Morgunblaðið - 17.07.2007, Síða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
SAMKVÆMT nýjustu fregnum hef-
ur breska leikkonan Sienna Miller
sagt skilið við ástmann sinn Jamie
Burke en þau höfðu átt í ástarsam-
bandi í átta mánuði. Ástæða sam-
bandsslitanna kvað meðal annars
hafa verið óánægja Jamie með partí-
stand Miller með rapparanum og
tískukóngnum P. Diddy fyrr í mán-
uðinum. Þá hafa þau átt erfitt með
að samræma dagbækur sínar og
verið mikið til sundur vegna anna.
Jamie sem er í hljómsveitinni
Bloody Social, ferðast eins og Miller
vegna vinnu sinnar auk þess sem
hann er alla jafna staðsettur í New
York en hún í London. Orðrómur
um að eitthvað væri á milli Miller og
P.Diddy komst á kreik í janúar þeg-
ar til þeirra sást í boði í New York
en fregnir hermdu að eftir á hefðu
þau farið saman á hótelherbergi
Miller. P. Diddy gaf hins vegar lítið
fyrir þær sögusagnir og sagði að
hann hefði eingöngu hagað sér eins
og herramaður og skutlað Miller
heim. Orðrómurinn komst svo aftur
á kreik nú í júlí þegar Miller sótti
eftirpartí P. Diddy eftir minning-
artónleikana um Díönu prinsessu en
þar brugðu þau sér afsíðis. Það hef-
ur svo einnig kynt undir sögusögn-
um um samband þeirra að rapparinn
sagði sjálfur skilið við kærustu sína
til margra ára, Kim Porter, fyrr í
mánuðinum. Miller lauk nýverið við
að leika í kvikmyndinni The Edge of
Love en þá ýtti hún á dögunum úr
vör nýju fatamerki (2812) með syst-
ur sinni Savannah.
Orðrómur um að Sienna
Miller og P. Diddy séu par
Fögur Sienna Miller hefur átt þá nokkra kærastana sem þykja fagrir.
UPPTÖKUSTJÓRINN og plötu-
snúðurinn, Mark Ronson viðurkennir
að hann sé óttalegur hænuhaus miðað
við söngkonuna Amy Winehous, hvað
áfengisdrykkju varðar. Ronson sem
er 31 árs gamall stjórnaði upptökum
á nokkrum lögum sem rötuðu á met-
söluplötu Winehouse Back To Black
og hefur notið töluverðar athygli í
kjölfarið. „Ég hef nokkrum sinnum
farið með henni út á lífið, bæði í
London og í New York og það er
óhætt að segja að ég á ekkert í stúlk-
una þegar það kemur að því að neyta
áfengra drykkja. Ég myndi þó ekki
segja að hún drekki mig undir borðið,
því að ég hef aldrei, í sjálfu sér, endað
kvöldið undir borðinu.“ Ronson tók
það þó fram í viðtalinu að Winehouse
væri ekki stjórnlaus skemmtana- og
drykkjubolti því í enda kvölds sé það
yfirleitt hún sem taki hinar rökrænu
ákvarðanir um að láta staðar numið
og halda heim á leið.
Mark Ronson á ekkert
í Amy Winehouse
Bakkynja Amy Winhouse á Brit-
verðlaunahátíðinni í febrúar á
þessu ári.
/ KRINGLUNNI
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á WWW.SAMBIO.IS
HLJÓÐ OG MYND
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
"Ekki aðeins besta Potter-myndin til þessa,
heldur bara stórkostleg fantasía
útá alla kanta. Ég stórefa að jafnvel
hörðustu aðdáendur verði fyrir vonbrigðum!"
eeee
Tommi - kvikmyndir.is
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 3:30 - 5 - 6:30 - 8 - 9:30 - 11 B.i.10.ára
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 - 11 B.i.10.ára DIGITAL
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 - 11 LÚXUS VIP
EVAN ALMIGHTY kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
BLIND DATING kl. 8 B.i.10.ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
SHREK 3 m/ensku tali kl. 8 - 10:10 LEYFÐ
OCEAN'S 13 kl.10:10 B.i.7.ára
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 4 B.i.10.ára
/ ÁLFABAKKA
HARRY POTTER 5 kl. 4 - 5:15 - 7 - 8:15 - 10 B.i. 10 ára DIGITAL
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
SHREK 3 m/ensku tali kl. 6 LEYFÐ
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 8 B.i. 10 ára
HINN goðsagnakenndi fönk-
tónlistarmaður Sly Stone kom fram
á Montreux-djasshátíðinni í Sviss
um helgina. Sly, sem heitir réttu
nafni Sylvester Stewart, hefur ver-
ið í sjálfskipaðri útlegð frá tónlist-
arbransanum undanfarna tvo ára-
tugi eða frá því að hljómsveit hans
Sly and the Family Stone lagði upp
laupana og forsprakkinn var hand-
tekinn fyrir vörslu kókaíns árið
1987. Í nýjasta tölublaði Vanity Fa-
ir birtist greinargott viðtal við Sly,
sem er einkar sérstakur í háttum,
en þar kemur fram að hann hefur
einstaka sinnum komið fram á
litlum tónleikastöðum með hljóm-
sveit systur sinnar. Því má svo bæta
við að blaðamaður Vanity Fair
hafði elst við Sly í á annan áratug
áður en tónlistarmaðurinn féllst á
viðtal.
Tónleikarnir í Sviss verða að telj-
ast fyrstu alvörutónleikar Sly í háa
herrans tíð og vonandi er einhvers
meira að vænta frá þessum mikla
fönksnillingi í framtíðinni.
Sly snýr aftur úr útlegð
...en kættist inn á milli og fagnaði áhorfendum. Afslappaður Sly var rólegur á tónleikunum....
Reuters
Einbeittur Píanóið speglast í sólgleraugum snillingsins Sly Stone þar sem hann leikur af mikilli alvöru.