Morgunblaðið - 17.07.2007, Qupperneq 44
ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 198. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
TF-SIF lenti í sjónum
Fjögurra manna áhöfn þyrlu
Landhelgisgæslunnar TF-Sifjar
bjargaðist þegar þyrlan lenti í sjón-
um við björgunaræfingu út af
Straumsvík í gærkvöldi. Orsök
óhappsins er ekki kunn en atvikið er
komið til rannsóknar hjá Rannsókn-
arnefnd flugslysa. » Forsíða
Varnaræfing í ágúst
Fyrsta varnaræfingin sem haldin
verður á Íslandi á grundvelli sam-
komulags frá október sl. mun fara
fram dagana 13.-16. ágúst. Alls
verða þátttakendur í æfingunni 300
talsins en markmiðið er að æfa flutn-
ing liðsafla til landsins á hættu- og
ófriðartímum. » 11
Jarðskjálfti í Japan
Tveir harðir jarðskjálftar gengu
yfir Japan í gær og fyrrinótt með
þeim afleiðingum að sjö létust og 900
slösuðust. Eldur braust út í kjarn-
orkuveri sem er eitt hið stærsta í
heimi og lak vatn frá verinu, sem í
var lítið magn geislavirkra efna.
Eyðileggingin er sögð mikil. » 14
Novator eignast Actavis
Eignarhaldsfélagið Novator, sem
er í eigu Björgólfs Thors Björgólfs-
sonar, hefur tryggt sér vilyrði fyrir
rúmum 90% hlutafjár í Actavis. Að
sögn Björgólfs er málið svo að segja
í höfn. Stefnt sé að því að Actavis
haldi áfram að vaxa og dafna. » 12
SKOÐANIR»
Staksteinar: Yfirborð og alvara
Forystugreinar: Landið og
ferðamennskan | Rifið til þess eins
að rífa það?
Ljósvaki: „En hann er ekki í …“
UMRÆÐAN»
Stjórnmálamenn í gíslingu Hafró
Sóðaborgin Reykjavík
Hver á að gera hvað?
Deiliskipulag fyrir Kársnes
0
!8$
- *
!
1
/ ". ".
. . .
. .
. ."
".
" .
. . ."
.
. ,9(6 $
.
"."
. ." . " .
:;<<2=>
$?@=<>A1$BCA:
92A2:2:;<<2=>
:DA$99=EA2
A;=$99=EA2
$FA$99=EA2
$7>$$A/G=2A9>
H2B2A$9?H@A
$:=
@7=2
1@A1>$7*$>?2<2
Heitast 20°C | Kaldast 11°C
Hæg vestlæg átt
vestan til en annars
hægviðri eða hafgola.
Svalara við norður- og
austurströndina. » 10
Sinfóníuhljómsveit
unga fólksins fær
þrjár stjörnur fyrir
tónleika á Þjóð-
lagahátíð á Siglu-
firði. » 37
GAGNRÝNI»
Innlifun og
æskufjör
FÓLK»
Ashlee Simpson var á Ís-
landi. » 36
Ragna Sigurð-
ardóttir fjallar um
Safnasafnið á Sval-
barðsströnd sem er
nýopnað eftir miklar
breytingar. » 37
AF LISTUM»
Safnasafnið
stækkað
KVIKMYNDIR »
Myndin Misty Mountain
sýnd á Þórshöfn. » 41
TÓNLIST»
Jack London spilar
kristilegt rokk. » 36
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Þyrla Landhelgisgæslunnar …
2. Hundurinn Lúkas á lífi
3. Vantaði far til Reykjavíkur
4. Fimm þyrlur strandaglópar …
KVIKMYNDIN Börn vann til
tvennra verðlauna á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni Zerkalo Int-
ernational Film
Festival sem
haldin var nýlega
í Rússlandi.
Myndin hlaut að-
alverðlaun gagn-
rýnenda auk þess
sem Ólafur Darri
Ólafsson var val-
inn besti karl-
leikarinn.
„Ég fékk að
heyra að við ætt-
um að vera sérstaklega ánægð með
þessi gagnrýnendaverðlaun, en eins
og ein konan þarna orðaði það þá eru
rússneskir gagnrýnendur mjög
kröfuharðir og stífir,“ segir Ólafur
Darri sem var viðstaddur verðlauna-
afhendingu hátíðarinnar einn Ís-
lendinga. Hann segir það mikinn
heiður að hafa verið valinn besti leik-
arinn á hátíðinni og að sér hafi liðið
eins og frægri kvikmyndastjörnu
þennan tíma sem hann dvaldi í Rúss-
landi. | 38
Börn
verðlaunuð
Ólafur Darri
Ólafsson leikari.
FJÓRAR nýjar
heimildarmyndir
sem sýna ólíkar
hliðar á núver-
andi ástandi í
Írak verða sýnd-
ar á alþjóðlegri
kvikmyndahátíð í
Reykjavík sem
fer fram í haust.
Meðal þeirra
er myndin Iraq
in Fragments eftir James Longley
sem var m.a tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna í vor og hefur unnið
til Sundance-verðlauna.
Myndin Meeting Resistance
verður einnig sýnd en hún fjallar
um uppreisnarfólk í Bagdad. Molly
Bingham blaðamaður gerði mynd-
ina ásamt Steve Connors og mun
hún verða viðstödd málþing hér á
landi í tengslum við kvikmyndahá-
tíðina þar sem rætt verður um
ástandið í Írak.
Þriðja myndin sem sýnd verður
er Shadow Company sem fjallar um
málaliða en í Írak eru um 20 þús-
und málaliðar að störfum. Fjórða
myndin er síðan Taxi to the Dark
Side eftir Alex Gibney en hún var
nýlega valin besta heimildarmyndin
á Tribeca-kvikmyndahátíðinni. Þar
er fjallað um sjónarmið Bandaríkja-
manna á pyntingar. | 43
Írak á kvik-
myndahátíð
Úr Iraq in
Fragments.
Á ÍSLANDI er best að búa, vilji
maður lifa löngu, hamingjusömu og
„grænu“ lífi. Þetta eru niðurstöður
könnunar sem gerð var á Evrópu-
löndunum í því skyni að komast að
því hvaða land byði upp á bestu
lífsskilyrðin fyrir þegna sína.
Ísland lenti í 3. sæti þegar rann-
sakaðar voru lífslíkur fólks og lífs-
hamingja en í 2. sæti, á eftir Lett-
landi, þegar skoðuð var besta
nýting náttúrulegra auðlinda. Tek-
ið var fram í niðurstöðunum að Ís-
land hefði forskot á margar þjóð-
anna sökum ríkulegra
náttúruauðlinda, t.a.m. væru hér
200 eldfjöll og 600 hverir sem væru
ókeypis orkuauðlind sem hægt
væri að nota í stað gass, kola og ol-
íu.
Gunnar Ó. Haraldsson, forstöðu-
maður Hagfræðistofnunar, segir
Íslendinga skera sig úr í notkun
sjálfendurnýjanlegra auðlinda og
búa yfir ákveðinni sérstöðu í þeim
efnum. Aðspurður segir Gunnar
enga hættu á öðru en að Ísland sé
nógu grænt. „Við notum þessa
sjálfendurnýjanlegu orkugjafa mik-
ið og erum heppin þar. Aðrar þjóð-
ir hafa ekki val um slíkt, a.m.k.
ekki á sama hátt og við og ekki
jafnódýrt. Við þurfum ekki að
brenna olíu eða byggja kjarnorku-
ver til að hita húsin okkar. Það er
ekkert skrýtið þótt við komum út
græn í þeim samanburði.“
Landið vænt og grænt
Íslendingar búa við mestu velmegunina sem bitnar minnst á
náttúrunni Norðurlönd koma best út, Eistland verst
Í HNOTSKURN
»Samkvæmt höfundum könn-unarinnar sýna niðurstöð-
urnar að lífshamingja þarf ekki
að vera á kostnað náttúrunnar.
»Niðurstöður benda til þess aðverra er að búa í Evrópu nú
en fyrir 40 árum.
Morgunblaðið/Ómar
Gaman Ánægðastir reyndust íbúar
Danmerkur, Svíþjóðar og Íslands.
VERK Hreins Friðfinnssonar höfða til listunnenda á
öllum aldri, ef eitthvað er að marka áhuga gesta sem
voru viðstaddir opnun sýningar á verkum hans í Serp-
entine Gallery í London í gærkvöldi. Um er að ræða
eins konar yfirlitssýningu verka hans, en það elsta á
sýningunni er frá 1965. „Í mínum huga fjalla verk hans
um tíma sem líður hægt. Allt fer fram með hægð. Verk
Hreins fjalla um allar litlu uppgötvanirnar sem þú ger-
ir ef þú tekur eftir umhverfi þínu,“ segir Kitty Scott,
sýningarstjóri gallerísins. | 22
Verk Hreins Friðfinnssonar sýnd í Serpentine Gallery
„Allt fer fram með hægð“
Ljósmynd/Vera Júlíusdóttir
♦♦♦