Morgunblaðið - 13.09.2007, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
LÍK Í ÓSKILUM
Fös 14/9 kl. 20 Lau 15/9 kl. 20
Lau 22/9 kl. 20 Sun 23/9 kl. 20
LADDI 6-TUGUR
Sun 16/9 kl. 20 upps. Fim 20/9 kl. 20
Fös 21/9 kl. 20 upps. Lau 29/9 kl. 20 upps.
SÖNGLEIKURINN ÁST
Lau 15/9 kl. 20 Þri 18/9 kl. 14 upps.
Mið 19/9 kl. 14 Fim 20/9 kl. 14
BELGÍSKA KONGÓ
Mið 19/9 kl. 20 Mið 26/9 kl. 20
SÖNGLEIKURINN GRETTIR
Lau 15/9 kl. 20 Lau 22/9 kl. 20
KILLER JOE
Í kvöld kl. 20 Fim 20/9 kl. 20
DAGUR VONAR
Í kvöld kl. 20 Fös 14/9 kl. 20
HAUSTSÝNING Íd
Sun 16/9 kl. 20 Lau 22/9 kl. 20
POUL KREBS
Í kvöld kl. 21 Miðaverð 3.200
HÖRÐUR TORFA
Tónleikar fös 14/9 kl. 19:30 og 22:00
Miðasala 568 8000 - borgarleikhus.is
Norrænarsagnir
Í KVÖLD, FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 19.30
gul tónleikaröð í háskólabíói
Hljómsveitarstjóri ::: Esa Heikkilä
Einsöngvari ::: Ágúst Ólafsson
Kór ::: Selkórinn
Kórstjóri ::: Jón Karl Einarsson
Rued Langgaard ::: Sinfónía nr. 5
Carl Nielsen ::: Sögudraumur
Jón Þórarinsson ::: Völuspá
Jean Sibelius ::: Tapiola
545 2500 ::: WWW.SINFONIA.ISFyrsti konsert er frír
Skráning og upplýsingar á www.sinfonia.is
Strandgata 50, Hafnarfjörður
Pantanasími 555 2222 og á www.midi.is
Barnasýning ársins 2007
16. sept. sun. kl. 14
23. sept. sun. kl. 14
Aðeins örfáar sýningar!
MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200
MIÐASALA LA ER OPIN FRÁ KL. 13-17
W.LEIKFELWW AG.IS
ALA@LEIKFELAGMIDAS .IS
Óvitar!
Fjörleg fjölskyldusýning. Forsala hafin!
Kortasala í fullum gangi!
Frums. lau 15/9 kl. 20 UPPSELT
2. kortas sun 16/9 kl. 20 UPPSELT
3. kortas. fim 20/9 kl. 20 örfá sæti laus
4. kortas. fös 21/9 kl. 20 UPPSELT
5. kortas. lau 22/9 kl. 20 UPPSELT
6. kortas. fim 27/9 kl. 20 UPPSELT
7. kortas. fös 28/9 kl. 20 örfá sæti laus
8. kortas. lau 29/9 kl. 20 UPPSELT
Aukasýn. sun 30/9 kl. 20 í sölu núna
9. kortas. fim 4/10 kl. 20 UPPSELT
10. kortas. fös 5/10 kl. 20 örfá sæti laus
11. kortas. lau 6/10 kl. 20 örfá sæti laus
Næstu sýningar: 12/10, 19/10, 20/10, 26/10, 27/10
Ósóttar miðapantanir seldar daglega
Vertu fyrstur!
Má bjóða þér forskot á fimm
spennandi sýningar:
Óhapp! eftir Bjarna Jónsson
Konan áður eftir Roland Schimmelpfennig
Baðstofan eftir Hugleik Dagsson
Vígaguðinn eftir Yasminu Reza
Sá ljóti eftir Marius von Mayenburg
Fimm mið
ar
á forsýnin
gar
á 5000 kr.
Tryggðu þér sæti,
takmarkað framboð
Miðasala og sala áskriftarkorta á www.leikhusid.is og í síma 551 1200
Hann situr og er ekki beintmeð augun lokuð, en hálf-lukt þó. Ég sit á gólfinu,
hátíðarsalur Háskólans er troð-
fullur og setið er í gluggum, á
gólfi og einhverjir hlusta frammi á
gangi. Höfundurinn er kynntur og
ræðurnar sem og andrúmsloftið í
salnum er hátíðlegt – gjörólíkt há-
degisspjallinu sem ég sat með
Roddy Doyle fáeinum stundum áð-
ur. Samt er Doyle álíka þekktur
höfundur, en hann er einhvern
veginn einn af strákunum. Ef veðr-
ið hefði ekki verið svona slæmt
hefði ég sjálfsagt skotist í bjór
með Roddy að írskum sið – en
maðurinn sem við horfum öll á
virðist ekki vera á leiðinni á pöbb-
inn. Síðan stendur hann upp og
gengur að púltinu og salurinn
hristist af hlátri yfir byrjun fyr-
irlestrarins.
Fyrirlestrahaldarinn er JohnMaxwell Coetzee, nób-
elsverðlaunahafi í bókmenntum.
Hann fæddist í Suður-Afríku en
fékk nýlega ástralskan ríkisborg-
ararétt, en þangað flutti hann í
kringum aldamótin. Honum er tíð-
rætt um þjóðríkið og hvernig fólk
fæðist inn í ríkið og ráði engu þar-
um. Fyrirlesturinn er í raun nokk-
urs konar remix af nýjustu bókinni
hans, Diary of a Bad Year, og sá
grunur læðist að mér að Coetzee
hafi einfaldlega skipt um ríkisfang
í rannsóknarskyni fyrir bókina
sína. Vegna þess að í þá eilífu
þrætu um hvort skrif séu ævi-
söguleg eða ekki vantar oftast at-
hyglisverðasta þáttinn – getur ver-
ið að höfundar séu að gera
tilraunir á sjálfum sér? Þeir skrifi
ekki um upplifanir sínar heldur
leiti uppi þær upplifanir sem þá
vanti? Ævisögutúlkunin ofnotaða
er þó ekki aðalatriði á bók-
menntahátíðum, ekki heldur bæk-
urnar. Bækurnar eru í aðal-
hlutverki þegar við erum heima
hjá okkur að lesa, á bókmenntahá-
tíð snýst allt um höfundinn –
hvernig hann ber sig, hvort röddin
passi við röddina í hausnum á okk-
ur þegar við lásum, hvort við get-
um séð hann fyrir okkur bak við
ritvélina / tölvuna / skrifblokkina.
Coetzee er alvarlegur og hæg-látur, maður hefur hann
grunaðan um að lifa fyrir skáld-
skapinn. Hann leyfir sér vart ytra
líf því það innra er svo mikilvægt,
fjársjóðskistan er harðlæst.
Hann byrjar raunar á að segja
okkur frá því hve vonlaus fyrirles-
ari hann sé. Ástæðan? Hann trúir
ekki á fyrirlestraformið sem hann
segir byggjast á því að hafa skoð-
un. „Ég hafði ekki mikið álit á
skoðunum, þar á meðal þeirri
skoðun að ég ætti ekki að hafa
mikið álit á skoðunum.“ Vitaskuld
fjallar fyrirlesturinn nær eingöngu
um skoðanir Coetzee. Þær snúa
sem fyrr segir mikið að þjóðríkinu
en ekki síður lýðræðinu og tak-
mörkunum þess. Í staðinn fyrir
hinn eina möguleika einræðisríkja
séu komnir tveir möguleikar – og
stundum fleiri – en við erum ávallt
neydd til þess að velja eitthvað
eitt. Einn flokk, eina hugsjón, eina
lífssýn. Og hægt og rólega tekur
lýðræðið á sig flestar verstu mynd-
ir einræðisins.
En er ekki komið að örmummenningarblaðamanninum að
hafa skoðun? Jú, ég var í grunninn
sammála flestu sem Coetzee sagði,
en mér fannst eitthvað vanta. Það
vantaði blóðið og kjötið, það vant-
aði að gefa af sér. Það vantaði litlu
sögurnar og skrítnu, sérviskulegu
inspírasjónirnar, þetta voru að-
allega heimsmálin, Kurosawa, Tol-
stoj og Dostojevskí. Og það vant-
aði að lýsa salinn upp. Það ljós
virðist geymt á blöðum, læst inni í
bókum, og maður fær á tilfinn-
inguna að stærstu höfundarnir séu
bara rithöfundar og eingöngu rit-
höfundar. En síðan minnist maður
Roddy Doyle og eins Paul Auster
frá fyrri árum og veit að þessi
skoðun er hæpin. Hún gufar lík-
lega upp fyrir fullt og allt þegar
við J.M. fáum okkur einn kaldan
næst þegar ég á leið um Adelaide.
Skoðanir nóbelshöfundar
Morgunblaðið/Frikki
Einbeittur Sögur herma að Coetzee hafi einu sinni stokkið bros. En honum
tókst að kæta salinn í upphafi fyrirlestrar.
AF LISTUM
Ásgeir H Ingólfsson
»Hann leyfir sér vartytra líf því það innra
er svo mikilvægt, fjár-
sjóðskistan er harðlæst.
asgeirhi@mbl.is
SAKAMÁLAÞÆTTIRNIR Allir litir hafsins eru kaldir koma út á mynddiski
í dag. Þættirnir fjalla um lögmanninn Ara sem er skipaður verjandi síbrota-
manns sem grunaður er um morð og málið virðist liggja ljóst fyrir. Síbrota-
maðurinn reynist eiga systur, Millu, sem búið hefur erlendis og kemur til
landsins um leið og hún fréttir af málinu. Milla er sannfærð um sakleysi
bróður síns og að lögreglan sé á villigötum. Með aðstoð Ara fer hún að kanna
fortíð hins myrta og gamals viðskiptafélaga hans. Málin flækjast hins vegar
þegar Ari fer að efast um hinn raunverulega tilgang Millu.
Með hlutverk Ara og Millu fara Hilmir Snær Guðnason og Þórunn Lár-
usdóttir. Leikstjóri er Anna Th. Rögnvaldsdóttir.
Þættirnir voru sýndir í Sjónvarpinu í janúar árið 2006.
Nýja útgáfan inniheldur tvo geisladiska, annars vegar upprunalegu þætt-
ina þrjá, sem eru 45 mínútur hver að lengd, og hins vegar sérstaka níutíu
mínútna gerð verksins í heild sem hefur aldrei fyrr birst hér á landi.
Allir litir hafsins Þórunn Lárusdóttir og Hilmir Snær Guðnason.
Allir litir hafsins á mynddisk