Lesbók Morgunblaðsins - 16.02.2008, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 16.02.2008, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2008 3 lesbók BERLIN, GERMANY DANCEWORKS berlin 1 + 2 March Contact Andy Arndt laban@andyarndt.com HELSINKI, FINLAND Teatterikorkeakoulu 15 + 16 March Contact Jukka Tarvainen jukka.tarvainen@teak.fi LONDON, UK 8 April 10 April 11 April Contact Maggie Kelly m.kelly@laban.org Programmes offered at Laban which fall within the framework for higher education qualifications in the UK are validated by City University, to whom Laban is responsible for ensuring the quality and academic standards of its undergraduate and postgraduate provision. Laban is incorporated by Trinity Laban. Registered Charity 309998. Supported by Arts Council England with National Lottery funds. Design Laban 2008 Photo Martin Jordan and Merlin Hendy. CREEKSIDE LONDON SE8 3DZ UK T +44 (0)20 8691 8600 INFO@LABAN.ORG WWW.LABAN.ORG AUDITIONS AND WORKSHOPS BA HONOURS DANCE THEATRE ONE YEAR PROGRAMMES REYKJAVIK, ICELAND 8 + 9 MARCH 2008 Contact Signý Stefánsdóttir Klassíski Listdansskólinn, Grensásvegur 14 108 Reykjavik T 00 354 694 1222 E signys@ru.is Fast track specialist training also available for dancers, teachers, notators, choreographers and community artists. Contact the administrator at your nearest venue, to join a workshop and find out more. Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is V erð á hlutabréfum fellur, fast- eignamarkaðurinn gírar niður, vextir eru í hæstu hæðum, olían hækkar enn og áhrifamenn í at- vinnulífinu segjast ekki vita hvað framtíðin beri í skauti sér. Eru í besta falli svolítið svartsýnir. Talað er um leiðréttingu eftir þensluna og að menn voni að skellurinn verði ekki þungur. Einhvernveg- inn þannig er myndin af íslensku efnahagslífi í upphafi ársins 2008. Síðustu árin hefur samfélagið verið á fleygi- ferð – í upphafinni óvissuferð sem velmegunin hefur knúið áfram. Erlent vinnuafl hefur streymt til landsins, einkaneyslan hefur náð áður óþekktum hæðum, íslensk fyrirtæki hafa haslað sér völl úti í hinum stóra heimi og sumir hafa grætt ótæpilega á þessari þeysireið. Menning og listir hafa húkkað sér far og notið góðs af velgengni fyrirtækja og einstaklinga; svokölluðum styrktaraðilum hefur tvímæla- laust fjölgað og styrktarsjóðir hafa sprottið upp og veita fé til svokallaðra góðra málefna; líknarmála, íþrótta og lista. En hvað gerist nú? Dregur ekki úr fjárstreyminu þegar harðnar í ári hjá fjármagnseigendum? Eru styrkir of mikilvægur þáttur í ímyndarsköpun til að skrúfa fyrir þá? Er það orðin ástríða þeirra sem stjórna að taka þátt í listalífinu; eignast framúrskarandi myndverk eða sjá til þess að tónlist á heimsmælikvaða megi hljóma í tón- leikasölum? Á dögunum var tilkynnt um árvissa út- hlutun starfslauna listamanna frá hinu op- inbera. Listamönnum eru veitt starfslaun og styrkir, með þann tilgang að leiðarljósi að efla listsköpun í landinu. Samkvæmt fréttatilkynn- ingu bárust 514 umsóknir um starfslaun, flest- ar frá einstaklingum en 54 frá leikhópum. 100 listamönnum var úthlutað starfslaunum og 10 leikhópum. Alls var um 1.224 mánaðarlaun að ræða, kr. 234.000 á mánuði. Þetta eru um 286 milljónir króna. Þá fá 28 listamenn heiðurslaun Alþingis, alls um 50 milljónir króna á ári, og í liðinni viku var tilkynnt að atvinnuleikhópar fengju 66 milljónir króna frá leiklistarráði. Að vanda risu ýmsir upp á afturlappirnar þegar starfslaunin voru tilkynnt og mótmæltu því að hið opinbera væri að styðja við listalífið. „Þetta er mismunun sem á ekki rétt á sér á 21. öldinni því að ríkisrekin list er list á villigötum og þjóðfélaginu (og sérstaklega listamanninum sjálfum auðvitað) til háborinnar skammar,“ skrifar einn nafnlaus bloggari. Hann bætir svo við: „Skammist ykkar að fara svona með al- mannafé.“ „Núverandi fyrirkomulag er nið- urlægjandi fyrir listamennina sjálfa,“ skrifar annar og sumir vilja láta listamenn vera alfarið háða markaðslögmálum; „Þeir sem eru svo lánsamir að finnast þeir hafa listræna hæfi- leika, að því gefnu að fólki almennt finnist það líka, ættu ekki að eiga í vandræðum með að sjá sjálfum sér farboða. Nú ef ekki, þá finnst mér réttast að þeir fengju sér aðra vinnu,“ skrifar María Guðmundsdóttir. Svo eru enn aðrir sem benda á að starfslaun xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx Breyting Síðustu ár hefur verið auðveldara að afla stuðnings við menningarverkefni. „Í dag heyrast allt aðrar tölur,“ segir Sigurður Gísli Pálmason. Í fyrra söfnuðust 27 milljónir króna frá einkaaðilum til að styrkja Steingrím Eyfjörð til farar á Feneyjartvíæringinn. Íslenskt menningarlíf þykir þróttmikið og er mikilvægur þáttur í ímynd þjóðarinnar. Kraftinn í menningunni á síðustu árum má að einhverju leyti þakka auknum stuðningi einkageirans við menninguna, þar sem stjórnendur fyrirtækja hafa sýnt henni auk- inn áhuga. Samstarf við skapandi stéttir er jákvætt fyrir fyrirtækin. En hvað gerist nú? Græða allir á menningunni?  Stuðningur fyrirtækja við menningarlífið hefur stóraukist á síðustu árum  Listamenn fjármagna list sína að miklu leyti sjálf- ir  Fyrirtækin skapa sér jákvæða ímynd með samstarfi við menningarstofnanir  Er að draga aftur úr fjármögnun fyrirtækja?

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.