Morgunblaðið - 17.07.2007, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 17.07.2007, Qupperneq 31
elski, það eru orð að sönnu, því Berg- ur var sko ekki tilbúinn að fara þenn- an morgun. Það var svo mikið fram- undan hjá honum, nýútskrifaður, nýjar vinnur og nóg að gera, og því- líkur dugnaðarforkur hann var og gott að vinna með honum. Ég kynntist Bergi árið 2004, þá vorum við að vinna saman hjá Vigni í Hlégarði. Alltaf var Bergur með putt- ana í öllu og það skipti ekki máli hvað það var sem hann átti að gera hann gerði það og það á engum tíma. Svo kom bara „hvað á ég að gera núna“. Ég sá strax að þarna var strákur sem ég gæti nýtt mér og réð hann til mín í vinnu sumarið eftir í veiðihúsið við Selá í Vopnafirði og unnum við þar saman í rúmar fjórar vikur. Og því- líkir tímar það voru, við vorum alltaf að bralla eitthvað annað en að elda, skúra, búa um rúmin o.fl. Við fórum frekar að veiða, keyra um ána, í berja- mó og óteljandi voru sundferðirnar í Selárlaug og svo bara að veiða meira, því það þótti Bergi ekki leiðinlegt, að rífa upp einn og einn lax svona þegar okkur sýndist. Hann hafði mikinn áhuga á veiði og sagði mér margar veiðisögur af sér þegar hann var lítill. Það er svo ógleymanlegur 3. septem- ber 2005 þegar við tveir héldum upp á tvítugsafmælið þitt, sem hitti meira að segja á laugardag. Við komumst ekki einu sinni á pöbbinn, því hann var lokaður, þannig að ég fékk alla gestina í veiðihúsinu til að syngja með mér afmælissönginn. Þú varst svo feiminn og trúðir ekki að ég hefði gert þetta, og ég sagði við þig „maður er bara einu sinni tvítugur“. Þegar ég hugsa til baka þá bara brosi ég, „því- líkir tímar og minning“. Um miðjan júní sl. á leið minni frá Mývatnssveit inn á Akureyri stoppaði ég á Stórutjörnum til að kíkja á kall- inn og skila vöðlunum sem voru búnar að vera í veiðihúsinu frá 2005. Þá varst þú svo hress og leist vel út. Við fengum okkur bolla, spjölluðum um hvað þú væri að fara gera í haust og þetta var allt eins og það átti að vera, nema það að ég á ekki eftir að sjá þig aftur, elsku vinur. Elsku Bergur, megi góður guð og allir hans englar vaka yfir þér. Dagurinn liðinn, dimma fer, draumarnir vakna í huga mér. Hugsa ég til þín títt og ótt. Og bíð englum mínum góða nótt. (Sirrý) Ég votta fjölskyldu Bergs mína dýpstu samúð og megi góður guð veita ykkur styrk í þessari miklu sorg. Þinn vinur Ólafur Már. Kynni okkar spanna kannski ekki langan tíma í árum en vinátta okkar var sönn. Bergur varð minn besti vin- ur og við gátum spjallað um allt sem lífið og tilveran snýst um. Hann tók alltaf á móti manni með mikilli glað- værð, góðsemi og húmor sem hann beitti óspart og fylgdi honum glott sem ég sé ljóslifandi fyrir mér. Ýmis- legt höfum við tekið okkur fyrir hend- ur og nú stendur Danmerkurferðin í febrúar til Gísla frænda hans uppúr. Bergur var hugmyndaríkur og gat honum dottið í hug að ganga á Esjuna ef þannig lá á honum og munaði hann þá ekki um að ýta mér síðasta spott- ann enda í góðu formi. Síðasta samverustundin áður en hann hélt norður var í útskriftarveisl- unni hans nú í júní sl., þar sem stór- fjölskyldan samfagnaði ásamt stórum vinahópi eins og þeim einum er lagið sem Mosfellsdalinn byggja. Ég get ekki lýst með orðum hversu þung- bært það er að þurfa að sætta sig við þetta hörmulega bílslys. Ljóðið sem ég læt fylgja lýsir Bergi vel. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez.) Fjölskyldu og öllum vinum Bergs sendi ég samúðarkveðjur og bið Guð að styrkja þau á þessum erfiðu tím- um. Ævarandi vinur Sigurður Jóhann. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 31 Atvinnuauglýsingar Starfsfólk óskast Við leitum að góðu fólki til starfa við húsumsjón í íþróttahúsi Knattspyrnufélagsins Víkings. Um fullt starf er að ræða og einnig hlutastörf. Framtíðarstörf hjá öflugu félagi sem verður 100 ára á næsta ári. Upplýsingar hjá Erni Ingólfssyni, framkvæmdastjóra félagsins, í símum 581 3245 og 898 4532, netfang er orn@vikingur.is. Knattspyrnufélagið Víkingur, Traðarlandi 1, 108 Reykjavík. Au-pair óskast Erum þrír litlir íslenskir strákar á Tenerife, sem vantar barngóða manneskju til að passa okkur og hjálpa til á heimilinu frá og með 15. ágúst, helst í ár. Bílpróf skilyrði. Sendið umsókn á jonadis@hotmail.com, sem fyrst. Atvinna óskast Hársnyrtir Hársnyrti vantar á hársnyrtistofuna Zone á Akureyri . Uppl. í síma 891 6252, iris ghgunn@simnet.is . Raðauglýsingar 569 1100 Nauðungarsala Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Stillholti 16-18, Akranesi, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Akurgerði 17, mhl. 01-0101, fastanr. 210-1834, Akranesi, þingl. eig. Ísleifur Helgi Waage, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 19. júlí 2007 kl. 14:00. Hagaflöt 10, mhl. 01-0101 og 01-0102, fastanr. 228-2647, Akranesi, þingl. eig. Handverksmenn ehf, gerðarbeiðandi Akraneskaupstaður, fimmtudaginn 19. júlí 2007 kl. 14:00. Hagaflöt 2, mhl. 01-0101 og 01-0102, fastanr. 228-2639, Akranesi, þingl. eig. Handverksmenn ehf, gerðarbeiðandi Akraneskaupstaður, fimm- tudaginn 19. júlí 2007 kl. 14:00. Hagaflöt 6, mhl. 01-0101, fastanr. 228-2643, Akranesi, þingl. eig. Hand- verksmenn ehf, gerðarbeiðandi Akraneskaupstaður, fimmtudaginn 19. júlí 2007 kl. 14:00. Hagaflöt 8, mhl. 01-0101 og 01-0102, fastanr. 228-2645, Akranesi, þingl. eig. Handverksmenn ehf, gerðarbeiðandi Akraneskaupstaður, fimmtudaginn 19. júlí 2007 kl. 14:00. Háteigur 8, fastanr. 210-2385, Akranesi, þingl. eig. Sigurður Már Harðarson, gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður, Kreditkort hf, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda og Vátryggingafélag Íslands hf, fimmtudaginn 19. júlí 2007 kl. 14:00. Holtsflöt 5, mhl. 01-0101, fastanr. 228-1946, Akranesi, þingl. eig. Hand- verksmenn ehf, gerðarbeiðandi Akraneskaupstaður, fimmtudaginn 19. júlí 2007 kl. 14:00. Holtsflöt 7, mhl. 01-0101 og 01-0102, fastanr. 228-1947, Akranesi, þingl. eig. Handverksmenn ehf, gerðarbeiðandi Akraneskaupstaður, fimm- tudaginn 19. júlí 2007 kl. 14:00. Kirkjubraut 2, mhl. 01-0202, fastanr. 228-2789, Akranesi, þingl. eig. Anton Kristinn Þórarinsson og Stór ehf, gerðarbeiðandi Akranes- kaupstaður, fimmtudaginn 19. júlí 2007 kl. 14:00. Laugarbraut 21, mhl. 01-0101, fastanr. 210-1858, Akranesi, þingl. eig. Ísleifur Helgi Waage, gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður og Tryggingamiðstöðin hf, fimmtudaginn 19. júlí 2007 kl. 14:00. Presthúsabraut 21, mhl. 01-0101 og 02-0101, fastanr. 210-0152, Akranesi, þingl. eig. Einar Ástvaldur Jóhannsson og Aðalbjörg Pálsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 19. júlí 2007 kl. 14:00. Skólabraut 26, mhl. 01-01027, fastanr. 210-2166, Akranesi, þingl. eig. Lúðvík Karlsson, gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður, Húsasmiðjan hf, Sjóvá-Almennar tryggingar hf og Spölur ehf, fimmtudaginn 19. júlí 2007 kl. 14:00. Skólabraut 28, mhl. 01-01017, fastanr. 210-2169, Akranesi, þingl. eig. Lúðvík Karlsson, gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður og Sjóvá- Almennar tryggingar hf, fimmtudaginn 19. júlí 2007 kl. 14:00. Suðurgata 126, mhl. 01-0101, fastanr. 210-1760, Akranesi, þingl. eig. Húsval ehf, gerðarbeiðandi Akraneskaupstaður, fimmtudaginn 19. júlí 2007 kl. 14:00. Vesturgata 119, mhl. 01-0201, fastanr. 223-9631, Akranes, þingl. eig. Húsval ehf, gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður og Vörður Íslandstrygging hf, fimmtudaginn 19. júlí 2007 kl. 14:00. Vesturgata 48, mhl. 01-0301, fastanr. 210-2208, Akranesi, þingl. eig. Einar Sigurðsson og Geir Harðarson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 19. júlí 2007 kl. 14:00. Ægisbraut 15, mhl. 01-0101, fastanr. 210-0154, Akranesi, þingl. eig. Haukur Sigurbjörnsson ehf, gerðarbeiðandi Akraneskaupstaður, fimmtudaginn 19. júlí 2007 kl. 14:00. Sýslumaðurinn á Akranesi, 13. júlí 2007. Esther Hermannsdóttir, ftr. KAUPÞINGSMÓTINU í Lúxem- borg lauk um síðustu helgi með sigri íslenska stórmeistarans Hannesar Hlífars Stefánssonar (2568) og ind- verska stórmeistarans Humpy Ko- neru (2572). Indverska skákdrottn- ingin var úrskurðuð sigurvegari eftir stigaútreikning og nálgast þessi önn- ur stigahæsta skákkona heims nú óð- fluga 2600 stiga markið. Alþjóðlegi meistarinn Héðinn Steingrímsson (2470) náði áfanga að stórmeistara- titli en hann deildi þriðja sætinu með fjórum öðrum skákmönnum. Árang- ur Hannesar og Héðins er frábær ekki síst ef mið sé tekið af brösóttri byrjun þeirra. Hannes tapaði skák í annarri umferð vegna þess að hann misskildi tímamörkin og féll þar af leiðandi á tíma og Héðinn tapaði illa með hvítu í fimmtu umferð. Þeir náðu sér hins vegar vel á strik í lokaum- ferðunum og í níunda og síðustu um- ferð var að duga eða drepast fyrir þá. Hannes þurfti að á sigri að halda til að eygja möguleika á að verða efstur á mótinu og Héðinn þurfti að leggja stigahæsta keppandann að velli á mótinu til að ná áfanga að stórmeist- aratitli. Hannes hafði hvítt gegn tékkneska stórmeistaranum Petr Velicka (2507) og fórnaði Íslending- urinn snemma peði. Fyrir peðið fékk umtalsvert spil og að lokum vann hann það til baka. Þegar svartur lék sínum 27. leik, Ke7-f7, kom eftirfar- andi staða upp: Sjá stöðumynd 1 28. d5! Þetta gegnumbrot tryggir að frumkvæðið verði í höndum hvíts. 28...Dxd5 29. Hxa7+ Kg8 30. Dxd5 exd5 31. Hb4 Hh7 32. Hxh7 Kxh7 33. Hxb5 Hvítur hefur nú peði meira í hróksendatafli ásamt því að hafa tvö samstæð frípeð. Hannes afræður að hindra mótspil svarts á kóngsvæng áður en hann ýtir frípeðum sínum af stað. 33...h4 34. Hb7+ Kh6 35. a4 f4 36. Hf7 Kg5 37. a5 Kg4 38. e6 Kg3 39. e7 He8 40. a6 Kxg2 41. Hxf4 h3 42. Hg4+ Kf2 43. Hxg6 Hxe7 44. Hh6! Hvítur hefur nú léttunnið tafl. Frí- peðin á drottningarvæng eru of öflug fyrir svarta hrókinn. Lokin urðu: 44....Kg2 45. b4 h2 46. b5 Ha7 47. Kb2 h1=D 48. Hxh1 Kxh1 49. Kc3 Kg2 50. Kd4 Kf3 51. Kxd5 Kf4 52. c4 Kf5 53. c5 Kf6 54. b6 og svartur gafst upp. Á meðan skák Hannesar stóð hafði Héðinn hvítt gegn stórmeistaranum Vadim Malakhatko (2590) sem teflir nú undir fána Belga. Rétt eins og Ve- licka beitti fyrrverandi Úkraínumað- urinn vörn fátæka mannsins fyrir sér. Héðinn var öllum hnútum kunn- ugur í Caro-Kann vörninni og brátt lenti stigahæsti keppandinn í erfið- leikum. Hann fórnaði peði til að hafa opnar línur á drottningarvæng en í 24. leik kom Héðinn með krók á móti bragði: Sjá stöðumynd 2 24. Rxh5! Snjöll mannsfórn sem stenst fylli- lega kröfur stöðunnar. Línur opnast að svarta kóngnum og miðborðspeð hvíts eru svo öflug að hann getur leyft sér að byggja sóknina upp hægt og rólega. 24...gxh5 25. Dxh5 Rf8 26. Dg4 Rf5 27. Bxf5 exf5 28. Dxf5 Re6 29. g6! Hb7 30. Hg3! Rxd4 31. Hxd4 Db6 32. Hb4 Da7 33. gxf7+ Hxf7 34. Dg6 Dd7 35. Re2! Riddarinn hyggst hreiðra um sig á d4 og það þvingar svartan til að gefa enn eitt peðið. 35...d4 36. Hxd4 De6 37. h5 Dxg6 38. Hxg6 Bf3 39. h6 Bxe2 40. Hxa4 Hc8 41. c3 Bd3 42. Hxg7+ Hxg7 43. hxg7 Kxg7 44. Hd4 og hvítur hefur nú fimm frípeð og hrók gegn hrók og biskup og innbyrti hann vinninginn 30 leikjum síðar. Alls tóku 86 skákmenn þátt í mótinu og þar af 13 stórmeistarar. Lokastaða efstu manna og allra ís- lensku keppendanna varð þessi: 1.-2. Humpy Koneru (2572) og Hannes H. Stefánsson (2568) 7 v. af 9 mögulegum. 3.-7. Viktor Erdos (2523), Tigran Gharamian (2517), Leonid Kritz (2571), Héðinn Steingrímsson (2470) og Sebastien Feller (2478) 6½ v. 37.-48. Róbert Lagerman (2315) og Snorri G. Bergsson (2301) 4½ v. 49.-66. Hjörvar Steinn Grétarsson (2168) 4 v. 67.-71. Rúnar Berg (2129) 3½ v. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á www.skak.is og á heima- síðu mótsins, http://lecavalier.lu/ Kaupthing-Open-2007.htm. Sigur og stórmeistara- áfangi í Lúxemborg SKÁK Lúxemborg OPNA KAUPÞINGSMÓTIÐ 7.-14. júlí 2007 Helgi Áss Grétarsson Stöðumynd 1. Stöðumynd 2. daggi@internet.is  Fleiri minningargreinar um Þor- berg Gíslason Roth bíða birtingar og munu birtast í blaðinu á næstu dög- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.