Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 23
ferðalög MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 23 Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is Það er eins og að stíga aftur í tímann aðkoma inn á Rick’s Café í Casablancaog því auðvelt að ímynda sér þauRick [Humphrey Bogart] og Ilsu [Ingrid Bergman] sitja við barinn undir ljúfum tónum frá Sam á flyglinum. Borgin Casablanca hafði fram að þessu virk- að lítt heillandi – enda vestræn iðnaðarborg þar sem þjóðfélagsvandamálin blöstu alls stað- ar við. Sjarmi marokkóskra borga á borð við Marrakesh og Féz var hér víðs fjarri og því reyndist Rick’s Café sannkölluð vin í eyði- mörkinni. Það var líka ekki hægt annað en að láta heillast, svo vel er hér farið með baksvið þess- arar klassísku kvikmyndar. Veitingastaðurinn stendur í nágrenni hafn- arinnar, við einn útveggja medínunnar – eða gamla bæjarins og er er inn er komið einkar glæsilegur á að líta. Súlur bera uppi bogaveggi, barborðið er voldugt á að líta, stiginn eins og klipptur út úr kvikmynd og ljósabúnaðurinn útflúraður og dramatískur að hætti marokkóa. Útkoman verður skemmtileg samtvinnun tíð- aranda heimsstyrjaldarinnar síðari og hefð- bundins marokkósks handverks. Sam (eða öllu heldur staðgengill hans, Issam) situr líka sem fastast við flygilinn og töfrar fram hvern slag- arann á fætur öðrum á meðan hvítklæddir þjónar í rauðum vestum og með féz á höfði bera fram ljúffenga rétti fyrir gesti. Það kann að vera að þau Rick og Ilsa hafi aldrei stigið hingað inn fæti, barinn var jú að- eins leikmynd í kvikmynd sem mynduð var á Flórída, og Rick’s Café í Casablanca ekki stofnað fyrr en 2004, en hér má samt vel gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn og ferðast í huganum aftur til fimmta áratugar síðustu ald- ar. Jákvæð bandarísk gildi Rick’s Café er hugarfóstur bandarískrar konu, Kathy Kriger, sem eftir áralangan feril í bandarísku utanríkisþjónustunni, m.a. í Casa- blanca, ákvað að söðla um og snúa sér að veit- ingabransanum. „Það kom mér á óvart þegar ég fór að vinna í Casablanca árið 1998, fyrir viðskiptadeild bandaríska sendiráðsins, að hér væri ekki þeg- ar að finna Rick’s Café. En svo kom í ljós að heimamenn könnuðust fæstir við myndina, jafnvel þó að ferðamenn væru duglegir að leita að skemmtistaðnum hans Ricks,“ segir Kriger þar sem hún situr við barinn og fer yfir bók- hald á meðan matargestir snæða allt um kring. „Eftir árásirnar á Bandaríkin 11. september ákvað ég svo að hætta störfum fyrir banda- rísku stjórnina en dvelja áfram í Marokkó og þegar hryðjuverkaárásirnar voru svo einnig gerðar hér í Casablanca 2003 þá fannst mér kominn tími til að gera eitthvað jákvætt þar sem bandarískum gildum væri samt haldið á lofti. Að setja á fót Rick’s Café í Casablanca var besta leiðin að mínu mati.“ Það var síðan með fjárhagsaðstoð vina og vandamanna að Rick’s Café varð að veruleika. Kriger hlær þegar ég spyr hvernig hafi gengið að standsetja staðinn. „Þetta var mikið mál, heilmikið og raunar miklu meira mál en ég gerði mér grein fyrir. Húsið var hrörlegt íbúð- arhús og því varð að taka það algjörlega í gegn og svo hafði ég náttúrulega mjög ákveðna fyr- irmynd í huga.“ Skáldaleyfi í smáatriðunum Ekki er þó um hreina eftirmynd kvikmynda- barsins að ræða þó að grunnhönnunin sé sú sama. „Hugmyndin var miklu frekar sú að ná fram rétta andrúmsloftinu en að hafa allt ná- kvæmlega eins. Við tókum okkur líka fullkomið skáldaleyfi er kemur að öllum smáatriðum og þannig eru til að mynda borðlamparnir íburð- armiklir að marokkóskri fyrirmynd á meðan að þeir voru mjög einfaldir í myndinni.“ Og það eru ekki lengur bara erlendir ferða- menn sem leita uppi Rick’s Café í Casablanca, því orðspor staðarins hefur spurst út og þang- að sækja nú líka heimamenn úr röðum þeirra efnameiri. „Við fáum hingað bæði stjórnmálamenn og atvinnuíþróttamenn og svo sýnum við myndina reglulega á efri hæðinni þannig að Casablanca er að verða þekktari í Casablanca.“ „Play it again Sam“ Arftaki Sams Issam leikur ljúfa tóna á flygilinn. Rick’s Cafe Þó þau Rick og Ilsa hafi aldrei komið á Rick’s Café í borginni Casablanca þá er rétti andinn samt til staðar. Hanastél við barinn Mikið er lagt upp úr góðum mat ekki síður en fallegri umgjörð. Hanastél að hætti Bogarts Súlur bera uppi bogaveggi, barborðið er voldugt á að líta, stiginn eins og klipptur út úr kvikmynd og ljósabún- aðurinn útflúraður og drama- tískur að hætti marokkóa. Ljósmynd/ Hannes Sverrisson Davíð Hjálmar Haraldsson yrkirum konu og berjamó: Upp til fjalla og út með sjó oft fer kona í berjamó vongóð þar sem víðsýnt er. Venjulega tínir ber. Svo bætir hann við vísum um berjamó og „níræð hró“: Sælt er líf þótt sumri halli. Sýnast fertug níræð hró og glaðnar yfir kararkalli komist hann í berjamó. „Ég fór í móinn“ frúin sagði og fram hún bar í skapi létt, kóngulær með berjabragði og brekkusniglaeftirrétt. Björn Ingólfsson orti limru þegar hundarnir í sveitinni voru farnir að æfa fyrir göngurnar: Hann Sámur var geltinn í gær. Á gamalær rauk hann tvær og elti þær heim. Þá var hundur í þeim en rakkinn var orðinn ær. VÍSNAHORN Oft fer kona í berjamó pebl@mbl.is Lúxusreisa til Balí Ferðaskrifstofan Óríental stendur fyrir ævintýraferð til Balí dagana 8.- 25. október, og er um að ræða fá- menna hópferð sem farin verður með íslenskum fararstjóra. Í ferðinni er strandlífið í hafn- arbænum Sanúr skoðað, en hann hefur nokkra sérstöðu á Balí enda fara þarfir ferðamanna þar þægilega saman við hið skrautlega trúarlíf Balíbúa. Auk þess fá ferðalangarnir tækifæri til að kynnast framandleika fjallabæjarins og listamannanýlend- unnar Úbúd, sem þekkt hefur verið sem miðja handverks og lista á eyj- unni. Balí er þekkt ferðamanna- paradís og því kemur það flestum á óvart hversu ósnortin og afskekkt eyjan er. Þar viðhaldast hefðir og rótgróið trúarlíf á látlausan hátt og þrátt fyrir að Balíbúar hafi tekið stór og djörf skref inn í nútímann á fáum áratugum virðast þeir litlu hafa fórnað af sínum sterku hefðum. Fararstjóri í ferðinni er Viktor Sveinsson, framkvæmdastjóri Órí- ental. Fótboltaferðir á West Ham-leiki Nýverið gerðu Icelandair og West Ham United með sér samstarfs- samning sem m.a. felur í sér að Ice- landair getur nú boðið pakkaferðir á alla heimaleiki West Ham í vetur. Nú þegar hafa verið settar upp ferð- ir á 5 leiki, og er um að ræða leiki West Ham gegn liðunum Arsenal, Bolton, Everton, Tottenham og Sun- derland. Lúxusgolfferð til Flórída Icelandair bjóða nú í haust upp á golfferðir til Bay Hill á Flórída. Ferðin er farin dagana 13.-21. nóv- ember og verður gist verður í Lodge á Bay Hill í 8 nætur og spilaðir 3 golfhringir á Bayhill-vellinum. Möguleiki er að bæta við hringjum á þeim velli eða reyna fyrir sér á öðr- um golfvöllum í nágrenninu. vítt og breitt www.oriental.is. www.icelandair.is www.icelandair.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.