Morgunblaðið - 17.07.2007, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 17.07.2007, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Hildur Kjart-ansdóttir fædd- ist í A-Skaftafells- sýslu 17. júlí 1923. Hún lést á Land- spítala við Hring- braut 13. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Kjartan Kristinn Halldórsson verk- stjóri, f. í Bjarna- nessókn í A- Skaftafellssýslu 25. október 1896, d. 7. febrúar 1956, og Helga Sigurðardóttir húsfreyja, f. í Holtaseli á Mýrum í A- Skaftafellssýslu 4. apríl 1885, d. 28. júní 1954. Börn þeirra eru: a) Óli Halldór, f. 18. maí 1977, maki Hólmfríður Jensdóttir, f. 13. október 1978. Dóttir Óla Halldórs er Helga Björg, f. 20. febrúar 2001. b) Unnur Linda, f. 23. desember 1982. 3) Oddný Þóra Óladóttir, f. 26. janúar 1963, hennar maður er Pétur H. Jónsson, f. 15. mars 1956. Börn þeirra eru Jakob Filippus, f. 20. október 1985, og Hildur Helga, f. 16. júní 1991. Hildur ólst upp á Höfn í Hornafirði. Hún fluttist til Reykjavíkur um tvítugt, en þar stundaði hún ýmis störf framan af. Hálfþrítug að aldri réðst hún til Símans og starfaði sem tal- símavörður og varðstjóri á fimmta áratug. Útför Hildar var gerð frá Nes- kirkju 22. febrúar, í kyrrþey. 4. janúar 1993. Bræður Hildar eru Sigurður, f. 1928, og Baldur, f. 1926. Hildur giftist 5. nóvember 1955 Óla Pálma H. Þorbergs- syni, frá Aðalvík í Sléttuhreppi, f. 17. júlí 1916, en hann rak sitt eigið hús- gagnaverkstæði lengstan hluta starfsævinnar. Börn Hildar og Óla eru: 1) Kjartan Ólason, f. 15. janúar 1955. 2) Helga Óla- dóttir, f. 4. apríl 1956, hennar maður er Konráð Eyjólfsson, f. Hildur var fædd og uppalin á Höfn í Hornafirði og átti ættir að rekja til Austur- og Vestur-Skafta- fellssýslna. Uppvaxtarárin fyrir austan einkenndust af gildum gamla tímans þar sem samhjálp fólksins og nægjusemi voru í fyr- irrúmi. Fólkið stundaði sjálfsþurft- arbúskap og þau störf sem höfðu myndast í tengslum við útgerð Þór- halls Daníelssonar. Þrátt fyrir land- fræðilega einangrun þreifst þar ágætt mannlíf. Húslestrar voru enn við lýði þar sem lesið var upp úr gömlum og nýjum bókum og féll það oftar en ekki í hlut föður henn- ar að sjá um lesturinn, enda ann- álaður upplesari. Hann og Ragn- hildur föðursystir hennar voru aðaldrifkraftarnir í leiklistarlífi plássins sem var ágætlega blómlegt. Móðir okkar minntist ára sinna á Höfn ávallt af miklum hlýhug. Að trana fram eigin persónu eða miklast af sjálfum sér var fjarri hennar eðli. Að því leyti sór hún sig í ætt við skaftfellskan uppruna sinn, þar sem ekki var til siðs að hafa óþörf orð um sjálfsagða hluti og eðlilegra þótti að draga heldur úr ef kostur var. Aðalsmerki hennar voru vinnusemi og heiðarleiki. Hún var lagvirk með eindæmum og lék allt í höndunum á henni. Rétt liðlega tví- tug flutti hún til Reykjavíkur þar sem hún vann við ýmis störf eins og tíðkaðist meðal ungra kvenna á þeim tíma. Fyrir tilviljun réðst hún til Landssímans og varð það hennar starfsvettvangur í nærri 45 ár. Um var að ræða fjölmennan kvenna- vinnustað þar sem skapaðist náinn vinskapur sem hún mat mikils. Hún kynntist föður okkar í Reykjavík árið 1953 og áttu þau farsæla sam- búð alla tíð. Þau voru bæði mikið fjölskyldufólk og voru börnin og barnabörnin þeim afar dýrmæt, fylgdust þau grannt með gengi þeirra og leiðbeindu þeim eftir kost- um með hvatningu og jákvæðum huga. Síðustu árin átti móðir okkar við erfið veikindi að stríða og það var eins og allur lífsvilji færi við fráfall föður okkar, sem lést á haustmán- uðum 2006. Með söknuð í hjarta kveðjum við okkar ástkæru móður. Börn og barnabörn. Fyrir rúmum tveimur árum urðu miklar sviptingar í lífi okkar í fjöl- skyldunni þegar móðir mín greind- ist með illvígan sjúkdóm. Stuttu síð- ar veiktist pabbi alvarlega og var vart hugað líf. Hann náði sér bless- unarlega aftur á strik og fékk að vera með okkur aðeins lengur. Það skiptir samt engu máli hversu að- dragandinn er langur, maður er aldrei fyllilega búinn undir fráfall sinna nánustu. Elsku mamma, það er mikill söknuður og tómarúm í hjartanu við Hildur Kjartansdóttir ✝ Kristinn Guð-mundur Jón Jónsson fæddist í Hvammi við Dýra- fjörð 1. september 1912 og ólst þar upp. Hann lést á Hrafnistu í Reykja- vík mánudaginn 9. júlí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigurborg Guðmundsdóttir, f. á Dröngum í Dýra- firði 23.3. 1881, d. 11.3. 1967, og Jón Jónsson, f. á Brekku í Dýrafirði 15.2. 1889, d. 8.9. 1954. Systkini Kristins eru Guðmundur Finn- bogi, f. 1911, Sigurjón, f. 1913, d. 1968, Ástríður Guðrún, f. 1915, d. 1915, og Ingvar Gunn- ar, f. 1916. Kristinn kvæntist 14.12. 1940, Guðbjörgu Runólfsdóttur frá Gröf í Skilamannahreppi, f. 16.11. 1918, d. 1.10. 1990. For- eldrar hennar voru Þórunn Hrönn, f. 8.6. 1977. 2) Guð- mundur, f. 29.8. 1944, kvæntur Írisi Lilju Sigurðardóttir, f. 2.5. 1949, d. 4.3. 2004. Börn þeirra eru a) Olga, f. 23.5. 1968, gift Pétri Smára Richardssyni, f. 28.11. 1970, börn þeirra eru Anna Íris, f. 29.10. 1994, og Guðmundur Smári, 15.12. 2000, b) Kristinn Þór, 9.7. 1972, sonur hans er Christian Marel, 8.5. 1997 og c) Erlendur Guðlaugur, f. 14.6. 1976, kvæntur Hildi Brynju Sigurðardóttur, 4.5. 1976, sonur þeirra er Emil Snær, f. 12.6. 2005. Kristinn stundaði sjómennsku frá unga aldri. Hann tók skip- stjórnarpróf árið 1934 frá Stýri- mannaskólanum og var skip- stjóri á bátum frá Akranesi frá árinu 1940 til 1955 uns hann kom í land og vann þá ýmis störf, m.a. við fiskverkun og skipasmíðar. Eftir að þau hjón fluttu til Reykjavíkur árið 1972 vann Kristinn ýmis versl- unarstörf, síðustu starfsárin sem vaktmaður í Glæsibæ. Kristinn verður jarðsunginn frá Grensáskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Markúsdóttir úr Arnarfirði, f. 11.10. 1884, d. 11.9. 1970, og Runólfur Guð- mundsson bóndi, f. 3.4. 1887, d. 2.12. 1985. Börn Kristins og Guðbjargar eru: 1) Guðjón, f. 13.7. 1941, d. 21.10. 1941. 2) Sigurborg Guð- rún, f. 21.1. 1943, gift Kára Valves- syni, f. 4.12. 1943. Dætur þeirra eru a) Guðbjörg, f. 18.12. 1968, dóttir hennar er Sig- urborg Selma, f. 9.3. 1989, b) Ólöf Rós, f. 19.5. 1971, gift Jó- hanni Ófeigssyni, 5.5. 1971, börn þeirra eru Berglind Brá, f. 28.7. 1994, Halldóra, f. 21.3. 2002, og Ófeigur Kári, 15.4. 2004, c) Vala Ágústa, f. 27.12. 1972, gift Gísla Marteini Baldurssyni, f. 26.2. 1972, dætur þeirra eru Elísabet Unnur, f. 31.12. 1997, og Vigdís Freyja, f. 29.4. 2001 og d) Elín Á langri leið eru atvikin óteljandi. Við erum stödd í róðri á vetrarvertíð úti á Faxaflóa fyrir miðja síðustu öld og Björninn II frá Akranesi er að sökkva. Ekki verður við neitt ráðið en fyrir forsjón er annar bátur við hlið- ina á þeim þarna í hafróti og hverf- andi dagsbirtu. Fumlaust eru menn dregnir á línu í veðurofsanum milli bátanna, menn sem vita að náttúran gefur og náttúran tekur. Menn sem telja að forlög ráði för og eiga ekki annan kost en að sækja sjó og láta vetrarveður ekki aftra sér. Svo er skipstjórinn einn eftir, hefur skorið línuna frá skipinu og bundið um sig, tilbúinn að stökkva út í ólguna. Þá hikar Kristinn Jónsson við, öslar að slíðri á vélarhúskappanum og setur hnífinn þar á sinn stað. Svo vippar hann sér fyrir borð og er dreginn með öruggum tökum yfir og báturinn hans lyftir sér ekki á næstu öldu. Ör- fáum dögum síðar er hann kominn með annað skip, harðsnúinn aflamað- ur og hafði hlutina alltaf á sínum stað. Einn dagur í lífi manns sem fór á skútu fyrir fermingu, lifði hart nær heila öld og lét aldrei neitt koma sér á óvart. Hann sagði satt og rétt frá at- vikum en blandaði ekki eigin skoð- unum hvað þá heldur kímni í frásögn- ina en var hinsvegar mægður við Grafarkynið í Skilamannahreppi sem áður en það blandaðist þvers og kruss sá broslega hlið á flestum málum og felldi þau helst í stuðla og rím. Hafið var honum hugleikið alla tíð og stundum var okkur sem stóðum honum nærri nóg boðið af eilífum frá- sögnum um úthald og sjómennsku, herpinætur og síldarköst. En svona var hann þessi einlægi maður sem lagði ekki illt til annarra, þagði ef honum var misboðið, átti hjartkærar minningar um bernsku sína og æsku vestur í Hvammi í Dýrafirði og tók því eins og hverju öðru tilfelli þegar örgeðja og grindhoraður sjóari napp- aði glæsilegri einkadóttur hans við nefið á blasandi framtíð. Hann verður mér sjálfsagt hug- leikinn alla tíð gamli vinur minn sem átti prívat bænir að fara með, gerði allt af kostgæfni sem hann tók sér fyrir hendur, hversu smátt sem það var eins og almættið hefði sett honum fyrir hvert handarvik. Kári Valvesson. Það var tæpri viku fyrir jól árið 1968 að Kristinn Jónsson og Guð- björg Runólfsdóttir urðu afi og amma í fyrsta sinn. Það hlutskipti sem dóttir þeirra og gangur lífsins höfðu fært þeim fór þeim svo vel úr hendi að við sem vorum þeirrar gæfu aðnjótandi að vera barnabörn þeirra verðum æv- inlega þakklát. Árin í Fellsmúlanum koma upp í hugann þegar við systurnar rifjum upp liðna tíð. Afi og amma fluttu ofan af Akranesi til að geta verið nær okk- ur öllum og fóru bæði að vinna í Glæsibæ. Við upplifðum allt þeirra umhverfi sem algera ævintýraveröld, hvort sem það var heimili þeirra, kartöflugarðurinn, vinnustaðurinn, eða stigagangurinn í Fellsmúlanum þar sem við hlupum um í náttkjólun- um hennar ömmu og þóttumst vera prinsessur frá framandi löndum. Betri afa og ömmu var ekki hægt að Kristinn G. J. Jónsson ✝ Elskulegur faðir minn, sonur okkar, bróðir og mágur, ÓSKAR SIGURBJÖRN PÁLSSON, Hagaflöt 2, Garðabæ, var bráðkvaddur, sunnudaginn 8. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey, að ósk hins látna. Sjöfn Óskarsdóttir, Páll Ólafur Pálsson, Sjöfn Óskarsdóttir, Ragna Pálsdóttir Erwin, Austin Erwin, Sólveig Pálsdóttir, Árni Jónsson og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, systir og amma, INGIBJÖRG RICHARDSDÓTTIR, Engjaseli 54, Reykjavík, sem andaðist laugardaginn 14. júlí á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, verður jarðsungin frá Digraneskirkju föstudaginn 20. júlí kl. 11:00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein. Kristinn Karl Dulaney, Erla Kristinsdóttir, Snorri Bjarnvin Jónsson, Richard Kristinsson, Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, Ingibjörg Kristinsdóttir, Hans Welling, Erla Þórðardóttir, Þórdís Richardsdóttir, Per Otto Sylwan og aðrir aðstandendur. ✝ Móðir mín, NELLÝ EVA JÓHANNESDÓTTIR, Norðurbrún 1, áður Kleppsvegi 12, er látin. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu, miðviku- daginn 18. júlí kl. 15.00. Sigrid Krueger og fjölskylda. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, ÁSTRÍÐUR I. JÓNSDÓTTIR, Dalbraut 20, Reykjavík, áður bóndi á Kaðalsstöðum í Stafholtstungum, lést á Landspítalanum í Fossvogi, föstudaginn 13. júlí. Útförin fer fram frá Reykholtskirkju, laugardaginn 21. júlí kl. 14.00. Þorgerður Jónsdóttir, Júlíus Óskarsson, Ólafur Ólafsson, Kristín Stefánsdóttir, Þórður E. Leifsson, Arndís Leifsdóttir, Skarphéðinn Gunnarsson, Ingibjörg Leifsdóttir, Ingþór Guðni Júlíusson, Hrönn Indriðadóttir, Gunnar Örn Júlíusson, Elín Ásta Ólafsdóttir, Stefán Ólafur Ólafsson, Jóhann Gísli Ólafsson, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RÓSA HALLDÓRA HJÖRLEIFSDÓTTIR, Miðjanesi, Reykhólasveit, lést í Barmahlíð, dvalarheimili aldraðra á Reykhólum, sunnudaginn 15. júlí. Helga Játvarðardóttir, Halldóra Játvarðardóttir, Ámundi Jökull Játvarðsson, Lovísa Hallgrímsdóttir, Jón Atli Játvarðarson, Dísa Sverrisdóttir, Þórunn Játvarðardóttir, Þórarinn Þorsteinsson, María Játvarðardóttir, Hugo Rasmus, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.