Morgunblaðið - 17.07.2007, Page 34

Morgunblaðið - 17.07.2007, Page 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞAÐ HRINGIR ALDREI NEINN Í GEMSANN MINN! KANNSKI VEGNA ÞESS AÐ ÞETTA ER RAKVÉL AF HVERJU ERTU HRÆDD- UR VIÐ BÓKASÖFN? ÞAÐ ER ALLT SVO KYRRT ÞAR... OG ÞEGAR MAÐUR GENGUR UM ÞÁ HEYRIR MAÐUR BERGMÁL! OG ÞEGAR ÞÚ GENGUR UPP AÐ AFGREIÐSLUBORÐINU ÞÁ LÍTUR KONAN Á ÞIG MEÐ STÓRU AUGUNUM SÍNUM... BROSTU SVO FALLEGA FYRIR MIG FLOTT! EINN... TVEIR... ÞRÍR... HÁR- GREIÐSLAN MÍN ER AÐ SKEMMAST AFSAKIÐ... SELJIÐ ÞIÐ SKOTFÆRI FYRIR VALSLÖNGUR? JÁ... EN ÞÚ ÞARFT AÐ BORGA SENDINGAR- KOSTNAÐINN ÉG VILDI AÐ BRÉFBERANUM VÆRI EKKI SVONA ILLA VIÐ MIG ÉG ER BÚINN AÐ REYNA AÐ TALA VIÐ HANN EN HANN STARIR BARA Á MIG OG SEGIR EKKERT NÆST ÞEGAR ÞÚ HITTIR HANN ÆTTIR ÞÚ AÐ BJÓÐA HONUM KAFFI OK! MÁ BJÓÐA ÞÉR KAFFI? ÉG HEF VERIÐ AÐ TALA VIÐ TRYGGINGAFÉLÖG UM AÐ TRYGGJA STÓLINN HENNAR LANGÖMMU ÞINNAR ÉG FÉKK NOKKUR MISMUNANDI TILBOÐ... ÉG GET SAGT ÞÉR ÞAÐ NÚNA AÐ ÞETTA VERÐUR DÝRT ÞAÐ ER 4 MILLJÓNA VIRÐI! SEM ER ÞAÐ SEM VIÐ EIGUM EFTIR AÐ BORGA NÆSTU ÁRIN NÆSTA MORGUN... OOO... GÁTU ÞEIR EKKI FUNDIÐ BETRA NAFN Á MIG? HVAÐ NÚ? PARKER! ÞÚ VERÐUR AÐ NÁ MYNDUM AF BARDAGAMANNINUM dagbók|velvakandi Titringur á Njálsgötu ÉG man fyrir fjölda ára síðan að opnað var sambýli fyrir geðfatlað fólk og nágrannar brugðust hinir verstu við og mikið var fjallað um þetta í fjölmiðlum. Margt hefur nú breyst síðan og, sem betur fer, skiln- ingur aukist á málefnum þessa fólks. En þegar opna á heimili á Njálsgötu fyrir menn sem hafa orðið Bakkusi að bráð ætlar allt að verða vitlaust. Ég sá í sjónvarpinu viðtal við konu frá velferðarsviði Reykjavíkurborg- ar og íbúa við Njálsgötu. Konan sagði að þessir menn hefðu vilja til þess að breyta sínu lífi til batnaðar. En íbúinn varð mjög heitur í þessu máli og virtist einnig rugla saman félagslegu leiguhúsnæði og heimili fyrir óreglumenn. Konan frá velferð- arsviðinu benti réttilega á að það væri efnalítið fólk sem leigði hús- næði borgarinnar. Það er ekki þar með sagt að fólk sem nær að festa kaup á húsnæði sé endilega betra fólk en hinir sem neyðast til að leigja vegna allt of lágra launa. Í símatíma á útvarpi Sögu var þetta mál mikið rætt og kom þar fram fólk sem vildi ekki hafa heimili fyrir óreglumenn í nágrenni við sig. Einnig var talað um að best væri að vera ekki með heimilið í 101 Reykjavík heldur fara eitthvað annað, helst út fyrir bæ. Í mínum huga eru þetta fordómar, að vilja þá burt úr mannlegu samfélagi sem minna mega sín. Það á að rétta þessu fólki hjálparhönd og það á að fá að búa í samfélaginu eins og aðrir. Ég styð borgarstjórann okkar, Vil- hjálm Þ. Vilhjálmsson, og fólkið hjá velferðarsviðinu heilshugar í þessu máli. Það má gefa þessu tækifæri en ef það ekki gengur upp þá verður að reyna eitthvað annað. Ég átti heima á Njálsgötu og undraði mig mjög að sjá konu í sjón- varpinu í viðtali sem talaði um að þunnt væri milli veggja húsa þarna. Þetta er bara ekki rétt sem konan segir. Ég átti heima þarna til fjölda ára og varð aldrei vör við slíkt. Sigrún Reynisdóttir. Fuglinn okkar er týndur LÍTILL gári, gulur og grænn að lit, flaug frá heimili sínu í Lindahverfi í Kópavogi föstudagsmorguninn 13. júlí sl. Fuglinn er fíngerður og gæf- ur kvenfugl. Vel má vera að fuglinn hafi flogið langt frá heimili sínu í góðviðrinu. Ef þú hefur orðið hans var/vör, vinsamlega láttu okkur vita í síma 568 7859 eða 862 9680 eða með því að senda póst á netfangið ashild- urb@gmail.com. Týndur sími ÉG fór í tívolíið í Smáranum sunnu- daginn 15. júlí og týndi þar nýja sím- anum mínum sem ég var að fá í 10 ára afmælisgjöf. Þetta er gylltur Sony Ericsson „samlokusími“. Við leituðum mikið að honum en enginn virðist hafa fundið hann. Ef einhver veit um símann minn, sem ég sakna mikið, vinsamlega hafið samband í síma 868 1510. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is ÞÉTTSETIÐ hefur verið á kaffihúsum bæjarins hvern eftirmiðdag í sum- ar. Konan veifar glöð til einhvers, kannski gamallar vinkonu sem hún hef- ur ekki hitt í háa herrans tíð. Morgunblaðið/G.Rúnar Á kaffihúsi FRÉTTIR MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Svandísi Svavarsdóttur, stjórnarmanni Vinstri grænna í Orkuveitu Reykjavíkur: „Það er afdráttarlaus afstaða Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að grunnþjónusta sam- félagsins skuli vera á hendi ríkis og sveitarfélaga. Með nýjum samningi um kaup á hlutum í Hitaveitu Suð- urnesja yrði brotið blað í orkumál- um Íslendinga. Þetta krefst víð- tækrar umræðu í þjóðfélaginu og lýðræðislegrar afgreiðslu á Alþingi og hjá sveitarfélögum. Áform fyrri ríkisstjórnar um að einkavæða 15,2% í Hitaveitu Suðurnesja hafa engu viðnámi mætt hjá stjórnvöld- um þrátt fyrir breytta samsetningu ríkisstjórnar og nú stefnir í að gengið verði enn lengra og að 32% veitunnar verði í eigu einkaaðila. Ef fram fer sem horfir er lýðræð- islegu aðhaldi innan Hitaveitu Suð- urnesja stefnt í uppnám og al- mannahagsmunir fyrir borð bornir. Með þessari yfirlýsingu er vakin athygli á stórvarasamri stefnu og hættulegu fordæmi og þess krafist að ekki verði hróflað við grunn- þáttum samfélagslegrar þjónustu. Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur ber að beita sér í þágu almennings og þar með leggjast gegn einka- væðingu orkugeirans. Í því ljósi ætti stjórn OR að hafa frumkvæði að umræðu á milli ríkis og sveitar- félaga um hvernig megi tryggja að orkufyrirtæki haldist í almannaeigu en gangi ekki kaupum og sölum á hlutabréfamarkaði eins og nú stefnir í varðandi Hitaveitu Suð- urnesja.“ Stjórn OR leggist gegn einkavæð- ingu orkugeirans

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.