Morgunblaðið - 17.08.2007, Síða 7

Morgunblaðið - 17.08.2007, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2007 7 Niðurstöður úr árekstraprófi á vegum bandarískra samtaka bíla- tryggingafélaga voru nýverið birt- ar, en þar voru sérstaklega próf- aðir hliðarárekstrar á fólksbíla. Af þeim sex tegundum sem voru prófaðar hlutu þrjár fullt hús stiga en þær voru Volvo S80, KIA Amanti og Acura RLO. Volvo S80 hlaut enn sérstaka viðurkenningu frá samtökunum fyrir að hljóta ágætiseinkunn í tveimur öðrum árekstraprófum, þar sem bíllinn var klesstur að framan og að aft- an. Sá bíll sem hlaut lægstu ein- kunn var BMW 5. Mercedes E Class aftur á móti hlaut viðunandi einkunn sem olli framleiðendum nokkrum vonbrigðum þar sem bíllinn var nýverið endurhannaður með það fyrir augum að ná betri árangri í árekstraprófum. Volvo hlýt- ur ágætis- einkunn Morgunblaðið/RAX Öruggur Volvo S80 kom mjög vel út í árekstrarprófum. Á bílasýningunni í Frankfurt sem hefst í næsta mánuði munu bílafram- leiðendur heimsins kynna nýjustu afurðir sínar og ef miðað er við und- anfarnar bílasýningar má ætla að áherslurnar verði á umhverfisvæn- um bílum. Framleiðendur VW munu þar tefla fram nýjum Golf BlueMo- tion, sérlega sparneytnum og um- hverfisvænum bíl í flokki minni bíla. Auk hans kynnir Volkswagen fimm aðrar BlueMotion-gerðir á bílasýn- ingunni í Frankfurt. Bíllinn sem hér um ræðir notar aðeins 4,5 lítra af dísilolíu á hverja 100 km sem er 0,6 lítrum minni eyðsla en í fyrri gerð. Sömuleiðis hefur verið dregið út útblæstri koltvísýrings, úr 135 gr/km niður í 119 gr/km. Þá er unnt að aka Golf yf- ir 1.200 km á einni tankfyllingu (55 lítrum) með hjálp BlueMotion-tækn- innar. Golf er fjórði Volkswagen-bíllinn á eftir Polo, Passat og Passat Variant til að bera BlueMotion-skjöldinn og er hann jafnframt talinn hagkvæm- asta gerðin í þessari framleiðslulínu. Hann er knúinn 105 hestafla TDI-vél sem hefur 250 Nm snúningsvægi. VW kynnir nýjan Golf BlueMotion Sparneytinn Nýi Golf BlueMotion eyðir eingöngu 4,5 lítrum á 100 km. Nýjung í hugbúnaði fyrir vélstýri- búnaðinn dregur úr vélarsnúningi í lausagangi og það ásamt sótagnasíu dregur verulega úr útblæstri meng- andi efna. Hærri gírhlutföll í þriðja, fjórða og fimmta gír draga einnig úr vélarsnúningshraða í akstri. Þessar nýjungar stuðla einar og sér að minni eldsneytisnotkun sem nemur 0,2 lítrum. Þegar allar breytingarnar eru teknar saman í framleiðslubílnum eykst hámarkshraði Golf BlueMo- tion úr 187 km/klst í 190 km/klst. Nýi bíllinn er væntanlegur á markað á Íslandi á næsta ári Framleiðendur VW hafa ástæðu til að kætast um þessar mundir en metsala var á bifreiðum þeirra á fyrstu sjö mánuðum þessa árs. Jókst salan um 7,9 prósent frá sama tímabili í fyrra en heild- arsalan á heimsvísu náði 2,11 milljónum bifreiða. Jafnframt jókst sala í júlí um 10,5% frá sama mánuði í fyrra. Helsta söluaukn- ingin varð í Brasilíu, Kína og Arg- entínu. Morgunblaðið/Eyþór Golf VW hefur selt yfir 2,11 milljónir bíla á árinu Metsala hjá VW FYRIR bílhneigða skiptir öllu máli að eiga réttu verkfærin, svo hægt sé að dytta sómasamlega að bílnum. Þó er hægt að ganga ansi langt í áhuga- málinu en nú er t.d. hægt að fá hnífapör sem eru bú- in til úr ryðfríum föstum lykl- um og töng – allt saman vel brúklegt. Þannig má slá tvær flugur í einu höggi og skipta út verkfærasetti bíls- ins fyrir hnífaparasett og nota það annars vegar til lagfæringa og hins- vegar þegar ökumanninn grípur óstjórnleg hungurtilfinning. Þá væri hægt að fara hreinlega alla leið – elda matinn á pústgreininni frá vélinni og borða hann með verkfærunum. Réttu verkfærin TENGLAR .............................................. www.northerntool.com ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.