Morgunblaðið - 17.07.2007, Síða 22

Morgunblaðið - 17.07.2007, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. LANDIÐ OG FERÐAMENNSKAN Ífréttaskýringu, sem birtist á for-síðu Morgunblaðsins í gær kem-ur fram, að á árinu 2005 hafi fjöldi erlendra ferðamanna verið um 370 þúsund en árið 1949 voru þeir rúmlega 5000 talsins. Ferðamála- stofa hefur reiknað út að á árinu 2015 gæti fjöldi erlendra ferðamanna orð- ið um 640 þúsund manns. Síðan er vitnað til Magnúsar Odds- sonar, ferðamálastjóra og í framhaldi af því segir: „Allar forsendur eru fyrir því að ná áframhaldandi vexti í ferðaþjónustu á Íslandi, að mati Magnúsar, en mikla og margþætta vinnu þurfi til að tryggja samkeppnishæfi. Þar sé lyk- ilatriði að jafna enn frekar dreifingu erlendra gesta á landshluta og minnka árstíðasveifluna til að vinnu- afl í ferðaþjónustu nýtist betur.“ Það er engin spurning um, að þeir, sem hafa unnið að uppbyggingu ferðaþjónustu á Íslandi síðustu hálfa öld hafa unnið merkilegt starf. Í ár- daga höfðu fáir trú á því að þetta starf mundi skila nokkru, sem máli skipti í þjóðarbúið. Nú leikur enginn vafi á því, að það hefur borið ríkuleg- an ávöxt. Þegar hér er komið sögu er meira umhugsunarefni hversu marga er- lenda ferðamenn landið getur borið. Það eru vísbendingar um að því séu takmörk sett. Árum saman hafa þeir, sem komið hafa í Landmannalaugar séð að þar hefur átroðningur ferða- manna, innlendra sem erlendra, verið orðinn of mikill. Sumir hafa haft áhyggjur af Herðubreiðarlindum af sömu ástæðu. Náttúru Íslands getur verið hætta búin, ekki bara vegna framkvæmda heldur líka vegna of mikillar umferð- ar um landið. Þess vegna er ekki endilega víst, að það sé eftirsóknar- vert að auka fjölda ferðamanna, sem hingað koma frá ári til árs. Landmannalaugar og Herðubreið- arlindir, Askja og Lónsöræfi, Jökul- firðir og Hornstrandir, Þjórsárver, allt eru þetta takmarkaðar auðlindir. Það er hægt að eyðileggja þessa fögru staði með of mikilli umferð, hvort sem er fólks sem er gangandi, fer um á bílum eða hestum. Ein aðferð til þess að takmarka nýtingu þessara auðlinda er einfald- lega að taka gjald fyrir að njóta þeirra. Sú hugsun hefur verið fólki fjarlæg fram að þessu en er hún það lengur? Það er alla vega tímabært að ræða þessi mál, að við hugsum um þau, rök- ræðum þau og komumst að niður- stöðu. Það er ekki sjálfsagt lengur að stefna að stöðugri fjölgun erlendra ferðamanna til Íslands ár eftir ár og líta á hvern áfanga sem mikinn sigur. Haldi þessi þróun áfram getur hún snúizt upp í andhverfu sína. Þeir sem hafa byggt þessa atvinnu- grein upp þurfa að taka þátt í þeim umræðum. Ekki líta á þær, sem fjandskap við þá uppbyggingu enda ekki endilega víst að fjöldinn segi allt um arðsemi hennar. RIFIÐ TIL ÞESS EINS AÐ RÍFA ÞAÐ? Í síðustu viku var rifið hús á Fá-skrúðsfirði sem gengið hefur und- ir nafninu Manon. Nafnið er dregið af skútu sem strandaði í Skálavík árið 1924, en húsið var byggt úr þeim viði sem nýtanlegur var úr skútunni, og var sem slíkt minnisvarði um ákveðið tímabil í atvinnusögu Íslands. Sagt var frá niðurrifi hússins í Morgun- blaðinu sl. föstudag og þá vitnað í orð Alberts Eiríkssonar, forstöðumanns safnsins Fransmenn á Íslandi. Haft er eftir Alberti að honum sýnist „sem húsið hafi verið rifið til þess eins að rífa það“. Og ennfremur að húsið hafi verið í „góðu ásigkomulagi og að auki fallegt“. Hann undrast að „engar áætlanir um fyrirhugaða notkun á lóðinni hafi verið lagðar fram“. Samkvæmt lögum um húsafriðun þarf ekki að leita álits Húsafriðunar- nefndar ríkisins varðandi niðurrif húsa sem byggð eru eftir 1918. Man- on-hús er byggt eftir þann tíma. Það hafa þó lengi þótt góðar verklags- reglur að leita álits Húsafriðunar- nefndar um óvenjuleg hús sem byggð eru eftir 1918, ekki síst ef þau eru tal- in hafa menningarsögulega þýðingu eða vera mikilvæg byggingararfleifð- inni. Þannig er fátítt að hús sem eiga sér óvenjulega byggingarsögu, líkt og Manon-húsið, eða tengjast at- vinnu- eða byggðasögu landsins, líkt og það gerði, séu rifin án þess að leit- að sé eftir eftir umsögn Húsafriðun- arnefndar. Eftir því sem Morgun- blaðið kemst næst er ljóst að ekki var leitað eftir slíkri umsögn í þessu til- tekna tilviki. Hér verður ekki lagður dómur á það hvort húsið hafi átt að varðveita eða ekki, enda þarf sér- fræðinga til að álykta um slíkt. En þar sem fyrir liggur að húsið var í það góðu ásigkomulagi að enga brýna nauðsyn bar til að rífa það – svo sem af öryggisástæðum – virðist sú ákvörðun byggingaryfirvalda á Fá- skrúðsfirði að ráðast í niðurrifið van- hugsuð. Það að ekkert virðist liggja fyrir um nýtingu lóðarinnar sýnir best hversu illa ígrundaður gjörning- urinn var. Af þessu má draga þann lærdóm að lög um húsafriðun á Íslandi duga ekki til að varðveita byggingararfleifðina með viðunandi hætti. Í raun er ótrú- legt að einungis hús sem byggð eru fyrir 1918 skuli njóta verndar, nema til komi sértækar aðgerðir. Það þýðir í raun að hægt er að ganga framhjá áliti Húsafriðunarnefndar ríkisins við niðurrif byggingarsögu okkar eft- ir þann tíma, þ.e.a.s. ef nefndin hefur ekki beitt sértækum aðgerðum. Þess- um tíma tilheyra til að mynda nánast öll steinhús á landinu; höfundarverk flestra bestu arkitekta landsins, svo sem Guðjóns Samúelssonar og fleiri. Er ekki ljóst að þessum lögum þarf að breyta svo ekki verði fleiri hús rifin „bara til þess að rífa [þau]“? Vinnu- brögð sem þessi á Fáskrúðsfirði ættu ekki að þekkjast. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eftir Gauta Sigþórsson g.sigthorsson@gre.ac.uk Sýning Hreins Friðfinns-sonar í Serpentine Galleryvar opnuð í gær. Sýn-ingastjóri gallerísins, Kitty Scott, segir tildrög sýningar Hreins Friðfinnssonar vera þau að Ólafur Elíasson og Kjetil Thorsen voru valdir til þess að hanna árleg- an garðskála, Serpentine Pavilion. Þá var farið að leita að sýningu sem myndi kallast á við skálann, og Ólafur lagði til að leitað yrði til Hreins. „Okkur þótti sýn Hreins á landslag og náttúru vera góð við- bót. Hreinn brúar eiginlega bilið á milli gallerísins og skálans,“ segir hún. „Hér gefst tækifæri til að sýna verk Hreins á alþjóðlegum vett- vangi. Fólk kemur til London úr öllum heimshornum til að sjá sam- tímalist. Í þessari sýningu kemur fram hugsunarháttur og sýn sem við sjáum ekki oft. Það er eitthvað mjög einstakt við það.“ Tækni og tímaskyn Hreinn vinnur með marga ólíka miðla. Til að afhjúpa breiddina í verkum hans þurfti að velja verk af mörgu tagi, málverk, ljósmyndir, teikningar, skúlptúr og ritmál. Því eru sum verka hans endurgerð, oft mörgum árum eftir að upprunalegu eintökin hafa eyðilagst, iðulega af fyrirætlan. „Töluvert af mínum verkum er dálítið forgengilegt,“ segir Hreinn. „Þau eru skammlíf – úr þannig efni og ekki gerð með það fyrir augum að þau endist. Þá þarf bara að gera þau aftur ef þetta er þannig efnivið- ur – stundum svokölluð „ready made“ úr verksmiðjuframleiddu efni.“ Hann hefur þó lent í vand- ræðum við að finna efnið aftur seinna meir, t.d. pappakassa. „Þeir voru bara úr kjörbúðinni, og það var mikilvægt að það væri ekkert prent á þeim, en nú eru þeir allir prentaðir með endurvinnslumerk- inu. Þegar verið er að endurgera verk frá því fyrir tíma endur- vinnslumerkisins þarf að búa kass- ana sérstaklega til.“ Verkin voru einnig valin út frá því hvað gengi upp í heimilislegu rými Serpentine, hvernig mætti raða þeim saman til að mynda há- punkta og lágpunkta líkt og í tón- list. „Þótt ég geri ekki ráð fyrir að Hreinn myndi orða það þannig,“ segir Kitty Scott, „þá er í verkum hans er ákveðin útjöfnun, eins kon- ar heimur án stigskipunar þar sem allt hefur gildi og merkingu. Ekk- ert er öðru heilagara eða verðmæt- ara.“ „Annað markvert við Hrein er að hann er listamaður sem notar ekki tölvu,“ bætir hún við. „Það er eins og hann hafi ekki alveg gengið inn í tölvuöldina. Ef maður lítur yfir verkaskrá hans eru nokkur verk sem sýna tækninýjungar (t.d. Song, 1992-2000, þar sem hljóð er „teikn- að“ á bláan bakgrunn með sveiflusjá), en á hve mörgum sam- tímalistasýningum sést hvergi víd- eó? Mér finnst það mjög lýsandi fyrir Hrein að það er engin mynd- bandslist á þessari sýningu. Þetta tengist tímaskyninu í verk- um Hreins,“ segir hún. „Í mínum huga fjalla verk hans um tíma sem líður hægt. Allt fer fram með hægð. Verk Hreins fjalla um allar litlu uppgötvanirnar sem þú gerir ef þú tekur eftir umhverfi þínu.“ Saga húss í ólíkum miðlum Eitt verkanna á sýningunni er „House Project“, sextán ljósmyndir af kofa sem Hreinn smíðaði í Kap- elluhrauni árið 1974. Innviðir kof- ans snúa út – húsið er á ranghverf- unni. „Það hús er fallið fyrir nokkru síðan, það var látið veðrinu eftir. Hið eiginlega verk er því heim- ildaefnið og þeir textar sem eru til skýringar um tildrögin og hver hugsunin var með því að byggja þetta hús. Húsið sjálft var ekki ætl- að sem staður eða skúlptúr til að heimsækja. Það hefur síðan orðið veðri og vindum að bráð og nú er bara eftir spýtnabrak sem þarf að sópa saman. Saga þessa húss sem mannvirkis er liðin, en þessi annáll um tilurð þess heldur áfram til og er safnhlutur.“ Hreinn segir þessari hús ekki lokið, því hann hefur a hverfu hússins, „Second H smíðum fyrir haustið. „Það hús, nema það er komið me járnið utan á sig – ranghve viðsnúið. Það verður varan mun standa í skúlptúrgarð Kerguhenneck á Bretagne Á sýningunni eru verk a 1965 og því er ljóst að hún og fremst yfirlit yfir feril k ils samtímalistamanns. Hr Hreinn Friðfinnsson tímanum í Serpentin Listferill Hreins Friðfinnssonar spannar á fimmta á eru verk hans samt nýjung, því sýningin er hans fy Stjórnandinn Kitty Scott segir sýningu Hreins vera alveg einsta Listamaðurinn Hreinn segir það mikla upphefð að vera boðið a

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.