Morgunblaðið - 17.07.2007, Síða 23

Morgunblaðið - 17.07.2007, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 23 m að vera ssögu þó and- House“, í ð er sama eð báru- erfa húsið nlegt og ðinum í e-skaga.“ allt frá er fyrst kraftmik- reinn seg- ir það upphefð að vera boðið að sýna í Serpentine Gallery, en svar- ar af hógværð þegar hann er spurð- ur um þemu sýningarinnar, og leggur áherslu á samstarfið við sýn- ingarstjórann. „Ef hún setur fram spurningar er ég meira eins og að- stoðarmaður. En ég geri líka eina eða tvær teikningar sem eru hér í rýminu og af því. Þannig er líka eitthvað í sýningunni frá 2007 – segja má að síðasta fingrafarið sé frá þessu ári.“ Kitty Scott minnist sérstaklega á örlæti Hreins og sjálfsöryggi sem listamanns. „Ég myndi segja að hann skapaði sín verk líka í gegnum fólk. Við sýningarstjórn vakna ótal spurningar, og hann svarar á móti: „Hvað finnst þér?“ Hann vill fá sýn annarra á það hvernig verkin verða og hvernig litið verður á þau. Það er viss ábyrgð að standa undir – en auðvitað er ánægjulegt að vera boð- ið að axla hana.“ n hægir á ne Gallery áratug, en í London yrsta á Bretlandseyjum Morgunblaðið/Gauti Sigþórsson aka. http://www.serpentinegall- ery.org/ » Verk Hreins fjalla um allar litlu upp- götvanirnar sem þú gerir ef þú tekur eftir umhverfi þínu. að sýna í Serpentine Gallery. Ámiðöldum og allt fram á18. öld var mikið magnbrennisteins flutt út fráÍslandi til púðurfram- leiðslu í evrópskum vopnabúrum. Hinn íslenski brennisteinn var ein meginforsenda þess að Evrópubúar náðu að leggja undir sig heiminn og átti þar með þátt í að móta þá heimsmynd sem við búum við í dag! Talið er að púðrið hafi verið fund- ið upp í Kína í kringum árið 1000 en þar var það notað í flugelda og frumstæð eldvopn. Um 200 árum síðar barst púðrið svo til Evrópu. Þannig er minnst á það árið 1267 í riti hins enska fransiskusarmunks og heimspekings Roger Bacon. Í dulmálstexta þar má finna fyrstu þekktu uppskriftina að púðri: „Úr saltpétri og brennisteini má skapa eld, kunnir þú þá list!“ Lítill vafi leikur á því að púður barst til Evrópu með aröbum og að mikilvægasta hráefnið í það – salt- pétur – kom fyrst um sinn til Vest- urheims fyrir tilstilli verslunarleið- angra sem farnir voru landleiðina til Indlands. Er Tyrkir náðu Konst- antínópel á sitt vald árið 1453 var klippt á þau viðskiptatengsl. Fyrir vikið varð það nú afar þýðing- armikið að finna sjóleiðina til Ind- lands til að nálgast hinn dýrmæta og mikilvæga saltpétur; það var svo góður kaupbætir að hægt var að græða vel á verslun með krydd! Bengal-hérað varð síðar að saltpét- urforðabúri heimsins en í Fort Wil- son, núverandi Kalkútta, sátu Eng- lendingar löngum að einokun á saltpéturmarkaðnum. Þetta leiddi til þess að framleiðsla saltpéturs hófst í Evrópu og t.a.m. var mikið magn hans unnið í Svíþjóð úr upp- söfnuðum dýraskít. Um 1350 höfðu Evrópubúar náð fullum tökum á þessari nýju upp- finningu og voru þá orðnir færir um að búa til púður, sem jafnast nánast á við það sem framleitt er í dag. Þrátt fyrir þetta liðu 150 ár áður en púðurvopn urðu einráð á evrópsk- um vígvöllum og Evrópumenn tóku fyrir alvöru að leggja undir sig heiminn. Upphaf púðurframleiðslu hafði gríðarlega þýðingu í mótun þeirrar heimsmyndar sem við búum við í dag og fullyrða má að aðeins nú- tímaörflögur hafi haft sambærileg áhrif á sögu og þróun mannkynsins. En hvernig tengist allt þetta Ís- landi? Tengslin eru margþætt eins og við munum sjá af því sem hér fer á eftir. Um 200 ára skeið var Ísland gríðarlega mikilvægur hlekkur í stríðsvél Evrópu. Ísland bjó yfir brennisteini – hinu gula gulli – og brennisteinn var annað meg- inhráefnið sem notað var við púð- urgerð. Það var aðgengilegt og til- tölulega auðvinnanlegt. Finna mátti brennistein víðar í Evrópu, t.d. á Sikiley, en þar lá hann dýpra í berg- inu og erfiðara var að vinna hann. Þannig var það ekki fyrr en í byrjun 18. aldar sem Sikiley leysti Ísland af hólmi sem mikilvægasta upp- spretta brennisteins á Evr- ópumarkaði – en þá var hægt að flytja þaðan brennisteinn hraðar, betur og ódýrar en frá Íslandi. Það leikur sem sagt enginn vafi á því að það voru Evrópubúar sem þróuðu púður svo hægt væri að nota það í fallbyssur og skotvopn. Þetta átti sér stað á 14. öld og þró- unin var svo hröð að þegar um 1350 mátti finna nokkurt magn púðurs og kúlna víðs vegar í evrópskum vopnabúrum. Árið 1350 skrifaði munkurinn Francesco Petrarch um fyrstu fall- byssurnar sem skutu upp kollinum á vígvellinum vítt og breitt um Evr- ópu: „Þessi verkfæri, sem skjóta járnkúlum með miklum hávaða og eldglæringum, voru afskaplega sjaldgæf fyrir fáeinum árum og vöktu þá mikla undrun og aðdáun. Nú eru þau hins vegar engu sjald- séðari en önnur vopn. Svo frjór og fær er mannshugurinn um að læra erfiðustu listir!“ Brennisteinn frá Íslandi Við Gásir í Eyjafirði hafa forn- leifafræðingar frá Fornleifastofnun Íslands á vegum Minjasafnsins á Akureyri grafið upp fyrsta brenni- steinsverslunarstaðinn sem vitað er um. Hann er frá 14. öld og þar var ekki eingöngu verslað með brenni- stein heldur var hann líka hreins- aður á staðnum þannig að hann hentaði til púðurgerðar! Brennisteinn finnst víða á jarð- hitasvæðum á Íslandi og þar var hann grafinn upp. Hestar voru síð- an notaðir til að flytja hann til sjáv- ar og þar var honum pakkað í tunn- ur til útflutnings. Brennisteinn var fluttur út frá Íslandi allt frá 12. öld. Hann var notaður við víngerð í suðrænum löndum en þar voru vínámurnar sótthreinsaðar með brennisteini áð- ur en þær voru fylltar víni. Eft- irspurnin jókst þó verulega á 14. öld er Evrópubúar hófu að framleiða púður og skotvopn. Brennisteinninn var seldur í mis- munandi gæðaflokkum: 1 tunna af óhreinsuðum brenni- steini – jafngildi einnar tunnu af mjöli eða 30 fiska 1 tunna af hreinsuðum brenni- steini – jafngildi tveggja tunna af mjöli eða 60 fiska 1 tunna af bræddum brennisteini – jafngildi þriggja tunna af mjöli eða 90 fiska Þeir fjölmörgu munir sem fund- ist hafa við uppgröftinn á Gásum varpa aukinni birtu á hversdagslíf íslenskra bænda í byrjun 15. aldar en framlag þeirra gerði mönnum annars staðar í Evrópu kleift að nota í stríðsátökum vopn sem voru mun öflugri og höfðu meiri eyði- leggingarmátt en áður hafði þekkst. Eflaust hafa íslenskir bændur verið lítt meðvitaðir um þetta en eftir sem áður má tengja hinn stöðuga gröft þeirra eftir „hinu gula gulli“ það að konungum og furstum var steypt af stóli, landamærum var breytt og gríðarlegir fjármunir fluttust manna á milli. Allt vegna brennisteinsins frá eldvirkum svæðum á Íslandi. Íslenskir bænd- ur hafa líkast til talið sig fá prýði- lega greitt og trúlegt er að brenni- steinsverslunin hafi um skeið verið mikilvæg fyrir íslenskan efnahag en á hitt ber að benda að verðmæti brennisteinsins þrítugfaldaðist hér um bil áður en hann komst á leið- arenda í evrópskum vopnabúrum! Púðurvopnin gegndu æ mik- ilvægara hlutverki, stórar og skil- virkar fallbyssur með mikinn eyði- leggingarmátt voru byggðar og um alla Evrópu var brennisteinn og saltpétur notaður til púðurfram- leiðslu. Innan skamms var vart hægt að standa í stríðsrekstri án púðurs og fallbyssna og sá sem átti nóg af hvoru tveggja gat verið býsna sigurviss. Eins og títt er um nýjungar spunnust fljótt dulúðlegar sögur um púður og var það ekki síst trú manna að djöfullinn sjálfur leyndist í svörtu púðrinu. Þegar hleypt var af fallbyssu skaust hann svo út með kúlunni, í reykjarkófi og eldglær- ingum. Ein sagan segir frá biskupi nokkrum sem ætlaði sér að kanna sannleiksgildi þessarar sagnar með vísindalegum hætti. Hlóð hann tvær fallbyssur með púðri og kúlum en skvetti svo vígðu vatni á púðrið í annarri byssunni. Var síðan hleypt af báðum byssum. Skemmst er frá því að segja að aðeins sú byssan sem engu vígðu vatni hafði verið skvett á virkaði og var það talin sönnun þess að djöfullinn hefðist við í púðrinu! Kólumbus og Ísland Hin þekkta saga um ferð Kól- umbusar til Íslands árið 1477 öðlast skemmtilega vídd þegar þýðing Ís- lands fyrir púðurframleiðslu í Evr- ópu er höfð í huga. Englendingar höfðu einkaleyfi á verslun með ís- lenskan brennistein allt að lokum 100 ára stríðsins árið 1453 sagan segir að Kólumbus hafi komið hing- að til lands með ensku skipi frá Bri- stol. Hér mun hann hafa heyrt um sjóleiðina til Ameríku þar sem hin- ar fornu norrænu verslunarleiðir voru vel þekktar í sérhverri höfn við Norður-Atlantshaf. Það má þó spyrja sig að því hvaða erindi Kól- umbus átti eiginlega til Íslands – getur verið að honum hafi verið ætl- að að tryggja flutning á brenni- steini til Spánar eða Portúgals? Við vitum þetta auðvitað ekki en til- hugsunin er skemmtileg í ljósi mik- ilvægis þessa hráefnis fyrir Evr- ópubúa. Lifandi sögumiðlun Þegar Minjasafnið á Akureyri hafði fyrst samband við Middelal- dercentret í Danmörku fyrir um 4 árum bjóst enginn við því að rann- sóknir á verslunarstaðnum að Gás- um og á verslun með íslenskan brennistein yrðu uppspretta þeirra fjölmörgu verkefna sem þessar tvær stofnanir hafa unnið að síðan. Í dag hefur Middelaldercentret, m.a. fyrir tilstuðlan hins danska Galathea 3 könnunarleiðangurs, kortlagt þau svæði á Íslandi og Sik- iley sem hafa á sögulegum tíma gef- ið af sér brennistein til púð- urgerðar. Middelaldercentret hefur einnig verið í Bengal-héraði á Ind- landi til að endurlífga hina gömlu saltpéturframleiðslu og í samein- ingu hafa söfnin tvö staðið fyrir ár- legum miðaldamarkaði að Gásum þar sem hinn forni verslunarstaður vaknar til lífsins í nokkra daga og fyllist af kaupmönnum, farmönnum og handverksfólki frá miðöldum. Þar er flutt miðaldatónlist, hleypt af fallbyssum og miðaldavarningur seldur, auk þess sem riddarar brynjaðir, af erlendum sið, skylm- ast. Miðaldamarkaðurinn hefur allt frá byrjun verið það vel sóttur að nú er unnið að því að gera hann að var- anlegum áfangastað fyrir ferða- menna eftir evrópskri fyrirmynd. Minjasafnið hefur ásamt Middel- aldercentret og hinum hollenska sögulega skemmtigarði Archeon sótt um Evrópusambandsstyrk til frekari þróunar á staðnum þannig að byggja megi Gásir upp þannig að staðurinn festist í sessi sem álit- legur áfangastaður í Eyjafirði. Í ár verður miðaldamarkaðurinn að Gásum haldinn dagana 21.-22. júlí. Saga púðursins, brennisteinn frá Íslandi og örlítið um Kólumbus eftir Peter Vemming Sagan endurvakin Markaðsdagur á Gásum. Í fyrra komu 1.300 manns á miðaldamarkaðinn en þá líkt og núna vekja Minjasafnið á Akureyri og sjálfboðaliðar þennan spennandi hluta Íslandssögunnar til lífsins. Peter Vemming er fornleifafræð- ingur og safnstjóri Middelalder- centret í Danmörku. Brennisteinn sóttur Sækja þurfti brennisteininn í Námafjall. Honum var komið á hesta og hann fluttur að ströndinni þar sem hann var hreins- aður. Þaðan var hann loks fluttur út á hinn evrópska markað. » Brennisteinn varfluttur út frá Íslandi allt frá 12. öld. Hann var notaður við víngerð í suðrænum löndum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.