Morgunblaðið - 03.12.2007, Síða 1
mánudagur 3. 12. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
Sviptingar í úrvalsdeildinni í körfuknattleik >> 4
VALSMENN ÁFRAM
LÖGÐU HAUKA Í ÆSISPENNANDI LEIK OG ERU KOMNIR
Í UNDANÚRSLIT BIKARSINS ÁSAMT AKUREYRI >> 8
ANNA Úrsúla Guðmundsdóttir var
valin í úrvalslið undanriðils Evrópu-
keppninnar í handknattleik en það
var tilkynnt að lokinni síðustu um-
ferð mótsins í Litháen í gær. Ís-
lenska liðið tryggði sér þar mjög
óvænt annað sætið með því að leggja
lið Hvíta-Rússlands að velli, 31:30. Á
laugardaginn hafði Ísland tryggt sér
eitt af þremur efstu sætunum og
sæti í umspili Evrópumótsins með
því að sigra Bosníu, 27:22.
Anna Úrsúla stóð sig frábærlega á
mótinu í Litháen en hún leikur sem
línumaður auk þess að vera í lykil-
hlutverki í varnarleik íslenska liðs-
ins.
Ísland er eitt af 20 liðum sem fara í
umspil um 10 sæti í úrslitakeppni
Evrópumótsins, en hún fer fram í
Makedóníu í desember á næsta ári.
Umspilið verður næsta vor og þá er
leikið heima og heiman. »5
Anna
valin í úr-
valsliðið
í Litháen
Ljósmynd/Hlynur Sigmarsson
Sigurgleði Leikmenn íslenska kvennalandsliðsins fagna óvæntum en sætum sigri á Hvít-Rússum í lokaumferðinni í Litháen í gær.
BRASILÍUMAÐURINN
Kaká var í gær út-
nefndur knatt-
spyrnumaður ársins í
Evrópu af franska
knattspyrnutímaritinu
France Football. Hann
hlaut Gullboltann, Bal-
lon d’Or, en það eru
íþróttafréttamenn víðs
vegar að úr heiminum
sem greiða atkvæði í
kjörinu.
Kaká var lykilmaður
í sigri AC Milan í Meist-
aradeild Evrópu síðasta
vor. Cristiano Ronaldo,
Portúgalinn í Man-
chester United, varð
annar í kjörinu og Lio-
nel Messi, Argent-
ínumaðurinn hjá Barce-
lona, hafnaði í þriðja
sæti.
„Þetta er mjög sér-
stakt fyrir mig og er
toppurinn á einstöku
ári á mínum ferli. Til að
vinna svona verðlaun
þarf maður að spila fyr-
ir lið á borð við AC Mil-
an, og það er frábært
að vera hluti af slíkri
liðsheild,“ sagði Kaká
við France Football.
Kaká fékk Gullboltann
Reuters
Bestur Kaká lyftir „Gullboltanum“ sem fylgir viðurkenning-
unni „besti knattspyrnumaður í Evrópu.“
ÍTALÍA og Frakkland, liðin
sem léku til úrslita um
heimsmeistaratitilinn í
knattspyrnu á síðasta ári,
drógust saman í riðil í úr-
slitakeppni EM 2008 í gær.
Þá var dregið í riðla keppn-
innar í Luzern í Sviss en
hún fer fram í Austurríki og
Sviss næsta sumar.
Hollendingar og Rúmenar
eru í riðli með Ítölum og
Frökkum og hann hefur
þegar fengið stimpilinn
„dauðariðill“ keppninnar.
Landsliðsþjálfarar Ítalíu
og Frakklands voru ekki yfir
sig ánægðir með útkomuna
úr drættinum.
„Það var ekki auðvelt að
komast áfram úr undan-
keppninni og svo fáum við
þessa mótherja. Ég hafði
það á tilfinningunni að þetta
gæti gerst og veit svo sem
ekki hvort það veit á gott
eða slæmt,“ sagði Roberto
Donadoni, þjálfari Ítala.
„Það er enginn fögnuður
sem fylgir því að hafa lent í
þessum riðli, en nú er búið
að draga og við verðum að
sætta okkur við niðurstöð-
una,“ sagði Raymond Dome-
nech, þjálfari Frakka, en
vonbrigði hans leyndu sér
ekki þegar honum varð ljóst
hvernig riðillinn væri skip-
aður.
Hollendingar voru í efsta
styrkleikaflokki fyrir drátt-
inn en gátu vart verið
óheppnari með útkomuna.
„Við þurfum að mæta Rúm-
enum sem voru okkur svo
erfiðir í undankeppninni, og
áður lendum við á móti Ítöl-
um og Frökkum. En við vit-
um þó hvað bíður okkar,“
sagði Marco van Basten,
þjálfari Hollendinga og Evr-
ópumeistari frá 1988.
Rúmenski þjálfarinn, Vic-
tor Piturca, var léttastur í
bragði. „Þetta er léttur rið-
ill,“ sagði hann og glotti, en
bætti svo við: „Þetta er erf-
iðasti riðillinn en jafnframt
sá sem er mest spennandi.“
Það eru Sviss og Tékkland
sem mætast í opnunarleikn-
um þann 7. júní en drátt-
urinn fór þannig:
A-riðill:
Sviss, Tyrkland, Portúgal,
Tékkland.
B-riðill:
Austurríki, Pólland,
Þýskaland, Króatía.
C-riðill:
Holland, Frakkland, Rúm-
enía, Ítalía.
D-riðill:
Grikkland, Rússland,
Spánn, Svíþjóð.
„Ég hafði þetta
á tilfinningunni“
Ítalía, Frakkland og Holland í sama riðli á EM 2008