Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ SÍMI 5 900 800 Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali. Sýnum í dag bjarta og vel skipulagða 4ra herb. 100 fm endaíbúð á 2. hæð á þessum vinsæla og barnvæna stað. Íbúð skiptist í: forstofu/hol, 3 svefnherb., eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, sérgeymslu, sameiginl. hjóla/vagnageymslu & þvottahús. Sérstæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúð. Grunnskóli og leikskóli í göngufæri, stutt í alla þjónustu. V. 30,5. m. Sveinn Eyland s: 6 900 820 frá Fasteign.is á staðnum. OPIÐ HÚS Í DAG REKAGRANDI 8 – 2.H.V KL.18–18:30 Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞÚ ÆTTIR AÐ HÆTTA AÐ DREKKA KAFFI KANNSKI EFTIR AÐ JARÐSKJÁLFTINN ER LIÐINN HJÁ ÞÚ ÆTTIR AÐ REYNA AÐ VERÐA FORSETI, KALLI... EKKI ÉG... ÉG GÆTI ÞAÐ ALDREI... VÍST! EN ÞÚ ÞARFT AÐ BYRJA AÐ BÚA ÞIG UNDIR ÞAÐ NÚNA... ÞAÐ ER KANNSKI RÉTT HJÁ ÞÉR, LÍSA... EF ÉG BYRJA AÐ LÆRA NÚNA ÞÁ GÆTI ÉG ORÐIÐ FORSETI! ÞÚ? FORSETI? HA! HA! HA!!! LÁTTU MIG FÁ GLÓSURNAR MÍNAR LITLA ÓGEÐIÐ ÞITT! NEI !! HVAÐ EIGUM VIÐ AÐ GERA? FLJÓTUR! INN Á BAÐ! DRÍFÐU ÞIG! LÆSTU! KALVIN! OPNAÐUNÚNA!!! ANNARS FINNA FORELDRAR ÞÍNIR ÞIG ALDREI! EN SÚ BARNAPÍA! GETTU HVAÐ ÉG ER AÐ GERA? MANNSTU ÞEGAR ÞÚ SAGÐIR MÉR AÐ EF ÉG MUNDI GIFTAST ÞÉR ÞÁ YRÐI LÍF MITT EKKERT NEMA DANS Á RÓSUM? JÁ HINGAÐ TIL HEFUR ÞETTA VERIÐ EINS OG DANS Á BRENNINETLUM HÚN ÆTLAR AÐ SETJA HENGILÁS Á KLÓSETTIÐ!! BRÉF- BERINN ER AÐ KOMA! HLEYPTU MÉR ÚT! NEI! ÉG VIL AÐ ÞÚ HÆTTIR AÐ VERA VONDUR VIÐ HANN ÞÚ MÁTT EKKI BÍTA HANN NÉ GELTA Á HANN... ANNARS... ANNARS HVAÐ? ÉG TRÚI EKKI AÐ BOÐIÐ HAFI VERIÐ HJÁ OKKUR Í ÁR JÁ, ÞAÐ ER ERFITT AÐ TRÚA ÞVÍ AÐ OKKUR HAFI TEKIST ÞETTA ÞANGAÐ TIL Í ÁR HÉLT ÉG AÐ ÞETTA BOÐ VÆRI FAST VIÐ MÖMMU, EN NÚNA ER EITTHVAÐ SVO EÐLILEGT FYRIR OKKUR AÐ HALDA ÞAÐ ÞÝÐIR ÞAÐ AÐ VIÐ SÉUM ORÐIN FULLORÐIN? JÁ... EN VIÐ ERUM SAMT ENNÞÁ SVÖL ÞARNA SKALL HURÐ NÆRRI HÆLUM! ÉG SAGÐI JAMESON AÐ KOMA EKKI TIL L.A. VEGNA ÞESS AÐ BARDAGAMAÐURINN ER HORFINN OG HANN VERÐUR ÞAÐ... UM LEIÐ OG MÉR TEKST AÐ LOSA MIG VIÐ BÚNINGINN dagbók|velvakandi Myndavél í óskilum MYNDAVÉL fannst í einum Strætisvagni Reykjavíkur. Ekki er vitað á hvaða Strætisvagnaleið vélin fannst, en þessar myndir skýra mál- ið betur. Vinsamlegast hafið sam- band við farmiðasöluna á Hlemmi. Gamall Reykvíkingur ÉG ER sammála Sigmari B. Hauks- syni þar sem hann fjallar um drykkjulæti í miðbænum í grein sem birtist í Morgunblaðinu 5. septem- ber sl. Áfengisverslun ríkisins verð- ur að fara úr miðbænum og margt þarf að breytast í henni Reykjavík. Ég gekk um Austurstrætið nýlega og þar stoppaði mig ungur óláns- maður og bað mig um peninga. Ann- að sem fyrir augu mín bar var sóða- skapurinn, pappír, glerbrot og ælur. Þetta var um miðjan dag. Í gamla daga, þegar ég vann í miðbænum, voru göturnar hreinar. Þeir sem ekki gátu unnið langan vinnudag, voru andlega eða líkamlega fatlaðir, gátu sópað og hreinsað. Góð reynsla fékkst af því að hafa fatlaða í vinnu í sumar hjá Bónus og Póstinum. Sig- mar talar um að flytja ÁTVR aftur á Lindargötuna, það finnst mér fráleit hugmynd. Þegar ÁTVR var þar áður til húsa stóðu drykkjumenn þar og biðu eftir því að einhver rétti þeim pening eða gæfi þeim vín. Nú bætast eiturlyfjaneytendur við. Við Lindar- götu og Skúlagötu býr eldra fólk, frá Snorrabraut að Ingólfsstræti. Hvernig yrði þetta hverfi? Kær kveðja, 081124-4189 Myndavél glataðist LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 11. ágúst, á skemmtistaðnum Sólon, á milli kl. 2.30-3.30 þá týnum við myndavélinni okkar. Á vélinni voru 750 myndir frá þriggja vikna ferðalagi okkar um Evrópu. Myndirnar hafa mikið tilfinninga- legt gildi fyrir okkur, þær skipta okkur gríðarlega miklu máli. Myndavélin er grá að lit, af gerðinni Canon Ixus og var hún í svartri myndavélatösku. Ef einhver getur veitt okkur upplýsingar um málið þá væri það vel þegið. Góð fundarlaun í boði!!! Einnig er í lagi að senda kort- ið nafnlaust úr vélinni á heimilis- fangið Ingólfsstræti 16, 101 Reykja- vík. Marteinn, s: 865-3722 Eva Sólveig, s: 697-6160. Kisa á flækingi FREKAR lítil, kannski ekki full- vaxin, grá og hvít kisa, ómerkt, mjög mannelsk, hefur haldið sig mikið til á Holtsgötu í Reykjavík undanfarið. Ef einhver kannast við kisa gefur Jessica upplýsingar í síma 698-0794. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is SAGT var frá því á vef BBC í fyrradag að Yoko Ono, ekkja Johns Lennons, myndi afhjúpa friðarsúlu í minningu eiginmanns síns á 67. afmælisdegi hans 9. október. Í fréttinni segir að John Lennon hafi sagt fyrir 40 árum, að hugmynd Yoko um friðarsúluna myndi verða að veruleika. Hundrað þús- und friðarbænir fólks víðs vegar að úr veröldinni eru lagðar í súluna. „Ég lít á mig sem lánsama, að hafa séð drauminn sem okkur John dreymdi sam- an rætast,“ sagði Yoko í viðtali við BBC. Hún kvaðst hafa valið súlunni stað á Íslandi vegna einstakrar náttúru og vistvæns umhverfis. Vinir Johns og Yoko alls staðar að verða viðstaddir vígsluna. Yoko Ono lét drauminn rætast

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.