Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.2008, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.2008, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2008 7 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Gæðasveitin Guillemots fráLundúnum hefur tilkynnt um nýja breiðskífu. Red, sem er önnur plata sveitar- innar, kemur út í endaðan mars. Kemur platan í kjölfar hinnar lofuðu Through the Window- pane sem hafn- aði ofarlega á mörgum árslistanum fyrir árið 2006. Platan nýja kemur út í Bretlandi fyrst um sinn en út- gáfa í Bandaríkjunum verður ekki fyrr en í haust. Fyrsta smáskífan, „Get Over It“ kemur út 17. mars.    Dennis Wilson var sá eini úrBeach Boys sem kunni brim- brettalistina upp á hár og er líka sá eini sem sendi frá sér sólóplötu sem eitthvað þykir spunnið í (það má svo endalaust deila um það hvort ein frægasta „týnda“ plata rokksög- unnar, Smile, sem kom loksins út 2004, sé Beach Boys- plata eða sóló- plata Brians Wilsons, en þannig endaði verkefnið). Fyrsta og síð- asta sólóplata Dennis Wilsons, Pacific Ocean Blue, kom út árið 1977 og seldist ekkert sérstaklega vel né fékk hún vinsamlega um- mæli á sínum tíma. Í gegnum árin hefur hún þó öðlast költstöðu og þykir í dag vera hinn merkilegasti gripur, og kannski að sú staðreynd að Wilson lést sex árum síðar hafi hjálpað nokkuð upp á það. Enn betra fyrir svona þróun er að á hillunum rykfalla óútgefin lög fyrir aðra breiðskífu, Bamboo, en hún var tekin upp á árunum ’77 til ’79 en kom aldrei út. Pacific Ocean Blue kemur nú út í sérstakri viðhafnarútgáfu hinn 13. maí, svona rétt áður en sum- arið brestur á. Platan kom út á geisladiski árið 1991 en hann varð fljótlega uppurinn. Platan hefur verið ófáanleg síðan og hefur hinn sjaldgæfi geisladiskur selst á yfir 20.000 krónur íslenskar. Viðhafn- arútgáfan verður tvöföld, á fyrri diskinum verður upprunalega plat- an en á þeim síðari verða aukalög. Þá kemur hún einnig út sem vín- ylplata. Pacific Ocean Blue var fyrsta sólóplatan sem kom frá meðlimi úr Beach Boys en félagar Wilsons úr sveitinni, frændi hans Mike Love og bróðir hans, Carl Wilson, hjálpuðu til við plötugerð- ina. Dennis Wilson drukknaði hinn 28. desember 1983, en hafði barist við fíkniefnadjöfulinn í nokkur ár.    Hin síðskeggjaða sveit MyMorning Jacket gaf síðast út plötu árið 2005, öndvegisgripinn Z. Nafn er nú komið á næsta grip, og mun hann kallast Evil Urges. Ekkert fleira liggur fyrir annað en að útgáfudag- urinn er 10. júní og ein fréttaveitan hafði á orði að hljómsveit hlyti að vera búin að „meika“ það þegar það eitt að plötuheitið lægi fyrir þætti frétt- næmt. Áðurnefnd Z þótti vera gríðarlegt framfarastökk fyrir sveitina og rokkið, sem hefur verið undir miklum áhrifum frá suð- urríkjarokkinu svokallaða, var tog- að og teygt á nýstárlega lund en upptökustjórnandi var John Leckie (Stone Roses). Hún er því all- nokkur, spennan fyrir þessu næsta útspili, en þeir óþolinmóðustu voru róaðir niður fyrir tveimur árum er tónleikaplatan/mynddiskurinn Okonokos kom út. TÓNLIST Guillemots Dennis Wilson My Morning Jacket Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Fáir tónlistarmenn njóta jafnmikillarhópdýrkunar eða költstöðu og breskitónlistarmaðurinn Nick Drake. Hannféll ungur í valinn, nánast fyrir rælni vilja sumir meina – banameinið er talið vera misskilningur við lyfjainntöku en Drake þjáðist af fremur illvígu þunglyndi. Aðrir eru þó á því að um hreint og klárt sjálfsmorð hafi verið að ræða. Í öllu falli var fráfall Drake mikill harm- dauði, hvort heldur fjölskyldu eða tónlistar- áhugamönnum en stöðugt bætist í aðdáenda- hópinn, enda tónlistin jafnáhrifarík nú og þá. Þær sterku og stingandi tilfinningar sem liggja til grundvallar því verki sem hér er til umfjöll- unar eru jafnviðeigandi í dag og fyrir rúmum þrjátíu árum. Breiðskífur Nick Drake urðu þrjár, Fives Leaves Left (1969), Bryter Layter (1970) og Pink Moon (1972). Allt eru þetta framúrskar- andi plötur en það verður að segjast að tvær þær fyrstu komast ekki nálægt þeirri síðustu sem er fegurðin holdi klædd, hrein og tær. Á fyrstu plötunum var hefðbundinni hljóm- sveitaskipan stillt fram auk strengja, blásturs og þvíumlíks og fallegar melódíur Drake unnar til og útsettar. Á Pink Moon, sem var tekin upp í mikilli sálarangist, standa lögin hins vegar berstrípuð og nakin, það eina sem hlustandinn heyrir er gítar og hvíslkennd rödd Drake (og smávegis píanó í titillaginu). Lögin eru bein- skeytt og sársaukafull, nálægðin við söngva- skáldið svo mikil að maður lítur hálfpartinn undan þegar hlustað er. Á innan við hálftíma, í gegnum ellefu lög, hellir Drake stanslaust úr hjartanu og þó að smíðarnar séu æði drunga- legar eru þær um leið vonbjartar, eins ein- kennilega og það kann að hljóma. Dómsdagsára hvílir engu að síður yfir öllu, líkt og höfund- urinn sé sannarlega kominn að enda vegarins. Og trúðu mér, þú þarft ekki nema eina hlustun til að skilja hvað ég er að fara með öllum þess- um gífuryrðum. Sagan af því hvernig Drake tók plötuna upp er nokkurs konar nútíma goðsaga. Hún var tek- in upp á tveimur dögum, í tveimur tveggja tíma lotum sem fram fóru í kringum miðnættið. Drake, sem var ansi þungur á þessum tíma, mælti vart orð frá munni. Hummaði og jáaði og leit varla upp frá gítarnum. Upptökumaðurinn, John Wood, var einn af þeim fáu sem hinn of- urhlédrægi Drake treysti sem vini en Wood taldi eðlilega að Drake hefði verið að rúlla lög- um og lagahugmyndum inn á band í flýti, sem svo yrði unnið meira í síðar. Hann varð því að vonum hissa er Drake lagði áherslu á að svona skyldi platan standa. Pink Moon er tíður gestur í greinum og list- um sem fjalla um bestu plötur rokksögunnar og ekki að ósekju. Um er að ræða algjöra skyldu- hlustun fyrir alla þá sem hafa vott af áhuga á dægurtónlist, og þá breytir engu hvaða geira eða undirstefnu þeir telja sitt heimaland. Fölur máni POPPKLASSÍK Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Þ AÐ var fyrir löngu orðið tímabært að hin óhjákvæmilega safnskífa Cardigans kæmi út. Bandið er núna búið að vera að í sextán ár og nýtur það mikilla vinsælda að útspil sem þetta er réttlætanlegt. Síðustu tvær plötur hafa reyndar gengið svona og svona í kaupendur og kannski er verið að kreista síðustu dropana úr sveitinni, án þess þó að eitthvað hafi verið tilkynnt um slíkt. Sveitin var stofnsett árið 1992 í Jönköping en flutti svo fljótlega til Malmö. Peter Svens- son og Magnus Sveningsson voru þungarokk- arar en voru orðnir áhugasamir um að setja saman popptónlist, og melódíuinnsæi þeirra ásamt tilraunastarfsemi átti eftir að leggja grunninn að farsæld Cardigans en þeir félagar hafa átt fremur erfitt með að halda sig við vinningsformúluna, þá er hún hefur fundist, eitthvað sem hefur haldið sveit sem aðdáendum á tánum. Trymbillinn Bengt Lagerberg og Lars Olof Johansson komu fljótlega til liðs við þá Svensson og Sveningsson og einnig söng- konan Nina Persson, sem varð brátt andlit sveitarinnar út á við. Hljómsveitin flutti inn í litla íbúð og fyrsta platan, Emmerdale, leit dagsins ljós árið 1994, plata sem átti eftir að standsetja sveitina vel og rækilega í heima- landinu. Þar er að finna lagið „Sick & Tired“, snúið og skælt skrýtipopp sem vakti mikla at- hygli hjá bresku tónlistarblöðunum Melody Maker og NME. Mikil athafnasemi einkenndi þessi fyrstu ár sveitarinnar en platan Life kom út strax árið 1995 og sló nokkurn veginn í gegn á heimsvísu. Ekki bara að hún gengi vel á Norðurlöndunum, Bretlandi og annars staðar í Evrópu heldur gerði hún og mikla lukku í Jap- an og einnig á hinum risastóra markaði Banda- ríkjanna og var það fyrir tilstilli lagsins „Lo- vefool“ sem heyra mátti í mynd Baz Luhrman, Rómeó og Júlía sem sportaði Leonardo DiCap- rio og Claire Danes í burðarrullum. First Band On The Moon kom svo út 1996 og þá var mikið rætt um sænsku nýbylgjuna í poppi; og talað um hina ómótstæðilegu blöndu af sjöunda ára- tugs poppi og indírokki sem hljómaði eitthvað svo fullkomlega eðlilega í meðförum Cardigans. Gran Turismo, út og þar sýndi sveitin á sér dekkri hliðar en áður, platan var eins og eft- irköst af hinni miklu keyrslu sem hafði staðið yfir í sex ár. Lögin „My Favourite Game“ og „Erase/Rewind“ urðu vinsæl en hið síð- arnefnda er nýlega komið út sem niðurhleðsla í Svíþjóð, endurhljóðblandað af Kleerup. Eftir Gran Turismo lagðist sveitin í híði og meðlimir sinntu ýmsum hliðar- og sólóverkefnum. Car- digans sneru svo aftur árið 2003 með plötunni Long Gone Before Daylight. Prýðisplata sem gekk þó ekki vel í aðdáendur, en á plötunni er tekin sæmilegasta u-beygja og rokk áttunda áratugarins að hætti Fleetwood Mac ásamt hippískri kertaljósamúsík var umfaðmað. Til sönnunar nægði að virða fyrir sér plötu- umslagið og strítt skegg lagahöfundarins Peter Svensson. Þá var Persson orðin dökkhærð, en hafði fram að því verið eins konar kjörmynd sænsku ljóskunnar. Tveimur árum síðar kom svo platan Super Extra Gravity út, en á henni leitaði sveitin aftur í brunn þess popps sem hafði markað henni nafn tíu árum fyrr. Graf- arþögn ríkir um næstu skref sveitarinnar en Persson er um þessar mundir að hljóðrita sóló- plötu númer tvö, sem hún gefur út undir lista- mannsheitinu A Camp (sú fyrsta kom út árið 2001). Safnplatan kemur út núna eftir helgi en fyrir lengra komna er vert að geta þess að platan kemur einnig út í takmörkuðu upplagi sem tvöfaldur diskur, og þá með tuttugu og fjórum sjaldheyrðum lögum. Cardigans gera upp Sænska sveitin The Cardigans var í fararbroddi nýsköpunarinnar sem átti sér stað í sænsku poppi um miðbik tíunda áratugarins. Ferskur hljómur hennar og meðreiðarsveita eins og Ray Wonder og Eggstone vakti margan poppáhuga- manninn af værum blundi og náði höggbylgjan langt út fyrir Norðurlöndin. Cardigans gerir nú upp fjórtán ára litskrúðugan feril á sinni fyrstu safnplötu sem ber hinn nýstárlega titil Best of. Cardigans Hljómsveitin er talin meðal allra bestu hljómsveita Svía, aðeins Abba þykir slá þeim við.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.