Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.2008, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
E
invalalið , leitt af Agli
Ólafssyni, skipaði flokk-
inn sem átti fremur
snarpan en gjöfulan fer-
il; þrjár breiðskífur, eina
hljómleikaplötu auk tón-
listar við leikrit, söng-
leikinn Gretti, ballettinn
Sæmund Klemensson og kom auk þess fram í
tveimur sjónvarpsþáttum. Þá var sveitin með
iðnustu tónleikasveitum hérlendis. Meðlimir,
sem voru í kringum 25 ára aldurinn er sveitinni
var hleypt af stokkunum, áttu varla bót fyrir
brók á meðan sveitin lifði en hrein og heiðarlega
ástríða fyrir tónlistinni rak þá linnulaust áfram.
Áðurnefndur safnkassi inniheldur auk upp-
runalegu platnanna plötu sem hefur fengið heit-
ið Ókomin forneskjan. Þar er fram komin, í
fyrsta skipti, hin fræga „týnda“ plata hljóm-
sveitarinnar sem byrjað var á árið 1984 en datt
ítrekað á milli þilja af ýmsum ástæðum. Fleira
sjaldgæft og óheyrt prýðir þennan aukadisk,
sem verður að teljast sannkallaður hvalreki fyr-
ir aðdáendur Þursa og reyndar fyrir áhugafólk
um íslenska dægurtónlist almennt.
Takturinn tekinn í burtu
„Á þessum tíma var engin Loftbrú, engin út-
flutningssjóður, auðmenn né bankar,“ rifjar
Egill upp. Hann brosir. „Menn lögðu upp á eig-
in vegum og þegar við ferðuðumst um Norð-
urlöndin og Evrópu í kringum Þursabitsplöt-
una var víxill sleginn fyrir sendiferðabíl.“
Tómas samsinnir þessu.
„Ég, Þórður (Árnason gítarleikari) og Ásgeir
(Óskarsson trymbill) vorum mikið að vinna með
öðrum fram að Þursabitsplötunni. Þegar við
fórum að vinna Þursabit var hreinlega ákveðið
að leggja öllum verkefnum sem gáfu okkur
aur,“ heldur Tómas áfram. „Lifibrauðið í heilt
ár var þessi litla innkoma sem við höfðum af
spiliríi.“
Þursabit var önnur plata sveitarinnar og kom
út 1979. Sú fyrsta, Hinn íslenzki Þursaflokkur
kom út 1978. Á hljómleikum kom út 1980 og síð-
asta plata sveitarinnar, Gæti eins verið, 1982.
Egill, Þórður, Ásgeir og Tómas voru kjarni
Þursanna en í upphafi var Rúnar Vilbergsson
fagottleikari með og þeir Karl J. Sighvatsson og
Lárus Grímsson lögðu hönd á plóg síðar á ferl-
inum. Þursar störfuðu hratt og vel á meðan þeir
lifðu.
„Ég held að pródúktífitetið hafi verið miklu
meira en eðlilegt getur talist,“ segir Egill. „Ég
veit það ekki … kannski var alltof lítið slegið af
svona eftir á að hyggja. Strax um haustið ’78,
árið sem fyrsta platan kemur út, erum við
komnir með upplegg á næstu plötu og rúmlega
það.“
Þeir félagar segja að hópurinn hafi smollið
vel saman og sköpunarþrótturinn var mikill.
Efnið flæddi úr meðlimum, steinninn var slíp-
aður frá morgni til kvölds eins og Egill kemst
að orði.
„Það má örugglega segja að hljómsveitin hafi
orðið til vegna ákveðinnar þarfar,“ segir Tóm-
as. „Eins og áður segir vorum ég, Geiri og Þórð-
ur í mjög mikilli vinnu fyrir aðra og ég bjó hálf-
partinn úti í Hljóðrita í um tvö ár. Maður var
orðinn hálfleiður og því allt annað að koma inn í
þetta batterí. Það var Egill sem sló upp-
runalega á þráðinn til okkar og þetta var í upp-
hafi einslags tilraun. Við prófuðum þetta á
nokkrum æfingum haustið ’77.“
Egill hafði stuttu áður sagt sig úr Spilverki
þjóðanna og Stuðmenn lágu í kör. Að gera þess-
um íslenska arfi skil hafði verið nokkuð lengi í
farvatninu hjá honum en hann vissi ekki ná-
kvæmlega hvernig hann ætlaði að fara að því.
„Savannatríóið og Þrjú á palli höfðu gert
þetta með ákveðnum formerkjum en mig lang-
aði til að gera þetta á annan veg. Við áttum eng-
ar fyrirmyndir að þessu, þó að auðvelt sé að sjá
Við vorum ekki að keppa v
Harkið „Þórður keypti tvo fimmtíu kílóa kartöflupoka, frekar en einn, til að eiga örugglega eitthvað í soðið einn veturinn,“ segir Egill og Tóm-
as bætir við að reglubundið hafi þeir félagar farið heim til Þórðar í fátækrakássu.
HINN íslenski Þursaflokkur er hiklaust ein
frambærilegasta rokksveit Íslandssögunnar
og upphaflegar tilraunir hennar með sam-
slátt rokks og íslenskrar alþýðutónlistar með
tilkomumeiri afrekum hérlendrar dæg-
urtónlistar. Þursarnir snúa aftur hinn 23.
febrúar næstkomandi og halda hljómleika í
Laugardalshöllinni ásamt Caputhópnum og
um líkt leyti verða allar plötur Þursa endur-
útgefnar í glæsilegum safnkassa sem inni-
heldur að auki sextán áður óútgefin lög. Les-
bók tók tvo Þursa, þá Egil Ólafsson og Tómas
Tómasson tali vegna þessa.
Þursaflokkurinn Á tónleikum í Laugardalshöll þriðjudaginn 12. júní 1979. Ljósin í bænum komu fram á sömu tónleikum.