Morgunblaðið - 17.07.2007, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 41
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK NÁNARI UPPLÝSINGAR
Á SAMbio.is
FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS
HARRY POTTER 5 kl. 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
WWW.SAMBIO.IS
tv - kvikmyndir.is
eee
LIB, Topp5.is
eee
L.I.B. - TOPP5.IS
eee
H.J. - MBL
eeee
KVIKMYNDIR.IS
ÁSTIN ER BLIND
HEFURÐU UPPLIFAÐ HIÐ FULLKOMNA STEFNUMÓT?STEFNUMÓTAMYND SUMARSINS
"LÍFLEG SUMAR-
SKEMMTUN"
eee
L.I.B. TOPP5.IS
eee
S.V. MBL.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SHREK, FÍÓNA, ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
ERU MÆTT AFTUR Í SKEMMTLEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA.
STÆRSTA
GRÍNMYND
SUMARSINS
FRÁ LEIKSTJÓRA BRUCE ALMIGHTY
Guð hefur stór áform
... en Evan þarf að framkvæma þau
Evan hjálpi okkur
HARRY POTTER K. 6 - 9 B.i. 10 ára
EVAN ALMIGHTY kl. 8 LEYFÐ
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
DIE HARD 4 kl.10 B.i. 14 ára
14.07.2007
10 14 32 36 37
3 7 1 1 8
5 5 8 9 3
31
11.07.2007
7 29 35 38 40 44
1039 43
Stuttmyndin „Misty Mount-ain“ eftir Óskar Þór Ax-elsson verður frumsýnd ábæjarhátíðinni Kátum
dögum í Þórshöfn á föstudaginn, í
félagsheimili sem áður var notað til
kvikmyndasýninga. „Misty Mount-
ain“, sem framleidd er af Zik Zak
kvikmyndum, er hálftími að lengd
og segir af hermanni sem bjó á
herstöðinni á Heiðarfjalli á Langa-
nesi árið 1969, þar sem dularfullir
atburðir áttu sér stað. Maðurinn
heimsækir herstöðina aftur á gam-
als aldri og þá fara fortíðardraugar
á kreik. „Myndin er byggð á sönn-
um hugarburðum,“ segir Óskar og
hlær. Hann segist hafa hrifist svo
af Langanesi þegar hann skoðaði
svæðið að hann hafi ákveðið að
taka þar upp kvikmynd. Eftir að
hafa ljósmyndað svæðið gaumgæfi-
lega hafi hann sest niður og hripað
6–8 hugmyndir á blað og tvö full
handrit skrifuð upp úr tveimur
þeirra. Óskar segist hafa kynnst
afbragðsfólki frá Þórshöfn við tök-
ur á myndinni sem var afar hjálp-
legt. Margir íbúar koma fram í
myndinni, meðal annars Guðjón
Gamalíelsson, formaður leikfélags
Þórshafnar, sem Óskar segist hafa
þurft að sannfæra um að nauðsyn-
legt væri að hann léki í myndinni.
Hann hafi brillerað þegar hann
loks lét til leiðast.
Vegnar vel
„Misty Mountain“ hlaut verðlaun
fyrir leikstjórn, kvikmyndatöku og
framleiðslu á kvikmyndahátíð New
York University (NYU) þar sem
Óskar nam kvikmyndagerð, og var
í kjölfarið valin ein af sex stutt-
myndum sem tilnefndar voru til
úrslita í stúdentaverðlaunum
bandarísku kvikmyndaakademíunn-
ar.
Óskar á að baki langan feril við
kvikmyndagerð. Hann starfaði um
árabil við kvikmynda- og auglýs-
ingagerð hjá Þeim tveimur ehf,
sem í dag heitir Kapital. Þeir tveir
framleiddu m.a. „Karamellumynd-
ina“, sem valin var besta stutt-
myndin á Edduverðlaununum 2003.
Óskar sá þar um kvikmyndatöku af
glæsibrag.
Á fyrir salti í grautinn
Frá útskrift hefur Óskar unnið
sjálfstætt við kvikmyndagerð og er
nú með tvö handrit í þróun. „Ann-
að er handrit upp úr skáldsögu
Stefáns Mána, Svartur á leik, sem
ég hef verið að snurfusa og er nú
svo að segja tilbúið," segir Óskar.
Hitt handritið heitir The Traveler
og hefur það hlotið þó nokkra at-
hygli. „Ég fékk m.a. umboðsmann
út á það hjá William Morris
Agency,“ segir Óskar. The Trave-
ler segir af manni sem býr í þrem-
ur löndum samtímis, og andi hans
eða „yfirsjálf“ flakkar milli þriggja
líkama með dularfullum hætti.
„Fyrir utan þessi handrit sinni ég
tilfallandi kvikmyndaverkefnum til
að eiga fyrir salti í grautinn,“ segir
Óskar, sem býr og starfar í New
York. Meðal slíkra verkefna eru
stuttar auglýsingamyndir sem
verða sívinsælli á Netinu en hafa
lítið látið á sér kræla á Íslandi.
„Þessi verkefni eru má segja
blanda af auglýsingu og leikinni
stuttmynd og falla því vel að bak-
grunni mínum í auglýsingagerð og
svo námi í kvikmyndaleikstjórn,“
bætir Óskar við. „Misty Mountain“
verður að öllum líkindum sýnd í
Reykjavík í byrjun ágúst. Nákvæm
dagsetning hefur ekki verið ákveð-
in enn.
Nánar má kynna sér verk og
feril Óskars á heimasíðu hans,
www.oskarthoraxelsson.com.
Heimamenn Aukaleikararnir, sem allir búa á Langanesi, stóðu sig vel við tökur að sögn Óskars.
Misty Mountain frumsýnd á Kátum dögum
Leikarar Steve N. Zilliaz og Ingunn Erla Eiríksdóttir í
hlutverkum í Misty Mountain.
Farsæll Óskar á að baki langan feril við kvikmynda-
gerð og hér er hann sjálfur í „búning“.
» „Misty Mountain“, sem framleidder af Zik Zak kvikmyndum, er hálf-
tími að lengd og segir af hermanni
sem bjó á herstöðinni á Heiðarfjalli á
Langanesi árið 1969, þar sem dul-
arfullir atburðir áttu sér stað.