Morgunblaðið - 17.08.2007, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
MIKILL meirihluti Bandaríkja-
manna vill að ökumönnum verði
bannað að senda SMS á meðan þeir
aka bíl að því er kemur fram í frétt
frá Reuters fréttastofunni.
Niðurstöðurnar koma líklega ekki
á óvart enda endurspegla þær al-
menningsálitið með því að sýna að
89% Bandaríkjamanna telji að það
sé álíka hættulegt að senda SMS við
stýrið eins og að aka undir áhrifum.
Þrátt fyrir þetta viðurkenna 57%
aðspurðra að hafa sent SMS-
skilaboð á meðan þeir voru að keyra
bíl og 66% viðurkenndu að lesa
SMS-skilaboð sem berast í símann.
Þá voru yngri bílstjórar líklegri til
að freistast til þess að senda SMS-
skilaboð við stýrið en eldri bílstjórar
en unnið er að því í mörgum ríkja
Bandaríkjanna að banna athæfið
með lögum.
Vilja banna
SMS-send-
ingar í
akstri
Hættulegt Bandaríkjamenn telja
það mjög hættulegt að senda SMS á
meðan bíl er ekið.
Morgunblaðið/Þorkell
Leó M. Jónsson
vélatæknifræðingur
svarar fyrirspurnum á
leoemm@simnet.is
(Ath. bréf geta verið stytt).
Eldri spurningar og
svör eru birt á
www.leoemm.com
Spurt: Hyundai Elantra 1999-2000.
Bilanalýsing: Eftir að vélin er gang-
sett og farið er af stað er allt í lagi
þar til sjálfskiptingin er komin í 4.
gír. Þá gírar hún niður í þriðja og
skiptir síðan ekki upp. Þetta endur-
tekur sig í hvert skipti sem bílnum er
ekið. Reynt var að greina bilunina á
verkstæði en ekkert samband náðist
við tölvu skiptingarinnar. Öll öryggi
eru í lagi. Niðurstaða verkstæðisins
var sú að tölva skiptingarinnar væri
ónýt – hefði líklega eyðilagst við
kaplastart. Hvað þarf ég að hafa í
huga við leit að nýrri (notaðri) tölvu?
Er munur á tölvum frá USA og Evr-
ópu? Er óhætt að panta tölvu frá
USA, t.d. á ebay ef nr. stemma?
Svar: Enginn munur er á USA/Evr-
ópu-tölvum ef hlutarnúmerið er það
sama. Áður en þú ferð að leita á e-
bay, eða kaupa dýra tölvu nýja eða
notaða, skaltu tala við Gunnar Har-
aldsson hjá Varahlutalagernum
(Smiðjuv. 4a, Kóp). Hann hefur sent
vélar- og skiptingartölvur út til Bret-
lands þar sem gert er við þær og þær
endurforritaðar fyrir hagstætt verð.
Komi í ljós að tölvan sé ónýt greiðir
þú einungis sendingarkostnaðinn.
Jafnframt mun koma í ljós hvort bil-
unin sé raunverulega í tölvunni og þá
jafnframt hvað kunni að hafa orsak-
að hana. Ástæða er til að nefna að
skiptingar geta verið viðkvæmar
gagnvart vökvastöðu og truflanir
orðið bæði vegna of lítils vökva og of
mikils. (1/2 lítri til eða frá getur vald-
ið alls konar truflunum). Sé kvarði á
skiptingu á að mæla vökvastöðuna
þannig: Vélin heit. Handbremsan
sett á og fært rólega á milli gíra frá P
og niður og aftur í P. Síðan er vökva-
staðan mæld á skiptingunni með
heita vél í gangi og í P.
Sérhæfð smurolía fyrir pallbíla
Spurt: Ég las pistil þinn um smur-
olíur á vefsíðunni þinni og hef ein-
mitt verið að leita að 5W-20 fyrir
Ford Econoline F150 2004 – en án
árangurs.Veistu hvar ég fæ 5W-20?
Svar: IB ehf. á Selfossi selur sér-
hæfðu smurolíurnar fyrir banda-
ríska pallbíla og jeppa frá Ford, GM,
Chrysler og Toyota með bensín- eða
dísilvél. Þeir eiga m.a. 5W-20.
Hvað fór í tankinn?
Spurt: Ég er í vandræðum með 2ja
ára gamlan Honda CR-V dísil ekinn
u.þ.b. 28 þús. Fyrir nokkrum mán-
uðum missti vélin afl og drap á sér.
Bíllinn var dreginn á umboðsverk-
stæði sem skipti um olíu- og loftsíu.
Mánuði seinna gerðist hið sama aft-
ur. Kom þá ljós reykur aftur úr bíln-
um áður en vélin stöðvaðist. Aftur
var bíllinn dreginn á verkstæðið og
aftur skipt um olíusíu! Ég keypti bíl-
inn nýjan og hef alltaf skipt við sama
olíusala – Atlanstolíu. Getur verið að
dísilolían sé menguð vatni eða að
óhreinindi hafi komist í tankinn? Ég
dæli alltaf sjálfur og tel mig ávallt
hafa lokað vel. Hvað gæti valdið
þessu?
Svar: Þegar bíllinn var dreginn á
verkstæðið og nýleg eldsneytissía
reyndist stífluð öðru sinni – hefði
verið eðlilegt verklag að saga síuna
sundur og skoða hvað hún hefði að
geyma. Þá hefði t.d. komið í ljós
hvort um vatn var að ræða eða hvort
óhreinindi væru í dísilolíunni frá
seljanda eða af völdum skemmdar-
varga eða óvita. Settu saman við dís-
ilolíuna sérstakt efni sem eyðir vatni
úr dísilolíu – ekki má nota sama
raka/ísvara á dísilvél og notað er í
bensín, þ.e. ekki venjulegan ísópróp-
anól-ísvara (sumir starfsmenn bens-
ínstöðva virðast ekki vita þetta). Þú
færð rakaeyðiefni fyrir dísilolíu í N1
(Bílanausti). Annað mál er að ljós
reykur sem fylgir svona truflun gæti
bent til þess að fyrir mistök hafi ver-
ið bensín saman við dísilolíuna.
Íblöndunarefnið gæti eytt því líka.
Ef þú getur ættirðu að prófa að
kaupa dísilolíuna á annarri stöð Atl-
antsolíu – hætti vandræðin er eitt-
hvað að dísilolíugeymi stöðvarinnar.
Mér finnst þetta sérkennileg truflun
og skrítið að hafa ekki fengið fleiri
spurningar á borð við þína – sé eitt-
hvað að dísilolíunni.
Ónýt tölva: Hvað er þá til ráða?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bilanagreining Tölvur í bílum geta raskast og jafnvel eyðilagst við kaplastart.
FLESTIR kannast við Nissan Patrol
á Íslandi enda hefur sá dyggi ferðabíll
ferjað þúsundir Íslendinga um landið
og hálendið en færri gera sér grein
fyrir því að 50 ára þróun fjórhjóla-
drifs liggur að baki getu bílsins.
Tæknileg þróun í fjórhjóladrifum
hefur hægt og rólega verið að flytjast
yfir í jepplinga og hefur Nissan því nú
þróað nýtt kerfi sem er kallað 4x4i en
það mun vera notað í nýjum Nissan
X-Trail sem kynntur var á bílasýn-
ingunni í Genf í vetur.
Nýja kerfið stillir saman afl og drif-
kraft á hverju hjóli fyrir sig sem
tryggir besta mögulega grip við þær
aðstæður sem bjóðast. Þannig færast
jepplingar upp fæðukeðjuna ef svo
má segja þar sem geta bílsins verður
með besta móti, hvort sem ekið er í
drullu, grjóti, snjó eða sandi eða á
vegarslóða sem er blanda af þessu
öllu saman.
Búnaður dýrari bíla
Nýr X-Trail býður þannig útbúnað
sem oftast finnst ekki nema í dýrari
bílum. Þannig má telja til brekku-
hjálp sem heldur bílnum á hægu
skriði, bæði upp og niður brekkur og
fullkomið stöðugleikakerfi.
Jepplingurinn hefur yfir að ráða G-
skynjara, sem er hreyfiskynjari, og
getur þannig brugðist við inngjöf,
hemlun eða hliðarkröftum eftir þörf-
um – kerfið getur þannig spáð fyrir
um hvort bíllinn muni undirstýra eða
yfirstýra við tilteknar aðstæður og
brugðist við því með því að beita
hemlun eða aflfærslu á viðeigandi
hjól.
Ingvar Helgason umboðsaðili
Nissan hefur sýnt virkni þessa bún-
aðar í reynsluakstri og hefur ný-
breytnin mælst vel fyrir enda skyn-
samlegt að vita hvernig búnaður sem
þessi virkar í landi þar sem aðstæður
eru vægast sagt mjög fjölbreyttar.
Snjallt Nissan X-Trail fæst með fjórhjóladrifi sem er sjaldgæft í þessum flokki bíla.
Fullkomið fjórhjóladrif
frá Nissan í X-Trail
Toyota Avensis, árg. 2002,
ek. 118 þús. km. Verð 990 þús. kr.
Harley Davidsson VRSC VRSCB V-Rod,
árg. 2005, ek. 3 þús. km. Verð 2.150 þús. kr.
Verð: tilboð, 1990 þús. kr!
BMW 3 330XD, árg. 2003,
ek. 143 þús. km. Dísel.
Verð 3.290 þús. kr., áhv. 2.180 þús. kr.
Toyota Avensis S/D Executive,
árg. 2003, ek. 25 þús. km.
Verð 2.250 þús. kr.
Subaru Legacy Wagon GL 4WD,
árg. 1999, ek. 128 þús. km. Verð 780 þús. kr.
Verð: tilboð, 580 þús. kr.
Dodge Magnum SXT, árg. 2004,
ek. 16 þús. km. Verð 2.700 þús. kr.
BMW 320 DÍSEL,
árg. 2001, ek. 172 þús. km.
Verð 1.990 þús. kr., áhv. 1.700 þús. kr.
MMC Galant ES V6, árg. 2003,
ek. 53 þús. km. Verð 2190 þús. kr.
Verð: tilboð, 1.900 þús. kr.
MMC Pajero 3200 GLS DÍSEL 32”
Anterna, árg. 2003, ek. 115 þús. km.
Verð 3.690 þús. kr., áhv. 2.969 þús. kr.
Vantar bíla
á planið!
Funahöfða 1 • Opið virka daga kl. 10:00-18:30 • Laugardaga kl. 12:00-16:00