að fjárfesta í bíl til að keppa. Sigurjón hefur
ekki sleppt þræðinum síðan.
Tröllatrukkar vinsælastir
„Það er langmest sóst eftir tröllatrukkunum
því það er hægt að keyra þá allsstaðar. Menn
eru að keyra þetta í snjó, á ís, úti í móa og á
malbikinu eða hreinlega út um allt,“ segir Sig-
urjón aðspurður hvað sé vinsælast í sportinu
og hvar sé best að byrja. Bílar sem þessir ná
mjög mikilli ferð, hátt í 90 km/klst og því eru
þeir fljótir að fara um víðan völl. Það er því
mikilvægt að koma upp svæði þar sem fólk
getur æft sig.
Sigurjón sýndi blaðamanni nokkra góða
takta á fjarstýrðum tröllatrukk, en hann segir
byrjunarpakkann í þesskonar bílum vera um
50 þúsund og sinn bíl keypti hann hjá Tóm-
stundahúsinu.
„Bíllinn er 2,9 hestöfl og nær svona 75-80
km/klst eins og hann er núna. Hann er fjór-
hjóladrifinn, með átta dempara, mismunadrif
að framan og aftan, tvöfaldar diskabremsur á
drifskaftið og þrjá gíra“ og hljómar nánast
eins og kappakstursbíll á fullri gjöf þegar hann
skiptir upp gírana.
Ódýrt og skemmtilegt
Hvað rekstur varðar segir Sigurjón að það
sé ekki mikið að bila í þessum fjarstýrðu bíl-
um. Það eru helst drifsköft sem fara hjá þeim
sem eru að djöflast og eru drifsköftin bæði
ódýr og einfalt að skipta um þau. Dekkjagang-
ar geta líka kostað sitt og oft vill fólk eiga
nokkra mismunandi ganga svo hægt sé að ná
öllu út úr bílnum við mismunandi aðstæður.
Sigurjón hefur tvisvar orðið íslandsmeistari
og hefur lagt talsverðan metnað í áhugamálið.
Hann hefur meðal annars hannað sjálfur
grindina í bílinn en hún var laserskorin fyrir
hann. Þannig var bíllinn lengdur örlítið og
þyngdarpunkturinn lækkaður sem getur skipt
miklu máli þegar komið er í keppni.
Bíllinn hans Sigurjóns er orðinn talsvert
mikið breyttur. „Þessi bíll er með áldempara,
fjöðrunarbreytingu sem breytir afstöðunni á
hjólunum, bíllinn er líka með öflugri servomót-
ora, stærri 3 hestafla vél, ál drifhús og svo önn-
ur dekk,“ segir Sigurjón þegar hann gefst upp
á upptalningunni enda hægt að tína margt til
þegar keppnisbíll er hannaður.
Sigurjón segir þó aðstöðuleysi standa sport-
inu fyrir þrifum, það hafi fengist aðstaða bæði
á Akureyri og Akranesi en enn vanti svæði á
höfuðborgarsvæðinu sem sé bagalegt því
áhorfendur mæti ekki nema aðstaðan sé góð.
ingvarorn@mbl.is
Frábært fjör fyrir fullorðna
með fjarstýrðum bílum
Morgunblaðið/ÞÖK
Flinkur Sigurjón Friðrik Sigurjónsson á fjóra fjarstýrða bíla, tvo rafmagnsbíla og tvo bens-
ínbíla, og keppti hann á stærsta bílnum um síðustu helgi.
Bíllinn er 2,9 hestöfl og nær svona
75-80 km/klst eins og hann er
núna. Hann er fjórhjóladrifinn,
með átta dempara, mismunadrif
að framan og aftan, tvöfaldar
diskabremsur á drifskaftið og
þrjá gíra.
Sigurjón Friðrik Sigurjónsson
var tólf ára þegar hann fékk
dellu fyrir fjarstýrðum bílum.
Dellan greip hann á ný og nú
stundar hann keppni með fjar-
stýrðum bílum af kappi.
Ingvar Örn Ingvarsson sá hann
munda fjarstýringuna.
Morgunblaðið/ÞÖK
Gaman Bensínbílarnir heilla flesta og kostar
góður bíll með fjarstýringu um 50.000 kr.
Morgunblaðið/ÞÖK
Tætandi Tröllatrukkurinn tætir í mölinni
enda fisléttur og tæp þrjú hestöfl.
http://sbki.is/
tómstundir