Morgunblaðið - 13.09.2007, Side 11
Hefur þú greinst með brjóstakrabbamein fyrir að minnsta kosti
6 mánuðum síðan eða ert aðstandandi, þ.e. maki, barn 18 ára
og eldri, foreldri, systkini, vinkona eða vinur konu, sem hefur
greinst með brjóstakrabbamein fyrir að minnsta kosti 6
mánuðum síðan? Hvernig litist þér þá á að taka þátt í
rannsókn?
Rannsóknin hefur fengið leyfi Vísindasiðanefndar og verið tilkynnt
til Persónuverndar.
Aðalrannsakendur eru Herdís Jónasdóttir hjúkrunarfræðingur
MSc. og Ingibjörg Hreiðarsdóttir hjúkrunarfræðingur BSc.
Meðrannsakendur eru 20 talsins og samanstanda af
heilbrigðisstarfsfólki, konum sem hafa greinst með
brjóstakrabbamein og aðstandendum. Þeir eru eftirfarandi:
Aðalbjörg Finnbogadóttir, hjúkrunarfræðingur MSc.
Auður Elísabet Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðíngur BSc.
Dóra Júlíussen, félagsráðgjafi BA.
Edda Hannesdóttir, meistaranemi í sálfræði við Háskóla Íslands.
Eldey Huld Jónsdóttir, kennari B.ed, félagsráðgjafi MSW og andlegur heilari.
Guðrún Þórðardóttir, leikari og kennaranemi við Listháskóla Íslands.
Gunnjóna Una Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi BA.
Jóhanna Björk Briem, sjúkranuddari frá Canada, Craniosacral meðferðanám
frá Englandi og MA í uppeldis og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands.
Kristín Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur BSc.
Margrét Gunnarsdóttir, sjúkraþjálfari MSc í intergrative psychotherapy.
Ragna Dóra Rúnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur BSc og meistarnemi í
heilsuhagfræði.
Ruth Sigurðardóttir, skurðhjúkrunarfræðingur BSc.
Sigrún Sæmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur MSc.
Sigurður Árnason, sérgrein: krabbameinslækningar.
Snorri Ingimarsson, sérgrein: geð- og krabbameinslækningar.
Svanhildur Jónsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur og MA í mannauðsstjórnun.
Valgerður Hjartardóttir, hjúkrunarfræðingur BSc og djákni.
Þóra Baldvinsdóttir, innanhúshönnunarráðgjafi.
Þórunn Lárusdóttir, hjúkrunarfræðingur BSc og meistaranemi í þýðingum.
Megintilgangur rannsóknarinnar er að kanna með hópviðtölum
rýnihópa (focus groups), viðhorf og væntingar kvenna sem greinst
hafa með brjóstakrabbamein og aðstandenda þeirra til sérhæfðrar
brjóstameinsmiðstöðvar með hliðsjón af hugmynd sem fengið
hefur nafnið Lífstré.
Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort hugmyndin Lífstré
samræmist hugmyndum kvenna sem greinst hafa með
brjóstakrabbamein og aðstandenda þeirra á þeirri þjónustu sem
þau vænta frá greiningu til loka meðferðar og að nýta viðhorf og
væntingar þessa tiltekna hóps til frekari framþróunar á þjónustu
þeim til handa.
Áhætta af þátttöku er í lágmarki þar sem áherslur viðfangsefna
rýnihópanna eru á þætti þjónustunnar en ekki á upplifun
þátttakenda af sjúkdómi sínum. Niðurstöður rannsóknarinnar geta
leitt til framfara í heilbrigðisþjónustu fyrir konur sem greinast með
brjóstamein og aðstandendur þeirra.
Óskað er eftir 210 þátttakendum.Viðtölin verða á 4-6 vikna tímabili
í október og nóvember 2007. Hver hópur hittist einungis einu sinni
og mun hvert hópviðtal taka um 1-1 ½ klst. Leitað er eftir þátttöku
fólks af öllu landinu. Fundarstaðir hópviðtalanna verða hjá
Krabbameinsfélagi Íslands, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga,
Maður Lifandi Borgartúni, Krabbameinsfélagi Austfjarða og
Krabbameinsfélagi Akureyrar.
Þeir sem kynnu að hafa áhuga eru beðnir um að leita frekari
upplýsinga hjá Herdísi Jónasdóttur í síma 694-3250 eða
Ingibjörgu Hreiðarsdóttur í síma 694-6939.
Tekið skal fram að þeir sem svara auglýsingunni hafa á engan hátt
skuldbundið sig til að taka þátt í rannsókninni.
Taki þeir þátt, geta þeir dregið sig út úr rannsókninni hvenær sem
er, án þess að gefa sérstaka ástæðu fyrir ákvörðun sinni.
Hefur þú áhuga á
að vera þátttakandi í rannsókn sem snýr að
þróun bættrar þjónustu kvenna er greinast
með brjóstamein og aðstandenda þeirra?