Morgunblaðið - 17.07.2007, Side 37
ÞAÐ var vel við hæfi að enda hina
miklu menningarveislu á Siglufirði
með hátíðlegum tónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar unga fólksins, undir
handleiðslu aðalskipuleggjanda
Þjóðlagahátíðar, Gunnsteins Ólafs-
sonar, sem einnig brá sér í hlut-
verk sögumanns í Pétri Gauti.
Fyrir hlé fengu áheyrendur að
hlýða á nýlegt verk hins armensk-
ættaða Johns Sarkissians, krass-
andi píanókonsert sem landi hans,
hinn virti píanóleikari Armen Ba-
bakhanian, lék af þrumukrafti og
miklu listfengi. Verkið hentar ung-
sveit sem þessari mjög vel, þar
sem það er bæði mjög krefjandi
og þ.a.l. lærdómsríkt, en einnig
vegna þess hve mörg styttri sóló
eru í því fyrir ýmis hljóðfæri. Auk
þess er strengjunum skipt upp í
smærri einingar en hefðbundið er
og oft eru aðeins nokkrir strengja-
leikarar að spila og þá hver sína
rödd, sem reynir á sjálfstæði spil-
aranna. Útkoman var glæsileg,
skýr og vönduð, og stóðu ungu
sólóistarnir sig með prýði. Eftir
hlé leiddi Gunnsteinn Ólafsson
áhorfendur á lifandi máta í gegn-
um söguna af hinum unga og ráð-
villta Pétri Gauti með því að
kynna viðfangsefni hvers mús-
íkalsks kafla fyrir sig. Flutning-
urinn var í senn vandaður og full-
ur af æskufjörlegri innlifun og
kom í heildina mjög vel út, fyrir
utan einstaka loðnar innkomur hjá
blásurum og á köflum dálítið
ósamtaka plokk hjá strengjum. Í
lokin lék sveitin undir fjöldasöng á
lagi sr. Bjarna Þorsteinssonar,
„Blessuð sértu sveitin mín“, sem
setti fallegan endasvip á tón-
leikana og um leið á Þjóðlagahá-
tíðina í heild sinni þetta árið.
Innlifun og æskufjör
Ungfónían „Útkoman var glæsileg. Skýr og vönduð og stóðu ungu sólóistarnir sig með prýði,“ segir m.a. í dómi
um tónleika Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði.
TÓNLEIKAR
Þjóðlagahátíð á Siglufirði
Konsert fyrir píanó, strengi og slagverk
eftir John Sarkissian (1962) og Pétur
Gautur, svítur op. 46 og 55. Stjórnandi
og sögumaður: Gunnsteinn Ólafsson.
Einleikari: Armen Babakhanian, píanó.
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins
Ólöf Helga Einarsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 37
Safnasafnið á Svalbarðsströnder nú nýopnað eftir miklarbreytingar og stækkun.
Gamla kaupfélagshúsið á Sval-
barðsströnd hefur verið flutt og
sameinað húsinu sem fyrir var, og í
kjölfarið hefur skipulagi sýninga
verið mikið breytt.
Heimsókn í Safnasafnið er ein-stök upplifun hér á landi og
jafnvel þó víðar væri leitað. Stað-
setning þess og gróið umhverfi er
afar friðsælt og fallegt, frá safninu
sést vel yfir Eyjafjörðinn, við hlið
hússins kliðar lítill lækur sem
steypist í fallegum fossi og handan
hans eru ljúfir birkilundir þar sem
skólabörn hafa starfað og leikið og
haldið sýningar. Húsakynnin hafa
verið gerð upp í samvinnu Níelsar
Hafsteins forstöðumanns, sem
stofnaði safnið 1996 ásamt Magn-
hildi Sigurðardóttur, og Ragnheið-
ar Ragnarsdóttur arkitekts. Hér
hefur verið lögð mikil alúð og hugs-
un í alla þætti safnsins, hvernig
verkin njóta sín best og hvernig
húsakynnin tengjast umhverfinu,
með gluggum sem birta gestum
óvænt sjónarhorn út í trjágróðurinn
umhverfis. Hér gleymast börnin
ekki, en einn glugginn er niðri við
gólf og veitir þeim sýn beint út í
lækinn, annar vísar að litlum fossi.
Eftir stækkunina hefur safniðmeira rými til að sýna verk í
sinni eigu en þau eru um þrjú þús-
und. Í gamla kaupfélagshúsinu hef-
ur verið komið fyrir ljósmyndum af
flutningi hússins og búðarinnrétt-
ing geymir þar vörur frá fyrri tíma
svo þar skapast búðarstemning, en
þetta er án þeirrar ofhleðslu sem
gjarnan einkennir minjasöfn, eða
gerði það í eina tíð, þar sem öllu æg-
ir saman. Fyrir vikið njóta munirnir
sín miklu betur. Sem betur fer er
þetta tilhneiging sem sjá má í æ rík-
ari mæli í fleiri söfnum á lands-
byggðinni. Ragnar Hermannsson
frá Húsavík fær stórt herbergi und-
ir tréstyttur sínar og báta og
skemmtilegt er að skoða leik-
fangasafnið, það sem lögð er
áhersla á leikföng sem nýta sér
sjónblekkingar. Brúðusafnið er vax-
andi og fræðslubókasafnið aðgengi-
legt og vel búið og ekki er hér allt
upp talið.
Það er markmið safnsins og jafn-framt sérkenni þess í safnaflór-
unni að þar er jafnan sýnd sam-
tímalist samhliða alþýðulistinni.
Þrír básar, ef svo má kalla, eru ætl-
aðir samtímalist og er vel að þeim
staðið en íslenskir listamenn sækj-
ast mjög eftir að sýna í safninu. Í
sumar sýnir Níels Hafstein vegg-
verk og skúlptúra, Magnhildur Sig-
urðardóttir sýnir heillandi vetr-
arljósmyndir frá umhverfi safnsins,
og Ragnheiður Ragnarsdóttir fang-
ar smáatriði hversdagsins á hátt
sem minnir á sýn alþýðulistamanna.
Magnús Pálsson sýnir skúlptúra í
líki stórutáa og Harpa Björnsdóttir
innsetningu.
Sá samhljómur milli listarinnar,
alþýðulistarinnar og náttúrunnar
sem safnið sækist eftir að skapa
virðist ætla að ganga upp áreynslu-
laust og að mínu mati hefur hér ver-
ið unnið þrekvirki, að mestu leyti í
sjálfboðavinnu sem seint mun færa
eigendum sínum fé, en þess í stað
ómælda ánægju öllum þeim er
heimsækja safnið.
Samhljómur listanna á Svalbarðsströnd
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Safnasafnið Eftir gagngerar endurbætur er safnið sexfalt stærra en áður. Safnasafnið á Svalbarðseyri stendur við þjóðveginn.
AF LISTUM
Ragna Sigurðardóttir
»Það er markmiðsafnsins og jafnframt
sérkenni þess í safnaflór-
unni að þar er jafnan
sýnd samtímalist sam-
hliða alþýðulistinni […].
ragnahoh@gmail.comSafnstjórinn Níels Hafstein sýnir sjálfur í safninu í sumar.
MR. SKALLAGRIMSSON
- höf. og leikari Benedikt Erlingsson
Sjá sýningadagatal
www.landnamssetur.is
Miðapantanir í síma:
437-1600
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til
Fuerteventura í 1 eða 2 vikur þann 24. júlí. Þú bókar og
tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar
þú gistir. Gríptu tækifærið og tryggðu þér sumarfrí á frábær-
um kjörum á vinsæla sumarleyfisstað.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Fuerteventura
24. júlí
frá kr. 39.990
Allra síðustu sætin
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/
stúdíó/íbúð í viku. Aukavika kr. 14.000.
Verð kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-
11 ára, í íbúð í viku. Aukavika kr. 14.000.