Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040 kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013 Glæsilegt nýlegt atvinnuhúsnæði á stórri lóð. Lóðin er skráð 12.733 fm og er hún mal- bikuð og frágengin. Um er að ræða vandað og fallegt atvinnuhúsnæði að mestu leyti á einni hæð, ásamt hluta skrifstofurýmis á 2. hæð. Húsið er byggt árið 1997 og er vand- að í alla staði, miðhluti er byggður úr steinsteypu og iðnaðar- og lagersalir eru byggð- ir úr vönduðum límtréssperrum. Eignin er u.þ.b. 5.000 fm auk þess fylgir eigninni samþykktur byggingarréttur fyrir allt að 1.000 fm stækkun. Húsið er allt hið vandað- asta m.a. klætt að utan. Að innan er um að ræða stóra og vandaða lager- og iðnaðar- sali, skrifstofupláss, starfsmannaaðstöðu, mötuneyti o.fl. Fjölmargar innkeyrsluhurðir og gott útipláss. Mikil lofthæð. Upplýsingar veita Dan V.S. Wiium s. 896-4013 og Kristinn Ingi s.893-1041 jöreign ehf TIL SÖLU SUÐURHRAUN – GARÐABÆ Eftir Andra Karl andri@mbl.is BROTTFALL nemenda með annað móðurmál en íslensku úr framhalds- skólum er mikið vandamál. Í kjölfar þess að starfshópur á vegum mennta- málaráðuneytisins gerði úttekt á stöðu umræddra nemenda hefur Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra ráðið Guðrúnu Ögmundsdóttur, fyrrverandi alþing- ismann, verkefnisstjóra yfir mála- flokknum. „Við megum ekki við því að missa fólk á milli skips og bryggju,“ segir Guðrún og hyggur á að vinna rösklega. Guðrún mun starfa með starfs- hópnum að tillögugerð og úrbótum í menntunarmálum fyrir nemendurna og segir verkefnið gríðarlega mikil- vægt og spenn- andi. „Við munum gera allt til þess að brottfall þess- ara nemenda úr framhaldsskólum verði sem minnst og að skólarnir taki vel á móti ungmennum með annað móðurmál en íslensku – en það getur einnig átt við um íslensk börn sem eru að flytja heim – og tryggja að þeir séu með ákveðnar móttökuáætlanir.“ Fræðsla í að kenna íslensku Að tillögu starfshópsins hefur verið stofnaður sjóður til að styðja með sér- tækum hætti kennslu í íslensku fyrir umrædda nemendur. Veita skal fjár- framlög umfram reiknilíkan til sér- stakra aðgerða í íslenskukennslu en þær aðgerðir eru m.a. stuðnings- kennsla fyrir einstaka nemendur eða smærri hópa, þjálfun daglegra sam- skipta og fræðsla fyrir kennara í að kenna íslensku sem erlent tungumál. Framhaldsskólar geta sótt um styrki úr sjóðnum tvisvar á ári og fyrsti um- sóknarfrestur er til 15. september nk. Einnig verður horft til móttöku- skóla á grunnskólastigi og athugað hvort hægt sé að byggja brú á milli þeirra og framhaldsskóla. „Það er mikil reynsla sem situr í móttökuskól- unum og mögulegt að nýta hana, s.s. í kennslu, kennsluháttum og stuðningi við foreldra svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Guðrún og bætir því við að verk- efnið geti orðið nokkuð viðamikið. „Það er einnig spurning með fé- lagslega þáttinn, það þarf að virkja íþróttahreyfinguna og ekki verður hjá því komist að kanna stuðning sveitarfélaga við þessi ungmenni. Það þarf að skoða allt svona vítt.“ Mikilvægt og spennandi Í HNOTSKURN »Menntamálaráðherra skip-aði nýlega starfshóp til að gera tillögur til stuðnings nemendum í framhaldsskólum sem hafa annað móðurmál en íslensku. »Hópurinn hefur unnið út-tekt á stöðu nemendanna og hefur Guðrún Ögmunds- dóttir verið ráðin til starfa sem verkefnisstjóri málaflokksins. Guðrún Ögmundsdóttir Guðrún Ögmundsdóttir, fyrrverandi þingmaður, ráðinn verkefnisstjóri yfir málaflokki nemenda í framhaldsskólum með annað móðurmál en íslensku Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Reykjavíkur (ÍTR) hefur undanfarið fengið ábendingar frá foreldrum, sem hyggjast nýta frístundakort fyr- ir börn sín, um að félög og skólar hafi hækkað gjaldskrár eftir að frístunda- kortin komust í gagnið. Með kortinu geta foreldrar greitt að hluta eða öllu leyti fyrir frístundastarf barna sinna. Sólveig Valgeirsdóttir, verkefna- stjóri hjá ÍTR, segir orðróm vera í gangi um hækkanir og daglega hringi foreldrar í ÍTR með slíkar ábending- ar. Ekki hafi náðst að fara yfir þær allar „en í þeim málum sem við höfum skoðað reynist oft um misskilning að ræða“, segir Sólveig. Þær megi meðal annars rekja til þess að fólk hafi ekki tekið með í reikninginn atriði á borð við lengri æfingatíma barnanna vegna þess að þau hafi færst upp um flokka. Þá hafi námskeið í einhverj- um tilvikum verið lengd. Sólveig seg- ist þó vita um að minnsta kosti eitt til- felli þar sem útlit sé fyrir að félag hafi hækkað gjaldskrá sína vegna tilkomu frístundakortanna. „Líka hef ég heyrt, sem mér finnst mjög slæmt, að félög hafi afnumið systkinaafslátt og annað,“ segir hún. Alls eru um 90 félög og skólar á skrá hjá borginni vegna frístunda- kortanna en Sólveig segir að flestar kvartanirnar sem borist hafi ÍTR varði 4-5 félög. „Mörg félög eru búin að hækka hjá sér og hækkanir eru ekkert óeðlileg- ar. Það er verðbólga og þjálfarar fara fram á hærri laun,“ segir Sólveig. Hún segist hafa hvatt foreldra til þess að leita skýringa hjá sínu félagi og standa saman, sé um hækkanir að ræða. Mörg félaganna standi raunar ekki vel og eigi í basli með að ná end- um saman. Sólveig segir að þau félög sem bjóða fólki að framvísa frístundakort- um vegna tómstundaiðkunar barna hafi þurft að skila inn til borgarinnar upplýsingum um gjaldskrá síðasta árs og haustsins í ár. Þetta sé gert svo borgin geti fylgst með því hver þróunin verður í þessum málum. Kerfið þarf að fá að þróast Einnig hafi heyrst óánægjuraddir vegna þess að sum félög fari fram á að fólk reiði fram fé fyrir námskeið- inu í upphafi þess og hyggist svo end- urgreiða afsláttinn þegar peningar frá borginni vegna frístundakortanna koma til félaganna. Sólveig segir að hugsunin hafi allt- af verið sú að fólk þyrfti ekki að leggja út fyrir þessu, en frístunda- kortakerfið sé nýtt og það þurfi að fá að þróast. Styrkurinn hafi ekki komið fyrr en 1. september og hafi þá marg- ir þegar verið búnir að greiða. „Við höfum ítrekað við félögin að fólk geti komið til þeirra og fengið að semja, eigi það erfitt með að leggja út fyrir tómstundastarfinu.“ Dæmi um hækkanir eftir að notkun frístundakorta hófst Eitthvað er um að félög hafi fellt niður systkinaafslátt eftir að kortin komu fram Morgunblaðið/Eggert Frístundakort Hægt er að nota frístundakort til að borga fyrir íþrótta- starf, tónlistarkennslu og margt fleira. Myndin var tekin í Egilshöll. ÁKÆRA gegn karlmanni á fimm- tugsaldri fyrir að ráðast á konu á heimili sínu aðfaranótt þriðjudags- ins 23. janúar sl. var þingfest í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gærdag. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa ráðist á konuna inni á baðherbergi íbúðarinnar, tekið hana þar hálstaki og slegið höfði hennar í vegg, svo slegið hana margsinnis í líkamann á herbergisgangi íbúðarinnar, þannig að hún féll við og þá sparkað í hana liggjandi. Afleiðingarnar hafi verið þær að konan tognaði á hálsi og hlaut roða báðum megin á hálsi, eymsli um brjóstkassa, hrufl og marbletti um ofanverðan brjóst- kassa, upp á herðar og út á hægri öxl, eymsli á hægra herðablaði, eymsli um brjósthrygg, sár á hægra hné og eymsli á aftanvert hægra læri. Í ákærunni segir að brotin teljist varða við almenn hegningarlög. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar en konan krefst þess að honum verði gert að greiða bætur að fjárhæð 500.000. Dómari í málinu er Símon Sig- valdason, verjandi er Guðni Har- aldsson hæstaréttarlögmaður og sækjandi Þorbjörg S. Gunnlaugs- dóttir, fulltrúi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Ákærður fyrir árás á konu Sakaður um að hafa slegið og sparkað SÆMUNDUR Ósk- arsson, kaupsýslumað- ur í Reykjavík og stofnandi KA-klúbbs- ins, lést sl. mánudag 83 ára að aldri. Sæmundur fæddist á Akureyri og ólst þar upp. Hann lauk prófi frá Verzlunarskóla Ís- lands 1942 og frá verzlunarskólanum Barlock Institute í Stokkhólmi 1947. Hann vann síðan við sölumennsku hjá heildverzlunum en einnig við sjómennsku á síldarskipum og tog- urum en í ársbyrjun 1953 fór hann til Svíþjóðar og þaðan í langsigling- ar um heimshöfin. Hann lauk prófi frá stýrimannaskólanum í Härnö- sand í Svíþjóð 1957 og frá stýri- mannaskólanum í Kal- mar 1958. Sæmundur kom al- kominn til Íslands 1969 og stofnaði heildv. S. Óskarsson & Co hf. 1962 og rak hana til 1981 en seldi þá og stofnaði heildv. Esju sf., sem fjölskylda hans rekur núna. Sæmundur vann mikið fyrir Knatt- spyrnufélag Akureyr- ar, var stofnandi KA- klúbbsins í Reykjavík 1978 og var formaður hans til dauðadags. Fyrri kona Sæmundar var Eivor, fædd Holm. Dóttir þeirra er Guðrún Kristína. Síðari kona Sæmundar er Inga, fædd Sommer, og lifir hún mann sinn. Börn þeirra eru Helga og Óskar. Andlát Sæmundur Óskarsson KAFFISTOFA Samhjálpar mun á laugardaginn verða opnuð í húsnæði hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu í Hátúni 2 í Reykjavík. Þar mun kaffi- stofan þó aðeins verða til bráða- birgða. Eins og kunnugt er missti Sam- hjálp húsnæði sitt við Hverfisgötu hinn 7. september og hafa máltíðir síðan þá verið afgreiddar í Gistiskýl- inu. Það húsnæði er þröngt og hent- ar illa og en betur mun fara um starf- semina í húsnæði Fíladelfíusafnaðarins. Að sögn Heiðars Guðnasonar, for- stöðumanns Samhjálpar, er gert ráð fyrir að kaffistofan verði þar í rúm- lega viku en flytji þá aftur á Hverf- isgötu. Framtíðarhúsnæði kaffistof- unnar verði væntanlega tilbúið eftir um fjórar vikur. Ekki hefur verið gefið upp hvar nýja húsið er. Kaffistofan til Fíladelfíu FULLTRÚAR Framsóknarflokks- ins í iðnaðar- og félagsmálanefndum Alþingis óskuðu í gær eftir að hald- inn yrði sameiginlegur fundur nefndanna hið fyrsta. Tilefnið er að breytingar eru á verða á eignarhaldi Geysis Green Energy sem á 32% hlut í Hitaveitu Suðurnesja. Breytingarnar eru þær að banda- ríski fjárfestingabankinn Goldman Sachs og Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfundur og framkvæmdastjóri hjá Time Warner, eignast samanlagt 8,5% í Geysi Green Energy. Samn- ingar um þetta eru á lokastigi. Það eru þeir Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, og Birkir J. Jónsson þingmaður sem biðja um fundinn en þeir telja nauð- synlegt að nefndirnar fjalli um lög- bundin skylduverkefni ríkisins, s.s. vatnsveitur, og einnig eignarhald orkufyrirtækja og framtíðarnýtingu orkuauðlinda. Brýnt sé að allir flokkar taki þátt í umræðum um málið. Vilja fund í nefndum ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.