Vikublaðið - 24.02.1997, Blaðsíða 6

Vikublaðið - 24.02.1997, Blaðsíða 6
(BtiíMJllfjQ 24. febrúar 1997 I ✓ Asama tíma og ráða- menn láta út úr sér stóryrtar yfírlýsingar um vímuefnalaust ísland árið 2002 er gríðarleg aukning á neyslu eiturlyfja hér- lendis. Menn tala jafnvel um faraldur og holskeflu. Foreldrar standa ráðþrota og óttaslegnir frammi fyr- ir vandanum og stjórn- völd vita ekki í hvorn fót- inn þau eiga að stíga. Vandamálið endurspegl- ast í fjölgun harðra glæpa á götum úti og auknum innlögnum eiturlyfjaneyt- enda inn á Vog. Þó ekki hvað síst í þeirri stað- reynd að aldur neytenda fer hríðlækkandi þannig að um börn er að ræða í verstu tilfellunum. Hvar liggur vandinn? Þetta er samfélagsvandamál þar sem rótin liggur hjá for- eldrum og skólum, segir Mummi í Mótorsmiðj- unni. Auknar forvarnir, hertar refsingar og fjölg- un í löggæslu eru lausn- irnar, segir ríkisvaldið. Á milli áranna 1989 og 1996 jókst fjöldi einstaklinga yngri en 20 ára á Vogi um 130%. Þar af var yfir helm- ingur þeirra stómeytendur á kanna- bisefni og amfetamín. Þetta er mjög áberandi aukning úr hverjum árgangi sem leitar sér meðferðar. Flest er þetta barnunga fólk mjög illa statt vegna mikillar vímuefnanotkunar og alvarlegust er þróunin vegna mis- notkunar amfetamíns sem aftur er rakin til neyslu E-pillunnar. Því er ekki orðum aukið að tala um amfet- amínfaraldur og að þetta sé skæðasta heilbrigðis- og þjóðfélagsvandamál samtímans. Ábyrgðin er ráðamanna og þeirra sem halda utan um vímu- efnamál þjóðfélagsins. Er lögleiðing lausn eða uppgjöf samfélagsins? Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor hefur bent á að ein lausnin í baráttunni gegn ólöglegum fíkniefn- um gæti verið að lögleiða þau, leið sem fáir hafa viljað fara. „Það er tví- skinnungur í stefnu stjórnvalda í fíkniefnamálum þar sem þau banna sum fíkniefni en leyfa önnur og jafn- vel selja þau sjálf. Það má segja að minn ágæti vinur og nágranni Friðrik Sophusson sem er yfirmaður áfengis- og tóbaksverslunar nkisins sé stærsti eiturlyfjasali landsins. Þegar því er velt upp hvort eigi að banna eða leyfa önnur eiturlyf en þau sem nú eru leyfð þ.e. áfengi og tóbak, þurf- um við að velta fyrir okkur hvort sé verra, afleiðingamar af því að banna slík lyf eða afleiðingamar af þvf að leyfa þau,” segir Hannes. Yrði neysluaukningin ekki gríðar- leg? „Ef við leyfum slík lyf þá geri ég ráð fyrir að neyslan verði ívið meiri en það hefur líka ýmsa kosti. í fyrsta lagi fer lögreglan að sinna því sem hún á að gera, að vemda eigna- réttinn og vernda borgarana fyrir misyndismönnum. í öðm lagi hættir að vera til svartamarkaður og í þriðja lagi lækka eiturlyfin stórkostlega í verði svo að neytendur þeirra eru ekki lengur knúðir til að fremja glæpi til að kosta neysluna. Glæpimir em aðallega vegna þess að eiturlyfin em svo dýr. Þau eru svona dýr vegna þess að ríkið bannar innflutning á þeim. Þetta má því rekja til ríkisaf- skipta eins og mörg önnur manna mein. Sjálfur er ég andvígur neyslu fíkniefna. Með neyslu þeirra eru menn að fremja hægfara, andlegt sjálfsmorð í stað þess að takast á við vanda lífsins.” „Samfélagið allt flýtur sofandi að feigðarósi þegar kemur að eitur- lyfjavandanum. Það er eins og fólk átti sig ekki á því hvað þetta er viða- mikið og útbreitt vandamál fyrr en það lendir sjálft í persónulegum harmleikjum þessu tengt.“ Hvað varðar lögleiðingu eiturlyfja sem lausn á vandanum segir Þórarinn Tyrfmgsson yfirlæknir á Vogi: „Með fullri virðingu fyrir Hannesi Hólm- steini og Emmu Bonino þá eiga þau ekkert með að vera að úttala sig um flókinn heilbrigðisvanda sem þau hafa alls ekki vit á. Þetta er allt ann- ars eðlis en að það sé hægt að leysa með einhverjum alhæfingum. Það getur vel komið til greina að breyta lögum í þessum málum ef það á við. Það á ekki við á íslandi.” Það er mál flestra að lögleiðing eit- urlyfja sé hin fullkomna uppgjöf gagnvart vandanum og stórt skref frá Hannes: „Ég geri ráð fyrir að neyslan yrði meiri en það hefur líka ýmsa kosti að leyfa eitur- lyf’ Þórarinn: „Það verður ekkert gert án aukinna fjár- framlaga, við sitjum í súpunni og verðum að sinna því fólki sem á í vanda” Mummi: „Það finna sér allir leið til að lifa af í vond- um heimi” „siðmenningunni. „Þá væri verið að viðurkenna hrikalega hraðvirka tor- tímingaraðferð sem viðtekin og við- urkennd gildi í samfélaginu,” eins og einn viðmælenda Vikublaðsins komst að orði. En hverjar eru þá leið- imar? Leiðir stjórnvalda í skýrslu dómsmálaráðherra til Al- þingis um aðgerðir ríkisstjómarinnar í fíkniefna- og áfengisvörnum sem var lögð fram í lok síðasta árs em tí- undaðar þær leiðir sem stjórnvöld hyggjast fara í baráttunni gegn fíkni- efnum. Verkefnisstjórn sem dóms- málaráðherra skipaði til að vinna að ávana- og fíkniefnavörnum skilaði inn tillögu í átta liðum. Þar er m.a. lagt til að foreldrar verði virkjaðir til að vinna með lögreglu og auknum upplýsingum verði komið á framfæri til þeirra. Sjálfræðisaldurinn verði hækkaður í 18 ár, lögreglumönnum við ávana- og fíkniefnadeildina verði fjölgað og komið verði á samvinnu löggæslu og tollyfirvalda. Auk þess er mælt með meðferðarúrræðum fyrir brotamenn sem jafnframt eru háðir fíkniefnum. Kjarninn er efling for- vama og fjölgun í löggæslu. En mun þetta skila raunverulegum árangri? Þórarinn Tyrfingsson: „Eg hef ekkert legið á þeirri skoðun minni að það þurfi að taka verulega á í for- varnarmálum en það er ekki gert nema með fjárframlögum. Ég hef litla trú á að við stjómum þessu þjóð- félagi með lögum og reglugerðum, það verður að koma til fjármagn til þeirra sem hlúa að þessum málum. í þessar tillögur vantar allar stofnanir sem tilheyra heilbrigðisráðuneytinu. Það hefur allt of lítið látið til sín taka í þessum málum. Hinsvegar verður sá vandi sem nú er skollinn á ekki leystur með forvömum. Við sitjum í súpunni eins og sagt er og það verður að sinna því.” Vandinn liggur hjá heimilum og skólakerfinu Mummi í Mótorsmiðjunni hefur náð góðum árangri í meðferð ungra vímuefnaneytenda. Sér hann lausn í sjónmáli? „Efling lög- og tollgæslu er engan veginn lausnin. Ég trúi á hina leiðina sem er að uppræta mark- aðinn og þar emm við með allt niður um okkur, bæði skólakerfið og fé- lagsmálastofnanir. Ég veit ekki hverjum datt í hug yfirlýsingar eins og eiturlyfjalaust ísland árið 2002. Það er gjörsamlega óraunhæf hug- mynd, göfugt markmið en ég sé ekk- ert sem sýnir raunverulegan vilja til slíkra hluta. Ég held að allir einstaklingar finni sér einhverja leið til að lifa af í vond- um heimi. Þá er spumingin hvað ég vel mér. Vímuefni, tölvu eða kynlíf til að krydda innantóma tilveru og vanlíðan. Allur vímuefnavandinn eins og hann leggur sig, ásamt glæp- unum er afleiðing af ákveðnu þjóðfé- lagsástandi. Vandinn liggur í uppeldi og umhverfi barnanna. Fólk með skýra sjálfsmynd og allt á hreinu fer ekki að nota eiturlyf. Við vitum öll að dóp er hættulegt og afbrot nei- kvæð en samt gemm við það. Það á að einblína á uppeldisþáttinn og gera foreldrum kleift að sinn uppeldi bama sinna.” En stendur kerfið sig? „Ég segi fullum fetum að skólakerfið er mikil- væg uppeldisstofnun en snýst upp í Ég hef litla trú á að við stjórnnm þessu þjóðfélagi með lög- um og reglugerðum, það verður að koma til fjármagn til þeirra sem hlúa að þessum málum. andhverfu sína þegar 30 nemendum er hrúgað í bekk. Þá fær hver nem- andi 1 mín. og 25 sek. að meðaltali. Skólinn er besti staðurinn til að taka á þessum málum. Eins og hann er uppbyggður núna getur hann ekki sinnst þessu hlutverki sínu Kennari fullur af eldmóði og vilja hefur ekk- ert rými til að taka á vandanum. Hann er neyddur til að horfa að- gerðalaus á fólkið fara í súginn. Vandamálið er ekki krakkamir, held- ur fullorðna fólkið og samfélagið allt.” Mín krossferð er farin til að benda á þessa staðreynd. Það má greina ákveðna vanlíðan hjá börnunum mjög snemma sem bendir til þess að síðar meir gætu þau verið í áhættu- hópi hvað varðar misnotkun eitur- lyfja. Hvað gemm við ef okkur líður illa? Við reynum að deyfa okkur. Þá veljum við til þess einhverja leið,” segir Mummi. Ábyrgðin er stjórnvalda I ljósi mikillar aukningar á eitur- lyfjaneyslu síðustu árin hlýtur sú spurning að vakna hvort stjómvöld séu að bregðast skyldu sinni í barátt- unni gegn vímuefnabölinu og hvort nóg sé gert. Hreinn Hreinsson er félagsráðgjafi hjá Hafnarfjarðarbæ. Er vandinn að aukast? „Samfélagið allt flýtur sof- andi að feigðarósi þegar kemur að eiturlyfjavandanum. Það er eins og fólk átti sig ekki á því hvað þetta er viðamikið og útbreitt vandamál fyrr en það lendir sjálft í persónulegum harmleikjum þessu tengt. Ég hef starfað sem félagsráðgjafi um nokk- urra ára skeið og það virðist sem gríðarleg aukning hafi átt sér stað í neyslu eiturlyfja á þessum tíma. Þetta er hlutur sem á eftir að höggva að rótum þeirra gilda sem þjóðfélagið byggir á ef stjórnvöld taka ekki við sér og fara frá orðum til aðgerða. Ábyrgðin er jú að sönnu þeirra að breyta þeim aðstæðum sem leiða fólk út í neyslu eiturlyfja,” segir Hreinn. bgs

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.