Morgunblaðið - 03.12.2007, Side 4
4 MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Arnar Þór Við-arsson og
félagar í De
Graafschap töp-
uðu naumlega
fyrir toppliðinu
PSV Eindhoven,
0:1, í hollensku
úrvalsdeildinni í
knattspyrnu á
laugardaginn. Arnar var í byrjunar-
liðinu að vanda en var skipt af velli á
70. mínútu. Jefferson Farfan skor-
aði sigurmark PSV á lokamínútu
fyrri hálfleiks.
Grétar Rafn Steinsson lék allanleikinn með Alkmaar sem tap-
aði fyrir Twente á útivelli, 2:1, í gær.
Alkmaar er aðeins í 10. sæti deild-
arinnar og hefur ekki byrjað jafnilla
um árabil.
Jóhannes Karl Guðjónsson léksíðasta hálftímann með Burnley
þegar lið hans vann góðan útisigur á
Charlton, 3:1, í ensku 1. deildinni í
knattspyrnu á laugardaginn. Jó-
hannes Karl hefur því fengið tæki-
færi í fyrstu þremur leikjunum hjá
nýjum stjóra Burnley, Owen Coyle,
en forveri hans, Steve Cotterill,
hafði haldið Jóhannesi utan liðsins
síðan í lok ágúst.
Eggert Gunnþór Jónsson lékekki með Hearts vegna
meiðsla og Theódór Elmar Bjarna-
son var ekki í leikmannahópi Celtic
þegar liðin skildu jöfn, 1:1, í skosku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laug-
ardaginn.
Rúrik Gíslason og félagar í Vi-borg unnu góðan útisigur á
Randers, 2:0, í dönsku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu á laugardaginn.
Rúrik var í byrjunarliðinu og lék
sem kantmaður en var skipt af velli
á 66. mínútu þegar staðan var orðin
2:0.
Kári Árnason lék allan leikinnmeð AGF sem sigraði Midtjyl-
land á heimavelli, 2:0, í gær. Þetta
var fyrsti heimasigur AGF á tíma-
bilinu og liðið heldur sér þar með
fjórum stigum fyrir ofan Viborg sem
er í fallsæti.
Stefán Gísla-son var
fyrirliði Bröndby
sem gerði jafn-
tefli, 1:1, við FC
Köbenhavn á
Parken, frammi
fyrir 32 þúsund
áhorfendum, í
dönsku úrvals-
deildinni í gær. Stefán spilaði allan
leikinn. Bröndby fer í vetrarfríið í
níunda sæti af tólf liðum en hefur
braggast verulega undanfarnar vik-
ur eftir mjög slæma byrjun á keppn-
istímabilinu.
Arnór Smárason var í fyrstaskipti í leikmannahópi Heeren-
veen sem vann Nijmegen, 1:0, á úti-
velli í hollensku úrvalsdeildinni í
gær. Hann kom ekki við sögu í leikn-
um. Heerenveen er nú í fjórða sæti,
næst á eftir stórliðunum PSV, Ajax
og Feyenoord.
Eiður Smári Guðjohnsen lék í 70mínútur með Barcelona í
fyrrakvöld þegar liðið gerði jafntefli,
1:1, við Espanyol í nágrannaslag í
spænsku 1. deildinni í knattspyrnu.
Andrés Iniesta kom Barcelona yfir á
6. mínútu eftir magnaða rispu frá
Lionel Messi en Ferran Coro jafnaði
fyrir Espanyol um miðjan síðari
hálfleik. Eiður spilaði á miðjunni en
var ekki áberandi í leiknum. Barce-
lona er nú fjórum stigum á eftir Real
Madrid sem vann Racing Santander
3:1, þar sem Raúl skoraði tvívegis.
Fólk sport@mbl.is
Þetta var fyrsti sigur KR í Hveragerði
eftir þrjá tapleiki í röð og Benedikt var
ánægður með að hafa loksins brotið ís-
inn. „Já, okkur hefur gengið alveg
skelfilega í þessu húsi þannig að ég er
mjög ánægður. Um leið og KR labbar í
salinn eru Hamarsmenn á eldi þegar
þeir skjóta og það sást í upphafi. Þeir
fengu alveg svakalegt start og hittu
mjög vel. Þegar við komum til baka og
náðum yfirhöndinni bjóst ég við að við
myndum halda þetta út en svo glopr-
uðum við forystunni gjörsamlega úr
höndunum á okkur. Við vorum í góðri
stöðu í 4. leikhluta þegar við fórum að
taka fáránlegar ákvarðanir í sókninni.
Um leið fengu Hamarsmenn aukakraft
og þetta hefði getað dottið hvorum
megin sem var í lokin,“ sagði Benedikt
Eftir miklar sveiflur var lokakaflinn
æsispennandi. Hamarsmenn skoruðu
þá níu stig í röð og George Byrd jafn-
aði, 90:90 þegar 19 sekúndur voru eftir
af leiktímanum. Byrd fékk vítaskot að
auki sem ekki fór niður. Síðustu sókn
KR lauk með því að dómararnir dæmdu
villu á Marvin Valdimarsson. Darri
Hilmarsson skoraði úr öðru vítinu og
þegar rúmar tvær sekúndur voru eftir
á klukkunni héldu Hamarsmenn í sókn.
Byrd fékk boltann undir körfunni en
Helgi Magnússon gaf honum ekkert
pláss og skot Byrd var misheppnað.
Þetta var sérstakur leikur fyrir
Ágúst Björgvinsson, þjálfara Hamars.
Fyrir nokkrum vikum var hann aðstoð-
arþjálfari Benedikts en í gærkvöldi
voru þeir andstæðingar. Mikil bata-
merki hafa verið á Hamarsliðinu frá
komu Ágústs og var leikurinn í gær-
kvöldi tvímælalaust besti leikur Ham-
ars í langan tíma. „Við komum mjög
einbeittir og vel stemmdir í þennan
leik. Þetta er fyrsti leikurinn frá því ég
kem hingað í Hveragerði sem við náum
að spila í 40 mínútur af krafti. Við
misstum samt einbeitinguna á köflum
og þegar þreytan fór að segja til sín
skoruðu þeir auðveldar körfur, séstak-
lega í endann,“ sagði Ágúst eftir leik.
Brown breytir miklu fyrir ÍR
Bikarmeistarar ÍR eru ánægðir með
að endurheimta Bandaríkjamanninn
Nate Brown, sem varð bikarmeistari
með liðinu á síðustu leiktíð. Brown
kemur með aukinn hraða í leik liðsins
og var drjúgur gegn Garðbæingum í
gærkvöld, þar sem hann lék sinn fyrsta
leik með Breiðhyltingum í rúmlega
hálft ár.
,,Brown er toppleikmaður. Hann fell-
ur strax inn í þetta hjá okkur enda
þekkir hann okkar leik frá a til ö. Hann
keyrir okkur áfram eins og hann mögu-
lega getur. Það er fínt að sleðar eins og
Hreggviður Magnússon og Þorsteinn
Húnfjörð fá aðeins að hlaupa. Þannig er
líka skemmtilegast að spila körfubolta
og þannig viljum við spila. Við höfum
verið sérlega óheppnir með útlendinga í
haust en nú eru hlutirnir eins og við
viljum hafa þá. Það var svo sannarlega
ekki stefnan að vera í botnbaráttunni.
Með því að endurheimta Brown horfir
þetta hins vegar öðruvísi við, auk þess
eiga Eiríkur Önundarson og Steinar
Arason eftir að snúa aftur en þeir hafa
verið meiddir. Aðalmálið er að komast í
úrslitakeppnina og þar er tíminn til að
toppa. Vonandi verður þetta leikurinn
sem snýr dæminu við hjá okkur,“ sagði
bakvörðurinn, Sveinbjörn Claessen, í
samtali við Morgunblaðið en hann skor-
aði 25 stig fyrir ÍR sem sigraði 97:82.
Nýliðar Stjörnunnar hafa komið
mörgum á óvart með góðri frammi-
stöðu á þessari leiktíð. Stjarnan hefur
þó verið í vandræðum með útlendinga
rétt eins og ÍR og tefldi fram nýjum
Bandaríkjamanni í leiknum, Ca
Roland að nafni. Bragi Magnússon
þjálfari Stjörnunnar og hann var ró
ur að leiknum loknum þrátt fyrir
sinna manna ,,Roland breytti
miklu fyrir okkur í þessum leik þar
við nýttum okkur ekki krafta h
nægilega vel. Við kunnum ekki að s
sókn með sterkan miðherja því við
um ekki haft slíkan leikmann hingað
Þetta er sprækur strákur og sk
sínu mjög vel í kvöld. Við þurfum b
að æfa okkur betur saman,“ s
Bragi.
„Enn orðlaus
eftir hálfan
mánuð“
Morgunblaðið/Kristi
Slagur Calvin Roland, nýi Bandaríkjamaðurinn í liði Stjörnunnar, í baráttu vi
Hreggvið Magnússon, ÍR-ing. Hreggviður hafði betur og skoraði 31 stig.
„ÉG VEIT eiginlega ekki hvernig ég á
að tjá mig um svona stórfurðulegan
leik. Ef þú spyrð mig eftir hálfan mán-
uð verð ég örugglega ennþá orðlaus,“
sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari
KR, eftir eins stigs sigur Íslandsmeist-
aranna á Hamri í frábærum leik í
Hveragerði í gærkvöld. Lokatölur
voru 90:91 og leikurinn vægast sagt
sveiflukenndur.
Eftir Guðmund Karl Sigurdórsson
og Kristján Jónsson
KR slapp með skrekkinn í Hveragerði
Eftir Gylfa Árnason
Skallagrímur vann góðan sigur á
Njarðvíkingum, 90:82, í íþróttahúsinu í
Borgarnesi í gærkvöldi. Borgnesingar
komust þar með upp fyrir Njarðvíkinga
og í fjórða sæti deildarinnar en liðin
eru nú bæði með 10 stig eftir níu um-
ferðir.
Skallagrímsmenn náðu yfirhöndinni
fljótt í leiknum en í lok næstsíðasta leik-
hluta höfðu Njarðvíkingar náð að jafna
og komast yfir. Í síðasta leikhluta náðu
Skallagrímsmenn enn og aftur að sýna
góðan karakter og réðu ferðinni það
sem eftir lifði leiks og höfðu betur eins
og áður segir.
„Leikirnir vinnast að mínu mati fyrst
og fremst með varnarleiknum og á hon-
um getur þú byggt allt annað. Ég finn
að mikil vinna undanfarnar vikur er að
skila sér. Þetta var án efa besti leikur
liðsins til þessa,“ sagði Kenneth Webb
þjálfari Skallagrímsmanna í leikslok.
Það leyndi sér ekki að varnarleikur
heimamanna var á tíðum öflugur, sem
endurspeglaðist best í því þegar skot-
klukkan féll á Njarðvíkingana eftir
mikinn darraðardans. Darrel Flake var
með 19 fráköst og bar höfuð og herðar
yfir aðra leikmenn inni í teignum þótt
margir væru þeir hávaxnari en hann.
Milojica Zokovic, Skallagrími, er stöð-
ugt að sækja í sig veðrið – sýndi ágætan
leik og skoraði 27 stig og má heita að
hann hafi verið jafnbesti maður liðsins.
Einnig hafði barátta Óðins Guðmunds-
sonar og Hafþórs Gunnarssonar, sem
miðaði að því að halda Brenton Birm-
ingham niðri, mikið að segja. Hlutverk
litla snillingsins Alan Fall er stórt í lið-
inu. Hann hefur marga kosti, hann get-
ur hangið á boltanum, gefið óvæntar
sendingar, er góð þriggja stiga skytta
og tvinnar sig í gegn þegar á þarf að
halda. Þetta er liðinu dýrmætt, ekki síst
þar sem hópurinn er ekki stór.
Teitur Örlygsson, þjálfari Njarðvík-
inga, var að vonum ekki ánægður með
leik sinna manna. „Þeir voru betri en
við á flestum sviðum, inni í teig vorum
við alveg jarðaðir, og fyrir utan áttu
við einnig í basli, síðast en ekki síst v
engin sigurlöngun hjá mínum mönn
Ef við þetta bætist svo hörmuleg vít
skotanýting þá er ekki von á góðu. É
sé ekki fram á annað en það verði að
bæta við öðrum útlendingi ef við ætl
okkur eitthvað í vetur,“ sagði Teitur
ennfremur.
Það var helst Sverrir Sverrisson,
Njarðvík, sem dreif áfram sína menn
kom þeim inn í leikinn í þriðja leikhl
en það dugði ekki til. Aðrir leikmenn
voru langt frá sínu besta og Brenton
náði sér aldrei almennilega á strik n
aðrir reyndir leikmenn eins og Friðr
Stefánsson og Jóhann Ólafsson.
„Leikir vinnast á varnarleiknum“
JALIESKY Garcia skoraði 5 mörk og var markahæstur í liði Göppingen ásamt
tveimur öðrum þegar það lagði Essen að velli, 24:21, í þýsku 1. deildinni í handknatt-
leik í fyrrakvöld. Garcia, sem er fyrirliði Göppingen, skoraði fjögur markanna í síðari
hálfleik en lið hans styrkti stöðu sína í efri hluta deildarinnar með sigrinum.
Róbert Gunnarsson skoraði 6 mörk fyrir Gummersbach sem vann Melsungen á
útivelli, 38:35, á laugardaginn. Sverre Jakobsson skoraði ekki fyrir Gummersbach og
Guðjón Valur Sigurðsson var ekki í leikmannahópnum en hann er að jafna sig af
meiðslum í öxl. Roman Pungartnik skoraði hvorki meira né minna en 14 mörk fyrir
Gummersbach, ekkert þeirra úr vítakasti.
Einar Hólmgeirsson náði ekki að skora fyrir Flensburg sem vann Magdeburg,
34:28. Alexander Petersson lék ekki með Flensburg.
Einar Örn Jónsson skoraði 2 mörk fyrir Minden sem steinlá fyrir Rhein-Neckar
Löwen, 41:26.Leik Grosswallstadt og Wilhelmshavener var frestað til 18. desember
þar sem átta leikmenn Wilhelmshavener, þar á meðal Gylfi Gylfason, voru ekki leik-
færir. Nordhorn vann góðan sigur á Kiel, 34:29, og er komið að hlið Flensburg á
toppi deildarinnar með 25 stig en Kiel situr eftir í þriðja sætinu með 24 stig.
Garcia og Róbert drjúgir
SNÆFELL gerði sér lítið fyrir og stöðvaði sigurgöngu
Grindvíkinga í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöld
með því að skella þeim á eigin heimavelli, 95:82. Grindvík-
ingar höfðu unnið sjö leiki í röð, eftir að hafa beðið lægri h
gegn Keflavík í fyrstu umferðinni í haust. Snæfell hafði af
á móti tapað fimm af fyrstu átta leikjum sínum í deildinni.
Leikurinn var í jafnvægi lengi vel og staðan var 51:51 í
hálfleik. Snæfell náði undirtökunum í þriðja leikhluta og v
yfir, 76:68 að honum loknum, og jók forskotið enn á loka-
kafla leiksins.
Hlynur Bæringsson átti stórleik með Snæfelli, skoraði 2
stig og tók 13 fráköst. Sigurður Á. Þorvaldsson var einnig
mjög drjúgur, skoraði 23 stig og tók 9 fráköst og Justin Shouse lagði sitt af
mörkum en hann skoraði 23 stig og átti 7 stoðsendingar. Hjá Grindvíkingum
var Þorleifur Ólafsson atkvæðamestur og skoraði 21 stig en Jonathan Griffin
gerði 17 og Páll Axel Vilbergsson 13.
Snæfell skellti Grindavík
Hlynur
Bæringsson