Morgunblaðið - 17.07.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 33
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin kl. 9-16.30.
Alanóhúsið | OA (Overeaters anonymous) á Ak-
ureyri á þriðjudagskvöldum kl. 21. Fundirnir eru
haldnir í Alanóhúsinu, Glerárgötu 32. Gengið er
inn að aftan. Verið velkomin.
Dalbraut 18-20 | Félagsvist alla þriðjudaga í
sumar frá kl. 14 í félagsmiðstöðinni á Dalbraut
18-20. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferðanefnd | Há-
lendisferð FEBK í Veiðivötn og virkjanir verður
farin fimmtudaginn 26. júlí. Brottför frá Gjá-
bakka kl. 8 og Gullsmára kl. 8.15. Skráning-
arlistar og ítarlegar ferðalýsingar eru í fé-
lagsmiðstöðvunum Gullsmára, s. 564 5260, og
Gjábakka, s. 554 3400. Skráið ykkur sem fyrst.
Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan op-
in. Hádegisverður kl. 11.40. Þriðjudagsgangan kl.
14. Heitt á könnunni og heimabakað meðlæti til
kl. 16.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall og dagblöðin,
hjúkrunarfræðingur, kl. 10 boccia, kl. 12 hádeg-
ismatur, kl. 12.15 bónusbíllinn, kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56-58 | Böðun fyrir hádegi. Hádeg-
isverður kl. 11.30. Fótaaðgerðir, hársnyrting.
Blöðin liggja frammi.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaað-
gerðir. Kl. 9-15.30 handavinna. Kl. 11.45-12.45
hádegisverður. Kl. 13-16 frjáls spil. Kl. 14.30-
15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handavinnustofan er
opin í dag, hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofur
opnar, félagsvist kl. 14. Allir velkomnir. Fé-
lagsmiðstöðin er opin öllum óháð aldri.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin frá kl 17-
22. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í
kirkjunni og eftir samkomulagi í s. 858 7282.
Kvöldbænir kl. 20. Allir velkomnir.
Fríkirkjan Kefas | Bænastund kl. 20.30. Beðið
er fyrir bænarefnum sem berast kirkjunni og
öðrum bænarefnum. Hægt er að senda inn bæn-
arefni á kefas@kefas.is eða í s. 564 1124. Allir
velkomnir.
KFUM og KFUK | Í sumar verða samfélags- og
bænastundir á þriðjudögum kl. 20 á Holtavegi
20. Beðið verður sérstaklega fyrir sumarstarfi
félagsins vítt og breitt um landið, ásamt öðrum
bænarefnum sem berast. Verið öll velkomin.
Vídalínskirkja, Garðasókn | Opið hús í sumar í
Kirkjuhvoli, Vídalínskirkju, á þriðjudögum, kl. 13-
16. Við spilum vist og brids. Kaffi á könnunni.
Vettvangsferðir mánaðarlega, auglýstar hverju
sinni. Akstur fyrir þá sem vilja, upplýsingasími:
895 0169. Allir velkomnir.Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Akureyrarkirkja.
70ára afmæli. Í dag, 17.júlí, er sjötugur Sig-
tryggur Benedikts, fyrrver-
andi skipstjóri frá Hornafirði,
en hann býr núna í Carl Bød-
ker, Nilsensvej 19, 3100,
Hornbæk, DK, ásamt konu
sinni, Bryndísi Flosadóttur.
Þau halda upp á daginn með
fjölskyldu og vinum þann 28.
júlí í Oddfellow-húsinu í Hels-
ingør frá kl. 18.
60ára afmæli. Í dag, 17.júlí, er Hilmar Krist-
ensson, Svalbarði 2, Hafn-
arfirði, sextugur.
80ára afmæli. Á morgun,18. júlí, verður Mar-
grét Guðmundsdóttir áttræð.
Af því tilefni tekur hún á móti
ættingjum og vinum í Skút-
unni, Hólshrauni 3 í Hafn-
arfirði, miðvikudaginn 18. júlí
milli kl. 17 og 19.
dagbók
Í dag er þriðjudagur 17. júlí, 198. dagur ársins 2007
Orð dagsins: En ef einhver elskar Guð, þá er hann þekktur af honum. (I. Kor. 8, 3.)
Þeir sem leggja leið sína norð-ur í land um næstu helgigeta upplifað ferðalag aftur ítímann, því á Gásum í Eyja-
firði verður haldinn miðaldamark-
aður.
Kristín Sóley Björnsdóttir er verk-
efnisstjóri hjá Minjasafninu á Ak-
ureyri „Þetta er í fimmta skiptið sem
við höldum viðburð af þessu tagi, en
Gásadagurinn hefur vaxið með hverju
árinu og spannar nú bæði laugardag
og sunnudag,“ segir Kristín Sóley.
Dagskráin hefst kl. 10 að morgni
laugardags, þegar Sigrún Björk Jak-
obsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar, les
úr Grágás þær reglur sem lúta að
hegðun manna á kaupstefnum af
þessu tagi: „Kaupmenn og handverks-
fólk verður á staðnum og sýnir m.a.
miðaldahandverk. Unnið verður við
ullarþæfingu, vattar- og leðursaum og
vefnað svo eitthvað sé nefnt. Hag-
leiksmenn munu tálga, miðaldatónlist
verður leikin og sungin, járnsmiður
verður að störfum og sérfróðir menn
munu hreinsa brennistein að hætti
miðaldamanna,“ segir Kristín Sóley,
en fornleifarannsóknir sem fram fóru
á Gásum nýlega leiddu í ljós að þar
hafði brennisteinn verið hreinsaður
mun fyrr en áður hafði verið talið.
Í tilefni miðaldamarkaðarins kemur
hingað til lands hópur fólks frá mið-
aldamiðstöðinni í Nykøbing í Dan-
mörku: „Þeirra á meðal verða ridd-
arar klæddir að erlendum sið sem allt
eins má eiga von á að muni skylmast
og standa í stimpingum,“ segir Krist-
ín Sóley og bætir við að stór hópur
sjálfboðaliða úr hópi heimamanna
hjálpi til við að gera þennan mið-
aldamarkað að veruleika. „Allir verða
að sjálfsögðu klæddir í fatnað í mið-
aldastíl, svo upplifunin verði sem
skemmtilegust.“
Gásir voru verslunarstaður og aðal-
uppskipunarhöfn brennisteins á
Norðurlandi á miðöldum, og ljóst af
rannsóknum að þar var margt um
manninn þegar viðskipti voru stund-
uð. „Nú eru Gásir vettvangur þessa
vinsæla markaðar, þar sem myndast
einstök stemning.“
Aðganseyrir að miðaldamarkaðnum
er 1.000 kr fyrir fullorðna, en 13 ára
og yngri greiða 250 kr. Þeir sem eru
styttri en miðaldasverð fá frítt inn.
Sjá nánar á www.gasir.is.
Saga | Handverk með gamla laginu og miðaldaskylmingar um helgina
Ferðast aftur til miðalda
Kristín Sóley
Björnsdóttir fædd-
ist á Siglufirði
1971. Hún lauk
stúdentsprófi frá
MA 1991, lauk BA-
gráðu í þýsku frá
HÍ 1996 og meist-
aragráðu í menn-
ingarlandafræði
m. áherslu á ferðamál frá Viðsk.há-
skólanum í Gautaborg 2002. Kristín
starfaði sem sérfræðingur hjá Ferða-
málasetri Íslands 2002 til 2005, en hóf
störf sem verkefnisstjóri og kynning-
arfulltrúi Minjasafns Akureyrar 2005.
Kristín er gift Finni Friðrikssyni að-
júnkt við HA og eiga þau tvö börn.
Tónlist
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar |
Sumartónleikar kl. 20.30. Sunna
Gunnlaugsdóttir djasspíanisti,
Scott McLemore trommuleikari
og Þorgrímur Jónsson bassaleik-
ari. Tónsmíðar Sunnu, nýjar sem
og áður útgefnar.
Dans
Næsti bar | Ingólfsstræti 1A,
gegnt Íslensku óperunni, kl. 21-
23. Komið í kvöld og dansið arg-
entínskan tangó. Leiðbeinendur
verða á staðnum, Per Berseus og
María Á. Shanko. Byrjenda-
kennsla kl. 20-21.
„ÞAÐ ER eins gott að lestin komi ekki,“ hefur þessi Ind-
verji kannski verið að hugsa þar sem hann hjólaði á lest-
arteinunum yfir brú á Norður-Indlandi á laugardaginn,
enda lítið svigrúm til að víkja fyrir lestinni á þessari
þröngu brú.
Reyndar virðist hann hinn rólegasti yfir þessu og ekkert
að æsa sig þó lestin gæti komið í rassinn á honum.
Indverjar eru þekktir fyrir yfirvegun og karlinn hefur
ákveðið að vera ekkert að flýta sér í þessu fallega umhverfi
og bara hjólað á sínum hraða.
Hjólað á lestarteinum á Indlandi
Hinn rólegasti
Reuters
FRÉTTIR
ÚTILEGA á vegum SÁÁ verður
haldin í Galtalæk helgina 20.-22.
júlí. Dagskráin verður miðuð við að
allir aldurshópar fái eitthvað við
sitt hæfi. Þannig verður hugað að
þörfum barna, unglinga og fullorð-
inna á ýmsu skeiði.
Í gegnum árin hefur SÁÁ haldið
úti öflugu félagsstarfi og hafa að
jafnaði um 6.000 manns sótt við-
burði þess á hverjum vetri. Þeir
sem þessa viðburði sækja eru á öll-
um aldri, eða frá 18-75 ára.
Aðgangur er ókeypis og mun
SÁÁ greiða allan útlagðan kostnað,
en til þess hefur m.a. fengist styrk-
ur úr forvarnasjóði Lýðheilsustöðv-
ar.
Útilega SÁÁ
í Galtalæk um
næstu helgi
HAFNAR eru tilraunir til að ala ís-
lensk lömb upp á hvönn. Markmiðið
er að kanna hversu mikil bragðgæði
felast í því að ala lömb á bragð-
sterkum gróðri í stað hefðbundinn-
ar sumarbeitar. Ef verkefnið skilar
jákvæðum niðurstöðum er stefnt að
því að hefja sölu á lambakjöti sem
byggist á slíkri sérstöðu, segir í
frétt frá Matís sem hyggst rannsaka
hvaða áhrif hvannabeit hefur á
bragð lambakjötsins.
Verkefnið er að frumkvæði Höllu
Steinólfsdóttur og Guðmundar
Gíslasonar sauðfjárbænda að Ytri-
Fagradal á Skarðsströnd. Þau
hyggjast ala ákveðinn fjölda lamba í
beitarhólfi með hvönn. Til saman-
burðar verður öðrum lömbum kom-
ið fyrir í úthagabeit og á ræktuðu
landi. Markmiðið er að rækta upp
hvönn til að beita lömbunum á fyrir
slátrun og hefja framleiðslu á
lambakjöti sem byggist á þessari
aðferð.
Hvönn var áður talin til búdrýg-
inda og var einnig talin allra meina
bót. Nú er áhugi á þessari jurt að
vakna á ný samhliða aukinni vitund
fólks um þau efni sem það setur of-
an í sig. Hvönn hefur verið notuð til
að gefa bragð í mat og þykir góð
sem kryddjurt. Þess vegna þykir
áhugavert að gera athugun á því
hverju það skilar sér í bragðgæðum
á kjöti að ala lömb upp að hluta til á
hvönn fyrir slátrun.
Rannsóknir hér á landi hafa sýnt
að mismunandi bragð er af kjöti
lamba sem eru alin við ólíkar að-
stæður fyrir slátrun. Þá er það
þekkt erlendis að hægt sé að ala
lömb fyrir slátrun við mismunandi
aðstæður og skapa þar með ákveðna
sérstöðu með sölu og markaðssetn-
ingu á kjöti.
Verkefnið er unnið í samvinnu við
Landbúnaðarháskóla Íslands og
Búnaðarsamtök Vesturlands.
Lömb alin
upp á hvönn
♦♦♦