Lesbók Morgunblaðsins - 16.02.2008, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 16.02.2008, Side 4
til listamanna, sem faglega skipuð nefnd hefur talið hæfa til að hljóta þau út frá listrænum forsendum, geri þeim kleift að vinna frjálst og óháð að því að skapa list sem ekki þarf að vera háð sölutölum. Vissulega er hægt að telja upp langan lista fólks sem hefur haft gríðarleg áhrif á menningarsöguna, þótt það hafi ekki náð að lifa sómasamlegu lífi af listinni. „Við getum lært það af sögunni að það sem selst best þessa og hina stundina er kannski ekki alltaf það sem lifir af, kemst inn í listasög- una sem merkileg list og gleður mannkynið kynslóð eftir kynslóð, öld eftir öld,“ skrifar Sonja B. Jónsdóttir í einni netdeilunni um starfslaunin. „Starfslaunin eru undirstaða fagurbóka- útgáfunnar,“ segir Kristján B. Jónasson, for- maður Félags bókaútgefenda. „Fagurbók- menntir væru stórum fátækari ef þeirra nyti ekki við.“ Opinber starfslaun gera metnaðarfullum listamönnum fært að einbeita sér að sinni köll- un og stuðla um leið að öflugu og framsæknu menningarlífi; er það ekki nokkuð sem gerir Ísland lífvænlegra og skapar því sérstöðu? „Öflugt menningarlíf gerir gott samfélag enn betra,“ segir Ágúst Einarsson, rektor háskól- ans á Bifröst. Hann hefur reiknað dæmið í bók sinni Hagræn áhrif tónlistar og segir það fé sem hið opinbera veitir til listsköpunar hér á landi skila sér margfalt til baka til samfélags- ins. Allir græði. Svo má ekki gleyma því að þúsundir Íslendinga starfa við menninguna. Hundruð milljóna í styrki „Fyrirtækið reynir að láta aðra njóta vel- gengninnar þegar vel gengur,“ segir starfs- maður eins fjármálafyrirtækisins. Þegar rætt er um fjármögnun menningar – og annarra góðra málefna – þá tala allir fyrst um bankana. Og víst er að bankarnir hafa komið afar mynd- arlega að málum á síðustu árum. Til að mynda hafði Menningarsjóður Glitnis 350 milljónir króna til ráðstöfunar á síðustu tveimur árum og veitti á áttunda hundrað styrkja. SPRON er með öflugan styrktarsjóð og hefur um ára- bil lagt menningunni lið, Kaupþing hefur sömuleiðis komið af krafti inn á þetta svið, þótt tölur liggi ekki á lausu, og Landsbankinn mun styðja íþróttir, menningu og menntir um fleiri hundruð milljóna á ári. Þar að auki úthlutar Minningarsjóður Margrétar Björgólfsdóttur (dóttur Björgólfs Guðmundssonar) nærri 100 milljónum á ári. Þá hafa önnur fjármálafyr- irtæki, í höfuðborginni og út um land ekki legið á liði sínu og styrkt ýmis menningarverkefni í sínu umhverfi. Ótal félög og einstaklingar hafa notið góðs af rausnarlegum styrkjunum, en eins og Ágúst Einarssonar segir, þá „er hægt að gera ótrúlega mikla hluti í menningar- málum, með tiltölulega litlum peningum.“ Þá er ónefndur fjöldi fyrirtækja og ein- staklinga sem hafa verið að hasla sér völl sem velunnarar menningarinnar. Baugur er nýbú- inn að úthluta nær 36 milljónum króna í styrkjum, tónlistarsjóðurinn Kraumur mun útdeila 50 milljónum á næstu árum, Icelandair styrkir Airwaves-tónlistarhátíðina og flytur tónlistarfólk milli landa, Listasjóður Dungals veitti sína árlegu styrki til ungra myndlist- armanna á dögunum, Listasjóður Pennans sömuleiðis, einstaklingar styrkja verðlaun í listum, verk margra samtímalistamanna hafa rokið upp í verði og seljast vel, og ýmsir lista- menn og hópar hafa tamið sér þau vinnubrögð á síðustu árum að leita eftir fjármagni til verk- efna hjá fyrirtækjum og einkaaðilum. Svo má ekki gleyma hugsjónafólki, sem sumt hvert veitir í kyrrþey háar upphæðir í styrki, án þess að vera nokkursstaðar getið. Sigurður Gísli Pálmason var formaður fjáröflunarnefndar þegar Reykjavík var ein menningarborga Evr- ópu árið 2000 og hann segir þetta umhverfi hafa breyst hratt. „Þá þótti mjög bratt að við lögðum upp með að máttarstólpar verkefnisins legðu fram fimm milljónir króna. Mönnum var boðið að dreifa greiðslunni á tvö ár. Næsti flokkur þar fyrir neðan voru þrjár milljónir. Það átti sér ekki fordæmi að fara fram á styrki af þessu tagi – sumir misstu hökuna niður á bringu við að heyra upphæðina. Í dag heyrast allt aðrar tölur. Í fyrra held ég að hafi, til að mynda, safnast 27 milljónir frá einkaaðilum til að styrkja Steingrím Eyfjörð til farar á Feneyjatvíæringinn,“ segir Sigurður Gísli. Þórunn Sigurðardóttir er listrænn stjórn- andi Listahátíðar í Reykjavík. Hún segir að á hátíðinni 2007 hafi verið slegið met hvað varð- ar aðkomu fyrirtækja. Kostnaðurinn við hátíð- ina nam þá um 150 milljónum og þar af komu tæpar 40 milljónir frá stuðningsaðilum. Tekjur af miðasölu voru svo næstum annað eins. Þór- unn segir að í hinu góða efnahagsástandi síð- ustu ára, hafi reynst mun auðveldara að sækja fjármagn til einkageirans en áður. Köllun listafólksins Þegar rætt er um kostun menningarinnar, má ekki gleyma listafólkinu sjálfu, sem hundr- uðum saman knýr listalífið áfram af ástríðu- fullum metnaði – af köllun. Og við listneyt- endur njótum þessa hugsjónastarfs. Út um allt land eru tónlistarmenn að æfa, myndlist- armenn að mála, teikna, taka myndir, kvik- myndagerðarfólk að undirbúa metnaðarfull verkefni, rithöfundar og ljóðskáld að semja – þetta er langur listi. Í flestum tilvikum er lista- fólkið að borga með sér; það sinnir ýmsum störfum og greiðir sína skatta og skyldur til samfélagsins. Óhætt er að fullyrða að stór hluti þeirra, og fjölskyldna þeirra færi fórnir til að listagyðjunni verði þjónað. Það eru nefnilega ekki stórir hópar ís- lenskra listamanna sem fá laun fyrir störf sín við menninguna. Hljóðfæraleikarar Sinfón- íuhljómsveitar Íslands eru á föstum launum, flestir aðrir hljóðfæraleikarar eru í lausa- mennsku. og ná endum saman með kennslu og allrahanda hliðarstörfum. Hluti rithöfunda og myndlistarmanna er heppinn og fær starfs- laun, þrjá til sex mánuði kannski, sumir eitt ár, örfáir tvö eða þrjú. Svo líða kannski önnur tvö eða þrjú ár og þá fá viðkomandi aftur starfs- laun. Óhætt er að fullyrða að starfslaunatím- ann grípi listamenn höndum tveim, og einbeiti sér að sköpuninni sem aldrei fyrr. Þess á milli vinna þeir aðra vinnu en reyna að vinna að sköpuninni á kvöldin og um helgar. Og þess njótum við og þessu má ekki gleyma. Hvert skyldi framlag listamannanna vera, skiptir það kannski milljörðum? Þegar myndlistarmenn setja til að mynda upp sýningar í opinberum söfnum, eru dæmi um að þeir fá pening upp í efniskostnað, 60 til 200.000 krónur eru algengar tölur. Svo er margra mánaða vinna að baki verkunum. Það er upp á von og óvon hvort þau seljist. Eiginkona myndlistarmanns sagði í vikunni                                   !" ""# $ ! %& & &   '%  $    (                       4 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ lesbók Þeir sem skipuleggja listrænar uppákomur á borð við tónleika, kvikmyndahátíðir ogmyndlistarsýningar leita oft víða eftir stuðningi. Afar mismunandi er hvaða kröfurþeir sem styrkja viðburði gera á móti. Sumir leggja fram fé og láta framkvæmdarað- ilum eftir að ráðstafa því eftir þörfum. Algengara er þó að fyrirtæki skilyrði styrkinn á ein- hvern hátt; fái miða á viðburði eins og tónleika eða nýti sér sýningarsali í uppákomur tengd- ar sínum rekstri. Þá fá styrktaraðilar að tengja nafn sitt listinni, eins og eðlilegt má telja, meðan það er innan eðlilegra marka og skyggir ekki á listina. Stundum er um vöruskipti að ræða en peningar skipta ekki um hendur; það þarf að útvega farartæki, veitingar á samkomur, gistingu og auglýsingar. „Auðvitað er sama hvaðan gott kemur, allir peningar hjálpa til,“ segir einn viðmælandi en viðurkennir að það sé algengara en hitt, að féð fjármagni umgjörðina, kynningu og húsnæði, en listafólkið og skipuleggjendur greiði í raun með sér. Þá velta sumir fyrir sér hvort þeir sem styðja listirnar fái á stundum of mikið fyrir of lítið. Til að mynda þekkjast dæmi um það að fyrirtæki sem styðja uppákomur myndlistarmanna fái í staðinn verk eftir listamennina. Eigi við þá viðskipti, sem er í sjálfu sér hið besta mál, en tengi nafn sitt uppákomunni um leið, án þess að greiða að heitið geti fyrir það aukalega. Fá stuðningsaðilar mikið fyrir lítið?

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.