Morgunblaðið - 17.07.2007, Page 38

Morgunblaðið - 17.07.2007, Page 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA var mikil hátíð, það var mikið í hana lagt og þetta var eig- inlega bara ótrúleg lífsreynsla, segir Ólafur Darri Ólafsson leikari sem er nýkominn heim frá Rúss- landi þar sem kvikmyndin Börn vann til verðlauna á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Zerkalo Int- ernational Film Festival á föstu- daginn. Myndin hlaut aðalverðlaun gagnrýnenda á hátíðinni auk þess sem Ólafur Darri var valinn besti karlleikarinn. Þetta er í fyrsta skipti sem hátíðin er haldin, en hún er haldin til heiðurs rúss- neska leikstjóranum Andrei Tar- kovsky sem lést árið 1986. Tar- kovsky er talinn merkilegasti kvikmyndagerðarmaður sem Rússland hefur alið og jafnframt einn besti leikstjóri kvikmynda- sögunnar, en hann á að baki myndir á borð við Ivan’s Childho- od, Andrei Rublev og The Sacri- fice þar sem Guðrún Gísladóttir var á meðal leikara. Bátsferð með stórmennum Hátíðin var haldin í borginni Iv- anovo sem er í um það bil fjögurra tíma fjarlægð frá Moskvu. „Þetta er kallað hjarta Rússlands því okkur var sagt að þarna í kring hefði byltingin orðið til,“ segir Ólafur Darri og bætir við að veðr- ið hefði verið heldur slæmt til að byrja með. „Það rigndi eins og ég veit ekki hvað sem varð til þess að bíóið sem sýndi allar myndirnar lak, þannig að það þurfti að skipta um kvikmyndahús.“ Mikil og vegleg dagskrá var í kringum hátíðina og að sögn Ólafs Darra var mjög vel komið fram við gesti hennar. „Þegar búið var að sýna allar myndirnar var okkur boðið í tveggja daga bátsferð um Volgu sem var algjört æði,“ segir hann, en meðal annars var siglt að fæðingarbæ Tarkovskys þar sem nýverið var opnað safn honum til heiðurs. „Það voru svona 200 manns um borð í skipinu og þetta voru meðal annars rússneskir ráð- herrar, leikarar og leikstjórar. Því miður er ég ekki nógu mikið inni í rússnesku bíói og leikhúsi til þess að vita hver var hver, en þetta var allt mjög merkilegt fólk ef marka má viðbrögð almennings og lög- gæsluna sem var til staðar, það má guð vita að Rússa hefur ekki skort mikla listamenn,“ segir Ólaf- ur Darri. „Ég náði þó aðeins að kynnast Vadim Yusov sem tók þrjár af myndum Tarkovskys og fékk verðlaun fyrir framlag til kvikmyndalistarinnar á hátíðinni, en annars var ég hvað mest með hinum útlendingunum sem voru m.a.frá Mexíkó, Króatíu og Ind- landi.“ Harðir gagnrýnendur Ólafur Darri var eini Íslending- urinn á svæðinu og segir hann ákveðna ástæðu fyrir því. „Það er búið að bjóða okkur á nokkuð margar hátíðir og ég hef alltaf verið að vinna svo ég hef ekki komist. Þannig að ég fékk eig- inlega að fara af því að ég hafði ekki farið á neina hátíð,“ segir Ólafur Darri sem eins og áður segir var valinn besti leikarinn á hátíðinni. „Þetta var ótrúlegur heiður og þetta var bara eins og að vera stjarna. Það er ekki mikið af stórum viðburðum í þessu hér- aði þannig að við vöktum mikla at- hygli hvert sem við fórum. Það var fólk út um allt að veifa manni og að taka myndir og fá eig- inhandaáritanir þannig að jú, mað- ur fékk að vera kvikmyndastjarna í einn dag,“ segir hann í léttum dúr. Á hátíðinni voru myndir frá öll- um heimshornum, meðal annars frá Brasilíu, Mexíkó, Argentínu, Bosníu, Króatíu, Albaníu, Þýska- landi, Indlandi og víðar, og segir Ólafur Darri að í ljósi þess sé sér- lega ánægjulegt hversu mikla at- hygli Börn vekur. „Ég fékk að heyra að við ættum að vera sér- staklega ánægð með þessi gagn- rýnendaverðlaun, en eins og ein konan þarna orðaði það þá eru rússneskir gagnrýnendur mjög kröfuharðir og stífir,“ segir hann. „Börn er lítil og kröftug mynd sem gerist í Breiðholtinu. Þess vegna hefði maður haldið að það væri auðveldara fyrir okkur Ís- lendinga að skilja hana því hún er svo staðbundin, gerist eiginlega í bakgarðinum okkar. Það er gaman að geta farið með þannig mynd út um allan heim og séð að fólk skil- ur hana án þess að það hafi nokk- urn tíma komist í tæri við okkur Íslendinga. Það sýnir og sannar enn eina ferðina að það eru sömu hlutirnir sem tengja okkur öll saman hvar sem við búum í heim- inum, það er einfaldlega þannig.“ Breiðholtið höfðar til Rússanna Kvikmyndin Börn fékk verðlaun á rússneskri hátíð og Ólafur Darri var valinn besti leikarinn Börn Ólafur Darri Ólafsson í verðlaunahlutverki sínu ásamt mótleikkonunni Margréti Helgu Jóhannesdóttur. - Kauptu bíómiðann á netinu Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ * HÖRKUSPENNANDI GRÍNMYND FRÁ LUC BESSON Sími - 462 3500 Sími - 551 9000Sími - 564 0000 Evan Almighty kl. 6 - 8 1408 kl. 8 - 10 B.i. 16 ára Die Hard 4.0 kl. 5.40 - 10 B.i. 14 ára Taxi 4 kl. 6 - 8 - 10 The Lookout kl. 5.50 - 8 - 10 B.i. 14 ára Die Hard 4.0 kl. 5.30 - 8 - 10.40 B.i. 14 ára Premonition kl. 5.45 - 8 B.i. 12 ára Fantastic Four 2 kl. 10.15 Harry Potter 5 kl. 3 - 4 - 6 - 7 - 9 - 10 B.i 10 ára Harry Potter 5 kl. 3 - 6 - 9 LÚXUS B.i 10 ára Evan Almighty kl. 4 - 6 - 8 - 10 Die Hard 4.0 kl. 5 - 8 - 10.45 B.i. 14 ára Fantastic Four 2 kl. 3 "Myndrænu og tæknilegu hliðarnar eru í öllu aðdáanlegar og eldklárt leikaralandslið Breta fer á kostum. Þetta er ekki venjuleg bíómynd, þetta er lífsreynsla." eeee Ólafur H. Torfason - Rás 2 "Ekki aðeins besta Potter-myndin til þessa, heldur bara stórkostleg fantasía útá alla kanta. Ég stórefa að jafnvel hörðustu aðdáendur verði fyrir vonbrigðum!" eeee Tommi - kvikmyndir.is NÚ VERÐUR ALLT GEFIÐ Í BOTN Byggð á sögu Stephen King Magnaður spennutryllir sem sló óvænt í gegn í Bandaríkjunum FRÁ LEIKSTJÓRA BRUCE ALMIGHTY Guð hefur stór áform ... en Evan þarf að framkvæma þau STÆRSTA GRÍNMYND SUMARSINSEvan hjálpi okkur “Besta sumarmyndin til þessa” eeee S.V. - MBL T.S.K. – Blaðið “Pottþéttur hasar” “... vandaður sumarsmellur með hátt skemmtanagildi fyrir fleiri en hasarunnendur” eee Ó.H.T. - Rás 2 eeee V.J.V. – Topp5.is eee F.G.G. – FBL Yippee Ki Yay Mo....!! EIN ÓVÆNTASTA SPENNUMYND ÁRSINS Þegar ekkert er eins og það lítur út fyrir að vera… hvernig veistu hverjum er hægt að treysta? JEFF DANIELSJOSEPH GORDON LEVITT MATTHEW GOODE ISLA FISHER “Grípandi atburðarás og vönduð umgjörð, hentar öllum” eee Ó.H.T. - Rás 2 “...besta sumarafþreyingin til þessa.” eee MBL - SV MÖGNUÐ SPENNUMYND UM KONU SEM MISSIR EIGINMANN SINN Í BÍLSLYSI ... EÐA EKKI? SANDRA BULLOCK MARTRÖÐ EÐA RAUNVERULEIKI? eee DV

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.