Morgunblaðið - 17.07.2007, Side 43

Morgunblaðið - 17.07.2007, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 43 Það verður sannkallað Íraksþema á Al-þjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavíksem fram fer 27. september til 7. októ-ber í ár. Nú þegar er búið að bóka fjórar nýjar heimild- armyndir á hátíðina sem sýna ólíkar hliðar á nú- verandi ástandi í Írak. Fyrsta ber að nefna Iraq in Fragments frá 2006 eftir James Longley. Hún var tilnefnd til Óskarsverðlauna í vor og hefur unnið til þó nokk- urra verðlauna, þ. á m. á Sundance. Myndin sýnir líf í stríðshrjáðu landi frá þremur sjónarhornum. Í fyrsta hluta myndarinnar kynnast áhorfendur 11 ára munaðarlausum dreng í Bagdad sem vinn- ur á bílaverkstæði og hræðist veruleikann sem hann býr við. Í öðrum hluta er sýnd sú pólitíska ólga sem tók við eftir innrás Bandaríkjahers, þar sem múslimskir öfgamenn, Shitar, reyna að taka völdin af Sunnum sem hafa stjórnað Írak í fleiri hundruð ár. Í lokahlutanum er kynnt bænda- fjölskylda í Kúrdistan, en Kúrdar eru hugsanlega þeir einu sem „njóta góðs“ af ástandinu. Uppreisnarfólk í Baghdad Önnur myndin heitir Meeting Resistance (2007) eftir Molly Bingham og Steve Connors. Sú er glæný og fjallar um sjaldséða hlið Írak- stríðsins, einfaldlega vegna þess að það er svo erfitt að nálgast fólkið sem kemur þar fram. Myndin skoðar uppreisnarfólkið í Baghdad, íbúa sem hafa tekið lögin í eigin hendur til að berjast gegn innrásarhernum. Kvikmyndagerðarfólkið fylgir eftir átta uppreisnarseggjum og varpar ljósi á líf þeirra, skoðanir, takmörk og drifkraft. Fólkið kemur úr ólíkum stéttum samfélagsins (kennari, húsmóðir, stjórnmálafræðingur og flóttamaður, svo eitthvað sé nefnt) sem berst sameinað gegn ofureflinu. Connors og Bingham leiddu saman hesta sína í ágúst 2003 með það fyrir stafni að gera heim- ildamynd um fólkið sem stóð á bak við uppreisn- arofbeldið eftir innrásina í Írak. Þetta er fyrsta kvikmyndin þeirra. Þriðja myndin er Shadow company (2006) eftir Nick Bicanic og Jason Bourque. Málaliðar hafa loðað við stríð frá upphafi siðmenningar en með tilkomu staðfastra ríkisherja er gjarnan litið á hugtakið sem hluta af fortíðinni. Það kemur því mörgum á óvart að heyra að í Írak eru um 20 þús- und málaliðar að störfum – eða öllu heldur starfs- menn einkarekinna herfyrirtækja, eins og komist er að orði nú á dögum. Shadow Company hefur fengið óspart lof gagnrýnenda, einkum og sér í lagi vegna hlutlausrar umfjöllunar um flókið efni, en þar er sýnd hlið á Írak sem sjaldan er varpað ljósi á. Fjórða myndin er Taxi to the Dark Side eftir Alex Gibney. En hún var nýlega valin besta heim- ildarmyndin á Tribeca kvikmyndahátíðinni. Myndin fjallar um dularfullan dauðdaga afg- ansks leigubílstjóra á Bagram flugstöðinni. En hann lést af sárum sem bandarískir hermenn veittu honum. Myndin tekur á sjónarmiði Bush stjórnarinnar á pyntingar. Heimildagerðarmenn- irnir leiða áhorfendur úr þorpi í Afghanistan, til Guantanamo fangabúðanna og þaðan beint í Hvíta húsið. Málþing um Írak Þessi sérdagskrá á kvikmyndahátíðinni sýnir fram á hversu flókið og margþætt ástand ríkir í Írak. Allar heimildamyndirnar bera vitni um að enn er frá miklu að segja – í hverri þeirra er fjallað um efni sem ætti að koma flestum spánskt fyrir sjónir. Þetta eru lærdómsríkar myndir sem munu vonandi fá alla þá athygli sem þær verð- skulda. Nú stendur yfir undirbúningur málþings í byrjun október í kjölfarið á sýningum heim- ildamyndanna. Unnið er að því að fá til landsins aðstandendur myndanna og nú þegar hefur Molly Bingham staðfest komu sína. Á málþinginu verður rætt um ástandið í Írak og þá jafnframt út frá sjónarhorni fjölmiðlamannsins en Bingham hefur lengi starf- að sem blaðaljósmyndari og blaðamaður. Fjórar myndir um Írak á Kvikmyndahátíð í Reykjavík Írak Í Iraq in Fragments segir frá lífi í stríðshrjáðu landi frá þremur sjónarhornum. Pyntingar Úr myndinni Taxi to the Dark Side sem vann til verðlauna nýlega á Tribeca. SÖNG- OG LEIKKONAN Jennifer Lopez hefur viðurkennt að eiga það til að borða ruslfæði þegar hún er í fríi, en ítrekar þó að hún láti það eiga sig þegar hún er að kynna ný verkefni. „Þegar ég þarf að kynna nýja kvikmynd eða nýja plötu legg ég töluvert á mig til þess að halda mér í formi þá mánuðina,“ sagði Lo- pez í samtali við tímaritið Cosmopo- litan. „En ég fæ mér stundum að borða á McDonald’s þess á milli, og ég á það til að hreyfa mig ekki neitt í lengri tíma. Þótt ég reyni oftast að borða hollan mat á ég það líka til að fá mér súkkulaðibitakökur, ég borða bara ekki allan pakkann,“ sagði söngkonan. „Ef ég tek eftir því að ég er að fitna passa ég mig betur á því hvað ég borða en ég geri aldrei neitt dramatískt. Ég borða bara aðeins minna og hreyfi mig aðeins meira.“ Jennifer Lopez borðar ruslfæði Reuters Sæt og fín Jennifer Lopez. BANDARÍSKI tónlistarmaðurinn Justin Newman heldur tónleika á Gauki á Stöng í kvöld. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann held- ur tónleika hér á landi, en amma Justins var íslensk og því segist hann vera ¼ Íslendingur. Hann gaf nýverið út sína fyrstu plötu sem nefnist Every Night, en á tónleik- unum í kvöld mun hann flytja efni af henni, auk enn nýrra efnis. Just- in spilar fallega og lágstemmda gít- artónlist með angurværum textum, en honum til halds og trausts á tónleikunum í kvöld verður Jón Magnússon gítarleikari. Justin er fæddur og uppalinn í Sacramento í Kaliforníu og hefur stundað tónlistarnám í San Diego State, CSU Sacramento og Americ- an River College. Hann lærði djasstrommuleik en spilar auk þess á gítar og syngur. Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Justin með tónleika á Gauknum Af íslenskum ættum Justin hefur meðal annars spilað á Oliver og á Dubliners. www.myspace.com/justinnewm- anmusic

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.