Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.2008, Qupperneq 1
lesbók
TVÆR NÝJAR SINFÓNÍUR
ATLI HEIMIR OG JOHN SPEIGHT SEGJA SÖGUR AF STRÍÐI OG
FRELSI Í SINFÓNÍUM SEM FRUMFLUTTAR VERÐA Í VIKUNNI>> 12
Hvað það er mikið happ að Reykjavík skuli vera svona lítil, sæt og friðsöm » 2
Árvakur/Golli
Þursar snúa aftur Þursaflokkurinn heldur tónleika 16. febrúar eftir langt hlé og af því tilefni kemur út kassi með öllum útgefnum plöt-
um þeirra auk áður óútgefins efnis. Arnar Eggert Thoroddsen ræðir við Egil Ólafsson og Tómas Tómasson um sögu Þursaflokksins. »4
Eftir Þröst Helgason
vitinn.blog.is
Kvikmyndin Darjeeling Limited eftir WesAnderson, sem Græna ljósið sýnir nú íRegnboga og Háskólabíói, hefst á stutt-mynd. Í henni segir frá manni sem hefur
sest að í rándýru hótelherbergi á besta stað í París
til þess eins, að því er virðist, að láta dagana líða og
losna frá lífinu sem plagar hann. Og þar sem hann
liggur uppi í rúmi einn daginn og drepur tímann
með sjónvarpsglápi hringir síminn, það er unnustan
sem hann hafði yfirgefið, hún hefur haft uppi á hon-
um, er lent á flugvellinum í París og er á leiðinni á
hótelið. Hálftíma síðar hefst uppgjör þeirra sem er
lágstemmt og lýsir samskiptum fólks sem skilur
hvorki hvað aðskilur þau né tengir.
Maðurinn á hótelherberginu, Jake, er einn
þriggja bræðra sem segir frá í kvikmyndinni sjálfri.
Þeir hittast á Indlandi til þess að finna sjálfa sig og
tengslin sín á milli. Þegar líður á myndina kemur í
ljós að allir eiga þeir í einhvers konar kreppu: Jake
hefur flúið heiminn, Peter á von á barni með konu
sem hann taldi sig ætla að skilja við og Francis
sleppur rétt svo lifandi úr mótorhjólaslysi sem fær
hann til þess að reyna að sameina sundraða fjöl-
skylduna upp á nýtt. Í ljós kemur að stuttmyndin
segir í raun sömu sögu og kvikmyndin. Enginn í
Darjeeling Limited skilur samband eða sam-
bandsleysi sitt við annað fólk.
Og eftir myndina situr áhorfandinn uppi með
ýmsar fleiri spurningar: Hvers vegna þessi stutt-
mynd? Hvers vegna missir Bill Murray af Darjeel-
ing-lestinni í upphafi myndarinnar og þar með af
þessari mynd? Hvers vegna eru sumir með en aðrir
ekki? „Ekki telja mig með,“ segja þeir bræður ítrek-
að þegar á að hafa þá með í einhverju. Hvernig
tengjast hlutirnir? Hvernig vinir hefðu þeir bræður
orðið ef þeir hefðu ekki verið bræður heldur bara
fólk, eins og einn þeirra spyr.
Þeir sem hafa áhuga á þessum spurningum og
ekki svörum fari á þessa mannlegu mynd.
Kreppubræður Frábærlega leiknir af Jason
Schartzman, Owen Wilson og Adrien Brody.
Ekki telja
mig með
MENNINGARVITINN
Laugardagur 2. 2. 2008
81. árg.