Morgunblaðið - 17.07.2007, Page 36

Morgunblaðið - 17.07.2007, Page 36
Ég myndi þó ekki segja að hún drykki mig undir borðið, því að ég hef aldrei, í sjálfu sér, endað kvöldið undir borðinu… 40 » reykjavíkreykjavík KRISTILEGT rokk hefur hingað til ekki verið fyrirferðarmikið innan íslensku rokksenunnar, í það minnsta ekki jafn fyrirferðarmikið og í Bandaríkjunum þar sem fjöldinn allur af hljóm- sveitum boðar fagnaðarerindið í gegnum rokk- tónlistina. Nægir að nefna hljómsveitina Creed („With eyes wide open“) sem var afskaplega vin- sæl í Bandaríkjunum og víðar fyrir nokkrum ár- um eða þar til söngvari sveitarinnar missti fót- anna með eftirminnilegum hætti. Kurteisari en gengur og gerist Jack London kallast tæplega þriggja ára gömul íslensk sveit sem kennir sig við kristilega geirann. Meðlimir sveitarinnar eru víða að af landinu – Vestmannaeyjum, Hrísey og Akureyri – en kynntust í gegnum starf Fíladelfíukirkjunnar sem þeir eru allir meðlimir í. Unnar Gísli Sigurmunds- son, söngvari og gítarleikari Jack London, segir þá félaga leika indí-blúsrokk en fyrir utan text- ana, sem hann segir að séu e.t.v. kurteislegri en gengur og gerist í rokkinu, sé ekki hægt að heyra nein sérstök áhrif frá kristinni trú. „Einhverjir myndu kalla þetta AA-texta. Við syngjum um veg- inn og lífið og um muninn á réttu og röngu. Þetta er allt voðalega „mellow“. Við mætum ekki með Biblíuna á tónleika eða neitt þannig. Við reynum bara að vera góðar fyrirmyndir og þannig á krist- inn maður að haga sér. Nýkomnir frá Bandaríkjunum Jack London er nýkomin af tónlistarhátíðinni Cornerstone í Bushnill Illionois þar sem hún kom tvívegis fram. Hátíðin er ein stærsta kristilega tónlistarhátíðin sem haldin er í Bandaríkjunum og segir Unnar að ótrúlegur fjöldi hljómsveita af öll- um stærðum og gerðum hafi komið fram á hátíð- inni. „Við komumst inn á hátíðina í gegnum blús- arann Glenn Kaiser sem kom hingað til lands og spilaði í Fíladelfíukirkjunni. Við hituðum upp fyrir hann í tvígang og í kjölfarið kom hann okkur inn á þessa hátíð og á besta stað.“ Segir Unnar að tón- leikarnir hafi tekist vel og eftir þá bauð plötufyrir- tækið Gurrr Records hljómsveitinni að taka upp fyrstu plötu þeirra í hljóðveri fyrirtækisins með möguleika á dreifingarsamningi í kjölfarið. „Við ætlum að taka boðinu og hljóðrita plötuna hjá Gurrr Records en við erum enn að íhuga dreif- ingarsamninginn. Við erum mjög varfærnir ungir menn.“ Blaðamaður stenst ekki freistinguna og spyr í lokin hvort það sé ekki vafasamt fyrir unga kristna tónlistarmenn að spila tónlist djöfulsins? Unnar byrjar á því að hlæja að spurningunni en segir svo: „Við trúum því að Guð hafi skapað heiminn og rokkið með! Og halelúja!“ hrópar hann svo glaðbeittur að skilnaði. Djöfullinn má vara sig Ljósmynd/Magnús Mikaelsson Halelúja Hljómsveitin Jack London er nýkomin úr velheppnaðri för til Bandaríkjanna þar sem sveitin tróð tvívegis upp á tónleikahátíðinni Cornerstone. Indí-blússveitin Jack London hyggst láta til sín taka á næstu mánuðum tangó, salsa og magadans,“ segir Arnar. „Á meðal þeirra sem koma fram eru hljómsveitirnar Tepokinn, Duplo og Tríó, sígaunahljómsveit, Oliver-tríóið, eldgleypir, bongó- trommarar og plötusnúðarnir JBK og Daði. Þá verður boðið upp á veitingar af ýmsu tagi alla dagana, bæði í fljótandi og föstu formi. Dagskráin stendur yfir á Oliver allt frá opnun til lokunar og allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu staðarins. Þá hafa veg- farendur við Laugaveg trúlega tekið eftir því að 19 fermetra veggspjaldi hefur verið komið fyr- ir utan á Oliver, en þar má sjá dag- skrá hátíðarinnar. ÞAÐ verður nóg um að vera á Café Oliver næstu daga, en á fimmtudaginn hefst þar árlegt karnival sem stendur yfir fram til sunnudags. Þetta er annað árið í röð sem slík hátíð er haldin á Oli- ver, en að sögn Arnars Þórs Gísla- sonar framkvæmdarstjóra komu yfir 10.000 manns þá fjóra daga sem hátíðin stóð í fyrra. „Núna er svolítið dauður tími í skemmtanalífinu þannig að við viljum bara gera eitthvað skemmtilegt fyrir viðskiptavin- ina,“ segir Arnar og bætir við að stöðug dagskrá verði alla dagana. „Við erum með tvenna til þrenna tónleika á dag, auk plötusnúða. Svo verður Götuleikhús Reykjavík- ur með sýningar alla dagana, boð- ið verður upp á danskennslu og sýndir verða dansar á borð við Karnival á Oliver Djass Hljómsveitin Tepokinn er á meðal þeirra sem koma fram. Ljósmynd/Halldór Kolbeins Röð Það verður án efa nóg að gera á Oliver um helgina. www.cafeoliver.is  Bandaríska söng- og leikkonan Ashlee Simpson bættist í hóp svo- kallaðra Íslandsvina þegar hún kom hingað til lands í þarsíðustu viku. Hin 22 ára gamla Simpson, sem er hvað þekktust fyrir að vera litla systir Jessicu Simpson, kom til landsins föstudaginn 6. júlí. Auðvit- að dugði ekkert minna en einka- þota til þess að flytja hina ungu Simpson og föruneyti hennar til landsins, en ekki er vitað hverjir voru með henni í för. Til hennar sást á Café Oliver um kvöldið og nóttina, en samkvæmt áreiðan- legum heimildum Morgunblaðsins skemmti Simpson sér ákaflega vel hér á landi og er væntanleg aftur ásamt enn fríðara föruneyti. Ashlee Simpson skemmti sér á Íslandi  Björk Guð- mundsdóttir heldur tónleika í hinni frægu tón- leikahöll Madis- on Square Gar- den í New York í Bandaríkjunum hinn 24. september næstkomandi. Þetta kemur fram á bloggsíðu Val- dísar Þorkelsdóttur sem spilar með Björk á tónleikaferðalagi hennar sem stendur nú yfir. Að sögn Ein- ars Arnar Jónssonar hafa hvorki Björk né Sykurmolarnir spilað í Madison Square og því er nokkuð ljóst að Björk og félagar verða fyrstu Íslendingarnir til þess að halda tónleika á heimavelli körfu- knattleiksliðsins New York Knicks. Um þessar mundir eru Björk og fé- lagar hins vegar í hitanum á Spáni í góðu yfirlæti. Björk spilar í Madison Square Garden

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.