Morgunblaðið - 03.12.2007, Page 5
alvin
n er
óleg-
tap
ekki
sem
hans
spila
höf-
ð til.
kilaði
bara
agði
inn
ið
um
var
num.
a-
Ég
ð
lum
r
n og
luta
n
n
né
rik
d
-
hlut
ftur
.
var
27
g
m
n
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007 5
Heiðmar Fel-ixson var
rekinn af leikvelli
á 35. mínútu fyrir
grófan varnarleik
í gær þegar lið
hans, Burgdorf,
gerði jafntefli á
heimvelli við
Emsdetten í
norðurhluta þýsku 2. deildarinnar í
handknattleik, 26:26. Heiðmar hafði
áður skorað eitt mark. Burgdorf er í
6. sæti með 17 stig eftir 14 leiki.
Sigurður Ari Stefánsson varmarkahæstur hjá Elverum með
átta mörk þegar liðið vann stórsigur
á Kragerø, 39:26, í norsku úrvals-
deildinni í handknattleik í gær. Ingi-
mundar Ingimundarson skoraði
fjögur mörk fyrir Elverum en Sam-
úel Ívar Árnason komst ekki á blað
hjá liðinu, sem Axel Stefánsson
þjálfar. Magnús Ísak Ásbergsson
skoraði fimm marka Kragerø-
liðsins. Elverum er í 8. sæti af 12 lið-
um með 10 stig að loknum 11 leikj-
um. Kragerø rekur lestina án stiga.
Spænska handknattleiksliðiðAdemar León hefur gert
skammtímasamning við brasilíska
línumanninn Carlos Luciano Ertel.
Hann á að hlaupa í skarðið fyrir Sig-
fús Sigurðsson til áramóta en Sigfús
þurfti að gangast undir aðgerð í síð-
ustu viku. Ademar vann í gær sigur
á Valladolid, 29:27, og er í fimmta
sæti spænsku 1. deildarinnar. Árni
Sigtryggsson náði ekki að skora fyr-
ir Granollers sem vann Algeciras,
35:30, og lyfti sér upp í 11. sæti.
Portland sigraði Barcelona,27:26, í stórleik spænsku 1.
deildarinnar í fyrrakvöld en þar
skoraði Christian Malmagro sigur-
markið á síðustu sekúndu leiksins.
Fyrir vikið eru Ólafur Stefánsson
og félagar í Ciudad Real með
þriggja stiga forystu, með 22 stig, en
síðan koma Barcelona með 19 stig,
Aragón og Portland með 18 stig og
Ademar León með 16 stig.
ValdimarÞórsson
skoraði fjögur
mörk og Guð-
laugur Arnars-
son eitt þegar HK
Malmö tapaði
fyrir fyrir Red-
bergslid, 28:21, á
heimavelli í
sænsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik í gærkvöldi.
Franski ökuþórinn SebastienLoeb landaði í gær sínum
fjórða heimsmeistaratitli í röð í rall-
akstri, er hann varð þriðji í velska
rallinu á Citroen-bifreið sinni. Loeb
er þar með kominn í hóp með Finn-
unum Juha Kankkunen og Tommi
Makinen, sem einnig hafa sigrað
fjórum sinnum.
Fólk folk@mbl.is
Sigurinn á Hvít-Rússum tryggði ís-
lenska landsliðinu annað sætið í riðl-
inum en þrjár efstu þjóðirnar kom-
ast áfram í fyrrgreinda umspilsleiki
sem fram fara í lok maí og í byrjun
júní á næsta ári. Dregið verður um
hvaða þjóðir mætast í umspilinu 16.
desember í París, á lokadegi heims-
meistaramóts kvenna sem hófst þar
í gær. „Mótið hófst skelfilega hjá
okkur með stórtapi fyrir Litháum en
lauk með sannkölluðum glæsibrag,“
sagði Júlíus glaðbeittur en hann
þjálfar landsliðið ásamt Finnboga
Grétari Sigurbjörnssyni.
„Fyrir leikinn við Hvít-Rússa
sagði ég við stúlkurnar að þrátt fyrir
að við værum búin að ná takmarkinu
yrðum við að fara í leikinn af fullri
ferð og freista þess að vinna. Það
hefði mikil sálfræðileg áhrif að ná
öðru sætinu í riðlinum fremur en því
þriðja. Þetta gekk eftir og ég er afar
hamingjusamur maður eins og allir
leikmenn liðsins eru einnig eftir að
hafa leikið fimm erfiða leiki á sex
dögum og unnið fjóra þeirra. Mér
skilst á leikmönnum að þeir hafi
aldrei unnið fjóra leiki í röð með
landsliðinu svo það hefur náð góðum
áfanga með sigrinum á Hvít-Rúss-
um,“ sagði Júlíus ennfremur sem
ásamt leikmönnum hefur unnið
hörðum höndum að því að byggja
landsliðið upp. Margir leikmanna
þess eru lítt reyndir í alþjóðlegum
handknattleik og er meðalaldur
landsliðsins nú 21,7 ár að sögn Júl-
íusar.
Vörnin og markvarslan frábær
„Ég er mjög ánægður með sig-
urinn á Hvít-Rússum sem gert höfðu
jafntefli við Litháa sem við töpuðum
fyrir með 16 marka mun. Leikurinn
var eins og ég reiknaði með mjög
erfiður en stúlkurnar sýndu mikinn
styrk og gáfust aldrei upp þrátt fyrir
að lenda undir, m.a. fjórum mörkum
í hálfleik, 15:19. Í síðari hálfleik gekk
vörnin mun betur hjá liðinu og
markvarslan var líka framúrskar-
andi hjá Berglindi [Írisi Hansdótt-
ur]. Við jöfnuðum leikinn í síðari
hálfleik og síðustu tíu mínúturnar
var kurr í leikmönnum Hvít-Rússa,
greinilegur hiti og stress og ótti við
að tapa fyrir okkur þar sem við vor-
um komin með tveggja til þriggja
marka forskot,“ sagði Júlíus en ís-
lenska liðið náði að vinna síðari hálf-
leik, 16:11, og sigra í leiknum með
eins marks mun, 31:30.
„Hvít-Rússar hafa á að skipa mun
hávaxnara og reyndara liði en við.
Tíu leikmenn eru yfir 1,80 metrum,
þar af eru fjórir yfir 1,84 metrum
sem þýðir mjög hávaxnar konur. Að-
eins einn leikmaður okkar liðs er yfir
1,80 þannig að munurinn var mikill.
Segja má að varnarleikurinn og
markvarslan hafi verið frábær í
tveimur síðustu leikjunum, gegn
Bosníu og Hvít-Rússum. Um leið
fengum við mörg hraðaupphlaup
sem gáfu mikilvæg mörk. Sóknar-
leikurinn gekk vel á köflum einnig
þar sem við fengum góð mörk utan
af velli. En í heildina var það varn-
arleikurinn og markvarslan sem
lagði grunninn að árangrinum,“ seg-
ir Júlíus sem segir að íslenska liðið
hafi hagnast mikið á því að innan
raða þess séu 16 góðir leikmenn sem
allir hafi tekið jafna ábyrgð, hægt
hafi verið að jafna álaginu á alla leik-
menn sem hafi svo sannarlega skilað
sér þegar á keppnina leið og þreyta
fór að segja til sín.
Nú taka við umspilsleikir í vor um
sæti á HM sem fram fer í Makedón-
íu í byrjun desember á næsta ári.
Júlíus segir að nú verði að byggja of-
an á þá reynslu sem hafi fengist í
riðlakeppninni í Litháen og búa
landsliðið vel undir það verkefni sem
er framundan. „Þessi árangur hefur
gríðarlega þýðingu fyrir liðið, nú
hafa stúlkurnar sannað það fyrir
sjálfum sér að þær geta unnið sterk-
ar handknattleiksþjóðir og þannig
náð settum markmiðum og kannski
rúmlega það,“ sagði Júlíus Jónas-
son, landsliðsþjálfari kvenna í hand-
knattleik.
Mótið hófst skelfilega
en lauk með glæsibrag
Í úrvalsflokki Anna Úrsúla Guðmundsdóttir sem var veik í upphafi keppninnar í Litháen hristi það fljótlega af sér
og lék svo vel að hún var valinn í úrvalslið mótsins sem tilkynnt var í mótslok í gær.
„VIÐ þjálfararnir erum ákaflega
stoltir af liðinu að lokinni þessari
keppni, ekki bara vegna þess að
það náði takmarkinu heldur gerði
gott betur en það,“ sagði Júlíus
Jónasson, landsliðsþjálfari kvenna í
handknattleik í gær, eftir sigur á
Hvít-Rússum, 31:30, í lokaleik ís-
lenska landsliðsins í forkeppni
Evrópumótsins í Penevezys í Lithá-
en. Sigurinn á Hvít-Rússum er góð
búbót fyrir íslenska liðið sem hafði
á laugardaginn, með sigri á Bosníu,
27:22, tryggt sér sæti í umspils-
leikjum þar sem útkljáð verður um
um keppnisrétt á EM sem fram fer í
Makedóníu eftir ár.
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Ísland komið í umspil EM eftir sigra á Bosníu og Hvíta-Rússlandi
ALEXANDER Petersson, landsliðsmaður í
handknattleik, lék ekki með Flensburg um
helgina vegna ökklameiðsla en liðið er komið
á toppinn í þýsku 1. deildinni. Flensburg
lagði Magdeburg 34:28 og komst upp fyrir
Kiel sem tapaði fyrir Nordhorn. Einar
Hólmgeirsson tók lítinn þátt í leiknum og var
ekki meðal markaskorara.
Alexander sneri sig á ökkla fyrir tveimur
vikum en vonast er til að hann verði leikfær
þegar Flensburg mætir Rhein-Necker Lö-
wen eftir hálfan mánuð. Liðband í ökklanum
er skaddað en slitnaði ekki og því þarf fyrst og fremst að gefa
bólgunni tíma til að hjaðna. Ekkert verður leikið í þýsku 1.
deildinni um næstu helgi vegna vináttulandsleikja hjá þýska
landsliðinu.
Alexander ekki með
Alexander
Petersson
RAGNAR Óskarsson fór meiddur af leik-
velli þegar lið hans, Nimes, vann Istres á
útivelli, 27:25, í frönsku 1. deildinni í hand-
knattleik í fyrrakvöld. Ragnar byrjaði leik-
inn með látum og skoraði fjögur mörk úr
fimm skottilraunum á fyrstu tuttugu mín-
útunum. Þá varð hann hins vegar fyrir því
óláni að fá högg á hnéð og kom ekki meira
við sögu. Ragnar tjáði Morgunblaðinu að
hann hefði verið í vörn þegar atvikið átti
sér stað. Leikmaður Istres hljóp á hægri fót
Ragnars og kom við það hnykkur á hnéð. Ragnar fer í óm-
skoðun í vikunni og þá fæst væntanlega úr því skorið hvort
um alvarleg meiðsli er að ræða. Ragnar sleit krossbönd í um-
ræddu hné haustið 2002. Nimes er nú í 4.–8. sæti með 12 stig
eftir 11 umferðir.
Ragnar meiddist
Ragnar Óskarsson
EMIL Hallfreðsson, landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, fór meiddur af leikvelli í hálfleik þeg-
ar lið hans, Reggina, tapaði 3:0 fyrir Sam-
pdoria í ítölsku A-deildinni á
laugardagskvöldið. Emil fékk þungt högg á
lærið undir lok fyrri hálfleiks þegar varn-
armaður Sampdoria setti hnéð í læri Emils:
,,Lærið er tvöfalt í dag enda segja læknarnir
að mikil blæðing sé inn á vöðvann. Þetta er
þó ekkert stórmál og vonandi mun það ekki
taka marga daga að jafna sig á þessu,“ sagði
Emil í samtali við Morgunblaðið í gær. Ekki er víst að Emil
missi af neinum leik hjá Reggina en leik liðsins gegn AC Milan,
sem fara átti fram um næstu helgi, hefur verið frestað vegna
þátttöku Milan í heimsmeistarakeppni félagsliða. Það eru því
tæpar tvær vikur í næsta leik hjá Reggina.
,,Lærið er tvöfalt“
Emil Hallfreðsson
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
handknattleik er eitt 20 liða sem
taka þátt í umspili Evrópukeppn-
innar í vor. Níu lið komust áfram úr
undanriðlum þar sem keppni lauk
um helgina.
Auk Íslands er um að ræða eft-
irtaldar þjóðir: Hvíta-Rússland,
Litháen, Slóvakíu, Portúgal, Svart-
fjallaland, Tékkland, Tyrkland og
Ítalíu.
Ellefu þjóðir fóru beint í umspilið
og þurftu ekki að taka þátt í und-
ankeppninni. Ljóst er að mótherji
Íslands kemur úr þeim hópi en í
honum eru eftirtalin lið:
Austurríki, Króatía, Danmörk,
Spánn, Holland, Pólland, Rúmenía,
Slóvenía, Serbía, Svíþjóð og Úkra-
ína.
Þessi 20 lið leika um 10 sæti í úr-
slitakeppni EM sem fram fer í
Makedóníu í árslok 2008. Sex lið
fara beint í úrslitakeppnina en auk
gestgjafanna í Makedóníu eru það
Þýskaland, Frakkland, Rússland,
Noregur og Ungverjaland.
Tuttugu lið leika um 10 sæti á EM